Morgunblaðið - 29.09.1962, Qupperneq 17
m n n c r n n r 4 ÐIÐ
17
Laugardagur 29. sept. 1962
Ingibjörg Jóhannsdótt'r forstööu-
kona Löngumýri lætur af starfi
hlið, en ein hefur hó lengst bor
ið hita og þunga starfsins með
henni, það er Björg Jóhannes-
þroskazt * kulda :g myrkri, og
því síður mannssálin.
KONA ER að láta af umfangs
miklu ábyrgðarstarfi, það er
Ingibjörg Jóhannsdóttir, for-
stöðukona húsmæðraskólans á
Löngumýri. Ég hef notið þeirrar
ánægju að hafa náin kynni af
Ihenni og störfum hennar á liðn
um áratugum. Tel ég hana tví
mælalaust mikil'hæfustu konu,
sem ég þekki, sökum frábærra
mannkosta og hæfileika á mörg
um sviðum. Persónulega kynnt-
ist ég henni sem stjórnanda og
kennara, þegar hún veitti for-
stöðu húsmæðraskólaaum að
Staðarfelli. iiún vann þann
skóla upp til vegs og virðingar,
svo hann var fullskipaður öll
J>au ár, sem hún starfaði þar,
utan fyrsta veturinn. Þó var
húsakostur og annar aðbúnaður
mun la'kari þar þá en síðar varð,
þegar búið var að staekka skóla
Ihúsið. Ég var við prófin í Staðar
fellsskóla á hverju vori hjá Ingi
björgu. Það var ánægjulegt að
boma á betta fjölmenna heimili.
t»ar ríkti andi gleði og friðar.
Engum dylst, að mikill vandi
og ábyrgð hvílir á þeim, sem á
hverju hausti taka á móti mörg-
um ólíkum unglingum. Ingi-
björg tók á móti stúl'kunum með
Ikærleika og skilningi, var vinur
þeirra og leið'beinandi .leysti
vanda þeirra, eins og bezt verð
ur á kosið, gerði hópinn sam-
stilltan við störf og nám. Sjálf
kenndi forstöðukonan bókleg
fræði. Hún er afburða fræðari
og kennari. Það var ótrúlegt,
hvað nemendur hennar gátu á
einum vetri lært mikið t.d. í
íslenzku, bókmenntasögu og upp
eldisfræði, svo eitthvað sé
nefnt. í handavinnu og hússtjórn
lærðu stúlkurnar svo mikið og
margt, að enginn hefði trúað
því, sem ekki sá handavinnuaf ■
böstin sjálfur. Þar var tíminn
notaður vel, iðjusemi og staifs
gleði fór saman undir leiðsögn
og stjóm forstöðukonu og kenn
ara.
Stúlkurnar kvöddu skólann
sinn með innilegu þakklæti og
hlýhug. Áreiðanlega eru það
dýrmætustu laun kennara að
eiga vináttu og traust nemenda
sinna.
Hugur Ingibjargar Jóhanns-
dóttur 'ndi norður á bóginn,
hún þráði að láta sýslu sína og
sveit njóta starfskrafta sinna.
Þess vegna flutti hún til Skaga-
fjarðar og stofnaði húsmæðra
tíkóla á föðurleifð sinni, Löngu
mýri. Með ótrúlegum dugnaði og
ódrepar.di viljaþreki tókst henni
á * um áru.n að byggja skóla
hús, leggja heim, um langan
veg, hei'.. og kalt vatn, legg;
veg og fegra og prýða utan húss
með blómum og trjágróðri. Ilún
er mikil garðyrkjukona.
Þarna hefur hún starfað síðari
árin af fórnfýsi og skyldurækni,
enda skóli hennar alla tíð full-
skipaður.
Margar ágætar kennslukonur
hefur Lngibjörg haft sér við
dóttir. Hún hefur verið í mörg
ár, og er enn, saumakennari.
Björg er afburða dugleg og fjöl
hæf í starfi sínu. Það sýna mun-
irnir, sem nemendurnir hafa
haft með sér úr skólanum, en
góðu áhrifin, sem hún hefur haft
á skólalífið allt, verða ekki met
in eða vegin að verðleikum. Hún
er góð og göfug kona, enda elsk
uð og virt af öllum nemendum
sínum og og öSrum, sem hana
þekkja. Ég óska þess, að skól-
inn á Löngumýri megi enn um
árabil njóta heilbrigðrar glað-
værðar hennar og starfskrafta.
Aldrei hef ég heyrt Ingibjörgu
barma sér yfir lágu kaupi, þó
hefur hún oft borið minna úr
býtum en aðrir fyrir hliðstæð
störf. Hún hefur unnið fyrir hug
sjónina, þá göfugu hugsjón að
fræða og leiðbeina þeim, sem
henni hefur verið trúað fyrir.
Það er „móðins“ að dæma
unga fólkið fyrir óreglu og aðra
miður góða framkomu. Það hef-
ur Ingibjörg aldrei gert, bún
hefur komið auga á gullið í sál-
um nemenda sinna og leitazt við
að fága það og auka.
Ég hef, í löngu starfi og um-
gengni við börn og unglinga,
sannfærzt um, að miklu meira
af góðu en illu býr í hverri barns
sál. Poreldrar, kennarar og aðr-
ir, sem móta börnin, þurfa að
hafa vit og vilja til að þroska
Guðdómseðlið í sálum þeirra
ungu, það er ekki gert með ávít
um og hörðum dómum, heldur
meo -ærleika og umbi. "arlyndi
og kilningi á mannlegu eðli.
Ekkert blóm getur lifað og
Þ E I M fækkar nú óðum gömlu
Breiðfirðingunum, sem gerðu
garðinn frægan um og eftir síð-
ustu aldamót, þegar Flateyjar-
hreppur var talinn blómlegust
byggð hér á landi. Var það að
sjálfsögðu fyrst og fremst að
þakka því manndómsríka fólki,
sem þar átti heima.
í dag verður til moldar borinn
einn þessara manna, Snæbjörn
G. Jónsson.
Snæbjörn var fæddur í Sauð-
eyjum á Breiðafirði 15. júlí
1893. Foreldrar hans voru Jón
Ormsson bóndi þar og kona
hans Ingibjörg Jónsdóttir.
Til Reykjavíkur fluttist Snæ-
björn 1918 og stundaði þar hús-
gagnasmíði til æviloka. En hug-
ur hans var þó alltaf öðrum
þræði heima í átthögunum.
1934 gekk Snæbjörn að eiga
eftirlifandi konu sína, Önnu
Friðriksdóttur, hina mætustu
konu. Varð þeim tveggja sona
auðið: Snæbjarnar Þórs og
Stefáns Jóns en auk þess tóku
þau í fóstur Þorvald Valsson.
Snæbjörn var einn af aðal
hvatamönnum um stofnun Breið
firðingafélagsins og vann því
slíkt er hann mátti til hinztu
stundar. Heimili hans og frú
Önnu stóð ævinlega opið Breið-
firðingum. Ótalin eru þau skipti,
Þegar IngibjC*g á Löngu-
mýri tur -ú til baka og hugsar
um starf sitt, veit ég, að hún á
margar yndislegar endurminn-
ingar um þær stundir, sem hún
hefur verið að sá í góðan jarð-
veg. Nemendur' hennar eru
dreifðir um allar byggðir þessa
lands og víðar, þær blessa hana
og þakka frækornin góðu, sem
hún sáði. Þau halda áfram að
vaxa og bera ávöxt.
Ingi'björg Jóhannsdóttir er
mikil trúkona. ',’'r djúpi sálar
hennar hafa .nargar heitar bæn
ir stigic til Guðs, um að skóla-
vera stúlknanna mætti verða
þeim til þroska og andlegrar
uppbyggingar. Nú hefur hún
gefið þjóðkirkjunni skóla sinn
og jörð, hún hefur gefið óska-
barnið sitt þeim aðilja, sem hún
treystir bezt til að láta það
þroskast og dafna. Ég óska kirkj
unni til hamingju með þessa
miklu og góðu gjöf, og veit, að
forráðamenn hennar munu starf
rækja skólann á þann hátt, að
hann verði ótal mörgum til
hamingju og blessunar.
Ég þakka þér, Ingibjörg mín,
ótal margar ógleymanlegar á-
nægjustundir og vináttu alla við
mig og fjölskyldu mína. Ég
vona, að þú eigir enn eftir að
ausa mörgum úr gnægtabrunni
vizku þinnar og lrfsreynslu. Því
starfi þínu er ekki lokið, þótt
þú hvilist í bili. Þú getur með
gleð. og góðri samvizku litið yf-
ir liðinn starfsferil. Á þér sann
ast orð skáldsins: „Þar sem góð
ir menn fara, þar -ru Guðs veg-
er þau hjónin buðu tugum Breið
firðinga heim, að loknum út-
varpsdagskrám, söngferðalögum,
fundarhöldum o.s.frv. er þeim
hjónum fannst vert að þakka
vel unnin störf. Þá tóku þau
hjónin ein að sér að sjó um
þakkir félagsins. Slíkur var höfð
ingsskapur Snæbjarnar og hins
samhenta lífsförunautar hans,
frú Önnu.
Eitt af síðustu verkum Snæ-
bjarnar var að smíða forkunn-
arfagran predikunarstól, sem
hann færði Grafarnesskirkju að
gjöf. Það gerði Snæbjörn meðal
annars í minningu gömlu breið-
firzku sægarpanna. En Grundar
fjörður var ein helzta lífhöfn
þeirra við Breiðafjörð.
Snæbjörn var gleðimaður
mikill og hagyrtur vel og hrók-
ur alls fagnaðar heima og á
mannamótum, mólsnjall og
drenglyndur.
Það er því mikill söknuður
að honum fyrir Breiðfirðinga-
félagið og meðlimi þess.
En sárastur er þó söknuðurinn
fyrid ástvini hans, eiginkonu,
syni og fósturson.
Félagarnir í Breiðfirðingafé-
laginu votta þeim dýpstu sarpúð
í harmi þeirra.
Breiðfirðingur.
Sendisveinn
Röskur piltur óskast til sendiferða,
sem fyrst.
Vélsmiðjan Héðinn h.f.
Sesselja Konráðsaóttir.
Snæbjörn C. Jóns-
son irá Sau&eyjum
Gísli
hóndi
göfugir foreldrar gáfu þeim með
sér út í lífið.
Við Gísli vorum jafn gamlir,
á sama árinu, hann var aðeins
nokkrum mánuðum eldri. Vin-
átta okkar varð til á unglingsár-
unum þegar Gísli var að byrja
búskap, en eg verzlunarmaður í
Hólminum. Þá var Gísli til sjós
á vorin, á skútum hjá okkur, frá
páskum til sláttarbyrjunar, en þá
kölluðu búsannirnar hann heim
að Ölkeldu. — Ég man vel eftir
því þegar hann, óharðnaður ungl-
ingur, kom gangandi norður yfir
Kerlingarskarð, oft í erfiðri færð
og illviðrum, með pjönkur sínar
á bakinu, til þess að fara á skútu
og afla sér fjár. — Þá var hann
að vísu ekki hár í lofti, en hlað-
Þórbarson
— Minning
F. 12. ágúst 18860 D. 20. sept. 1962
ÞEGAR okkur berast fregnir um
andlát gamalla vina, sem við höf-
um reynt að tryggðarvináttu um
hálfrar aldar skeið, fer ekki hjá
því, að sorg og söknuður grípi
hug okkar. Svona var þetta um
mig þegar fregnin um andlát
Gísla á Ölkeldu barst mér. — Ég
vil nú minnast þessa góða vinar
míns nokkrum orðum.
Foreldrar Gísla voru Þórður
Gíslason bóndi á Háagarði í Stað
arsveit og kona hans Ólöf Jóns-
dóttir. Hann missti föður sinn*
þegar hann var 6 ára gamall, og
ólst síðan upp með móður sinni,
hinni ágætusu konu, á ýmsum
stöðum í Staðarsveit.
Þegar Gísli var orðinn 16 ára
gamall, árið 1903, fékk hann sér
Ölkeldu byggða, en jörðin var
ein af kirkjujörðum Staðastaðar
og sýndi presturinn þar hinum
unga manni því mikið traust, en
hann hefur eflaust séð hvað í hon
um bjó. — Á Ölkeldu hóf Gísli
búskap með móður sinni, sem
hann bar einstaka umhyggju
fyrir-. Aðalhvötin hjá Gísla til að
búa svona ungur var, að skapa
móður sinm heimili og sama-
stað, en hún hefði verið á hálf-
gerðum hrakningum með dreng-
inn sinn. — Þegar ég var ungur
var mér sagt, að þeir piltar, sem
væru góðir við og hefðu um-
hyggju fyrir mæðrum sínum,
yrðu fyrirmyndar eiginmenn,
nærgætnir og hugulsamir við
konur sínar þegar þeir giftust,
þetta er víst heilagur sannleikur
og sannaðist á vini minum Gísla
á Ölkeldu.
Gísli bjó með móður sinni í 12
ár, en árið 1915 giftist hann Vil-
borgu Kristjánsdóttur frá Hjarð-
arfelli, sem hefur reynzt honum
hinn bezti förunautur á langri
lífstíð. Yfir hjónabandi þeirra
hefur hvílt blessun Guðs, og eiga
þau sjö efnileg börn uppkomin,
sem nú skulu talin: Þórður kenn-
ari og bóndi á Ölkeldu giftur Mar
gréti Jónsdóttur, — Elín gift
Þórði Kárasyni lögregluþjóni í
Reykjavík, — Alexander ókvænt
ur heima á ölkeldu, — Hjörtur
bóndi á Fossi giftur Rannveigu
Jónsdóttur, — Ólöf Fríða gift
Sveini Gunnarssyni bónda í
Hrosshaga í Biskupstungum, —
Guðbjartur, sem nú hefur tekið
við búi á föðurleifð sinni, — og
Lilja gift Marteini Folmer-Niel-
sen í Reykjavík. — Öll eru börn
Gísla og Vilborgar nýtir þjóðfé-
lagsþegnar og bera vott góðs upp-
inn viljastyrk og áhuga fyrir þvi
að bjarga sér. — Honum tókst
líka í lífinu, að vinna sig upp
úr fátækt til góðra efna og álits.
Gísli var jafnvígur á báða aðal-
atvinnuvegi þjóðarinnar. — Hann
var fyrirmyndar bóndi og dugn-
aðar sjómaður Þegar hann hafði
verið nokkur vor háseti á skút-
unum í Stykkishólmi, fór hann
vestur á Ísaíjörð, tók þar fiski-
skipstjórapró.f og varð þar skip-
stjóri um 4 ára bil (1914—18)
hjá Ásgeirsverzlun. Hann aflaði
þar vel og þótti stjórnsamur og
var í miklum metum hjá útgerð-
armanni sínum hinum merka
verzlunarstjóra, Árna Jónssyni.
Loks brá hann sér til Grimsby
seinni hluta vetrar árin 1923—25
og var þar á enskum togurum.
En þó að Gísl-i færi í verið til
að afla sér íjár, var samt hugur
hans ávallt heima á Ölkeldu, og
lét hann aflafé sitt í að kaupa
jörðina, byggja hana upp og
rækta, og þetta tókst honum svo
vel, með aðstoð sona sinna eftir
að þeir komust á legg, að nú er
Ölkelda stórbýli, vel hýst og rækt
að, svo sð vekur aðdáun þeirra,
sem um Staðarsveit fara. — Þeg-
ar Gísli fór að búa á Ölkeldu
árið 1803 voru þar máske 50 hest
burðir af töðu af kargaþýfðu tún
inu, en nú eru þar á annað þús.
hesta töðufall á báðum búun-
um, en á hálfri jörðinni býr
Þórður elzti sonur Gísla. Hafa
þeir feðgar tekið í þjónustu sína
allar tækninýjungar í jarðrækt
jafnskjótt og þær komu til lands-
ins. — Auk mikilla starfa var
Gísli forustumaður í félagsmál-
um sveitar sinnar, m. a. í hrepps-
nefnd í 25 ár og oddviti hennar
í tvo áratugi, einnig var hann
sýslunefndarrnaður jafn lengi,
auk fleiri trúnaðarstarfa. —
Dugnað Gísla og framtakssemi
verðlaunaði orðunefndin með því
að sæma hann Fálkaorðunni.
Gísli á Ölkeldu átti hýjan hug
og viðkvæmt hjarta í barmi, fullt
af samúð til þeirra, sem verr voru
á vegi staddir. Hann gat samt
verið djarfmæltur þegar hann
þóttist reka erindi réttlætisins,
en ávallt sáttfús og mildur þegar
á reyndi. — Ég votta konu hans,
börnum og öðrum aðstandendum
innilegustu samúð mína.
í dag verða hin lúnu bein hans
lögð til hvíldar við hliðina á
móður hans í kirkjugarðinum á
Staðastað.
Við þökkum Guði fyrir líf
þessa góða manns.
eldis og þess veganestis, sem
Oscar Clausen.
Bílstjóri
Iðnaðarfyrirtæki vantar nú þegar ábyggilegan mann
til þess að sjá um útkeyrslu hálfan daginn. Tilboð
merkt: „Útkeyrsla — 3458“ sendist afgr. Mbl. fyrir
3/10 ’62.