Morgunblaðið - 16.08.1963, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.08.1963, Blaðsíða 15
Fostudagvr 16 áerúst. 1963 MORGUNBLAÐIÐ 15 Fædd 10. september 1872. Dáin 8. ágúst 1963. í DAG verður til moldar borin að Skarði í Landsveit Margrét Þórð- ardóttir, en hún andaðist að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík hinn 8. þessa mánað- ar tæplega 91 árs að aldri. Margrét fæddist og ólst upp að Gröf í Hrunamannahreppi í Ár- nessýslu, dóttir hjónanna Þórðar Guðmundssonar og Þóru Jóns- dóttur, og var hin þriðja í ald- ursröð 9 systkina, þeirra er náðu fullorðins aldri. Með Margréti eru nú 5 þessara systkina látin, en 4 lifa enn, öll háöldruð. Vorið 1904 fluttist Margrét aust ur í Landsveit í Rangárvalla- sýslu til systur sinnar, Elísabetar Þórðardóttur, og manns hennar, Finnboga Höskuldssonar, en þau hjón höfðu þá fyrir skömmu reist bú að Skarfanesi þar í sveit. Með an Margrét dvaldist í Skarfanesi, heitbatzt hún ungum og efnileg- um manni, Vilhjálmi Ólafssyni í Hvammi í Landsveit. Frá Skarfa- nesi fluttist Margrét vorið 1909 og reisti bú með Vilhjálmi í Haukadal á Rangárvöllum. Þar bjuggu þau aðeins eitt ár, en fluttust þá að Skarðsseli í Land- sveit vorið 1910 og bjuggú þar síðan í 22 ár við allgóð efni, þó að jorðin væri kostarýr. Vorið 1932 fluttust þau síðan að Krók- túni í sömu sveit og bjuggu þar góðu búi um 14 ára skeið. Þaðan fluttust þau vorið 1946 að Hvammi í sömu sveit, þar sem Vilhjálmur hafði átt bernsku- og æskuheimili. Hvammur er góð bújörð, en aldur og heilsubrestur tók nú að gera þeim Margréti og Vilhjálmi búskapinn óhægan, þótt efnahagsleg afkoma þeirra væri góð. Brugðu þau því búi vor ið 1955 og fluttust til Reykjavík- ur eftir 9 ára búskap í Hvammi. Þegar hér var komið, var Mar- grét algerlega farin að heilsu, var flutt í sjúkradeild Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar og hefur legið þar rúmföst æ síðan. Vilhjálmur hafði enn þolanlega heilsu, fékk heimilisvist hjá góðu fólki í Reykjavík, Valdimar Lár- ussyni verzlunarmanni og konu hans, og hefur lengst af haft störf með höndum, þótt aldur og van- heilsa hafi hamlað nokkuð hin siðari ár. Margrét var kona fríð sýnum, björt yfirlitum, fremur lítil vexti og grönn, hæglát og prúð í fram- komu, ljúf og hlý, þolinmóð og æðrulaus í langvinnum erfiðleik- um og vanheilsu. Litlar kröfur gerði hún til annarra, en miklar til sjálfrar sín og vildi öllum gott gera. Aldrei mun hún hafa mælt styggðaryrði til nokkurs manns sína löngu ævi, og handa öllum átti hún gnægð velvilja. Um bresti annarra ræddi hún aldrei. Lengst af átti Margrét heima á afskekktum stöðum og mun naumast hafa komizt út fyrir byggðarlag sitt áratugum sam- an. En þegar hún kom loks til Reykjavíkur, háöldruð og sjúk, umgekkst hún auðvitað aðeins stofusystur sínar, starfslið elli- heimilisins og þá, er heimsóttu hana, en oft gleymast hinir sjúku í önn dagsins. Margrét lifði því í fásinni mestan hluta ævinnar og kynntist fáum. Þakklát var hún þeim, er heimsóttu hana í sjúkra- stofuna þáu 8 ár, sem hún lá rúm föst og beið. Ef hún mætti nú mæla, mundi hún þakka þeim öll um, en engum eins og manni sín- um og þeim hjónum Sigríði og Ágústi Böðvarssyni og einka- syni þeirra, sem iðulega heim- sóttu hana og önnuðust af frá- bærri alúð, en voru henni þó hvorki skyld né venzhið; enn- fremur mundi hún þakka af al- hug stofusystrum sínum, sem sí- felt sýndu henni góðvild og nær- gætni. Kæra, góða frænka, ég veit með vissu, að allir, sem þekktu þig, þakka þér samveruna af heil um hug og telja sér mikinn ávinn ing að hafa þekkt þig og fengið að verða þér samferða. Friður Guðs veri með þér. Magnús Finnbogason. Þotur um Keflavík í fyrsta sinn í áætlunarflugi PAN AMERICAN hefir ný- lega ákveðið að hefja farþega flug með þotum af gerðinni DC-8 á leiðinni New York — Keflavík — London. Er hér um að ræða fyrsta áætlunar- flug með farþegaþotum um ísland. Áætlunin mpn líta þannig út: Brottför frá New York kl. 10.45 á þriðjudagskvöldi og komið til Keflavíkur kl. 7.45 á miðvikudagsmorgni. Frá Keflavík kl. 8.30, lent í Prest- vík kl. 11.30 og komið til London kl. 1.20 eftir hádegi. Allsstaðar miðað við staðar- tíma. Samdægurs haldið frá London kl. 4 e. h. frá Kefla- vík kl. 6.55 og komið til New York kl. 9.35 sama kvöldið. Hinar risavöxnu DC-8 þot- ur vega fullhlaðnar 143 þús. kg. og geta borið 125 farþega. Meðalflughraði þeirra er um 850 km. á klst. Fyrir bragðið tekur það um hálfa aðra klukkustund að komast til Prestvíkur í Skotlandi, en flugtími til London verður 2% tími. Að skjótast til New Ýork tekur um 5 klst. en fyrir New York búa að heimsækja Reykvíking tekur klukku- stund skemur vegna hagstæð- ari vinda í háloftunuim á aust- urleið yfir Atlantshafið. Fargjöld milli Keflavikur og New York verða 8758— kr. aðra leiðina, en 16.643 — fram og til baka. Yfir vetrar- mánuðina verða svokölluð 21 dags fargjöld allmiklu lægri eða 10.197 kr. fyrir báðar leið ir. Fargjöld milli íslands og Bretlandseyja verða hin sömu og eru með íslenzku flug- félögunum. — B.Þ. Syndið 200 metrana Vestrænir kommún- istaleiðtogar í Moskvu Forystumenn sovézkra komm- únista hafa að undanförnu gert öðrum kommúnistaflokkum grein fyrir ágreiningi sínum við kín- verska kommúnista. Hafa fjöl- margir vestrænir kommúnista- Ieiðtogar komið til Moskvu, þ.á. m. Einar Olgeirsson formaður kommúnistaflokksins hér á Iandi, sem fór utan 24. júlí sJ. Eitt aðalefni funda sovétleið- toganna með hinum vestrænu bandamönnum sínum er það, hvort kallaður skuli saman fund- ur allra kommúnistaflokka heims ins til að fjalla um deilu Rússa og Kínverja. Talið hefur verið, að sovézkir kommúnistar veigri sér við að taka þátt í slíkum fundi, þar sem Kínverjum muni þar gefast færi til að sýna þann stuðning sem þeir njóta innan kommún- istaflokkanna. Sovétleiðtogarnir leggja nú einnig á það áherzlu, að stillt verði til friðár innan þeirra kommúnistaflokka, sem þeim fylgja að málum, en deila þeirra við Kínverja hefur valdið hættu legum klofningi innan þeirra margra. Síðan viðræðum sovézkra og kínverskra kommúnista lauk í Moskvu í s.l. mánuði hafa komm únistaleiðtogar frá Indlandi, Finn landi, Luxemborg, Júgóslavíu, Danmörku, ísrael, Svisslandi og íslandi komið til Moskvu og rætt við fulltrúa miðstjórnar Komm- únistaflokks Sovétríkjanna. Ýmsir aðrir kommúnistaleið- togar hafa verið í sumarleyfi í Sovétríkjunum. Þeirra á meðal eru forystumenn kommúnista- flokkanna í Frakklandi, Ástra- líu og Ceylon. Sovétleiðtogarnir telja ástr- alska flokkinn sér mjög þýðing- armikinn fyrir sig vegna sam- bands hans við aðra kommún- istaflokka í Asiu, en flestir leið- togar flokksins úr hópi mennta- manna hafa þegar lagzt á sveif með Kínverjum. Loks hafa leiðtogar indónes- íska kommúnistaflokksins verið í Moskvu, en ætluðu að halda þaðan til Peking. Arbœjar - Selásblettir! MORGUNBLAÐIÐ óskar eftir að komast í samband við mann eða konu, er tekið gæti við umboðsmennsku fyrir Morgunblaðið í Árbæjar- og Selásblettum. Þeir sem hug hafa á þessu, eru vinsamlegast beðnir að snúa sér til skrifstofu Morgunblaðsins, annað hvort símleiðis eða skriflega. sími 22480. BIFREIÐA- EICENDUR DAGLEGA-IMÝ J AR-Vörur Hjá okkur fáið þér hlutina í bílinn. Handföng Toppastrigi Plastáklæði Þéttikantur Hurðarskrár FERODO bremsuborðar PAYEN Pakkningar Pakkningasett Pakkdósir í flesta bíla. ALLT f RAFKERFIÐ: jMjH Stefnuljós Stefnuljósarofar Platínur Flautur Háspennukefli Straumrofar Þéttar Kveikjulok Startarar Dínamóar Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er. Eflaust eigum við það, sem vantar í bíl yðar, Egill Vilhjálmsson h.f. Laugavegi 118. — Sími 22240.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.