Morgunblaðið - 12.11.1963, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.11.1963, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 12. nóv. 1963 Einstakir dagar mjög heitir í DAG kemur þingið saman að nýju eftir frestinn, sem hinn nýi forsætisráðherra Bretlands, Sir Alec Douglas Home, fékk til þess að verða sér úti um sæti í neðri mál- stofunni. Tekur hann þar sæti sem þingmaður kjör- dæmisins Kinross og West Perthshire, en kosningar fóru þar fram fimmtudaginn 7. nóv. s.l. Úrslit kosninganna urðu þau, að Sir Alec hlaut 9.328 atkvæða meirihluta, fékk 14,147 atkvæði. Frambjóðandi Frjálslyndra hlaut 4,819 at- kvæði, frambjóðandi Verka- mannaflokksins 3,752 atkvæði og frambjóðandi Skozkra Þjóðernissinna 1,801 atkvæði. Nokkur atkvæði féllu í hlut þriggja óháðra frambjóðenda. f kosningunni 1959 hlutu íhaldsmenn 12,000 atkvæða’ meirihluta. En því hafði ver- ið spáð, að fylgi íhaldsflokks- ins hefði svo hrakað, að Sir Alec myndi aðeins fá fáein þúsund atkvæði framyfir and- stæðinga sína. Flestir voru Sir Alec Douglas Home. — Tekur nú sæti í neðri málstof- unni að nýju eftir 12 ár. Persónulegur sigur Sir Alecs Douglas-Home — í kjördæmínu iiinross og Wesl Perlhshire? þó vissir um, að hann myndi bera sigur úr býtum. Úrslit- in eru því talin verulegur persónulegur sigur fyrir hann. ir Stórtap í Luton Á fimmtudaginn fóru einnig fram kosningar í verksmiðju- bænum Luton, sem er um 50 km. norðan við London o£ fóru íhaldsmenn þar mjög halloka, töpuðu um 15% þess fylgis, er þeir áður höfðu og þingsætinu til frambjóðanda Verkamannaflokksins. Er ósigurinn í Luton sagður hinn mesti er íhaldsmenn hafa beð- ið á síðustu tólf árum. Stjórn- málafréttaritarar í London benda á að hann sé því ugg- vænlegri, sem þau kjördæmi eru allmörg í Bretlandi eða allt að 80—90, þar sem fylgi FRAMKVÆMDASTJÓRI Hús- gagnaverzlunar Reykjavíkur, Ósk ar Guðmundsson, boðaði blaða- menn á sinn fund í gær í hús- næði verzlunarinnar, Brautar- holti 2, og skýrði þeim frá fjöi- breyttri starfsemi verzlunarinn- ar, sem er nú að færast í aukana, og gaf þar á að líta ýmsar nýj- ungar, sem eiga að stuðla að hí- býlaprýði með listrænara sniði en áður hefur tíðkazt. Húsgagnaverzlun Reykjavíkur er gamalt og gróið fyrírtæki, stofnsett árið 1930. Stofnendur hennar voru Jón Magnússon, skáld og Guðmundur Helgi Guð- mundsson. Var hún frá upphafi í senn húsgagnaverzlun og hús- gagna- og bólstrunarverkstæði. Jón Magnússon skáld dó árið 1944, en hafði áður selt sinn hlut Þorláki Lúðvíkssyni, er rak eftir íhaldsflokksins er svipað og var í Luton, þar sem þeir unnu í síðustu kosningum með 4000 atkv. meirihluta. Fari víðar sem þar í kosningum á næstunni, sé þess því ekki langt að bíða, að brezki Verka mannaflokkurinn nái yfir- gnæfandi meirihluta á þingi. ir Þáttaskipti? Um úrslitin í Luton sagði Sir Alec hinsvegar, að þau væru síðasti þáttur hins liðna. — Sigur hans í Kinross og West Perthshire væri aftur á móti upphaf nýrra tíma fyrir íhaldsflokkinn. „Vindurinn er nú aftur hagstæður íhalds- flokknum“, sagði hann, ,,og svo framarlega, sem flokkur- inn markar stefnu sína með festu og einurð og rekur kosn- ingabaráttuna ötullega, er ég sannfærður um að við vinnum næstu kosningar“. Og hann bætti við: „Ég vona, að menn skilji, að með því að greiða Frjálslyndum atkvæði sín, eru þeir að hjálpa Verka- mannaflokknum til valda“. Þann tíma, sem liðinn er frá því Home, þá lávarður, var valinn eftirmaður Mac- millans í embætti forsætisráð- herra, hefur hann átt fleiri sjónvarpsviðtöl en fyrirrenn- ari hans á nærri sjö ára ferli sínum sem forsætisráðherra. Þegar úrslitin í kosningunum voru kunn kom hann þrívegis fram í sjónvarpi sama dag- inn, auk þess sem sérstaklega var sjónvarpað fundi, er hann átti með fréttamönnum. í SUMAR var meðalhitinn á Hveravöllum í 620 m hæð 5,1 stig í júlí og 5,6 í ágúst, í Jökul- heimum í 660 m hæð 6,8 í júlí og 5,6 í ágúst. En í sumar var í fyrsta skipti haldið uppi regluleg um, daglegum veðurathugunum þama á hálendinu. Til saman- burðar má geta þess að sömu mánuði var hitinn í Reykjavík 10,1 og 10,0 stig, á Akureyri 9,1 og 8,5 stig og á Hólum í Horna- firði 9,8 og 9,7 stig. í júlí reyndist þarnnig 1,7 stigi kaldara á Hveravöllum en í Jök- ulheimum, en í ágúst voru stöðv- arnar jafnar. Kuldinn á Hvera- völlum var samfara þrá- láfcu dimmviðri. Sólskinsmæling- ar voru gerðar þar frá 8. júlí og urðu aðeins 95 sólskinsstundir fram að mánaðamótum, en á sama tírna mældust 188 sólskins- stundir í Reykjavík. í ágúst varð mun sólríkara á Hveravö'llum. Þá mældust þar 160 sólskins- stundir, en í Reykjavík 152. Eins og vænta mátti varð meðalhiti á hálendinu tiltölu- lega lágur, en hins vegar hafa einstakir dagar þar jafnvel orðið hlýrri en hlýjustu dagar í byggð. í Jökulheimum mældust þannig 19,5 stig 3. júlí, er. mesti hiti í Reykjavík þann mánuð varð 18,7 stig. Hlýju dagarnir á há- lendinu voru þó tiltölulega færri en í byggð. í ágústmánuði náðu þannig allir dagar í Reykjavík 10 stiga hámarkshita, en í Jökul- heimum aðeins 13 og á Hvera- völlum 16. Næturkuldar voru miklir á báðum fjallasfcöðvunum, fimm frostnætur töldust í Jökulheim- um í júlí og á Hveravöllum 4. í ágústmánuði varð meðaltal af lágmarkshita á nóttunni rösk- lega 2Vz stig á báðum stöðvun- um. Úrkoma en alltaf mun breýti- legri en hiti og litlar ályktanir hægt að draga af mælingum á henni í fáeina mánuði. T. d. var úrkoman í júlí í Jökulheimum sem næst þriðjungur af úrkom- unni á Hólum í Hornafirði, en í ágúst var úrkomumagnið það sarna á báðum þessum stöðvum. Ekki verða aðrir þættir þess- ara hálendisathugana raktir hér, en heildarniðurstöður athugan- anna verða birtar með skýrslum frá öðrum veðurstöðvum í tíma- ritinu Veðráttunni, og nokkrar frekari upplýsingar er að finna í nýútkomnu hefti af Veðrinu, rit: Félags íslenzkra veðurfræð- inga. Mjög lítið er til af eldri at- hugunum á hálendi íslands. Það langveigamesta eru athuganir, sem vísindaleiðangur frá Sviss gerði á Snæfellsjökli 1932—1933, og einnig eru til niðurstöður at- hugana, sem Jón Jónsson núver- andi forstöðumaður Fiskideildar Atvinnudeildar Háskólans gerði 1 Hvítárnesi í júlí og ágúst 1937. Um aðrar samfelldar mælingar frá einstökum stöðvum mun ekki vera að ræða fyrr en nú tvö síð- astliðin sumur. í fyrra sumar hófst samvinna milli Veðurstofunnar, Búnaðar- deildar Atvinnudeildar Háskólans og Sturlu Friðrikssonar um veð- urathuganir og gróðurrannsóknir á Kili. Almennar veðurathuganir voru þá gerðar í Hvítárnesi og var Grétar Guðbergsson athug- unarmaður, en sólskinsmælingar voru gerðar við hús Ferðafélags- ins á Hveravöllum. Á síðastliðnu sumri var veðurathugunarstaður fluttur að Hveravöllum og tekið að senda þaðan dagleg veður- skeyti. Athugunarmaður var Þor- leifur Hauksson. Jöklarannsóknafélagið hlaut I vor styrk úr vísindasjóði til að gera veðurathuganir í óbyggðum og starfrækti það veðurstöð frá júní til septemberloka í Jökul- heimum, skála félagsins vestai* Vatnajökuls. Nokkrir menn skipt ust á um starfið þar, en lengsta útivist höfðu þeir Helgi Björns- son og Sigurður Sverrisson. Veð- urstofan sá Jökulheimastöðinni fyrir mælitækjum og einniig lét hún þeim Eiríki Haraldssyni og Valdimar Örnólfssyni mæla í té, en þeir gerðu nokkrar athuganir í Kerlingafjöllum. 200 þús. kr. ú húlfmiðu MÁNUDAGINN 11. nóvember var dregið í 11. flokki Happ- drættis Háskóla íslands. Dregnir voru 1.390 vinningar að fjárhæð 2.500.000 krónur. Hæsti vinningurinn, 200.000 kr, kom á hálfmiða númer 59.796. Voru báðir helmingamir seldir í umboði Jóns St. Arnórssonar, Bankastræti 11, Reykjavík. 100.000 krónuír komu á heil- miða núrner 40.184, sem seldur var í umboði Arndísar Þorvalds- dótbur, Vesturgötu 10, Reykjavík. 10.000 krónur: 3194 3257 7143 7371 7471 8535 11192 14163 15834 16732 18277 20650 25544 28711 29754 30109 30661 33727 35104 3584« 37752 39268 41232 41275 42555 42885 45152 46255 47407 50634 54126 54184 54820 54923 57560 59444 (Birt án ábyrgðar). Árnadóttur. Þá hefur hún fjöl- breyttar gerðir keramikvasa og annarra húsmuna úr keramik, og eru þar keramikmunir bæði frá „Glit“ hf. og „Edinborg College of Arts“. Þá hefur verzlunin á boðstólum gluggatjöld frá „Gluggar" hf og teppi frá „Teppi'* hf., Reykjavík. Verzlunin hefur til sölu hús- gögn gerð af mörgum þekktum húsgagnasmiðum, meðal annars frá húsgagnameisturunum Helga Einarssyni og Jónasi Sólmundar- synL Sigurður Karlsson, decotator, er ráðgjafi verzlunarinnar við útstillingar o. fl. Er húsnæði verzlunarinnar nú „stúkað“ sund ur á hinn smekklegasta hátt og húsgögnum, listaverkum oig öðr- um munum komið þar svo fyrir, að mikið augnayndi er að. Tilgangurinn er, sagði ósk- ar Guðmundsson, framkvæmda- stjóri, að sýna fram á, hvernig góð listaverk og smekklegir list- munir geta, ásamt góðum og við- eigandi húsgögnum, verið „lykill að fögru húsnæði". Nýjungar hjá Hús- gagnaverzlun Rvíkur það fyrirtækið með Guðmundi Helga Guðmundssyni. Þorlákur dó á síðastliðnu ári, og síðan hef- ur Guðmundur Helgi annazt rekstur fyrirtækisins ásamt syni sínum, Óskari, sem nú er fram- kvæmdastjóri þess, eins og áður var getið. Lengi háði það fyrirtækinu, að það bjó við fremur þröngan húsa kost, að Vatnsstíg 3, og var hann raunar orðinn algjörlega ófull- nægjandi, eftir því sem starf- serni fyrirtækisins jókst. En í marz 1959 flutti fyrirtækið í nýtt húsnæði, að Brautarholti 2, þar sem hún er nú, og mynduðust við það möguleikar á mikilli út- færslu starfseminnar. Er hús- næði þess nú bæði rúmgott og smekklegt. Eins og áðan var getið, hefur verzlunin nú komið á ýmsum Mynd þessi var tekin í húsakynnum Húsgagnaverzlunar Reykjavíkur að Brautarholti 2 í gær. Maðurinn, annar til vinstri, er Sigurður Karlsson, skipulagsráðgjafi fyrirtækisins um útstillingar o.fl. nýjungum. M. a. hefur hún til sýnis og sölu málverk og ýmsar skreytingar eftir þekkta listmál- ara. Þar eru t. d. málverk eftir Hafstein Austmann, Hauk Sturlu son og Hring Jóhannsson, „sculptur“ eftir Jón Benedikts- son oe veggtepni eftir Barböru Meðalhiti á há- lendinu lágur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.