Morgunblaðið - 21.11.1963, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLADIÐ
Fimmtudagur 21. nóv. 1953
Bréf frá Fleetwood
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi bréf frá
skipstjóranum á brezka togar-
anum Lord Stanhope, sem
strandaði á söndunum við Ing-
ólfshöfða fyrir skömmu. Sam-
hljóða bréf birtist í síðasta
tölublaði Fvhing News.
Herra ritstjóri! — Ég vildi
gjarna, í hinum víðlesnu dálk-
um blaðs yðar, fá tækifæri til
að láta í ljós þakklæti mitt og
manna minna, við skipstjóra
og skipverja á togaranum
Kingston Diamond frá Fleet-
wood, togaranum Juniper frá
Aberdeen og skipherra og
skipshöfn á íslenzka varðskip-
inu Óðni.
Þessir menn hikuðu ekki við
að hætta eigin skipum og lífi,
kærðu sig kollóttan um storm
og stórsjó, til þess að koma
mér til hjálpar, er ég missti
skip mitt, Lord Stanhope, ná-
lægt Ingólfshöfða að morgni
7. nóvember.
Ég þakka íslenzku björgun-
arsveitinni, sem barðist mót
sandstorminum, fann skipið og
bjargaði mér og mönnum mín-
um. Menn þessir stóðu upp I
mitti í brimgarðinum til að
hjálpa skipshöfn minni á land.
Engin orð fá lýst þakklæti
mínu við bóndann og fjöl-
skyldu hans, sem eru meðlim-
ir í björgunarsveitinni, buðu
okkur velkomna á heimili sitt,
gáfu okkur þurr föt og máltíð,
er sæmt hefði konungum.
Forseti Slysavarnafélagsins
og konur í kvennadeild þess í
Reykjavík gerðu allt, sem í
þeirra valdi stóð, til þess að
okkur skorti ekkért.
f þessum félagsskap eru,
eins og í Lifeboat Institution
hjá okkur, aðeins sjálfboða-
liðar, og eru allir skipreika
sjómenn boðnir velkomnir,
hvert sem þjóðerni þeirrá er.
Ég þakka forstöðumánni og
starfsfólki Sjómannaheimilis-
ins í Reykjavík og hinu ágæta
fólki frá Dvalarheimili aldr-
G. Harrison, skipstjórL
aðra sjómanna, sem skemmtu
skipshöfn minni, meðan á dvöl
inni í Reykjavík stóð.
Einnig þakka ég Geir Zoega
og syni hans, sem endalaust
unnu að velferð okkar og sáu
um heimferð okkar. Skipshöfn
mín á líka þakkir skilið fyrir
karlmennsku á hættustund.
Ég er hreykinn af félagsskap
þeirra.
Að lokum skulum við þakka
guði fyrir lífgjöfina og tilveru
alls þessa góða fólks. Innilegar
þakkir, herrar og frúr, megi
starf ykkar alltaf takast giftu-
samlega.
— Nauðsynlegt
Framhald af bls. 1.
Á slóðum Samuels Johnsons
Hádegisverð snæddu forseta-
hjónin í Cheshire Cheese veit-
ingahúsinu við Fleet Street í boði
Peter Thomas, aðstoðarutanríkis-
ráðherra. Hafði forsetinn sérstak-
lega óskað eftir að heimsækja
veitingahús þetta sökum þess að
hann hefur mikið dálæti á höfuð-
snillingnum, rithöfundinum og
orðabókarhöfundinum dr. Samuel
Fíngert
öskufall í Vík
VÍK, Mýrdal, 19. nóv. — f nótt og
snemma í morgun snjóaði hér dá-
lítið. Er leið á daginn tók að
rigna. Menn urðu þess varir í
morgun að gráleit askan hafi
sezt í snjóinn og þegar hann
bráðnaði kom dökk askan betur
í ljós. Tæplega hefðu menn orðið
þessa fíngerða öskufalls varir, ef
snjólaust hefði verið.
Um gosið við Vestmannaeyjar
er annars þetta að segja. Undan-
farna daga hefur gosmökkur sézt
vel af Reynisfjalli og utan úr
Mýrdal. Um 8 leytið í fyrrakvöld
sáust bláir blossar utan úr Mýr-
dal og voru þeir ofarlega í gos-
mekkinum.
Múlakvísl er eins lítil og bæj-
arlækur og hefiu: svo verið und-
anfarið. Rennur tært vatn undir
brúna og jökulvatn sést þar ekki.
Þegar jökulvatn er í Múlakvísl,
kemur það úr Mýrdalsjökli.
— FréttaritarL
Johnson, sem var tíður gestur
þarna á sinni tíð og gerði garð-
inn frægan.
Að hádegisverði loknum heim-
sótti forsetinn snöggvast Middle
Temple, einn af lögfræðiskólum
Breta, sem er í City. Tók skóla-
stjórinn á móti forsetahjónunum,
og ræddi við þau um hríð.
íslendingaboð
Síðdegis höfðu sendiherrahjón-
in íslenzku, Hendrik Sv. Björns-
son og frú, boð inni í Dorchester-
hótelinu til heiðurs forsetahjón-
unum. Var það mikill fagnaður
og fslendingar búsettir í Bret-
landi eða við nám þar fjölmenntu.
Meðal annarra gesta voru ræðis-
mennirnir Sigursteinn Magnús-
son og Þórarinn Olgeirsson, Þór-
unn Jóhannsdóttir Ashkenazy,
Þórólfur Beck, Björn Björnsson
og frú, Jóhann Sigurðsson, Karl
Strand læknir og frú, dr. Alan
Boucher og frú o. fl.
Kvöldinu vörðu forsetahjónin
í leikhúsferð í boði Richards
A. Butlers utanríkisráðherra. Sáu
þau sýningu brezka þjóðleikhúss-
ins á Hamlet eftir Shakespeare í
Old Vic leikhúsinu.
★
Hvarvetna hafa allar móttökur
verið sérstaklega alúðlegar, og á
heimsókn þessi áreiðanlega eftir
að hafa mikla þýðingu til efling-
ar vinsamlegri sambúð og sam-
skiptum fslendinga og Breta.
Forsetahjónin hafa sérstaklega
haft orð á því hversu ánægjulegt
hafi verið að heimsækja Elisabetu
Bretadrottningu og mann hennar
Philip prins í gær sökum þess
hve blátt áfram og aðlaðandi þau
væru og skemmtileg heim að
sækjæ
Rússneskir sendiráðs-
menn handteknir í Kongó
Sakaðir um undirróður gegn stjórninni
Leopoldville, Kongo, 20. (NTB)
ÞRÍR rússneskir sendiráðs-
starfsmenn hafa verið handtekn-
ir í Leopoldville í dag og í gær.
F.inn þeirra var látinn laus
skömmu eftir handtökuna, en
hinir tveir eru enn í haldi sak-
aðir um tilraun til að grafa und-
an ríkisstjóm landsins.
Mennimir tveir, sem enn eru
í haldi, eru Borsi Voronin sendi-
ráðsfulltrúi og Jury Miakotn-
ik blaðafulltrúi. Er talið að þeim
sé haldið í búðum fallhlífarher-
manna hjá borginni Binza. Áreið
ar.legar fréttir herma að sendi-
herra Sovétríkjanna í Leopold-
ville hafi átt viðræður við Cyr-
ille Adoula forsætisráðherra I
morgun, og að þeir muni ræðast
við að nýju í kvöld um málið.
Engar staðfestar fregnir hafa
borizt um handtökurnar, en hálf
opinberar heimildir herma að
Rússarnir tveir hafi átt í fór-
um sínum mikilvæg skjöl Kongó
stjórnar. Eiga þeir að hafa Veitt
andstæðingum stjórnarinnar mik
ilvægar upplýsingar til að auð-
velda baráttu þeirra gegn stjórn-
innL
Hand tökumum hefur verið mót
mælt í Moskvu, og sagir blaðifS
Izvstia að hér sé um freklega
ögrun að ræða. Blaðið segir að
mönnunum hafi verið misjþyrmt
á lögreglustöð í Leopoldville áð-
ur en þeir voru flufctir í fang-
elsi. Þá skýrir blaðið eiinnig frá
því að fallhlífaihermenin hafi um-
kringt rússneska sendiráðið á
þriðjudag, en á meðan hafi verið
lokað fyrir síma og rafmagm til
sendiráðsins.
Izvestia segir að blöð í Kongó,
sérstaklega blaðið Le Progres,
hafi verið mjög fjandsamleg
sendiráðum nokkurra erlendra
rikja að undanförnu, og nefnir
þar sendiráð Sovétríkjannói,
Tékkóslóvakíu og Egyptalands,
Tekur blaðið fram að við öryggis
þjónustuna í Kongó starfi um 30
bandarískir ráðgjafar.
Sagt var í Leopoldville i kvöld
að ríkisstjórnin ræddi nú hvort
slíta bæri stjórnmálasambandi vi3
Sovétríkin.
Skíðasnjdr
á Hellisheiði
MIKIÐ og gott skíðafæri er nA
við Skíðaskálann í Hveradölum,
Hefur margt fólk komið þangað
með skiði sín, síðan snjórinn féU
aðfaranótt miðvikudags. Um
helgina verður skíðalyftan í
gangi og brekkan upplýst.
— írak....
Framhald af bls. L
frá ríkisstjórn Baathista í Sýr-
landi til að reyna að jafna deil-
urnar. Forseti þéirrar nefndar
var Amin Hafez hershöfðingi,
sem er jafnframt forsætisráð-
herra Sýrlands. Ekki tókust samn
ingar, og er Hafez nú kominn
aftur til Damaskus.
Fyrst eftir byltingu hersins var
sett á algjört útgöngubann í Bag-
dad, en nú gildir bannið aðeina
yfir nóttina. Einn erlendu frétta-
mannanna í borginni símaði I
dag að allt væri þar með kyrrum
kjörum. Hann fór í gönguferð
um miðborgina og segir að verzl-
anir hafi verið opnar, og fólk
safnazt saman í kaffihúsum eina
og venjulega. Þá hefur verið til-
kynnt að bankar verði opnaðir
að nýju á morgun.
Hindrar einingu
Ekki hafa orðið mlklar skemmd
ir af bardögum í höfuðborginni,
þótt sjá megi för eftir byssukúlur
á húsi varnarmálaráðuneytisins
og aðalstöðvum þjóðvarnarliðs-
ins. Skriðdrekar eru enn á verði
við útvarpsstöðina og við fleiri
opinberar byggingar.
Talið er að herstjórnin gefl
bráðlega út tilkynningu um skip-
un nýrrar ríkisstjórnar í landinu.
Telja stjórnmálafréttaritarar að
byltingin hafi orðið alvarlegt á-
fall fyrir Baathistahreyfinguna í
heild, og eigi eftir að hindra fyr-
irhugaða einingu fraks og Sýr-
lands.
Seint i kvöld var tilkynnt I
Bagdad-útvarpinu að Taher Ye-
hia hershöfðingi, fyrrverandi for
seti herráðsins, hafi verið skip-
aður forsætisráðherra nýrrar rík
isstjónar, en el Bakr fyrrverandi
forsætisráðherra skipaður að-
stoðar forsætisráðherra.
Dr. Sigurður biður um
frásagnir og myndir
DR. SIGURÐUR Þórarinsison hef-
ur beðið blaðið að birta eftir-
farandi:
Enn einu sinni hafa fjölmarg-
ir íslendingar orðið sjónarvottar
að stórfenglegum náttúruham-
föruim. Sem betur fer er gosið
við Vestmannaieyjar enn sem
komið er einikum til augnayndis.
Þannig var og uim siðasta öskju-
gas 1961. Er ástæða til að minna
á að því fer víðs fjarri, að svo
hafi verið um öll eldgos á fs-
landi. Oftlega hefur þessi þjóð
goldið mikil afhroð vegna elds-
umbrota og eflaust á hún einnig
eftir að verða fyrir sikakkaföll-
um í eldgosum. Saga islonzfcra
eldfjalla er snar þáttur baráttu-
sögu íslands þjóðar í þúsund ár
og hefur sú saga aldrei verið
skráð svo nákvæmlega sem
skyldi. Því miður er skráðum
heimildum urn mörg gosanna
mjög ábótavant, stórgos hafa orð-
ið hér eftir að land byggðist,
sem hvérgi eru skráð og allt
fram á þessa öld 'naifa örðið hér
eldsumbrot sem ekki er hægt að
segja frá hvaða ári eru.
Ég hefi vikið að Þvl 1 sam-
bandi við síðasta öskjugos, að
upplifun þess auðveldaði túlkun
á sumum frásögnum af eldsum-
brotum. Þetta á við í ennþá rík-
ara mæli um það gos, sem menn
nú hafa fyrir augum. Frásaginir
af neðansjávargosum kringum
ísland eru margar mjög óljósair
og oft erfitt úr að skera hvort
rauniverulega heflur verið um
gos að ræða. Þess vegna eru
greinargóðar lýsingar á því hvað
ber fyrir augu þeirra er fyrst
litu gosið við Eyjar, mjög þýð-
ingarmiklar heimildir ekki að-
eins um þetta gos heldur og til
skýringar heimilda um gömul
gos. Því heiti ég á þá, sem urðu
fyrstir eða meðal þeirra fyrstu til
að veita yfirstandandi gosi at-
hygli, af sjó, úr Eyjum eða af
meginlandinu, að senda mér frá-
saignir af því hvemig þetta kom
þeim fyrir sjónir og tímasetja
atihiuganir sínar eftir því sem
auðið er. Einnig bið ég alla þá,
sem myndir taka af þessu gosi,
úr lofti, af láði eða af legi, að
skrá hjá sér myndatökustað og
sfcuind og dag, og gera það strax
að myndatöku lokiruni eða við)
heimkomu úr myndatökuferð.
Framköllun mynda getur dregizit,
einkum ef um litmyndir er að'
ræða, og þvl ekki ráðlegt að
treysta á minnið um skráningu
þangað tíl myndimar koma úr
framköllun, en rétt að skiriifa þá
á þær, þær upplýsingar er máli
skipta, svo sem tímasetningu og
stað. Tímasettar myndir eru hin-
ar ágætustu heimildir um þetta
eldgos. Mjög æskilegt væri einn-
ig að veðuratihugunarmenn á
veðurstöðvum þar sem vel sést
til eldstöðvanna svo sem Stór-
höfða, Eyrarbakka og víðar skrá
hjá sér daglega stutt yfirlit um
gang gossins og breytingamar
, frá degi til dags, eins og þetta :
.kemiur þeim fyrir sjónir.
Ég hefi um margra ára skeið
á vegum jarðfræðideildar Nátt-
* úrugripasafnsins unnið að söfn-
un og könnun gagna varðandi
: eldfjallasögu íslands og þvi að
| Ifsögðu einnig reynt að safna
öllum gögnum vairðandi þau gos,
sem í gangi hafa verið. Margir
brugðust vel við í samibamdi við
Heklugosið og öskjugosið og
treysti ég því, að svo verði einn-
ig um þetta gos. Allar upplýs-
ingar eru iþakksamlega þegnar,
svo Og myndir eða upplýsingar
um hverjir hafa myndir, sem
þéir telja afchyglisverðar. Utaná-
skrift mín er SigurðUr Þórarins-
son jarðfræðingur, Náttúrugripa-
safnið, Reykjavík.
Cefur 50 þús. til
stúlknaheimilis
KVENFÉLAGIÐ „Hvítabandið"
hélt nýlega fund og var hann
haldinn í minningu um 100 ára
afmæli fyrsta formanns félags-
ins, frk. ólafíu Jóhannisdóttur.
Var á fuindinum minnzt hennar
mikla og margvíslega menning-
arstarfs og lesið __upp úr ritum
hennar.
Ákvað félagið að gefa kr. 50
þús. til þeirrar væntanlegu stiarf-
semi, sem vonandi verður bráð-
lega hafin, þ.e. að stofna heimili
fyrir stúlkur, er leiðst hafa út í
óreglu og ekki eru færar um að
sjá um sig sjálfar. En það vair,
sem kunnugt er, eitt af aðal-
áhugamálum frk. Ólafíu Jó-
hannsdóttur.
Mun félagið framvegis reyna
eftir getu að styðja slíka starf-
semi, þegar hún kemst á lagg-
Ástríður
F^ertsdóttir látin
Astríður Eggertsdóttir frá
Fremri-Langey I Breiðafirði,
ekkja Jóns E. Bergsveinssonar
erindreka SVFÍ létzt í Landa-
kotsspítala s.l. laugardag. Ást-
ríður var 78 ára að aldrL
HafnorQörður
STEFNIR, félag ungra Sjálf
stæðismanna í Hafnarfirði, held
ur bingó í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld kl. 8,30. — Margir góðir
vinningar.
Keflavík
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Keflavíkur verður haldinn í dag
kl. 9 síðdegis í Sjálfstæðishús-
inu.
Félagar eru beðnir um að f jöl-
menna og mæta stundvíslega.
Kópavogur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Kópavogs verður lialdinn í Sjálf-
stæðishúsi Kópavogs fimmtudag-
inn 28. nóv. kl. 20.30.
Fundarefni: 1. Venjuleg að-
alfundarstörf, 2. Önnur máL