Morgunblaðið - 26.11.1963, Qupperneq 20
20
MORGUNBLADID
Þriðjudagur 26. nóv. 1963
r
Framhald af bls. 1.
Avenue fyrir írarnan Hvíta
húsið, og voru aðeins örfáa
metra frá syrgjandi ættingj-
um forsetans, þar á meðal frú
Kennedy, sem bar svarta
slæðu fyrir andliti, svo ekki
urðu séð á henni svipbrigði.
Gekk hún á milli bræðranna
Roberts og Edwards Kenn-
edy, en á eftir fylgdi hinn nýi
forseti, Lyndon B. Johnson,
ráðherrar, erlendir þjóðhöfð-
ingjar og fulltrúar a.m.k. 53
erlendra ríkja og fleiri. Þar á
meðal var Guðmundur í.
Guðmundsson, utanríkisráð-
herra. Fremstur í þessum fríð-
asta flokki, sem gengið hefur
uni götur þessarar höfuðborg-
ar fyrr og síðar, fór de Gaulle,
Frakklandsforseti, hermann-
legur að vanda. Bar hann höf-
uðið hátt, en var alvarlegur
á svip. í hópnum mátti einnig
sjá Ludwig Erhard, kanslara
Vestur-Þýzkalands, Haile
Selaissie Eþíópíukeisara,
Philip, eiginmann Breta-
drottningar, Dean Rusk, utan-
rikisráðherra Bandaríkjanna,
Einar Gerhardsen, forsætis-
ráðherra Norðmanna og
marga fleirL
Einkennileg þrúgandi þögn
ríkti, er kista forsetans fór
fram hjá mannfjöldanum.
Enginn mælti orð af munni
og það eina, sem heyrðist, var
5/kröltið í járnbentum hjólum
líkvagnsins og hófdynur fák-
anna sex, er drógu hann.
Veikur klukknahljómur barst
frá klukkum borgarinnar.
Næst á eftir kistu forsetans
var teymdur svartur gæðing-
ur, gjöf frá Ayub Khan, Pak-
istanforseta til frú Kennedy.
í ístöðum voru svört stíg-
vél með silfursporum og
sneru öfugt. Þannig voru
hestar teymdir á eftir fölln-
um húsbændum sínum, er
riddaraliðssveitir voru og
hétu.
Þannig mjakaðist líkfylgd-
in, sem taldi hundruð, ef ekki
þúsundir manna, eftir Penn-
sylvaníu Avenue, Connecti-
cut Avenue og að St. Mattheus
ar-dómkirkjunni. Þar sáum
við kistu forsetans flutta í
kirkju, eftir að allir voru
gengnir til sætis, heyrðum
Cushing kardinála frá Boston
messa og sáum síðan kistuna
borna úr kirkju. Á eftir
fylgdi frú Kennedy og leiddi
börn sín tvö, Caroline og
John junior, sem í dag átti 3ja
ára afmæli. Tveir fyrrverandi
forsetar, þeir Eisenhower og
Truman, fylgdu á eftir, ræddu
stuttlega við frú Kennedy, en
síðan hélt geysileg lest svartra
sendiráðsbifreiða á eftir lík-
vagni forsetans til Arlington
kirkjugarðar, þar sem hann
er jarðsettur. Er gröfin í hlíð
grænnar hæðar og veit að
Washingtonborg. í kirkju-
garðinum eru grafnir 126 þús-
und Bandaríkjahermenn og
einn forsetL
Hroðalegt áfall
Það var einkennilegt að koma
Ul höfuðborgar Bandaríkjanna í
morgun. Sól skein í bedði, logn
Kennedys
var, en strax á fluigvellinum varð
þess vart, að á þessum fagra degi
ríkti sorg í Washimgton. Menn
genigu hljóðir um í flugstöðvar-
byggingunni og hátíðlegur al-
vörublær setti svip sinn á ailt og
alla. Leigubílstjórinn, sem ók
fréttamön nuim Morgunblaðsins
frá flugvellinum til utanríkis-
ráðuneytisins, talaði allan tím-
ann um Kennedy. ,,l>etta er hroða
legt áfall fyrir þjóðina," saigði
hann, „fólkið er líka hrætt við
afleiðingarnar. Alliæ eru hræddir
við styrjöld, það einhvem veginn
liggur í loftinu, þó ekki sé mikið
um það rætt“ Bílstjórinn var
negri, eins og er um 60% Was-
hingtonbúa eða því sem næst.
Aðspurður hvemig negtrum í
Bandaríkjunum væri nú innan-
brjósts sagði hann: „Þetta er mik-
ið áfall fyrir okkur, hann var
rétt að byrja baráttu sína fyrir
mannréttindum. Okkur finnsit
sem við séum nú aftur kiomnir
til sama staðEtr."
Er við komum að Hvíta hús-
iniu laust fyrir kl. 11 í morgun
var þar fyrir mikill mannfjöld
meðfram Pennsylvania Avenue.
Bandarískur fréttamaður taldi
mannfjöldann ekki mikinn, en á
íslenzkan mælikvarða rrnundi
hann teljast stórkostlegur. Sí-
fellt fjölgaði meðfram öllum göt-
um þeim sem líkfylgdin fór um,
og segja fréttastofur nú. að meira
en ein milljón manna hafi verið
saman komin í hjarta Was-
hington til þess að kveðja hinn
fallna forseta.
Kveðjuathöfnin stóð hér raunar
frá því á sunnudag, er lík forset-
ans var flutt í þinghúsið.
Stóð bronzkista hans á við-
hafnarbörum, sem kista Abra-
hams Linoolns hrvíldi á fyrir nær
öld og gekk fóik þúsundum sam-
an að kistunni til að kveðja ást-
sælan forseta sinn í síðasta sinn.
Síðustu fregnir herma, að alls
hafi 240 þúsund manns gengið
fram hjá kistunni á þessum
stutta tíma ,og er fréttamenn
Morgunblaðsins komu til Was-
hington um kl. 10 f..h. sagði fyrr-
nefndur bílstjóri frá því, að
fimmföld röðin við þinghúsið
væri mörg hundruð metra löng.
í þinghúsinu
Um kL 10.25 að staðartima
'lagði Jaqueline Kennedy af stað
frá Hvita húsinu ásamt bræðr-
um forsetans, öldungadeildar-
þingmanninum Bdward Kenne-
dy og dómsmálaráðherranum,
Robert Kennedy. Ekið var ofur-
hægt eftir Pennsylvania Avenue
og Independence Avenue til
torgsins fyrir framan þinghúsið.
Meðfram leiðinni stóðu her-
menn vörð.
Kennedy-bræðurnir og Jaque-
line gengu hægt upp tröppur
þinghússins, hlig við hlið og
krupu niður við kistu hins látna.
Er þau höfðu staðið upp aftur
og bjuggust til að fara, tók Ro-
bert Kennedy þéttingsfast i
handlegg Jaqueline og studdi
hana.
Kistunni var nú lyft upp á axl
ir míu hermanna, er báru hana
hægt úr úr þinghúsinu niður
tröppurnar og komu henni vax-
Jega fyrir á svörtum fallbyssu-
vagni, er beið fyrir utan. Á eftir
þeim gekk hermaður með fána
forsetans. Meðan þessu fór fram
lék h'ljómsveit strandgæzlulið-
ins „Hail to the Chief“ og sálm.
Heiðursvörður heilsaði með heið
urskveðju er kistan kom í ljós
uppi á tröppunum.
Kluikkan mun hafa verið 10.48,
að staðartkna, er líikfylgdin hélt
frá þinghúsinu. Var farig hægt í
áttina ti'l Hvíta hússins, sömu
leið og Kennedy hafði farið, þá
er hann tók við emibætti forseta
í janúar 1961.
. Mikill fjöldi hermanna úr öll-
um herjum Bandaríkjanna, lög-
reglumenn og þrjár hljómsveitir
voru í fylgdinni. Um kl. hálf tólf
kom líkfylgdin að Hvíta húsinu.
Þar voru íréttamenn Morgun-
blaðsins þá staddir. Tók likvagn
inn sig þá út úr lestinni og var
dreginn hliðarveg upp að hús-
inu, en þar stigu forsetafrúin,
ættingjar, þjóðhöfðingjar og
aðrir út úr bilunum til þess að
ganga á eftir kistu forsetans síð-
asta spöiinn, að Mattheusar-
kirkjunni í um það bil hálfrar
málu fjarlægð. Ekki veit sá, er
þetta ritar, hve líkfylgdin var
löng, en hún var a.m.k. hálf-
tíma að ganga hjá. Fremst fór
flokkur lögreglumanna, þá
'hljómsveit, og síðan fylgdu fjöl-
margiar sveitir hermanna og
glóði á gljáfægða byssustingi í
nóvembersólinnL — Yfinmenn
Bandarúkjahers voru þar einnig,
svo og liðsforingjaefni úr öllum
'herjunum.
Er likvagninn lagði upp frá
Hvíta húsinu og vax dreginn gegn
um hliðið, fór á undan sekkja-
pípuhljómsveit úr Bandarikjaher.
Þá kom líkvagninn, dreginn af
sex hvítum hestum og heiðurs-
vörður fór fyrir á þeim sjöunda.
Næst á eftir var teymdur svartur
gæðingur, Sardar að nafni. Hest
þennan gaf Ayub Khan, forseti
Pakistan, J aequeline Kennedy,
eir hún var þar í heimsókn á sín-
um tíma. Heiðursvörður fylgdi
hestinium, en enginn sat á baki.
í istöðunum voru að gömlum sið
svört stígvél og vissi táin aftur.
Hestuirinn var allódæll, enda ekki
vanur slíku, og átti vörðurinn
stundum fullt í fangi með að
hemja hann, einkum er líkfyigd-
in staðnæmdist í um það bil hálfa
mínútu örskammt frá Hvíta hús-
inu.
Fylgdust með
Fréttamenn Morgunblaðsins
voru í aðeins um 60 metra fjar-
lægð frá kistunni og aðstandend-
um sem gengu á eftir. Fylgdum
við göngunni í þessari fjarlægð
um 100 metra, eða þar til hún
beygði inn á Connecticut Avenue,
en þá varð ekki lengra komizt
fyrir mannfjöldanum. Jacqueline
Kennedy gekk milli bræðranna
Edward og Röbert Kennedy,
næst á eftir kisbunni. Eins ag
fyrr getur bar hún svarta slæðu
fyrir andlitinu, en þrátt fyrir það
var ljóst, að hún bar sig vel. Var
svo allan tímann meðan útförin
fór fram.
Næst á eftir kom Lyndon B.
Johnson, Bandaríkjaforsetí, og
var nú allur annar bragur á hon-
um en fyrir tveimur mánuðum,
ér fréttamenn MorgunblaðSins
fylgdust með honum í íslands-
heimsókn hans. Fas hins nýja for
seta bar það með sér, að þetta
voru þung spor. Á eftir komu
síðan erlendir þjóðhöfðingjar,
sendimenn erlendra ríkja og
bandarískir ráðamenn. Fréttamað
ur Mbl. horfði þar á de
Gaulle, Frakklandsforseta, ganga
hnarreistan en alvarlegan í
broddi fylkingar, en á eftir komu
aðrir keisarar, konurtgar, drottn-
ingar, forsetar, prinsar, ráðherrar
og sendimenn. Aldrei mun valda
n.eiri hópur hafa gengið um
stræti Washingtonborgar. Á etftir
komu síðan bifreiðir með enn
fleira fólk. í einni bifreiðanna
voru böm forsetans, Caroline og
John junior. Það sem blaðamanni
Morgunblaðsins fannst hvað at-
hyglisverðast voru viðbrögð fólks
ins. Fólk stóð þögult og virtist
sem Washingtonibúar séu nú
komnir með báða fæturna á
jörðina. Engan sáum við gráta,
þótt við höfum heyrt síðan, að
slíkt hafi foorið við. Ekki var
vart við neina gremju eða reiði,
fólk stóð hnípið, steinþegjandi og
borfðL Þennan dag eihkenndi
sorg og söknuður en ekki hatur
eða vonleysi. Hafi sá sem þetta
ritar nokkru sinni dáð&t að banda
rísku þjóðinni þá var það í dag.
Ave Maria
Hin langa likfylgd mjakaðist
framhjá í áttina til Mattheusar-
kirkjunnar, sem er nálega hálfa
mílu frá Hvíta húsirau. Kirkjan
er eikki ýkja stór, en okkur vax
sagt, að hún hafi orðið fyrir val-
inu, þar sem hún sé stærsta ka-
þólska kirkjan í miðborginni.
Stærri kirkjur kaþólskar eru
lengra frá. Mattheu6aar-kirkjan
er rauð múrsteinskirkja með
koparhvelfingu. Ekki þótti frétta
mönnum mikið til hennar koma
í útlití, en hún er sögð fögur
innan. Kirkjan er í nábýli við
stórar byggingar, eins og kleunmd
milli þeirra. Okkur tóksit með að-
stoð sérstakra vegabréfa frá
bandariska utanríkisráðuneytínu
að komast alveg að kirkjunni um
það leyti, er líkfylgdin kom þar
að. Kista Kennedys, sveipuð
bandaríslca fánanum, beið á lík-
vagninum, meðan fóik gekk tíl
kirkju. Tók það um 20 mínútur
eða svo. Á meðan stóð heiðurs-
vörður þriggja hermanna fyrir
framan kistuna og var sá í miðið
svartur maður. Ave Maria hljóm-
aði úr kirkjunni, sungið af ein-
söngvaranum Luugi Wela firá
Boston, en þetta sama verk söng
hann fyrir allmörgum árum við
hátiíðlegt tæíkifæri — er Jaque-
line, Lee Bouvier og John Kenne
Framhald á bls. 31
— Æviferill
Framh. af bls. 13
Nokkrum dögum eftir að
Oswald gekk á fund Bringui-
ers, birtist hann á götu í New
Orleans og hóf dreifingu
spjalda, sem á voru letruð slag
orð eins og t.d. „Látið Kúbu
í friði", „Lifi Castro“, „Send-
um Kúbubúum lyf og mat-
væli í stað innrásarmanna."
Bringuiers og nokkrir aðrir
andstæðingar Castros fengu
fregnir af framferði Oswalds
og reyndu að stöðva hann.
Lögreglan skarst í leikinn og
handtók nokkra menn, þar á
meðal Bringuiers og Oswald.
Voru þeir dæmdir til að
greiða 10 dala sekt fyrir ólæti
á almannafæri.
^ Umræður í útvarpi
21. ágúst s.l. tók Oswald
þátt í umræðum, sem útvarps
stöðin WDSU í New Orleans
gekkst fyrir.
Sagðist hann vera ritari
New Orleans-deildar nefnd-
ar, sem gengur undir nafninu
„Fair Play for Cuba.“ Vin-
cent Theodore Lee, formaður
nefndar þessarar hefur sagt,
að engin deild hennar starfi
í New Orleans og hann þekki
ekki Oswald.
í umræðunum í útvarpinu
sagðist Oswald vera Marxisti
en neitaði því, að hann væri
kommúnistL Sagði hann, að
mikill munur væri á þesSu
tvennu. Margir ólíkir flokkar
væru byggðir á Marxisma.
Oswald sagðL að þriggja
ára dvöl í Sovétrikjunum
gerði sér kleift að vísa á bug
ásökunum um að Kúba væri
kommúnistaríki og nefndin,
sem hann starfaði fyrir væri
undir stjórn kommúnista.
„Hugsjónirnar eru
augljósar"
Oswald sagði, að „Fair Play
for Cuba“ berðist fyrst og
fremst fyrir því, að stjórn-
málasambandi við Kúibu yrði
komið á og ferðamenn sendir
þangað. „Við viljum reyna
að fá Bandaríkjastjórn til
þess að koma betur fram við
kúbönsku þjóðina og hina
nýju stjóm hennar, sagði Os-
wald. „Marmið okkar og hug-
sjónir eru augljósaf og þær
samræmast lýðræðishugsjón-
um Bandaríkjamanna."
Oswald var spurður hvort
hann áliti, að Castro hefði
rétt fyrir sér, þegar hann
sagði, að Kennedy forseti
væri þorpari og þjófur?
„Ég myndi ekki taka undir
nákvæmlega þessi orð“, svar-
aði Oswald.
í júní s.l. sótti Oswald um
vegabréf og sagðist ætla að
fara til útlanda. Hann fékk
vegabréfið.
Að undanförnu hafa Oswald
og kona hans búið í Irving,
úthverfi Dallas, og lögreglan
í Dallas segir, að þau eigi
tvö börn.
Móðir Oswalds Marguerite
býr nú í Fort Worth. Þegar
henni vax sagt, að sonur henn
ar hefði verið handtekinn,
sagði hún: „Ég er mjög hrygg
yfir þessu. Hann er góður
drengur."
— Thor Thors
Framh. á bls. 6
fjölda Snæfellinga, sem heimili
þeirra Ágústu og Thors stóðu
ávallt opið, fyrir alla þá vináttu
og rausn, sem við nutum þar.
Mér er ljúft og skylt að þakka
Thor fyrir öll störf hans, þau ár,
sem hann gegndi þingmanns-
störfum fyrir Snæfellinga, þvi
vissulega hafði hann ríkan áhuga
á að ýta áfram málefnum kjör-
dæmisins þau ár, sem hann var
þingmaður okkar. Atvikin hög-
uðu því á þann veg, að Thor var
kallaður til enn meiri starfa fyrir
þjóð sína. I því vandasama starfi
sem hann hefir gegnt í Banda-
ríkjunum í yfir 20 ár hefur hann
notið óskipts trausts allra þeirra,
sem á aðstoð hans eða fyrir-
greiðslu hafa þurft að halda,
jafnframt því að hann með per-
sónulegu atferli sínu hefir not-
ið trausts og virðingar, þar sem
hann hefir mætt fyrir hönd Is-
lands. Slíkir fulltrúar íslenzka
ríkisins á erlendum vettvangi
eru okkar fámennu þjóð ómetan-
legir.
Ég óska vini mínum, Thor,
konu hans og sonum heilla og
farsældar — og endurtek þakk-
læti mitt fyrir vináttu aUa frá
fyrstu kynnum.
Sigurður Ágústsson.
Thor Thors sendiherra mun
verða staddur í New York í dag.
Var gert ráð fyrir að hann kæmi
til borgarinnar frá Washington í
gærkvöldi. En þar hafði hann
verið viðstaddur útför John F.
Kennedy forseta, sem sérstakur
fulltrúi forseta fslands. Heimilis-
fang Thor Thors er:
Hotel Beverly, at Lexington
Avenue and 50th Street, New
York, N. Y. U.S.A.
— Almanna-
tryggingar
Framlhald af bls. 32
23. janúar sl. og aftur uim 7,5%
frá 23. júní sl., eða launahækkun
samtals 12,875% frá 23. júní sL
Það verður ekki hjá þvi koimizt
að hæikka bæfcuir almannatryigig-
inganna tii samræmis við al-
mennar launahækkanir, svo sem
æfcíð hefur tíðkazt þegar þær
hafa orðið. Lagt er til í 1. gr., að
bætumar verði hækkaðar um
15% frá 1. júlí sL, en það lætur
nærri að bótaþegar fái þá hlut-
fallslega sömiu hækkun á árinu
eins og almiennir launiþegar
hljóta.
í greininni eru fjölskyldulbætuir
undantekinar þessari hæikkun.
Segja má, að fjölsikyldubætuir
hatfi lík áhrif og persómrfrádrátt-
ur, sem veittur er vegna bama
við álagmingu tekjuskafcts og út-
svars. í því sambandi má benda
á það, að í Dammörku og Svi-
þjóð er emginin persónufrádrátt-
ur vei'ttur vegna bama, en þess í
stað eru veittar jafnháar fjöl-
skyldubætux með öllum börnum
og eru ekki lagðir skattar á þær.
Ákvæðin um persónufrádrátt eru
nú í athuigun hjá ríkisstjóminnL
Með hliðsjón af þvi þykir ekki
rétt að hækka upphæð fjöl-
skyldubóta að svo stöddu, þvl
síður sem gera má ráð fyrir að
persónufrádrátfcur veaði hækkað-
ur allverulega.
Nýju lögin um almamnatrygg-
ingar, nr. 40/1963, koma ekki til
framkvæmda fyrr en um nk. ára-
mót. Verður því að miða haekkun
botamna á þessu ári við ákvæði
þau, sem nú gilda, eins og gert
er -í fyrri málsgrein. Síðari máls-
grein fjallar um hækkum bótanna
frá áramótum og er í fyrri máis-
grein. Síðari málsgrein fjallar um
hæk'kun bótanma frá áramótum
og er þá miðað við iög nx.
40/1963,sem koima í gildi 1. jan-
úar 1964.
Ef um frekari laumalhækkanir
verður að ræða, verður að sjálf-
scgðu að emdurskoða hœkkun
bótanna, þegar þær launahækk-
amir liggja fyrir.