Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 23
£ FóstuSagur 3. jan. 1964 MORGUNBLAÐID 23 Fyrir þeim eru ailir dagar jafnir Spjallað við togaraskipstjóra og vitaverði Eins og aðrir dagar. EKKI hafa allir tæifæri til að skemmta sér á gamlárs- kvöld, horfa á brennur, skjóta flugeldum, fara á dansleik og halda gleði hátt á loft. Sumir eru við vinnu sína eins og aðra dag, eða eru einangraðir á afskekktum. stöðum, þar sem litið er um dansleiki og brennur. Fréttamaður Morgunblaðs- ins átti í gær símtal við skip- stjórann á togaranum Vík- ingi, Gunnar Jónsson. — Hvar eruð þið staddir? — Úti af Vestfjörðum. Við höfum verið að veiða síðan á annan jóladag. — Hvað gerið þið til til- breytingar á gamlárskvöild? — Það er nú lítið. Gamlárs- dagur er hjá okkur eins og aðrir daga, nema hvað við kemur mataræði. Við fengum hamiborgarhrygg í kvöldmat. Á nýjársdag voru svið á borð- nra. Að öðru leyti gengur líf- ið sinn vanagang á sjónum, þótt árið kveðji og annað taki við. Við vorum að reyna að fiska, en afli h-efur verið mjög tregur að undanförnu, enda mesta ótíð. Reyndum að veiða eitthvað. í»á var rætt við Guðbjörn Jónsson. skipstjóra á togaran- um Hvalifeili. — Hvar eruð þið? spurði fréttamaður. — Við erum á leið eitthvað út á haif frá Reykjavík, en þangað þurftum við að skreppa, til þess að skjóta í Uiihurðir gjöhtu — rúður titruðu ÓSKAPLEGT þrumuveður gekk yfir Vestmannaeyjar að kvöldi nýársdags. Stóð það versta yfir tfrá kl. 22.55 til kl. 23.30. Má eegja, að óhug hafi slegið á Eyja búa í fyrstu, því flestir tengdu eldingarnar við gosið, en fljót- lega áttuðu menn sig á því, að hér var um að ræða þrumuveð- ur, því eldingarnar komu flest allar úr suð-austri. ' Voru eldingarnar svo magnað er, að þær yfirlýstu öll rafmagns Ijós og það þrátt fyrir að glugga tjöld byrgðu glugga. Varð fólk vart við, að útihurðir gjöktu og etórar gluggarúður titruðu. — Dæmi voru um, að perur brotn- uðu í lampastæðum. ■ ' Teljandi skemmdir urðu engar f þrumuveðrinu, svo vitað sé, en > tfólk varð óneitanlega fyrir tals- verðu ónæði og áttu sumir and- vökunótt. Júpiter seldi í Hull á nýársdag JÚPITER varð ‘fyrstuir ís- lenzkra togara til að selja atfla Binn erlendis á þessu ári. Seldi hann á nýársdag í Hull 122 tonn tfyrir 10.530 sterlingspund. í gær seldi Hallveig Fróðadótt lr í Grimsby 133.6 tonn fyrir ttO.213 sterlingspund og RöðuU Beldi einnig í Grimsby 1 gær 02.5 tonn fyrir 8.781 sterlings- puncL í dag selur Jón forseti í Bret- landi og er það síðasta salan er- lendis þessa viku. land veikum manni, sem senni lega hefur verið með botn- langakast. Annars héldum við út þann 20. desember. — Hvað gerðuð þið ykkur til dægrastyttingar á gaml- árskvöld? » — Dægrastyttingin okkar var bara sú að reyna að veiða eitthvað, en það er svö sem ekki neinn uppgripaafli um þessair mundir. Við erum að hugsa um að stíma langt út núna, ég veit ekki hvert, en við verðum víst að minnsta kosti að fara út fyrir land- helgi. — Hvað borðuðuð þið á gamlárskvöld? — Við fengum svið og upp- stúf. — Hafið þið góðan kokik? — Eg þori ekki að kveða upp neinn dóm um það. Úr því verður reynzlan að skera. Hann hefur ekki verið um borð nema í nokkra daga. Eins og þú skilur áreiðanlega, þá tekur talsverðan tíma að komast að því, hvort kokkur er góður eða slæmur. Harðastí veturinn. Næst var hringt til vita- varðarins í Hornbjargsvita, Jóhanns Péturssonar. — Ég get ekki séð, að neinn munur sé á því að vera hér eða á veðurathugunarstöð á Grænlandi. í tvo mánuði, eða frá byrjun september og fram í desember voru allar samgöngur við umheiminn óhugsandi, — stanalaust rok og hríðarveður. Þetta er harðasfci vefcur síðan ée kom Hver ók aftan á Skoda-bifreið- ina? UM KL. 21 í gærkvöldi var stræt isvagn að taka af stað á móts við Prost h.f. á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði og ók hann í veg fyr ir rauða Skodabifreið, G-1677, sem neyddist til að stanza, er hún var komin á móts við miðjan strætisvagninn. í þeim svifum lenti bifreið aft an á Skoda-bifreiðinni, sem skemmdist lítilsháttar. Hin bif- reiðin ók burtu. Ökumaður henn ar er beðinn að gefa sig fram við Haf narfj arðarlögregluna. Germanía sýnir ævintýramynd Á MORGUN, laugardag, verð- ur næsta kvikmyndasýning fé- lagsins Germaníu, og verður að þessu sinni aðeins sýnd ein mynd, ævintýramynd, er nefnist „Aufruhr im Schlaraffenland" eða uppreisn í allsnægtanna landi. Er hún einkum ætluð böm um, en fullorðnir ættu einnig að geta dregið aif henni nokk- um lærdóm, að allsnægtimar, sem falla mönnum fyrirhafnar- laust í skaut, séu ekki lokatak- mark allra lífsins gæða, enda kemur af þeim sökum til upp- reisnar í landi allsnægtanna. Myndin er í litum. Sýningin verður í Nýja bíói og hefst kl. 2 e.h. Öllum er heimill aðgang- ur, bömum þó einungis í fylgd fullorðinna. ■■MMmaMmnM ■ hingað fyrir fjórum árum. — Hvað gerðuð þið á gaml- ársikvöld? — Það er nú ekki margt, sem hægt er að gera hér. Við léfcum bara fara vel um okkur og hilustuðum á góða tónlist. Það eru tveir krakkar hjá okk ur yfir hátíðarnar, en svo fara þau í skóiann og þá verðum við aftur tvö ein hjónin. Sjálfsagt verið álfar á ferð. Að síðustu var hringt til Ósikars Aðalsteins, rithöfund- ar og vitavarðar í Galtarvita og spurt um áramótin hjá (hionum og fjölskyldu hans. — Hér var gott veður, logn og blíða, sagði Óskar. Strákarnir mínir söfnuðu sam an við og var haldin mesta myndarbrenna, sem var okk- ur til mikillar ánæigju. Hér hafa sjálfsagt verig álfar á á ferð að venju, þótt við yrðum þeirra ekki vör. — Piltarnir, sem komu með jólapóstinn, lentu í nokkrum hrakningum. Þannig stóð á, að háflæði var, þegar birtan var bezt. Urðu þeir að vaða mikinn httuta leiðarinnar fyrir Göltinn. Mikið brim var og illfært, en þeir létu það ekiki á sig fá. Þegar þeir komu hingað í vitann, voru þeir velktir, en hressir og kátir. Pósturinn hafði ekiki vöknað. — Við fengum óvæntan gest í haust. Ég sat við skrif- borðið mitt og var að vinna að skáldsögunni minni, sem ég hef haft í smíðum síðast- liðin 3 ár og vonast til að Ijúka fyrir vorið. Allt í einu heyrði ég einihvern skarkala tfyrir utan gluggann og leit út. Á stéttinni voru tvær hvítar dúfur, sem ég á, og þriðji fuglinn, heldur stærri. Telst hann ekki tiil húsdýra minna, því hér var kominn haförn. Við hlupum upp til handa og fóta og rákum örninn á braut. Ekki mátti tæpara standa við að bjanga dúfunum, því þær voru þegar særðar. Þær lifðu samt af og eru nú við beztu heilsu. Þrumur og elding ar gengu yfir Reykjavík NOKKRAR þrumur og elding- air gengu yfir í nágrenni Reykja víkur á tímabilinu kl. 8—10 að kvöldi nýársdags. Um daginn hafði verið suð- austanrok með rigningu og tals- verðum hita, en svo sneri til sunnan og suð-vestan áttar. Kom þá kaldur loftstraumur yfir land ið. Fylgdu þessu nokkrar þrum- ur og eldingar á Suður- og Vest- urlandi. T.d. varð vart við eld- ingar í gærmorgun á Hornafirði og Vestmannaeyjum, en þar hef- ur verið allmikið um þrumur að undanförnu í sambandi við gosið. Sáu tví- eða þrí- höfðaðan gosmökk GOSIÐ í Surtsey var í fullum gangi þegar til þess sást um ára mótin, en slæmt skyggni var. Ekkert sást til nýja gossins. Síð- degis í gær þóttust Reykvíking ar sjá tví- eða þríhöfðaðan gos- mökk, sem næði allt upp í 10 þúsund metra hæð. Þetta var rétt í ljósaskiptunum og ekki ljóst hvort þetta væru fleiri ang ar af sama stofni gosmakkar. Uppi í þessari hæð var í gær 59 stiga frost, skv. upplýsingum frá veðurstofunni. Erlingur Pálsson, yfirlögregluþjónn — Fernt brennist Framh. af bls. 24 hann undir aðgerð á nýjársdags- kvöld, og hafði ekki læknis ver- ið vitjað fyrr, þar sem hann kvartaði ekki. Þrír fullorðnir voru það mikið særðir að þeir voru fluttir af slysavarðstofunni í sjúkrahús. Erlingur Pálsson sagði að lok- um, að að öðru leyti hefði allt farið vel fram, engar kvartanir hefðu borizt Um rúðubrot né önnur spellvirki. Taldi hann það m.a. eiga rætur að rekja til þess, hve lögreglan var vel skipulögð, 85 lögregluþjónar hefðu verið á vakt umrædda nótt og voru 5 tal- stöðvarbílar í ferðum víðs vegar í bænum alla nóttina. Einnig vann lögreglan mikið að því síð- ustu daga ársins að ná í ólög- lega kínverja, með aðstoð rann- sóknarlögreglunnar og náði fleiri þúsundum af smygluðum kín- verjum í sína vörzlu. Hefði einn maður verið uppvís að því að selja þessa bannvöru. Piltur þvingaður til víndrykkju Erlingur gat að síðustu leiðin- legs atviks, sem átti sér stað á gamlárskvöld. Þá var komið með útúrdrukkinn 15 ára pilt á lög- reglustöðina. Við eftirgrennslan kom í ljós, að félagar hans höfðu beitt hann valdi og hellt ofan í hann áfengi. Kvað hann piltinn hafa verið mjög leiðan út af atviki þessu og var honum ekið heim svo lítið bar á um nóttina. Morgunbalðið átti stutt samtal við Bergsvein Ólafsson, augn- lækni, varðandi ofangreint slys á auga af völdum kínverja. Hann sagði að ástæða væri til að vara fólk við kínverjum og öðrum hættulegum sprengjum, því oft- sinnir hefðu þær leitt til slysa á borð við þetta, og þá ekki sízt um áramótin. Kviknaði óvænt í eldf jallinu Eins og fyrr var sagt voru þrír sendir af slysavarðstofunni í sjúkrahús. Enginn sjúklinganna er talinn hættulega særður, og fékk einn heimfararleyfi í dag, ung stúlka, Svanhvít Hallgríms- dóttir að nafni. Blaðamaður Morgunblaðsins kom að heimili Svanhvítar á Hvassaleiti 18 síðdegis í gær, og átti tal við foreldra hennar, þar sem stúlkan var sofandi og ennþá mikið veik. Sagði faðir hennar að hann hefði farið út á svalir með tvö eldfjöll, hann hefði kveikt í öðru en Svanhvít hald- ið á hinu. Af óskiljanlegum ástæðum kviknaði í eldfjalli því, sem Svanhvít hélt á í höndunum, líklega vegna neista sem hefði borizt á milli. Er þá ekki að sök- um að spyrja að neistaflug gus- aðist yfir hár og brjóst Svan- hvítar, jafnframt því sem kvikn- aði í gluggatjöldum á svalahurð- inni. Tókst fljótlega að slökkva eldinn en stúlkan brenndist tölu- vert á enni og brjósti og hár hennar sviðnaði. Mest brenndist hún á brjósti, þar sem hún var í undirkjól úr nælonefni, sem bráðnaði á augabragði. Svanhvít er 16 ára gömul, nemandi í Tónlistarskólanum. Maður féll í liöfn- ina í Keflavík MAÐUR datt í höfnina í Kefla- vík klukkan rúmlega 24 aðfara- nótt 2. janúar. Manninum var bjargað upp í bát og nokkru síð- ar flutti lögreglan hann á varð- stofuna, þar sem hlúð var að hon um þar til læknir kom, en hann taldi nauðsynlegt að flytja mann inn á sjúkrahús. Þar dvelur hann ennþá og mun vera á batavegi. Systir okkar HRAFNHILDUR EINARSDÓTTIR SASS lézt í New York 1. janúar. Ingibjörg Einarsdóttir, Asgerður Einarsdóttir, Logi Einarsson, Ólafur Haukur Ólafsson. Systir mín ÞRÚÐUR JÓNA MAGNÚSDÓTTIR lézt að Elliheimilinu Grund 1. janúar. Einar Magnússon. Maðurinn minn HJÖRTUR ÞORLEIFSSON verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði laug ardaginn 4. þ.m. kl. 2 e.h. Jónína Guðmundsdóttrr. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns, föður og afa SIGURJÓNS SÍMONARSONAR Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði Borgarsjúkrahússins. Hólmfríður Halldórsdóttir, Guðrún K. Sigurjónsdóttir, Þórarinn Jónsson, Hallborg Sigurjónsdóttir, Haraldur Guðmundsson, Kristján Sigurjónsson, Guðný Þorvaldsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Símon Sigurjónsson, Ester Guðmundsdóttir, Jórunn A. Sigurjónsdóttir, Kristján J. Ólafsson, og barnabörn. r r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.