Morgunblaðið - 11.06.1965, Page 28
Lang stærsta og
íjölbreyttasta
blað londsins
129. tbl. — Föstudagur 11. juní 1965
I
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
' ' 'V "///'<'''S/ 7 SVl" ' >//' ',i' 'S.V.W/" ' '' ' ',
Fyrir framan eina af vörugeymslum Eimskipafélag-s íslands: G uðmundur J. Guðmundsson segir
við fréttamann Mbl.: „Uss, það er alveg óþarfi að taka mynd af mér, ég er ennþá í hörkuvinnu“
Hafnarverkamenn hættu
vinnu kl. 3 í gær
HAFNARVERKAMENN í Rvík
lögðu niður vinnu kl. 3 í gær.
Eftir því sem næst verður kom-
iat, er hér um að ræða samtök
meðal þeirra sjálfra án íhlutun-
ar frá stjórn Dagsbrúnar. Allt
fór þetta friðsamlega fram, Eyr
arvinnumennirnir hættu bara að
vinna, stöldruðu við á hafnar-
bakkanum stutta stund og ræddu
saman og héldu síðan heim á
leið. Ekki vildu þeir segja neitt
um, hversu langan tíma þeir ætl
uðu að vinna næstu daga, sumir
töluðu um að hætta kl. 5, aðrir
að ekki yrði unnið fyrir hádegi
o.s.frv. Með þessu segjast þeir
Jeitast við að knýja vinnuveit-
endur til samninga. Er talið, að
þeir hafi valið þennan dag til
aðgerða einkum vegna þess, að
yfirvofandi var verkfall á kaup-
skipaflotanum frá miðnætti s.I.
og því yrði mörg skip að yfir-
gefa Reykjavikurhöfn án þess
að hafa verið losuð eða lestuð
að fullu. Þessi vinnustöðvun
náði ekki til afgreiðslu togara.
Hafnarverkamenn og forráða-
menn Dagsbrúnar telja aðgerðir
þessar fullkomlega löglegar, þar
sem engir samningar séu í gildi
milli Dagsbrúnar og vinnuveit-
enda. Vinnuveitendasamband ís
lands telur hins vegar að hér sé
um algjörlega ólöglegt verkfall
að ræða hjá þeim mönnum, sem
unnið hafa eitt ár eða lengur og
öðlazt þar með eins mánaðar upp
sagnarfrest.
í tilefni af þessum atburðum
átti Mbl. stutt viðtal við Björg-
vin Sigurðsson framkvæmdastj.
Vinnuveitendasambands íslands;
Guðmund J. Guðmundsson vara-
formann Dagsbrúnar og tvo
hafnarverkamenn.
Framihald á bls. 27
50 málverk
hafa selzt
MJÖG góð aðsókn hefur verið að
sýningu Guðmundar Guðmunds-
sonar (Ferro) í Listamannaskól-
anum. Yfir 2000 manns hafa séð
sýninguna og 50 myndir eru þeg-
ar seldar.
Sýningin er daglega opin frá
kl. 1—10 e.h. og stendur til 15.
júni.
5
dagar
NÚ eru aðeins fimm dagar,
þar til dregið verður í glæsi-
legasta bilahappdrætti ársins
um tvær Ford Fairlane-bif-
reiðir, árgerð 1965, að verð-
mæti samtals 660 þúsund kr.
Nú eru allra síðustu forvöð
fyrir þá, sem fengið hafa
ser,<ila miða, að gera skil í
skrifstofunni í Sjálfstæðishús-
inu við Austurvöll, sími 17100.
Miðinn kostar aðeins 100 kr.,
og veitir möguleika á glæsi-
legum vinningi.
Miðar fást í skrifstofunni,
og eru einnig seldir úr hinum
stórglæsilegu happdrættisbif-
reiðum við Útvegsbankanm.
Tryggið ykkur miða í tíma.
Landshappdrætti
Sjálfstæðisfiokksins.
Tregari síld-
veiði í gærdag
Var að aukast í gærkvöldi
— skipin vestur með aflann
AFLI síldveiðiflotans aðfaranótt
fimmtudagsins varð 58.550 mál,
en það voru alls 52 skip sem
fengu þennan afla. í gærdag var
afli fremur tregur og fá skip
að veiðum. Aflinn var þó að
aukast í gærkvöldi, en veiðisvæð
ið var ca. 140 milur austur af
Rauðanúpi.
í gærkvöldi voru 10—15 skip
á leið til lands og var afli þeirra
um og yfir 1000 mál. Gott veður
var á miðunum, austan gola og
þokusúld.
Skipin héldu lan.gflest með afl
ann til Eyjafjarðarhafna og
Siglufjarðar, þar sem ekki var
hægt að taka á móti meiri síld
á norðustanverðu landinu eða
Silfurlampinn
afhentur 14. júní
AÐALFUNDUR Félags ísíenzkra
leikdómenda var haldinn mið-
vikudaginn 9. júji. Stjórn félags-
ins var endurkjörin, en hana
skipa: Sigurður A. Magnússon,
formaðuy, Ólafur Jónsson, ritari,
og Gunnar Bergmann, gjaldkeri.
Ákveðið var að afhenda Silfur-
lampann fyrir leikárið 1S64—65
mánudaginn 14. júní kl. 8:30
e.h. í hliðarsal Þjóðleikhúskjall-
arans. Að þessu sinni verða
frjálsar veitingar, en ekki borð-
hald eins og undanfarin ár. Þess
er væoít að styrktarfélagar, leik-
arar og annað leikhúsfólk fjól-
menni til hóísins.
Austfjörðum.
Sildarvérksmiðjur ríkisins á
Siglufirði hófu bræðslu klukkan
6 í gærdag og Rauðka hefur
bræðslu í dag. Um 20 þúsund
mál höfðu borizt til Siglufjarðar
í gærdag og þá voru nokkur
skip á leið þan.gað með afla sinn.
Verkfall hafið á
kaupskipaflotanum
Ekkert benti til samkomulags í nótt
VERKFALL hófst á kaupskipa-
flotanum á miðnætti síðastl. Það
voru þernur, þjónar og mat-
reiðslumenn, alls 40—50 manns,
sem boðuðu til verkfallsins. Þeg-
ar blaðið fór í prentun stóð yfir
sáttafundur í deilunni, en þá
benti ekkert til þess að samkomu
lag næðist.
í gærdag voru undirnefndir á
fundi frá kl. 2.30 til 5, en sátta-
fundur hófst kl. 9 síðdegis.
Engin kaupskip voru í Reykja-
víkurhöfn þegar verkfallið skall
á, en kl. 10 í gærkvöldi hélt Gull-
foss úr höfn o,g varð að fara með
svo til allar vörur sem skipið
Samning*
arnir á Aust-
fjörðum
Drög að „taxta"
lögð íyrir íélagsíuiid
SVO sem skýrt var frá í Mbl. í
gær héldu fimm verkalýðsfélög
á Austurlandi, sem ekki hafa
undirritað samkomulagið uno
kaup og kjör á Norður- og Aust-
urlandi, sem gert var sl. mánu-
dag, fund á Egilsstöðum í gær.
Þar var ákveðið að boða til funda
í félögunum og leggja þar fram
drög að „taxta“ er hljóðar upp á
44 stunda vinnuviku og 8% kaup-
hækkun. Fundir þessir verða
væntanlega haldnir nú um helg-
ina.
Fundir hafa ekki verið haldnir
í verkalýðsfélögunum þremur á
Eskifirði og Reyðarfirði, sem
undirrituðu samningana.
• Arkanesi, 10. júní.
LANGT er komið verkinu að
reisa hljóðmerkjavita í Skála-
tanga í Innri-Akraneshreppi. —
Mastrið er 30 metra hátt. Annar
hljóðviti verður á Galtarholsmel-
um, þriðji er í Reykholti, fjórði
á Löngumýri, fimmti í grennd
við Akureyrarflugvöll og sjötti
er á Bakka á Kjalarnesi.
— Oddur.
hafði komið til landsins. Gafst
ekkj tími til að skipa þeim upp
hér, en samkvæmt áætlun átti
Gullfoss ekki að fara utan fyrr
en kl. 3 á laugardag. Hefur verk-
fallið því þegar valdið tjóni.
Þá var Selfoss í Reykjavíkur-
höfn í gærdag, en hélt út áður en
verkfallið skall á.
Eein olíu-
laust á
Raufarhöfn
Raufairhöfn, 10. júní.
HÉR er allt orðið oliulatist
' enm einu sinni. Þurfti að láta
| síldveiðiiiskipin fá oiíu til alö
| þau gætu haldið áfram veið-
, um og í dag fékk rafstöðin
' tvo bílfarma af olíu frá Kópe-
skeri.
Raufairha fnairibúuim bliösk rar
, seinlæti olíufélaganna varð-
: arndi oliíuflutminiga hingað. .—
l Einair.
Siglfirðingar
samþykktu
samningana
VERKALÝÐSFÉLÖG á þrem
stöðum á Norðurlandi hafa stað
fest kjarasamningana, sem gerð
ir voru sl. mánudag. í gærkvöldi
var haldinn sameiginlegur fu/»d-
ur í Þrótti og Brynju á Siglu-
firði og var hann vel sóttur.
Samningsuppkastið var sam-
þykkt samhljóða.
Áður höfðu Eining á Akureyri
og Verkalýðsfélagið á Húsavík
samþykkt samningana. í kvöld
kl. 9 er boðaður fundur um
uppkastið hjá verkalýðsfélaginu
á Raufarhöfn.
Fundur undirnefnda í deilu
Dagsbrúnar, Framsóknar, Hlífar,
Framtíðarinnar hefur verið boð-
aður kl- 9 30 árdegis í dag.
15 ára síldin kom íyrst á miöin
Sterkasti árgangur á þessari öld
MBGINÞORRINN af þeirri
síld, sem nú hefur verið að
veiðast, er 16 ára gömul síld
af svokölluðum norskum
stofni, þ. e. sú síld sem hrygnir
við Noreg. Þessa síld þekkja
fiskifræðingarnir vel, því
þetta er sterkasti síldarstofn-
inn sem komið hefur á þessari
öld að því er Jakob Jakobsson
tjáði okkur í gær. Þessi síld
hefur á hverju ári undanfarið
komið að íslandsströndum,
gefið góðan afla og fiskifræð-
ingar fylgst með henni. Að-
spurður hvort þeir hefðu enn
átt von á henni á miðin, svona
gamalli, sagði Jakob að það
héfðu þeir vissulega, en
kannski hefði gangan verið
öllu kröftugri én þeir þorðu
að gera sér vonir um.
Þessi síldarárgangur hefur
alltaf komið fyrst á miðin síð-
an 1960, en er í minnkandi
magni nú, bæði búið að veiða
mikið af síldinni og hún fer
að láta á sjá úr þessu. Annars
getur síld orðið 25 ára gömul,
svo fiskifræðingar viti til.
Þessi síld kom sem sagt fyrst
í miklu magni nú, en Jakob
sagðist búast við því að næsta
síldarganga yrði með yngri og
stærri síld.
Síldin af 15 ára árganginum
er horuð og kemur ekki til
greina sem saltsíld, enda er
fyrsta síldin á vorinu yfirleitt
ekki nógu feit. En hún er að
fitna og getur fitnað mjög
hratt, ef hún hefur nógu
mikla átu, eru dæmi til að
síld fitoni um 1% á dag. Þar
sem þessi síld er nú í Austur-
íslandsstraumnum er hún í
miklu af svokallaðri tómsæv-
arátu, sem er lík rauðátunni,
en stærri.
Þessi 15 ára síldarstofn hef-
ur, sem fyrr er sagt, alltaf
verið mjög sterkur. Þegar
síldin var 5—6 ára var met-
afli á vetrarsíldveiðunum í
Noregi og síðan 1960 hefur
hún alltaf komið fyrst á mið-
in við Island, og fært okkur
afla.
Jakob Jakobsson er í síldar-
leit á Ægi. Hefur undanfarna
8 daga leitað fyrir Norður-
landi, án árangurs. Voru þeir
í gær staddir N og V af Langa
nesi og ætluðu að athuga kant
inn þar.