Morgunblaðið - 26.06.1965, Blaðsíða 1
24 síður
ttMPitttlritafrífr
12. árgangm.
141. tbl. — Laugardagur 26. júní 1965
Prent9iniSja MorgunblaSslns.
Deferre verður
ekki í framboði
— íramboð hans til forseta afturkallað —
eining náðist ekki milli vinstriflokkanna
París, 25. júní — AP-NTB.
GASTON Deferre, borgarstjóri í
Marscilles hefur ákveðið að
verða ekki í framboði í forseta-
kosningunum, sem fram fara í
Frakklandi í desember. Segir
Deferre, að þar sem ekki hafi
náðst eining milli vinstri flokk-
anna í landinu um samstöðu í
hosnin.gunum, hafi hann ákveðið
að draga sig í hlé. — í París er
talið, að þessi ákvörðun Deferre
bafi mjög styrkt aðstöðu Gauli-
Ista, og einnig kommúnista, sem
vinstri flokkarnir ætluðu að
halda utan fyrirhugaðs kosninga-
bandalags, sem nú verður ekki af.
De Gaulle, Frakklandsforseti
20 ára
afmælis
S.Þ. minnzt
San Fransisco, 25. júní. — AP
JOHNSON, Bandaríkjaforseti,
beindi i dag þeim tilmælum
til Sameinuðu þjóðanna, en 20
ára afmæli þeirra telst á morg
un, að þær beittu sér fyrir
friði i heiminum. Sagði for-
setinn, að heimurinn ætti áð
sameinast um að berjast gegn
fátæktinni, stöðva vopnakapþ-
hlaupið og koma í veg fyrir
offjölgun mannkynsins.
Johnson flutti ræðu sína í
San Francisco. — (Sjá grein
um samtökin inni í blaðinu).
hefur ekki enn tilkynnt, hvort
hann muni gefa kost á sér til
forsetaembættis næsta kjörtíma
bil, þótt fáum dyljist að hann
muni hafa fullan hug á því. Br
ákvörðun borgarstjórans í Mar-
seilles fyrsti meiriháttar sigur
Gaullista í kosningabaráttunni.
Fréttamenn og stjórnmálasér-
fræðingar í Frakklandi telja, að
misheppnuð tilraun Deferre til
að koma á kosningabandalagi
vinstri manna hafi margvislegar
afleiðingar:
• I fyrsta lagi muni það verða
gott vopn í höndum Gaullista.
• í öðru lagi sé hér um að
ræða sigur fyrir kommúnista,
sem árangurslaust hafa reynt að
fá að vera með kosningabanda-
lagi vinstri flokkanna. Nú, þegar
Deferre hefur dregið sig í hlé,
vonast kommúnistar til, að fram
bjóðcmdi þeirra, sem enn hefur
ekki verið valinn, muni hljóta
atkvæði vinstri manna, sem ann-
ars hefðu ekki kosið þá.
• í þriðja lagi verða nú and-
kommúniskir vinstri menn, sem
ekki styðja Gaullista, að finná
sér leiðtoga, sem komið getur
því til leiðar, er Deferre mis-
tókst.
Lítill vafi þykir nú á því leika,
að demókratar, sem haldið hafa
uppi sambandi milli kalþólska
þjóðarflokksins, radíkala og
óháðu flokkanna, verði nú sterk-
asta vopnið gegn Gaullistum.
Sósialistar, sem standa utan
þessa hóps, verða því að bjóða
fram sjálfir, eða hjálpa öðrum
andspyrnuflokkum Gauliista til
að finna hæfan mann til fram-
boðs.
Friðarsamsæri##
- segir Peking
Lonóon, Pekingt Moskva,
25. júní. — AP-NTB.
FRIÐAitNEFND þeirri, sem
brezku samveldislöndin hafa
komið á stofn á ráðstefnu sinni
í I.omion, til að reyna að sætta
•deiluaðila í Vietnam, hefur verið
huldalega tekið. — í orðsendingu
Fekingstjórnarinnar í dag, segir,
*ð Harold Wilson, forsætisráð-
berra Breta, og aðrir ráðamenn
eamveldisins brezka skuii gera
*ér Ijóst, að nefndin eigi ekkert
erindi til Kína, og muni ekki
vefða tekið á móti henni þar. f
orðsendingunni eru Bretar sakað
ir um að hafa tekið forustu í
„íriðarsamsæri“.
Tilkynning Pekingstjórnarinn-
er barst skömmu eftir að Moskvu
etjórnin hafði neitað að taka á
móti nefndinni.
• í órðsendingu kínyerskra ráða
mannanna er því haldið fram, að
ítofnun friðarnefndarinnar í
anafrii samveldisins sé riý tilraun
®f br.ezkri hálfu gerð til að hjálpa
bandáriskum árásarseggjum í
.Vietnam: Vár sú krafa éndurtek-
in, að bandarískir hermenn
bverfi iþegar; í stað frá Vietnam,
.enda sé það eina lausnin á ástand
inu þttr um slóðir.
• Bendir Pekingstjórnin jafn-
Jranrt á, að Bretar hafi aidrei
lýst andúð sinni á framferði
•Bandaríkjanna í SA-Asíu, héidur
.veitt þeim aðstoð, og þar með
Tofið Genfarsáttmálans um Indó
Kína — þrátt fyrir að Bretland
hafi, ásamt Sovétríkjunum, haft
með höndum formennsku á
Genfarráðstefnunni 1954.
Af hálfu erlendra sendimanna
í Peking er því haldið fram, að
orðalag kínversku orðsendingar-
innar hafi verið þannig, að af-
staða kínversku stjórnarinnar
kæmi ekki fram sem árás á brezk
samveldislönd, sem eiga aðild að
Algeirsborgarráðstefnunni. Hafi
Framhald á bls. 23
Myndin var tekin í Kairó s.l. miðvikudag og sýnir utanríkisráðherra Alsír, Abdelaziz Boute-
flika, í viðræðum við Chou-En-lai, forsætisráðherra Kína. Pekingstjórnin hefur mjög lagt að
væntanlegum þátttakendum í ráðstefnu Asíu- og Afríkuríkja, aðbeita sér fyrir því, að hún verði
haldin á tilsettum tíma í Alsár. Allt bendir þó til þess, að svo verði ekki. — Ljósm.: AP.
Tekur Ferrhat Abbas
við embætti Ben Bella?
— koma gamlir leiðtogai í Alsír fram á ný
— ítalskir kommúnistar styðja Ben Bella
— blað Nassers ræðst á Boumedienne
Beirut, Algeirsborg, Vín,
Róm, 15. júní. — (AP) —
BEIRUT-BLAÐIÐ „Daily
Star“ skýrir frá því í dag í
sérstakri frétt frá Algeirs-
borg, að byltingarstjórn Hou-
ari Boumedienne hafi boðið
Ferrhat Abbas, fyrrum for-
sætisráðherra alsírsku útlaga-
stjórnarinnar, að taka við em-
bætti Ben Bella, fyrrum for-
seta.
Blaðið segir ekki, hvort
Abbas hafi tekið boðinu, en
tekur hins vegar fram, að aðr-
ir fyrrverandi leiðtogar í Al-
sír, þ.á.m. Mohammed Khider
og Belkacem Krim hugleiði
nú, hvort þeir eigi að styðja
valdhafana nýju í Alsír, sem
hafi m.a. í huga að afnema
einsflokkskerfið í landinu. og
endurskipuleggja allt efna-
hagskerfi þess.
„Daily Star“ segist hafa það
eftir áreiðanlegum heimildum, að
Ben Bella hafi verið steypt af
stóli tveimur dögum eftir að
hann gaf utanríkisráðherra sin-
um Abdelaziz Bouteflika, kinn-
hest.
84 láta lífið í flugslysi í USA
— er herútgáfa af Boeing 707 hrapar —
allir um borð voru bandarískir hermenn
E1 Toro, Kaliforníu, 25. júní.
AP — NTB
Mikið flugslys varð í dag
nærri EI Toro í Kaliforníu,
er bandarísk herflutninga-
þota af gerðinni C-135 (her-
útgáfa af farþegaþotunni Bo-
eing 707) féll til jarðar
skómmu eftir flugtak.
Allir þeir, sem i, þotunni
voru, 84 talsins, létu lífið. 72
þeirra voru bandarískir sjó-
iiðar, en áhöfn taldi 12.
Flugslysið varð skömmu
ef.tir að þotan lagði upp frá
E1 Toro, eri hún var á leið
til Okinawa um Honolulu.
Er taiið að áfangastaður her-
mannanna hafi verið Viet-
nam.
Er þotunnar var saknað,
hófst umfangsmiki] leit, og
fannst flakið um 7 km frá
E1 Toro. Rigning var, og
slæmt skyggrii, er slysið bar
að höndum.
Þetta er eitt af meiri háttar
slysum, sem hent hafa her-
flutningavélar, en mesta slíkt
slys varð 18. júní 1953, er
Globemastervél féll til jarð-
ar nærri Tokyo í Japan, þá
létu 129 bandarískir hermenn
lífið.
Flugvélin, sem fórst í dag,
var i ‘éigíi flugþjönus'fú bandá
ríska hersins, MATS.
>á segir blaðið enn fremuri a3
Ben Bella sé nú í haldi í eyði-
merkurbænum Coiombe Bechar.
• í Róm var frá því skýrt í dag,
að kommúnistaflokkur Ítalíu hafi
tekið upp stuðning við Ben Bella.
f sérstakri yfirlýsingu flokksins,
sem birtist í málgagni þess, „L’
Unita“, segir: „Miðstjórn ítalska
kommúnistaflokksins hefúr miki
ar áhyggjur af ástandi því, sem
nú hefur skapazt í Alsír. . . og
vonast til þess, að alsírska þjóð-
in mun halda fast við stefnu
sósiaiismans, jafnframt því, sem
látin er í ljós ósk urn, að lífi
Ben Bella og annarra alsírskra
frelsishetja verði þyrmt, og þeim
leyft að snúa aftur til eðlilegra
afskipta af stjórnmálum."
Málgagn Kristilegra demókrata,
blað Aldo Moro, forsætisráðherra
| á Ítalíu, segir í dag, að svipuð
örlög kunni að biða Boumedi-
enna og Ben Bella. Blaðið seg-
ir: „Boumedienne kemur í stáð
Ben Bella . . . hann (Boumedi-
enne) á tveggja kosta völ: Kjósi-
hann lýðræðið, verður það þjóð-
inni til gæfu. Annars mun hann
hætta á, að fyrir honum fari, fyrr
eða síðar, eins og fyrirrennara
hans“.
ítalska stjórnin hefur hins veg-
ar ekki birt neina opinbera yfir-
lýsingu um stjórnarbyltinguna í
Alsír.
• Fréttamaður Associated Press
í Algeirsborg segir í dag, að
Boumedienne hafi neitað að gefa
Nasser, Egyptalandsforseta,. lof-
orð um, að öryggis Ben Bella
verði gætt. Er það haft eftir á-
reiðanlegum heimildum, að Bou-
medienne hafi algerlega neitað
að leyfa sérstökum sendimanni
Nassers, Abdel Hakim Ámer,
varamarskálki, að héimsækja
Ben Bella í fangelsi.
FramtoaW á bl« óo