Morgunblaðið - 06.07.1965, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.07.1965, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 6. júlí 19W MORCUNBLAÐIÐ 17 ,De Gaulle er á eftir tímanum' — segir Theodor Achilles, ambassador, i viðtali um máletni Atlantshafsbandalagsins og utan- rikisstefnu Bandarikjanna FYRIR sköiívmu var hér á ferð á vegum Varðbergs dg Samtaka um vestræna samvinnu, Theodor Achilles, sem nú er einn af for- ystumönnum bandaríska Atlants hafsráðsins og ritstjóri tímarits þess, „The Atlantic Community Quarterly“. Theodor Achilles hefur lengi verið háttsettur embættismaður í bandarísku utanríkisþjónust- unni, hann átti mikinn þátt í samningaviðræðum, sem leiddu til stofnunar Atlantshafsbanda- lagsins. Síðar varð hann sendi- fulltrúi Bandaríkjanna í ýmsum Evrópulöndum, en ambassador Bandaríkjanna í Peru var hann skipaður 1956 og gegndi því starfi til 1960. Theodor Achilles hefur verið ráðgjafi bandarískra utan ríkisráðherra lþ.á.m. Dullesar og Dean Rusk, núverandi utanríkis ráðherra. Skömmu áður en Achilles hélt af landi brott átti tíðindamað- ur Morgunblaðsins tal við hann og ræddi við hann um málefni Atlantshafsbandalagsins og sér- staklega þau vandamál, sem það á nú við að etja vegna stefnu Frakka gagnvart bandalaginu. Við ræddum fyrst um aðdrag- endann að stofnun Atlantshafs- bandalagsins og sagði Achilles, að þegar Ijóst hafi orðið, á ár- unum 1946—1947, að Sovétríkin mundu ekki taka upp samvinnu við vestrænar þjóðir innan Sam- einuðu þjóðanna, hafi það verið Ernest Bevin, þáverandi utan- ríkisráðherra Breta, sem fyrstur sá fram á nauðsyn samvinnu þessara þjóða. George Marshall, utanríkisráðherra Bandaríkjanna benti þá á, að heppilegra væri, að Evrópuþjóðirnar kæmu á með sér alhliða samstarfi, fremur en tvíhliða bandalög margra þjóða. Bevin féllst á það og upp úr því varð Brtissel-sáttmálinn til, sem var varnarsáttmáli Benelux-land anna, Frakklands og Bretlands. Bandaríkin voru á þessum tíma mjög treg til þátttöku í þessum sáttmála og leit því svo út á tíma bili, að gerður mundi tvíhliða samningur milli þeirra og Evrópu þjóðanna, sem stóðu að Briissel- sáttmálanum. Það var ekki fyrr en hugmynd in kom upp um varnarsamning, sem ísland, Portúgal og Norður- löndin ættu aðild að, sem Banda rí'kin fengust til að taka fullan þátt í þessu samstarfi. Þetta var mjög mikilvægt og leiddi til stofnunar Atlantshafs- bandalagsins. Sjálfur taldi ég þessa lausn miklu betri en hina fyrri, sem reett var um. — Hvað viljið þér segja um Stefnu de Gaulle í málefnum Evrópu og afstöðu hans til At- lantshafsbandalagsins nú? •*— Þrátt fyrir þá erfiðleika, sem De Gaulle hefur skapað, tel ég, að þeir hafi a.m.k. orðið til þess, að menn hafi hugleitt meir en áður hvers konar samvinna eða sameining Evrópu væri heppi legust. Hvort hún eigi að vera einungis milli Efnahagsbandalags ríkjanna eða ná einnig til EFTA landanna eða jafnvel vera víð- tækari. Og ég er bjartsýnn á, að de Gaulle hafi með sinni fram- komu gert frekar gott en illt. En ég tel, að hugmyndir de Gaulle um bandalag hinna sex »éu of takmarkaðar o.g nauðsyn- legt sé, að í því verði einnig EFTA-löndin og vonandi einnig Bandaríkin og Kanada. Ég tel, að nú á tímum sé hin einstrengingslega þjóðernisstefna de Gaulle gamaldags. Við erutn háðir hverir öðrum, efnahags- lega og h-ernaðarlega. — Nú hefur verið nokkur ágreiningur innan Atlantshafs- bandalagsins um það, hverjir taka skuli ákvörðun um notkun kjarnorkuvopna, ef til styrjaldar kemur, og þar hafa Frakkar ver ið fremstir í flokki. Hvernig horf ir það mál við frá yðar sjónar- hóli? — Ég tel, að Evrópuþjóðirnar ættu að hafa meira um það mál að segja en þau hafa nú. Við skiljum fullkomlega nauðsyn iþess. Hitt er svo annað mál, að um þetta hafa engar ákveðnar tillögur komið frá Evrópuþjóð- unum, svo að við komum sjálfir fram með hugmyndina um MLF. Ég tel að sú hugmynd hafi verið skref í rétta átt, en ekki nægi- lega stórt. — Frakkar virðast vera í nokkrum vafa um, að Bandaríkin muni í öllum tilvikum koma Evrópu til aðstoðar, ef til styrj- aldar kemur. — Vafi Frakka í þeim efnum er óraunhæfur. Bandaríkin geta ekki staðið utan við meiriháttar styrjöld í Evrópu, það lærðum við í tveimur síðustu heimsstyrj- öldum. Eina undantekningin frá þessu væri sú, að Frakkland hæfi af eigin hvötum styrjöld án sam ráðs við önnur Evrópuríki. 1 slíku tilfelli gætu þeir varla byggt á stuðningi Bandaríkjanna eða ann arra ríkja. En ef Sovétríkin eru aðilar að styrjöld verðum við það Hka. — Erlend blöð hafa að undan- förnu birt fregnir um, að Frakk ar muni ef til vill segja sig úr Atlantshafsbandalaginu fyrir næstu áramót. Teljið þér líkur á því? — Löglega getur ekkert banda lagsríki hætt aðild að því fyrr en 1969, en ég hef ekki trú á því, að Frakkar muni segja sig úr bandalaginu þá. Þeir munu ef til vill draga smátt og smátt úr stuðningi við það, en ekki segja sig úr því. — Hver teljið þér að sé raun- verulega tilgangur de Gaulle með stefnu hans gagnvart banda- laginu? — Tilgangur de Gaulle er sá að tryggja Frökkum yfirráð í Evrópu. Hann telur sig geta stjórnað bæði Þýzkalandi og öðr um Efnahagsbandalagsríkjum. En það gerist ekki. Og ástæðan fyrir andstöðu hans gegn aðild Breta að Efnahagsbandalaginu er sú, að hann veit að hann mundi ekki geta stjórnað þeTm. — Nú virðist stefna de Gaulle njóta mikils stuðnings í Frakk- landi? — De Gaulle hefur mikinn stuðning í atkvæðum, en minni við stefnu sína. Á því er enginn vafi að andstaðan gegn stefnu hans er vaxandi. í stað þess að auka áhrif Frakka, hafa þau minnkað. — Vilja Bandaríkin frekar eiga samvinnu við það Frakk- land sem var fyrir tíð de Gaulle, heldur en það Frakkland, sem hann hefur skapað? — Við viljum sterkt Frakk- land, og það hefur de Gaulle Skapað, bæði pólitískt og efna- hagslega. Það er sterkara í dag en fyrir tíu árum. De Gaulle er á eftir tímanum og hann getur ekki til lengdar staðið á móti þróuninni. — Teljið þér að eftirmaður de Gaulle verði samvinnuþýðari en hann? — Um það getur enginn spáð hver verður eftirmaður de Gaulle eða hvaða stefnu hann muni taka. — En hvað viljið þér segja um þá fullyrðingu de Gaulle, að fyrr eða síðar muni Evrópa frá Úral- fjöllum til Atlantshafs taka upp nána samvinnu? — Leppríki Rússa verða sífell't órólegri og að þeim hreyfingum verðum við að hlúa. En Evrópa frá Úralfjöllum til Atlantshafs er stórt spor og hvar mundi valdamiðjan verða? Líklega ein- hvers staðar milli Moskvu og Berlín. Ekki í París. Það eru vissulega möguleikar á því að auka samvinnu við lepp ríkin, en það er fyrst og fremst að þakka styrkleika Atlantshafs bandalagsins. Ef hann væri ekki fyrir hendi mundu þau ekki hafa áhuga á því. — Teljið þér að miklar breyt- ingar verði gerðar á sáttmála Atlantshafsbandalagsins, þegar hann rennur út 1969? — Ég held að sáttmálanum verði ekki breytt. Árás á einn er árás á alla. Hins vegar má vera að skipulagi bandalagsins verði breytt. De Gaulle segir, að það eigi að vera minni samvinna, aðr ir telja að hún eigi að vera meiri. — Teljið þér að þátttaka ís- lands í starfi Atlantshafsbanda- lagsins hafi verið nægilega mikil? — Framlag Islands til banda- lagsins er mikilsvert. En þið mættuð gjarnan taka meiri þátt í starfsemi þess. Ég held að ís- land gæti haft mikil siðferðileg áhrif innan Atlantshafsbanda- lagsins, O.E.C.D. og Sameinuðu þjóðanna. Það er a.m.k. ekki hægt að halda því fram, að þið séuð heimsvaldasinnar. Þið getið einnig unnið mikilvægt starf á sviði tæknilegrar aðstoðar við vanþróuðu löndin. Þar gætuð þið unnið gott starf. — Kennedy forseti var mjög vinsæll meða lEvrópumanna og naut óskoraðs trausts þeirra. Teljíð þér að þær líti Johnson sömu augum? — Yinsældir Kennedys í öðr- um löndum voru mjög óvenju- legar. Ég held að enginn hafi gert sér grein fyrir því, fyrr en eftir morðið, hversu' mi'klar þær voru, a.m.k. ekki Bandaríkja- menn. Ég held, að enginn forseti geti haft samskonar samband við aðrar þjóðir og Kennedy hafði. Ég veit ekki hvernig fólk hugsar um Johnson, en ég vona, að það meti starf hans í innanlandsmál- um Bandaríkjanna. Eg skil til- finningar fólks í Evrópu, þegar því finnst Johnson ekki hafa jafn mikinn áhuga á málum þess eins og Kennedy hafði, a.m.k. ekki enn. — Teljið þér að utanríkisstefna Bandaríkjanna hafi breytzt mik- ið eftir fráfall Kennedys? — Johnson er fyrst og fremst áhugamaður um innanlandsmál- efni. Þegar hann varð forseti hafði hann engan sérstakan á- huga á utanríkismálum og þeim hefur raunverulega verið neytt upp á hann. Hingað til a.m.k. hefur hann starfað að þeim frek ar eftir því, sem vandamálin hafa komið uþp, heldur en með heildarstefnu í huga. Þegar hann var varaforseti hafði hann mikinn áhuga á mál- efnum Evrópu. Og mér þykir lík legt að á næsta ári, þegar hann hefur fengið stefnumál sín í inn anlandsmálum samþykkt í þing- inu, og ef hann hefur tíma til frá Vietnam, muni hann einbeita sér meir að málefnum Evrópu. — Blöð í Evrópu ræða nokkuð um það, að sinnuleysi Bandaríkj anna um málefni Evrópu geti haft alvarleg áhrif á samband þessara aðila. Teljið þér hættu á slíku? — Ég hef ekki áhyggjur af því, að það muni gerast. Almenn ingsálitið í Bandaríkjunum er hlynnt náinni samvinnu okkar og Evrópumanna, iþótt de Gaulle hafi ef til vill skapað nokkra beizkju í hugum manna. í lengd ina hef ég ekki áhyggjur af þessu. — Þér hafið starfað sem ráð- gjafi Dullesar og Rusk. Var mik ill munur á að starfa méð þess- um mönnum? — Dulles var mjög ákveðinn í skoðunum. Ég reyndi stundum að fá hann til þess að skipta um skoðun, en það var mjög erfitt. Dean Rusk er hins vegar eins konar prófessora-„typa“, hann er miklu opnari fyrir hugmynd um frá öðrum, óskar efir skoð- unum frá sem flestum og ræðir þær. Hann er rólegur og hlé- drægur og hans dyr standa alltaf opnar, ef menn vilja ræða við hann. Hann eyðir kannski of miklum tíma í að ræða við aðra. Eisenhower lét Dulles um utan- ríkismálin. Kennedy var hins vegar að miklu leyti sinn eigin utanríkisráðherra og fylgdist af mikilli nákvæmni með utanríkis málum. En milli hans og Rusks var mjög náin samvinna. Johnson byggir að ýmsu leyti á Rusk á sama hátt og Eisen- hower á Dulles. — Og hvað viljið þér svo segja að lokum hr. Achilles um hort- urnar í málefnum Atlantshafs- bandalagsins? — Ég er bjartsýnn á fram- tíð þess. Kjarnorkuöldin neyðir okkur til þess að finna nýjar leið ir til lausnar vandamálunum. Nú erum við allir háðir hver öðrum. Jafnvel Bandaríkin geta ekki byggt á eigin styrk. Það er mikilvægt, að Atlantshafsbanda- lagið verði meira en hernaðar- bandalag, það verður einnig að vera efnahagslegt og pólitískt bandalag. Og ég er mjög ánægður með þann áhuga, sem hér ríkir á málefnum Atlantshafsbandalags- ins. Plógkeppni í Danmörku 18. okt. 1770. Plægt með norskum Falk- enstensplóg, sem þá þótti pióga beztu. Nú eru önnur tækni og annað afi að verki. HEIMSMEISTARA- KEPPNIIPLÆINGU „Ef endistu að plægja, þú akurland fær“, St. G. St. ALLAR búmenntaðar þjóðir telja það mikla íþrótt að kunna vel að plægja. Víða uni lönd er keppt í þeirri íþrótt við mikla þátttöku, og árleg plógkeppni um heimsmeistaratign- og titil hefir farið fram nú um nokkurt skeið. Þykir sú keppni jafnan mikill viðburður, keppast hinar beztu búnaðarþjóðir um að bjóða til hennar. Á hausti komanda verður siík- ur leikur háður í Noregi. Eiga Norðmenn þá heið- ur sinn að verja, þar eð þeir hafa oft staðið fram arlega á alþjóðavettvangi í íþrótt plógsins. Þrívegis, sem ég man til, hafa þeir skipað annað sæti við alþjóðaplægingar, voru það feðgar tveir Oddur og Árni Braut frá Jaðri sem þar voru að verki, og fynr fáum-árum vann ungur bóndasonur úr Líer-sveit nálægt Drammen heimsmeist- ara sigur í plægingum. Var engu minna um dýrðir við heimkomu hans að unnum sigri heldur en þegar skíðagarparnir mestu koma heim sem sigurvegarar frá Norðurálfu eða alþjóða- keppni, og er þá langt til jafn- að. Plægingamótið í haust fer fram á Hringaríki, á Sörum-bæj unum, í Steinsgrend, en það er rétt hjá stórbýlinu Steiai, þar sem Sigurður konungur sýr njó, svo sem Snorra verður tíðrætt um í Heimskringlu, og þar sem Ólafur Haraldsson ræddi við hálfbræður sína Harald, Gutt- orm og Halfdan um æskuleika þeirra og framtíðaróskir, svo sem frægt er í sögunni. Alls er von á 43 keppendum frá 23 löndum. Þeir eru frá flest um löndum hér í álfu og einnig frá Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Ameríku. Keppendur mæta 4. okt. og nota fyrstu dagana til að búa traktor og plóg í hend- ur sér og æfa sig við þá stað- hætti sem þarna er um að ræða, og sem geta verið allfrábrugðn- ir því sem er í heimalöndum þeirra. Föstudaginn 8. okt. verð- ur keppt í akurplægingu, plæg- ir hver ekppandi teig sem er 0,2 ha. Laugardaginn 9. okt. verða plægð gróin tún. Að kvöldi þess 9. lýkur mót- inu með hófi miklu — „plóg- fest“ — í ráðhúsi Óslóborgar, og þar verða verðiaunin afhent. Ekki eru veitt nema ein verð- laun — fyrstu verðlaun — og er það dálítill plógur úr skíra gulii. Minriismerki um mótið verð- ur reist þar sern keppnin fer fram. Myndhöggvarinn Stale Kyllingstad sér um gerð þess, en í það verða felldir steinar frá þeim löndum öllum sem eiga keppendur á mótinu. Stále Kyllingstad er nokkrum íslend- ingum kunnur, það var hann sem sá um að setja Ingólf á stalla í Rivedal 1961 og gerði stöpulinn sem Ingólfur, stendur á. í sambandi við plógkeppnina verður efnt til búvélasýningar, og einnig verður þar fræðslu- sýning á vegum nefndar þeirr- ar í Noregi sem vinnur að þátt- töku í baráttunni gegn hungri sem velflest FAO-samtakalöndin standa að. Að mótinu loknu hefst ferða- lag um nokkur búnaðarhéruð Noregs, því auðvitað nota Norð- Framhald á bls. 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.