Morgunblaðið - 24.05.1966, Page 5
?>rWÍJudagur 24. mal 1966
MORGU N BLAÐIÐ
5
*
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
NORÐURLANDAMÓTIÐ í
bridgre hófst að Hótel Sögu
sl. sunnudag og setti Geir
Hallgrímsson mótið. Að lok-
inni setningu hófst 1. umferð
keppninnar og lauk henni
síðari hluta dags. Önnur um-
ferð fór fram á sunnudags-
Séð yfir mótssalinn í Hótel Sögu. (Ljósm. Bj. Bj.)
töpuðum fyrir Noregi 1 ann-
arri, sem var sannarlega
óheppni, því við erum sterk-
ari.
— Ég tel, að ef fslending-
arnir haldi vel á spilunum
eigi þeir möguleika á að kom
ast í þriðja sæti, og við það
mega þeir vel una, ef miðað
er við það, að yfifleitt hafa
þeir verið í neðsta sæti á þess
um mótum. Ég get ekki dæmt
um getu íslenzku sveitanna
að svo stöddu, en ég tel að
þeir geti telft sínum þeztu
mönnum á móti hrvaða sveit
sem er í heiminum. Ég átti
þess kost að mæta íslenzkri
bridgesveit í Brighton árið
1950, og það var mjög góð
sveit. Mér skilst þó, að þeir
sem skipuðu íslenzku sveit-
ina þá- taki ekki þátt í mót-
inu núna.
— Beztu menn finnsku
sveitanna eru án efa bræð-
urnir Keijo og Kalevi Sorro.
íslendingar eiga möguleika á 3. sæti
— segir Roman Skoroupo, leiðangurstjóri finnsku bridgesveitarinnar
kvöld. Úrslit beggja umferð-
anna eru hirt á öðrum stað i
blaðinu í dag.
Eins og kunnugt er fer mót
ið fram að tilhlutan Bridge-
sambands fslands og er hið
stærsta og umfangsmesta
sinnar tegundar, sem háð hef
ur verið hérlendis. Hefur
Roman Skoroupo leiðangurs-
stjóri finnsku sveitarinnar.
Bridgesambandið undir stjórn
Sigurjóns Guðmundssonar
unnið að undirbúningi þess
undanfarna mánuði. Keppnis-
stjóri er Norðmaðurinn Per
Elind, sem sérstaklega var
ráðinn til þess starfa, en við-
tal við hann birtist í blaðinu
fyrir skömmu og lét hann þá
mjög vel af undirbúningi og
framkvæmd mótsins.
í sama streng tók leiðang-
ursstjóri finnsku bridgesveit-
arinnar Roman Skoroupo,
sem fréttamaður' blaðsins
hafði tal af í gærdag. Skorou
po á einnig sæti í svonefndum
Áfrýjunardómstól, en hann
situr einn maður frá hverju
Norðurlandanna. Er hann
nokkurs konar Hæstiréttur
um ágreiningsefni, sem upp
kunna að koma í sambandi
við mótið.
Roman Skoroupo ræddi um
framkvæmd mótsins, og sagði
þá m.a.:
— Mótið er með afbrigðum
vel skipulagt, ef tillit er tek-
ið .til þess hversu fáir eru í
Bridgesambandinu hér miðað
við hin Norðurlöndin. Aðbún
aður okkar hér er einnig til
fyrirmyndar og íslendingar
eru ákaflega elskulegt fólk og
gestrisið. —-
— Ég þori engu að spá um
úrslitin í þessu móti enn sem
komið er, enda erfitt um vik
þar sem það er rétt að hefj-
ast. Ég hef þó góðar vonir
um að Finnar verði efstir á
mótinu að þessu sinni. því
sveitir okkar eru skipaðar úr-
valsliði, einkum karlaflokk-
arnir. Og verðum við ekki
efstir er ég þess fuilviss að
við lendum í öðru sæti. Sví-
arnir, sem unnið hafa mörg
undanfarin mót eru að vísu
sterkir, en aðstaða þeirra nú
er á margan hátt önnur en
áður. Á sunnudaginn unnum
við Dani í fyrstu umferð. en
Þeir eru ungir að árum og
hæfileikaríkir. Bridgelif
stendur með blóma í Finn-
landi, 2.500 manns eru skráð-
ir í 65 bridgeklúbba um allt
landið, þar af 10 í Helsinki,
en að sjálfsögðu spila miklu
fleiri bridge en þessi tala gef-
ur til kynna.
— Það er mér sérstök A-
nægja að fá tækifæri til að
vera hér með þeim*18 ágætu
mönnum og konum, sem
finnsku sveitirnar skipa, og
vera viðstaddur þetta fjöl-
menna og spennandi mót,
sagði Finninn Roman Skoro-
upo að lokum.
Geir Hallgrímsson borgarstjó ri, setur bridgemótið.
Aðalfundur H jartaverndar
Rannsóknarstöðin byrjar i haust
Greinar um ísland í út-,
breiddum ferðablöðum
LAUGARDAGINN 30. apríl sl.
var haldinn aðalfundur í Hjarta
vernd samtökum hjarta- og æða
verndarfélaga á íslandi. Á fund-
inum voru mættir 30 fulltrúar
frá hinum ýmsu svæðafélögum
en í samtökunum eru nú 21
svæðafélag með um 2500 félög-
um.
Formaður samtakanna próf.
Sigurður Samúelsson setti fund-
inn og bauð fulltrúa velkomna.
Fundarstjóri var skipaður Ósk-
ar Jónsson, framkvæmdastjóri,
Hafnarfirði og fundarritari Helgi
Þorláksson, skólastjóri Reykja-
vík. Formaður flutti skýrslu
stjórnarinnar, skýrði hann m.a.
frá því að fjáröflunarnefnd sam
takanna hafi safnað um 6 millj.
króna í framlögum og loforðum
um framlög, en það gerði sam-
tökunum kleyft að festa kaup á
tveim efstu hæðum háhýsisins
Lágmúli 9, en þar er fyrirhug-
að að reka rannsóknarstöð sam-
takanna. Vonir standa nú til að
stöðin geti tekið tiil starfa á
haustí komanda. Ólafur Ólafs-
son, læknir, mun sjá um dag-
legan rekstur rannsóknarstöðv-
arinnar, en hann hefir í vetur
sótt námskeið við Heilbrigðis-
stofnun Lundúnarháskóla á veg
um Hjartaverndar.
Á síðastliðnu hausti var Jó-
hann H. Níelsson hdl., ráðinn
framkvæmdastjóri samtakanna
en samtökin opnuðu síðan skrif-
stofu að Austurstræti 17 6. hæð.
Annast hún allan daglegan rekst
ur samtakanna. í lok skýrslu
sinnar þakkaði formaður þeim
einstaklingum, stofnunum og fé-
lögum sem lagt hafa fram fé til
samtakanna, en það munu vera
einsdæmi að svo mikið fé safn-
ist á svo skömmum tíma til heil-
brigðismála. ísilenzka þjóðin
stendur öll í þakkarskuld við
þessa aðila sagði formaður. Á
fundinum lágu frammi éndur-
skoðaðir reikningar samtakanna
og voru þeir samþykktir í einu
hljóði. Úr stjórn áttu að ganga
eftir hlutkesti: Ólafur Sigurðs-
son, yfirlæknir, Þórarinn Þórar-
insson, alþingism., Óskar Jóns-
son, frkvstj. Hafnarfirði, Bene-
dikt Gröndal, alþingism. og Sig-
tryggur Klemensson, ráðun.stj.
Voru þeir allir endurkjörnir.
í fundarlok skýrði formaður fyr
irkomulag rannsóknarstöðvar
samtakanna að Lágmúla 9, en
þar á að hefja á hausti kom-
anda kerfisbundnar rannsóknir
fyrst á 49 ára gömlum karlmönn
um en síðan á 40—60 ára körlum
og 50—60 ára konum. Allt fyrir
komulag stöðvarinnar er mjög
haganlegt og húsakynni öll hin
glæsilegustu.
(Frá Hjartavernd)
Mei takk
KÍNVERSKA Alþýðulýðveld-
ið hefur hafnað boði sovézku
æskulýðshreyfingarinnar um
að senda nefnd til 15. þings
hreyfingarinnar í Moskvu. í
svari Kínverja segir, að leið-
togar sovézku æskulýðshreyf-
ingarinnar vinni að því að
kapitalisminn verði aftur tek-
inn upp i Sovétríkjunum.
„Þeir hafa með miklum krafti
og ákafa útbreitt hinn hnign-
andi borgaralega kapítalisma
vírus til þess að koma til móts
við „friðsamlega þróun"
amerísku heimsvaldastefn-
unnar og þjóna sérréttindum
ákveðinna stétta í Sovétríkj-
unum“, segir í afþökkunar-
boðskap Kinverja.
ÞAÐ er ekki orðið fátítt að sjá
myndskreyttar greinar um ís-
land í þeim blöðum, sem rita
fyrir ferðamenn. Er þar oft góð-
ar greinar um land og þjóð og
fallegar myndir. T.d. tók grein
um ísland stærsta hlutann af
hinu vikulega aukablaði Travel
Trade Gazette sem út kom 15.
apríl, en það er mjöig útbreitt
blað í Bretlandi. Á forsíðu eru
litmyndir frá fslandi, og bæði lit
myndir og svarthvítar myndir
fylgja grein. sem Sylvie Nickols
skrifar. En hún hefur tvívegis
ferðast um fsland á vegum Flug-
félags íslands og með fyrir-
greiðslu ferðaskrifstofa. Hún
segir frá ferðalagi um Norður-
land og Austurland, ferð með
Esju kringum land og eina grein
sína nefnir hún „Að leysa sumar
hótelvandann“, Einnig birtist
grein um Flugfélagið.
Þá höfum við rekizt á grein
um ísland í „Vikunni í Ástra-
líu og Nýja-Sjálandi“ frá 23.
apríl. Það er myndskreytt mjög
vinsamlega ferðagrein um „Sögu-
eyjuna“ eftir Mats Wi'be Lund.
MORGUNBLAÐIÐ
\