Morgunblaðið - 01.07.1967, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1967.
Lagt til að þing ASÍ verði haSdið
4. hvert ár og fulltrúum fækkað
Umfangsmiklar tillögur um breytingar á
skipulagi Alþýðusambands Islands
Á SÍÐASTA þingi Alþýðusam-
bands tslands s.l. haust voru
samþykktar tillögur um skipu-
lagsmál ASÍ, og jafnframt var
kosinn laga- og skipulagsnefnd,
sem ætlað er að starfa til fram-
haldsþings ASI, sem kvatt skal
saman ekki síðar en 15. nóv-
ember n.k. Verkefni nefndarinn-
ar er að gera tillögur um nauð-
synlegar breytingar á skipulagi
og lögum ASÍ, en þær tillögur
skulu siðan lagðar fyrir þingið
í haust en áður skal meginefni
þeirra verða sent sambandsfé-
lögunum, sem fjalla skulu um
það og skila áliti á þinginu.
í fyrngreinda skipulagsnefnd
vopu kosnir 28 menn, sem kusu
síðan átta manna framkvæmda-
nefnd tiil að vinna undirbúninigs-
störf. í henni eiga sæti: Eðvarð
Sigurðsson. Jón Snorri Þorleifs-
son, Snorri Jónsson, Óskar Hall-
grímsison, Pétur Sigurðsson, Her.
mann Guðmundsson, Björn Jóns
son og Pétur Kristjánsson, en í
hans stað hefur Sveinn Gamal-
Fékk
sólsting
SAMKVÆMT upplýsingum lög-
reglunnar á Akranesi fékk ung-
ur maður sólsting í fyrrakvöld
við Laxá í Leirársveit. Fannst
hann þar liggjandi.
Læknir og lögregla frá Akra-
nesi fór á vettvang og úrskurð-
aði lækmirinn. að um sólsting
væri að ræða. Maðurinn, sem
er úr ±veykjavík, var fluttur í
sjúkrahús.
íelsson mætt á fundum fram-
kvæmdanefndar. í marz mánuði
boðaði framkvæmdanefndin 28
manna nefndina til fundar eftir
að hafa rætt um skipulagstillög-
urnar á fjölmörgum fundum, og
voru tillögur framkvæmdanefnd-
arinnar þar samþykktar sam-
hljóða með nokkrum breyting-
um, og sendaT þannig til sam-
bandsfélagana til umræðu og
umsagnar.
Á fundi með fréttamönnum I
gær gerði framkvæmdanefndin
grein fyrir tillögunum um skipu
lagsbreytingu ASÍ. Evarð Sig-
urðsson, sem hafði orð fyrir
nefndinni, drap fyrst á tillögur
síðasta ASÍ-þings, sem fram-
kvæmdanefndin hefur haft að
vegarnesti við samningu tillagna
sinna, en þar segir m.a. að Al-
þýðusambandið verði byggt upp
af landsamböndum, þó með þeirri
undantekningu að núverandi
sambandsfélögum, sem ekki
verður skipað að svo stöddu í
landssamlbönd, skuli heimil bein
aðil að ASÍ meðan svo er.
Eðvarð sagðl ennfremur, að
mikið hefði verið um það rætt
innan ASÍ að fækka fulltrúum
á sambandsþinginu verulega, en
samkvæmt núverandi fyrirkomu
lagi hefur hvert félag einn full-
trúa, og hefur fulltrúatalan á-
vallt verið að vaxa á undamförn-
um árum. f tillögum fram-
kvæmdanefndarinnar er lagt til
að takmarka fulltrúatöluna við
150, en það þýðir samfevæmt
núveramdi félagatölu ASÍ að 230
félagsmenn séu á bak við hvern
kjörinn fulltrúa. Þetta skapar
það vandamál. að ekki getur
hvert félag, sem aðild á að
ASÍ, átt fulltrúa, og hefur það
Flngþjónustan hefnr einnig
hng á De Hnvillnnd-vél
I GÆR skýrði Mbl. frá því að
Flugsýn hefði hug á að kaup’a De
Havilland Otter skrúfuþotu, og
nú hefur Mbl. fregnað að Flug-
þjónustan hafi einnig áhuga á
slíkri vél. Vél af þessari gerð hef
ur verið hér í nokra daga, og
hafa ýmsir hérlendir fengið að
fljúga henni til reynslu, svo sem
flugmenn frá F.I., Landhelgis-
gæzlunni og Bjöm Pálsson.
Mbl. hafði samband við Bjöm
Pálsson í gær. og spurði hann
hvort Flugþjónustan hefði í
hyggju að kaupa flugvél af þess-
ari gerð. Björn sagði, að De
Havilland vélin hefði marga þá
kosti, sem þyrfti fyrir íslenzka
staðhætti, og því hefði Flugþjón
ustan mikinn áhuga fyrir slíkri
vél, en ýmislegt þyrfti að koma
til áður en af kaupum yrði.
Hann sagði, að fleiri aðila*
hefðu sótt um áætlunarhlug en
Flugsýn til Blönduóss og Siglu-
fjarðar, og nefndi í því sambandi
bæði Þyt og Flugþjónustuna.
Hann sagði að ennþá væri eng-
in flugvél hérlendis, sem gæti
þjónað Siglfirðingum með nægu
öryggi, en De Havilland-vélin
væri ef til vill lausnin á því
vandamáli.
því orðið annað höfuðviðíangs-
efni nefndarinnar að finna leið-
ir, hvernig haga eigi kosnimgum
til alþýðusambandsþingis, og
leggur nefndin eftirfarandi til:
Landssamband, siem kýs 7 full-
trúa eða fleiri, skal skipa aðild-
arfélögum sínum í kjördeildir og
skal það vera aðalregla, að fé-
lög sem starfa í sama kjördæmi
séu í sömu kjördeild. Hver kjör-
deild kýs þá tölu fulltrúa á þirug
A.S.Í. sem sameiginleg félags-
mannatala félaganna í kjördeild-
inni gefur rétt til, miðað við
heildartölu félagsmanna viðkom.
andi samibands og heildartölu
fuilltrúa, sem sambandið á rétt
tn.
f landssamböndum, sem um
ræðir hór að ofan, eru félögum
heimilt, sem hafa jafnmarga eða
fleiri félagsmenn, en nemur
þeirri tölu, sem er að baki hvers
fulltrúa viðkomiandi sambands,
að mynda sérstaka kjördeild,
Framhald á bls. 27
Welcome totfae
American Astronauts
TW awwKwrf «t few**w<iú**
»******, m UtwiMKÓ
l t wry lÉæwf ymrnlnbtM'émtvmtát
»w Wt »w jwy
<*rea***y mw* *• »
WnbwMtoÍHiþytMt,
SmAmI'
$ttn$$9 tt Ammméhíf wtíi lly ro ibþóftí Inriiníic
M *+> --......- ■**-»--* VT* ***-*— 4|| _ „ __ »- .
IwLhmMc Ik plo WVÍCMM dMHK flftNMMHL
Skýrt var frá þvi hér í blaðinu í gær að Loftleiðir hefðu keypt
heiLsiðu auglýsingu i New York Times í tilefni heimsóknar
bandarisku geimfaranna til íslands. Mynd þessi sýnir auglýsing-
una.
Stöðva flutning leik-
rita 1. september n.k.
— hafi samningar ekki tekizt við
Ríkisútvarpið
STJÓRN Félags íslenzkra leik-
ritahöfunda hefur skrifað út-
varpsstjóra bréf og tilkynnt, að
stöðvaður verði flutningur leik-
verka félagsmanna þann 1. sept-
ember n.k. hafi samningar um
greiðsiur fyrir flutning ekki tek-
izt fyrir þann tíma.
Bréf stjórnar FÍL til útvarps-
stjóra for hér á eftir:
„Reykjavík, 28. júní 1967.
Hr. útvarpsstjóri,
Ríkisútvarpið, Reykjavík.
Vér sendum yður hér með sam
þykkt Félags íslenzkra leikrita-
höfunda viðvíkjandi samningum
um greiðslur fyrir flutning leik-
verka félagsmanna í Ríkisútvarp
ið. Hefur félagið ákveðið, að sam
þykktin taki gildi frá og með 1.
september þ.á., hafi samningar
ekki verið gerðir fyrir þann dag.
Vér væntum þess, að Ríkisút-
varpið tilkynni félaginu, ef það
vill ganga til samninga við félag
7/5 laxar hafa
fengizt í Blöndu
LAXINN er
fyrir norðan.
genginn í
1 Blöndu
arnar
hófst
í GÆR var austan gola og lít-
ilsháttar rigning á Suðurlandi
en þurrt og víðast bjart veð-
ur annars staða org áttin hæg
Dreytileg. 4 st. hiti var á Dala-
tanga kl. 15, en hlýjast 18 st.
í Haukatungu og 14 st. í Síðu-
múla.
veiðin 21. júní og virðist byrja
vel, því í fyrrakvöld voru komn
ir 115 iaxar á land, en í Blöndu
er veitt á þrjár stengur á dag.
Það sem af er veiðitímans hef-
ur Blanda verið tær, og veiðin
verið svo til eingöngu á maðk.
Fremur kalt hefur verið fyrir
norðan og lítil jökulleysing.
Um síðustu helgi veiddust 48
laxar á tveim dögum, á laugar-
daginn 27 laxar en þann Jag
höfðu læknarnir á Hofsósi og
Sauðárkróki, Valgarð Björnsson
og Steinn Steinsson. Marteinn
Friðriksson og Magnús Sigur
jónsson á Sauðárkróki veiddu
21 lax á sunnudeginum.
Á fimmtudag fengust 11 lax-
ir á 2 stengur.
í Svartá, sem er þverá Blöndu,
hefst veiðin ekki fyrr en viku af
júlí, en veiðin í Blöndu virðist
benda ttl að Svartá geti orðið
góð í sumar.
ið fyrir hinn tilgreinda dag.
Samþykkt félagsins er þannig:
„Félag íslenzkra leikritahöf-
unda var stofnað 15. nóvember
1964. Því nær allir leikritahöf-
undar íslenzkir, sem nú skrifa
fyrir leikhús og útvarp, eru inn-
an samtakanna. Ríkisútvarpið
hefur undanfarið samið við höf-
unda persónulega um greiðslu fyr
ir flutning leikverka, eftir taxta,
sem útvarpið hefur sett sjálft, en
sá taxti er mjög lágur, oa. 1/6 af
höfundalaunum, sem greidd eru
fyrir samskonar verk á hinum
Norðurlöndunum. Hefur félagið
gert endurteknar tilraunir til
þess að ná samningum við Rík-
isútvarpið og hefur lagt fram
sundurliðaðar kröfur, sem þó eru
miklu lægri en gerist á hinum
Norðurlöndunum.
Nú hefur Ríkisútvarpið endan-
lega neitað að gera samninga við
félagið, en býðst til að semja við
hvern höfund sérstaklega við
hvert tækifæri. Þessu getur félag
ið ekki unað og hefur ákveðið
að stöðva flutning leikverka
Mótmæli gegn
embættisveit-
mgu
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt yfirlýsing frá Dómarafulltrúa
félagi fslands, þar sem mótmælt
er veitingu bæjarfógetaembætt-
isins á Aknreyri og sýslumanns-
embættinu í Eyjafjarðarsýslu.
Segir í yfirlýsing’unni, að báð-
ir umsækjendur virðist álíka
hæfir og hefði því starfsaldur
átt að ráða við veitiingu embætt-
isins.
Hafi sá, sem veitingu hlaut,
verið 13 árum skemur í þjón-
ustu hins opinibera og haft minni
starfsreynslu en mótumsækjandi
hans.
í yfirlýsingiunni er stjórn dóms
mála og vítt fyrir að launa dóm-
arfullfrúa verr en aðra háskóla-
menntaða menn í þjón-uistu ríkis-
ins.
Yfirlýsingin er undirrituð af
formanni félagsins, Hrafni Braga
synL
félagsmanna í Ríkisútvarpinu,
þar til samningar néist.
Stjórn Fél. ísl. leikritahöfunda".
-----♦♦♦-----
Mikil nisnveiði
á handfæri
Akranesi, 30. jún.
HANDFÆRAVEIÐI hefur verið
góð að undanförnu, eða frá 12 til
30 lestir eftir tvo til þrjá sólar-
hringa. Er það eingöngu stórufsi
sem aflast. Af honum landaði
Haförnin í dag 21 lest, og Hauk-
ur í gær 27 lestum. Þessi afli
hefur aðallega fengizt suður und
ir Eldeyjarboða.
Veður hefur hamlað veiðum
smærri báta. Síldveiði hefur
verið stunduð af nokkrum bát-
um við Vestmanaeyjar og hafa
eftirtalin skip landað hér: Sigur-
fari 210 lestir, Skírnir 90 lestir,
Sólfari 26 lestir. Síldin er smá,
en 26% feit, og fer hún til
vinnslu í Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjuna. Hún er raunar
eins og grautur þegar henni er
landað og er það fitan sen g-erir
hana svona meyra. — H.J.Þ.
----------♦♦♦------
Blsknpi boðið
til Færeyjn
BISKUPNUM yfir tslandi, herra
Sigurbirni Einarssyni, hefur ver-
iff boðið til Færeyja í byrjun
september-mánaffar næstkom-
andi til aff vera viffstaddur end-
urvígslu kirtcjunnar í Kirkjubæ.
Boðið barst frá Joensen, bisk-
upi í Þórshöfn, en að auki er
biskupnum í Niðarósi og biskupn
um í Kaupmannahöfn boðið til
vígslunnar.
Sigurbjörn Einarsson tjáðl
Morgunblaðinu í gær, að .íann
hefði ekki ennþá getað tekið um
það endanlega ákvörðun, hvort
hann gæti þegið boðið.
Sumarferð
Sjálfstæðis-
manna í
Hafnarfirði
SJÁLFSTÆÐISMENN í Hafn
arfirffi fara í sumarferff
sunnudaginn 9. júlí nk. _ f
næstu viku verffur ferffatil-
högun og fyrirkomulag nán-
ar auglýst. '