Morgunblaðið - 01.07.1967, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1967.
Útgefandi:
Landssamband Sjálfstœðiskvenna
Ritstjéri: Anna Bjarnason
ÞÓTT nýtt og veglegt stórhýsi
sé tekið í notkun þykir það varla
orðið fréttnæmt nú á tímum, en
eitt er samt það stórhýsi, sem
tekið var í notkun, sem vert er
eð minnast sérstaklega, en það cr
hið veglega „kvennaheimili“,
Hallveigarstaðir. — Var húsið
formlega tekið í notkun á
kvennadaginn 19. júni sl., og var
þann dag opnuð vegleg listsýn-
ing á verkum íslenzkra list-
kvenna. Vegna mikillar aðsókn-
ar hefur verið ákveðið að sýn-
ingin verði opin til sunnudags-
kvölds, en ráðgert hafði verið að
henni lyki í gærkvöldi.
Nú, þegar Hallveigarstaðir
!hafa verið teknir í notkun hefur
nær 50 ára gamall draumur orð-
áð að veruleika, því einmitt um
þessar mundir eru liðin um 50
ár frá því að fyrsti formaðuir
Bandalags kvenna, frú Steinunn
H. Bjarnason, tók að rita um
byggingu fundarheimilis og
kvennaheimili fyrir kvennasam-
tökin í blað Ingu Láru „19. júní“.
Nú er heimilið risið af grunni,
<— að vísu hefur fyrirkomulagi
þar verið breytt frá því sem ráð
gert var í upphafi og fannst okk-
ur tilhlýðilegt að kynna Hallveig
arstaði nokkuð og rifja upp nokk
(ur atriði úr sögu þeirra fyrir les
i ' [
Hallveigarstaðir
Larigþráður draumur íslenzkra kvenna um sama-
stað fyrir félagsstarfsemi sína hefur rætzt
Samtal við Sigríði /. Magnússon for-
mann framkvœmdanefndar
endum okkar og hittum því að
*náli frú Sigríði J. Magnússon,
fyrrverandi formann Kvenrétt-
indafélagsins og núverandi for-
mann framkvæmdastjórnar Hall
yeigarstaða.
yar gefin lóð
*— Hver voru eiginlega fyrstu
tildrögin að stofnun Hallveigar-
etaða?
— Segja má að það hafi verið
frú Steinunn H. Bjarnason sem
vakti fyrst máls á tillögunni í
Hallveigarstaðamálinu, en hún
var fyrsti formaður Bandalags
kvenna. Skrifaði hún margar
greinar um málið og því var
hreyft á ýmsum fundum Banda
lagsins og almennum kvenna-
Éundum. Var þetta um og fyrir
1920, en þá var, eins og kunnugt
er, mikill baráttuhugur í íslenzk
um konum. Þær höfðu fengið
«ömu stjórnarfarsleg réttindi og
karlar 1915 og höfðu þá m.a. haf-
Sð fjársöfnun til byggingar
C&ndsspítalans.
Árið 1923 gaf Alþingi lóð við
Undargötu undir fundarhús.
íiMun það hafa verið fyrir atbeina
Jírú Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.
'jVar þá farið að tala við hin
#msu kvenfélög og fjársöfnun
Jiafin. Stofnað var hlutafélag og
i^íhdutabréf seld á 25 kr. stk.
Gengu konurnar svo ötullega
iram í fjársöfnuninni að þær
•kiptu bænum í hverfi eftir göt
um og fóru víst nálega í hvert
hús.
Um 1930 hafði safnast gildur
sjóður, en þá fannst forráðakon-
um félagsins að hentugra væri að
skipta á lóðinni við Lindargötu
og fengu í hennar stað hornlóð-
ina á horni Garðastrætis og Öldu
götu. Þá festu þær kaup á horn-
inu Túngötumegin, sem aðal-
byggingin stendur við, — að mig
minnir á 28 þús. kr. — Rn eftir
því sem árin liðu og ekkert ból-
aði á framkvæmdum fór fjár-
söfnun að ganga dræmt. Það var
reyndar ekki fyrr en 1943 sem
máiið tók verulegan fjörkipp og
var þá kosin, fjáröflunarnefnd
hjá Bandalagi kvenna. Var frú
Guðrún Jónasson fyrsti formað-
ur hennar. Arnheiður Jónsdóttir
tók við formennsku fjáröflunar-
nefndarinnar að frú Guðrúnu lát
inni. Núverandi formaður nefnd
arinnar er frú Guðrún Heiðberg.
Hafði nefndin mörg spjót úti
til fjáröflunar, m.a. byrjaði hún
á að hafa kaffisölu fyrir almenn-
ing, sem margir hafa síðan tek-
ið upp, handavinnu- og listiðn-
aðarsýningar voru haldnar m.a.
sýning í Þjóðleikhúsinu á meðan
það var í byggingu og stór sýn-
ing í Listamannaskálanum 1948.
Laufey Vilhjálmsdóttir sem vann
ötullega í mörg ár að málefnum
Hallveigarstaða, teiknaði upp-
drátt að silfurskeið, Hallveigar-
staðaskeiðinni, sem smíðuð var
í Þýzkalandi og seldist upp á
skömmum tíma. Nú hefur skeið-
in verið smíðuð á ný og seld
víða.
Hlutafélagið Ieyst upp
— Árið 1945 var samþykkt að
leysa upp hlutafélagið og húsið
gert að sjálfseignarstofnun. Þá
var kosin framkvæmdanefnd
skipuð 9 fulltrúum; 3 frá Kven-
félagasambandi íslands, 3 frá
Kvenréttindafélaginu, ríki og
bær, sem árlega styrktu stofnim-
ina með fjárframlagi áttu sinn
fulltrúann hvor og Alþýðusam-
band Islands 1 fulltrúa. Fyrsti
formaður nefndarinnar var Stein
unn H. Bjartmars, síðan Guðrún
Pétursdóttir, þá Kristín L. Sig-
urðardóttir og nú seinustu árin
hefur Sigríður J. Magnússon ver-
ið formaður nefndarinnar.
— Þá þótti sýnt að byggingar-
leyfi fyrir eins stóru húsi og
ákveðið hafði verið í upphafi,
með gistiherbergjum og öllu til-
heyrandi, fengizt ekki á þessari
lóð. Var þá horfið að því máli
að byggja skrifstofu og fundar-
hús fyrir konur. Var þá þeim
aðilum, sem hlutabréf áttu 1
félaginu skrifað bréf og gefinn
kostur á að fá endurgreitt hluta-
fé sitt með vöxtum, eða hvort
þeir vildu gefa stofnuninni féð.
All margir höfðu gefið fé til her-
bergja, þá oft til minningar um
einhverja látna konu og fannst
framkvæmdastjórninnf, er nú
skyldi breytt um fyrirkomulag
á stofnuninni, að rétt væri að
gefa fólki kost á að fá þetta
minningarfé endurgreitt, en eins
og segir í bréfi framkvæmda-
stjórnarinnar frá 7. júlí 1961?
„... .ef einhverjir létu samt sem
áður fégjafir sínar renna til
stofnunarinnar, að þá skyldi gerð
eirtafla með nöfnum gefenda og
nöfnum þeirra, er gjöfin var til-
Þessi mynd var tekin er fjáröflunamefnd Hallveigarstaða gerði sér dagamun og fór saman
í leikhúsið að afloknum 100. fundl sínum. Fremst á myndinní má greina forustukonur Hall-
veigarstaða, frú Guðrúnu Jónasson, Steinunni H. Bjaraason og fleiri mætar heiðurskonur,
sem vinna að málefnum stofnunarinnar. '