Morgunblaðið - 27.09.1967, Page 16
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. SEPT. 1987
Útgefandi:
Framkvæmdastj óri:
Ritstjórar;
Ritstjómarfulltrúi:
Fréttastjóri:
Auglýsingar:
Rifstjórn og afgreiðsla:
Auglýsingar:
t lausasölu:
Askriftargjald kr. 105.00
Hf. Aryakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Jphannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Arni Garðar Kristinsson.
Aðalstrœti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 8. Sími 22-4-80.
Kr. 7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
„TALSMENN
BARLÓMSINS
V&J
UTAN ÚR HEIMI
Austur-Evrópa og Gyðingar
Teikning úr sovézka skopblaðinu Krokodil: ísraelski sporð-
drekinn í Sinai-eyðimörkinni.
¥ gær getur að líta enn eitt
dæmi um það, hvernig
leiðtogar og málgögn Fram-
sóknarflokksins líta á við-
fangefni og vandamál hins ís-
lenzka þjóðfélags. í forustu-
grein Framsóknarblaðsins eru
þeir menn, sem líta raunsæj-
um augum á þá erfiðleika
sem íslenzka þjóðin á nú við
að etja kallaðir „talsmenn
barlómsins".
Framsóknarmenn kalla það
með öðrum orðum „barlóm“,
þegar bent er á þau vand-
kvæði, sem af því leiða, að
aðalútflutningsafurðir íslend-
inga hafa fallið í verði um
allt að 50%. Þegar útgerðar-
menn og sjómenn lýsa vanda
sínum vegna aflabrests og
verðfalls afurða, kalla Tíma-
menn það barlóm.
Þannig er ábyrgðartilfinn-
ing og raunsæi leiðtoga og
málgagna Framsóknarflokks-
ins.
Því miður er lýsing á efna-
hagserfiðleikum okkar ís-
lendinga um þessar mundir
ekki órökstuddur barlómur.
Þvert á móti er hér um blá-
kaldar staðreyndir að ræða.
Staðreyndir, sem ekki er
hægt að sniðganga.
Þessir erfiðleikar eru sann-
arlega ekki að kenna stefnu
viðreisnarstjórnarinnar. I
skjóli stefnu hennar hefur
átt sér stað stórfelld uppbygg
ing atvinnulífsins og aukning
framleiðslunnar. Það er
vegna þessarar miklu fram-
leiðsluaukningar, sem þjóðin
hefur getað bætt lífskjör sín
að miklum mun á undanförn-
um árum. Þess vegna er hún
einnig færari um að mæta
stundarerfiðleikum en ella
hefði verið.
Því fer víðsfjarri, að for-
ustumenn stjórnarflokkanna
hafi reynt að leyna kjósend-
ur þeim erfiðleikum, sem við
blöstu þegar á s.l. vori. Þvert
á móti var af hálfu ríkis-
stjórnarinnar lögð mikil
áherzla á það, að þverrandi
aflabrögð og verðfall út-
flutningsafurða hlyti að
skapa vissa erfiðleika. En
gegn þessum erfiðleikum
yrði þjóðin að snúast af mann
dómi og festu eins og svo oft
áður, þegar stopull sjávarafli
eða afurðaverðfall hefur
steðjað að.
Framsóknarflokkurinn og
leiðtogar hans munu ekki
auka traust sitt meðal þjóð-
arinnar með því að ráðast
með svívirðingum að ein-
stökum ráðherrum fyrir að
gegna skyldustörfum sínum
og taka þátt í fundum al-
þjóðlegra stofnana, sem Is-
lendingar eiga aðild að. Al-
menningur á íslandi veit, að
slík þátttaka er óhjákvæmi-
leg til þess að tryggja hags-
muni lands og þjóðar á marga
vegu.
Það væri góðra gjalda vert,
ef leiðtogar Framsóknar-
flokksins segðu íslenzku þjóð
inni nú einu sinni umbúða-
laust frá því hver væri stefna
þeirra og flokks þeirra í efna-
hagsmálum. Hingað til hafa
þeir falið þessa stefnu vendi-
lega. Þeir hafa látið við það
eitt sitja að tala um „hina
leiðina“ og „jákvæðu leið-
ina.“ En þeir hafa aldrei
fengist til þess að upplýsa
hvað þessar leiðir þeirra
þýddu í raun og sannleika.
Þess vegna vita íslendingar,
að Framsóknarmenn eru úr-
ræðalausir menn, sem engan
vanda geta leyst. Þeir geta
aðeins þvælzt fyrir uppbygg-
ingu og framförum í nei-
kvæðri stjórnarandstöðu. And
stæðinga sína, sem ræða
vandamál þjóðarinnar af
hreinskilni og raunsæi kalla
Framsóknarmenn ,talsmenn
barlómsins". E.t.v. sýnir ekk-
ert betur, hversu gersamlega
Framsóknarflokkurinn er slit
inn úr tengslum við samtíð
sína.
SINFÖNlU-
HLJÖMSVEITIN
L sl. starfsári tóku forráða-
menn Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands upp þá nýjung
í starfi hljómsveitarinnar að
efna til sérstakra hljómleika
fyrir skólanemendur, bæði
börn og unglinga. Á fundi
með fréttamönnum í fyrra-
dag lýstu forráðamenn hljóm-
sveitarinnar yfir undrun sinni
vegna lélegrar aðsóknar ungl-
inga að hljómleikunum en
sögðu hins vegar að börn
hefðu sótt hljómleika sína
vel.
Sinfóníuhljómsveit íslands
er ein af meginstoðum menn-
ingarlífs höfuðborgarinnar og
tæplega gerir fólk sér al-
mennt grein fyrir því hvert
afrek það er, að halda uppi
slíkri hljómsveit í fámennri
borg og fámennu landi. Það
hefur verið gæfa hljómsveit-
arinnar og gleðiefni tónlist-
arunnendum að afburðamað-
ur hefur fengizt til þess að
stjórna hljómsveitinni síð-
ustu ár, þar sem er pólski
stjórnandinn, Bohdan Wod-
ÁRÓÐUR sá, sem rekinn hef-
ur verið ígegn ísraelsmönn-
um og zíonisma í Sovétríikj-
unum og öðrum Austur-
Evrópulöndum í sumar, hefur
ekki aðeins endurvakið
gamla hleypidóma í garð Gyð-
inga heldur einnig vakið ugg
um nýjar Gyðingaofsóknir í
hinum kommúnistíska heimi.
i Frjálslyndir menn eins og
James Pike biskup og sósíal-
istaforinginn Norman Thom-
as létu svo um mælt á ráð-
stefnu, sem haldin var í New
York í sumar um hagi Gyð-
ina í Sovétríkjunum, áð sov-
ézk yfirvöld rækju „kalt
stríð“ gegn Gyðingum og því
sem eimir eftir af trúarlegum,
menningarlegum og borgara-
legum réttindum þeirra
Margt bendíir til þess, að
hér sé ekki einvörðungu um
hugsjónabaráttu að ræða.
Rússar hafa stöðvað fólks-
flutninga til fsrael,. en reynd-
ar hafa þessir fólksflutningar
verið sáralitlir. Frá Tasjkent
og Grúsíu hafa borizt þær
fréttir, að vísu óstaðfestar, að
Múhameðstrúarmenn hafi of-
sótt Gyðinga. f Póllandi hef-
ur verið hreinsað til í hern-
um, og þeir sem hafa orðið
fyrir barðinu á þessum
hreinsunum eru liðisforingj-
ar, sumir þeirra Gyðingar,
sem mótmælt hafa hinni
fjandsamlegu stefnu pólsku
stjórnarinnar gagnvart fsra-
elsmönnum.
Pólski komúnistaflokkur-
inn hefur einnig hafið um-
fangsmikla rannsókn á aga í
flokknum og hugsjónahollustu
flokksmeðlima, en með þessu
hefur verið meðai annars
reynt að ganga úr skugga um
afstöðu flokksmanna til ísra-
elsstríðsins. Yfirmaður
fiokksdeildarinnar í Varsjá
sagði í sumar, að hreinsanirn-
ar mundu nú til alira þeirra,
sem gert hef ðu sig seka um
að taka „flokksfjandsamlega,
andsósíalistíska og andpólska“
afstöðu í ísraelsdeilunni.
Enginn vafi getur leikið á
afstöðu Gyðinga sjálfra til at-
burðanna. Þúsundir sovézkra
og pólskra Gyðinga hafa end-
ursent heiðursmerki, sem
þeir voru sæmdir fyrir
hreystilega framgöngu í síð-
ustu beimsstyrjöld, til þess að
mótmæla hinni opinberu
stefnu. Þar með eru allir
Gyðingar sjálfkrafa taldir
stjórnmálalega óáreiðanlegir.
f Póllandi hefur nú greini-
lega verið snúið baki við
yfirlýsingunum um jafnfrétti
Gyðinga, sem samþykktar
voru 1956.
Almenningur styður ísrael.
Ef til vill er mikilvœgasta
ályktunin, sem má draga af
deilunum í Austur-Evrópu
isczko. Það er í rauninni ein-
stætt að maður með hæfi-
leika á borð við Wodisczko
skuli fást til starfa hér á
landi.
Það er illt til þess að vita,
að tilraunir Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar til þess að kynna
unglingum góða tónlist skuli
fá svo lélegar viðtökur. Á
blaðamannafundinum sagði
hinn pólski stjórnandi, að
um stríðið á Sinaiskaga sú,
að kommúnistaforingjarnir
telji sig knúna til að vinna
gegn almennri samúð, sem
ísraelsmenn njóta meðal alls
þorra fólks, meðal annars
kommúnista. Valdhafarnir
óttast ekki zíonista, sem eru
smám saman að hverfa af sjón
arsviðinu, heldur almennings
álitið.
Rannsókn sú, sem fyrir-
skipuð var í pólska kommiún-
istaflokknum, náði til 10%
flokksmanna, það er 200.000
manna, en alls búa 3/0.000
Gyðingar í Póllandi. í Tékkó-
slóvakíu gerðist það í ísra-
elsistríðinu, að blaðamenn
mótmæltu stefnu stjórnarinn-
ar á þann 'hátt að skýra jafnt
frá sjónarmiðum ísraels-
manna sem Araba í útvarpi
og sjónvarpi, og þannig
spilltu þeir fyrir stefnu
stjórnarinnar. í Júgóslavíu
gagnrýndu blöðin opinskátt
hina vinveittu stefnu Titos
gagnvart Aröbum, og blaðið
„Ekonomska politika“ í
Belgrad spurði meðal ann-
ars, hvers vegna sósíalista-
ríki ættu að styðja lénsríki í
baráttu þeirra gegn ísrael,
eina landinu fyrir botni Mið-
jarðarhafs, þar sem kommiún-
istum væri leyft að starfa.
Á því getur ekki leikið
nokkur vafi, að austur-evr-
ópskir menntamenn og rit-
höfundar töluðu fyrir munn
samborgara sinna þegar þeir
birtu mótmæli gegn af-
stöðu Austux-Evrópuríkj-
anna í sumar. Mótmæli slóv-
akíska rithöfundarins Ladis-
lav Mnackos vöktu eðlilega
mesta athygli, en hann fór til
ísrael. Hik tékknesku stjórn-
arinnar sést bezt á því, að
hún taldi nauðsynleigt að
svipta þennan heimsþekkta
rithöfund og gamla stalínista
skólayfirvöld yrðu að ryðja
hér brautina. Tónlistin ætti
að vera allra eign og áhugi
barnanna sýndi, að af slíku
gæti orðið. Stjórnandinn
sagði ennfremur, að ungling-
um hefði verið boðið upp á
ágætis verk í fyrra en áhuga-
leysi skólayfirvalda hefði
kæft tilraunina. Því verður
vart að óreyndu trúað, að á
því verði ekki ráðin bót.
ríkisborgararétti otg koma
þannig í veg fyrir, að hann
færi aftur til Tékkóslóvakíu.
í yfirlýsingu sinni til heims
blaðanna sagði Mnacko, að
andúð í garð Gyðinga væri
ekkert nýtt fyrirbæri í Tékkó
slóvakíu. Hið nýja Gyðinga-
haíur væri arfur frá Stalíns-
tímnum, en skuggar fortíðar-
innar væru enn ekki horfnir,
þar sem að minnsta kosti einn
þeirra manna, sem ábyrgð
bæru á gömlu ógnarstjórninni
og kynþáttahatri því, sem
setti svip sinn á hana, væri
enn við völd. Hér átti Mnacko
við Slansky-réttarhöldin
1952, en sakborningarnir þá
voru nær eingöngu Gyðing-
ar. Og maðurinn, sem átti
hvað mestan þátt í sviðsetn-
ingu réttabhaldanna, var eng-
inn annar en núverandi for-
seti Tékkóslóvakíu, Antonin
Novotny, sem einnig er leið-
togi kommúnistaflokksins.
Liður í baráttu.
Kröfur tékkneskra rithöf-
unda um frjálsar umræður
verða stöðugt háværari, og
þeir vilja sjálfir ráða því, um
hvað umræðurnar fjalla,
hvor’t sem það er Gyðinga-
haitur eða annað. í þeirra aug-
um er hið nýja Gyðingahatur
aðeins dæmi um, hvernig aft-
urhaldsöflum hefur tekizt að
halda í völdin. f raun og
veru hafa menntamenn í
Tékkóslóvakíu myndað póli-
tíska andstöðu, og þeir einir
eru færir um að halda uppi
andstöðu, þar sem engir aðrir
hafa aðlgang að fjölmiðlunar-
tækjum.
Sama máli gegnir um sov-
ézka ritíhöfunda, en aðstaða
þeirra er erfiðari. Þeir geta
ekki notfært sér möguleika,
sem eru fyrir hendi, þeir
Fnamih. á bls. 24
Bohdan Wodisczko ræddi
einnig hlutverk blaðanna og
sagði að mikið skorti á að
gagnrýni og kynning á verk-
um Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar væri sem skyldi. Þá gagn-
rýni ber blöðum að taka til
athugunar og kanna með
hverjum hætti þau geti orðið
til að efla starfsemi hljóm-
sveitarinnar enn meir frá því
sem nú er.