Morgunblaðið - 09.11.1967, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. NÓV. 1967
ÖLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
Kópavogsbíó:
MARKGREIFINN, ÉG
MYND þessi er byggð á sann-
sögulegum atburðum, er Skrif-
stofumaður nokkur 1 Kaup-
mannahöfn tók upp á því, fyrix
nokkrum árum, að kalla sig
Markgreifann de Sade. Urðu
menn mjög upprifnir yfir þess-
um merka aðalsmanni og fékk
hann lánstraust rýmilegt og
eyddi peningum hið óðasta, þar
til upp komst, að hann átti enga
peninga og var ekki heldur mark
greifi.
I>ótti mörgum fyrirtækið
snjallt og þeir menn ekki eiga
ibetra skilið, sem láta snofobið
ráða sér svo, að dómgreindin
gleymist. Hér er því upplagt efni
í meinlega hæðna kvikmynd,
sem kæmi við kaunin á gervi-
mennskunni og hégómaskapnum.
Við skulum heldur ekki gleyma
því, að þó að þessi tiltekna saga
hafi gerzt í Danmörku, gætu
hliðstæðir hlutir skeð viðar.
Sagan byrjar sæmilega, á með-
an markgreifinn er að komast
inn í hlutverkið oig koma sér
fyrir í húsinu, sem er mjög
glæsilegt. Hann gerist mjög til-
gerðarlegur í klæðaburði og
(klæðir sig að hætti aðalsmanna
á liðnum öldum,
En um miðja kvikmynd lendir
maðkur í mysuna. Nafnið de
Sade var áður borið af frönskum
greifa, sem sadisminn er kennd-
ur við. Hann var kynferðislega
brenglaður og höfundur mynd-
arinnar getur ekki staðizt það,
að gera myndina að svolítið betri
markaðsvÖTU, samkvæm.t þeim
hugmiyndum sem Skandinavar
hafa um hvernig gróðavænlegt
skemmtiefni á að vera,
Þeir láta sem sé vankantafólk
á kynferðissviðinu hópast að
m-arkgreifanum. Lengsta og
mesta sena myndarinnar er í af-
mælisveizlu markgreifans, þar
sem kvenfólk mætir allt hálf-
nakið og sviptir sig síðan klæð-
um, þegar borðhaldi er lokið.
Heyrisf síðan langur dans og
mikill, þar sem kvensur þessar
skaka sig sem mest þær mega.
Það fer að sjálfsögðu þannig, að
þær skaka myndina úr liði.
Myndin hefst sem komedia, er
um miðjuna orgia og á svo
enda sem satira. Árangurinn
verður sá, að hún verður ekkert
af þessu.
Aðalleikari er Gabriel Axel og
verður ekki sagt að honum tak-
ist vel. Hann hefur bersýnilega
þær hugmyndir um elegans, að
ganga stífur og hreyfa sig hægt.
Aðrir leikarar eru þeir sömu og
í síðustu dönsku rnynd sem þið
sáuð og þeir sömu og verða í
þeirri næstu.
í prógramminu kemuT fyrir
næsta brosleg setning. Þegar
rætt er um afmælisboð segir svo:
„Til að trufla ekki velsæmi-
kennd (sic) bíógesta, skal ekki
■lýsa þessum gleðskap hér, en
taka upp söguþráðinn næsta
dag“. Það væri nú verst, ef menn
læsu það sama í prógramminu
og þeir sjá á tjaldinu.
Stjórnandi er Palle Arestrup
og handrit skrifaði Peer Guld-
brandsen og hefur hvorugur get-
að gert upp við sig hvernig
myndin ætti að vera. Tónlist er
eftir Chopin, Strauss og Sven
Gyldmark og verður sá síðast-
nefndi alveg undir í þeim við-
skiptum.
Vilja betri aðstööu
við bifreiðaskoðun
AÐALFUNDUR Félags ísl. bif-
reiðaeftirlitsmanna var haldinn
í Reykjavík 26.—28. október sl.
Aðalmáf fundarins voru,
launa- og kjaramál bifreiðaeft-
irlitsmanna, svo jg umferðar- og
öryggismál.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
flutti fróðlegt erindi um undir-
búning löggæzlu, vegna hægri
umferðar á íslandi. Þá flutti
Geir G. Bachman, bifreiðaeftir-
litsmaður, erindi frá fundum
norrænna bifreiðaeftirlitsmanna
í Sviþjóð og umræðum fundar-
ins, en á mótum norrænna bif-
reiðaeftirlitsmanna eru umferð-
ar- og öryggismál mikið rædd,
og tæknigallar, sem fram koma
í ýmsum tegundum ökutækja.
Meðal ályktana er gerðar
voru á fundinum, var áskorun til
dómsmálaráðuneiytisins, að nú
þegar verði hafizt handa með
byggingu skoðunarstöðvar í
Reykjavík, búna fullkomnum
tækjum til skoðunar, ennfrem-
ur verði unnið að bættum vinnu
skilyrðum bifreiðaeftirlitsmanna
utan Reykjavíkur. Þá verði um-
skráningar innan sama umdæm-
is ekki leyfðar, þó um eigenda-
skipti skráðra ökutækja sé að
SVEINN KRISTIMSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
Nýja Bíó:
ÞAÐ SKEÐI UM SUMAR-
MORGUN
Frönsk kvikmynd frá Terra
Films.
Leikstjóri: Jacques Deray
Aðalleikendur:
Jean Belmondo
Geraldine Chaplin
Sophie Daumer
Þá hefur maður barið hana
Geraldinu litlu Chaplin augum
á kvikmyndatjaldinu. Mikið
kippir henni í kyn föðurins,
hvað útlit snertir. Hún er gædd
sérkennilegri, ’hálfmystiiskri feg-
urð. Sem kvenmaður er hún
glæsilegri en faðir hennar sem
karmaður. Hæfir betur sínum
kynflokki. Þótt Chaplin sé snjall
leikari, þá er karlmennskulegt
yfirbragð ekki hans sterkasta
hlið, þar sem dóttir hans er aftur
á móti gædd kvenlegri mýkt og
þokka í ríkum rnæii. Karanski á
Chaplin frægð sína að nokkru
leyti því að þakka, að hann er
1 útliti ekki í almennasta flokki
sinna kynbræðra. Mestu ráða þó
vafalaust hinir frábæru leikara-
haefileikar hans.
Enn er Geraldina lítt skrifað
blað, ef uim leikafrek er rætt.
Ólík.egt er, að henni takist
nokkru sinni að móta svo sér-
stæða „týpu“ og festa hana svo
traustum tökum í meðvitund
fólks og föður hennar hefur
auðnazt.
IÞetta er annars sakamála-
mynd, gamansöm í bland, með
hálftragiskan endi þó. Hinn vin-
aæli leikari Jean-Paul Belmondo
leikur þarna hálfvolgan afbrota-
mann, sem fleytir fyrst fram líf-
inu á því að láta kærusfu sína
plata fé út úr auðugum þjóð-
félagsstólpum. En síðar er hann
girantur út í enn hæpnari aðgerð-
ir: að ræna dóttur milljónamær-
irags nokkurs (ungfrú Chaplin).
Kærasta hans leggur í fyrirtæk-
ið með honum, því fimm hundr-
uð þúsund frankar eru í boði, ef
allt fer vel. Það er heil Breið-
holtsíbúð fyrir pör, sem skortir
flest annað en ást til að stofna
heimili. — Hér skal ekki rakið,
hvernig fyrirtæki þessu reiðir af,
en mannvíg og slagsmál fá menn
að sjá, áður en tjaldið fellur.
Þessi samsuða gamansemi,
sakamálaefnis og tragiskra at-
burða myndar þarna kvikmynd,
sem býr yfir býsna mikilli
spennu, enda senuskipti hröð og
gnægð óvæntra atburða á boð-
stólum. Efnið er ekki beint nýst-
árlegt — maranrán gerast nú tíð I
kvikmyndum til dæmis — en vel
á því haldið af ieikstjóra og
sæmilega af leikendum yfirleitt
Þó fer ekki á milli mála, að
það er þjófur á senunni, sem gín
yfir 'hlut annarra leikenda. Það
er Betanondo. Hann verður minn
isstæðastur allra leikenda fyrir
frábæra leiktækni, og þótt hon-
um virðist láta betur að leika
gamanhlutverk, þá fer ekki á
milli mála, að hann er mjög fjöl-
hæfur leikari, fær í flest hlut-
verk.
Dóttir Chaplins þarf ekki að
skammast sín fyrir þann mót-
leikanda.
ræða. Ennfremur, að launakjör
bifreiðaeftirlitsmanna verði sam
ræmd lauraum norrænna foif-
reiðaeftirlitsmanna.
Þá skorar fundurinn á alla veg
farendur, bæði gangandi og ak-
andi, að sýna fyllstu tillitssemi í
um-ferð. Sérstaklega er þeim til-
rraælum beint til ökumanraa, að
halda ökutækjum í fullkomnu
lagi, og umfram allt, að aðal-
ljósabúnður sé rétt stilltur, eran
fremur að búnaður sé á hjólum
til að mæta hálku yfir vetrar-
mánuðina.
Ökumenn. Hefjið ekki akstur,
nema fullkomið útsýni sé gegn
um rúður ökutækisins. í kuld-
um vilja rúður hríma, hafið því
rúðusköfu ávallt í ökutækinu,
þurrkið ekki með handarjaðri
móðu af rúðum, he'ldur með
rúðusköfu eða þar til gerðum
klút.
Gangið þannig frá bifreið-
inni, að ekki sé hætta á að óvið-
komandi geti sett hana í gang.
Gripdeildir eru tíðar á bifreið-
um, og í flestum ti'lfellum því
að kenraa, að ekki er gengið
tryggilega frá bifreiðinni.
Margir árekstrar stafa af því,
að ekið er of pærri þeim, sem á
undan ekur. Talið er hæfilegt,
að bil milli ökutækja sé ein bíl-
lengd á hverja 10 km. miðað við
hraða á klst. Takið fullt tillit til
annarra í umferðinni, sýnið
kurteisi og prúðmennsku og
keppið að slysalausri umferð.
Sitjórra félagsns skipa: For-
maður Gestur Ólafsson, varafor-
maður Sigurður Indriðason, rit-
ari Guðmundur Fr. Guðmunds-
son, gjaldkeri Páll Ingimarsson
og meðstjórnandi Hafsteinn
Sölvason.
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Bergstaðastr. lla.
Sími 15659, Opið kl. 5—7 alla
virka daga nema laugardaga.
TITAN
JAFNSTRAUMS
og RIÐSTRAUMS
rafmótorar
fyrirliggjandi
LUDVIG
STORR
Laugavegi 15 - Sími 1-33-33
KLAGSUF
Aðalfundur.
Aðalfundur frjálsíþrótta-
deildar K.R. 1967, verður hald
inn í K.R.-heimilinu við Kapla
skjólsveg fimmtudaginn 16.
þ. m. og hefst kl. 20,30.
Stjórnin.
Aðalfundur Sambands Dýra-
vemdiunarfélaga íslands 1967.
Stjórn Sambandis Dýra-
verradiunarfélaga íslands —
(SDÍ) hefur saimþykkt að
boða til aðalfundar SDÍ sunnu
daginn 26. nóv. n. k.
Fundarstaður Hótel Saga í
Reykjavík.
Fundurinn hefst kl. 10.
Dagskrá saimkv. lögum SDÍ.
Reikningar SDÍ fyrir árið
1966 liggja frammi hjá gjald-
kera, Hilmari Norðfjörð, Brá-
va-llagötu 12, Reykjavik, þrem
ur dögum fyrir aðalfund.
Mál, sem stjórrair sambands-
félaga, einstakir félagar eða
trúnaðarmenn SDÍ ætla sér
að leggja fyrir fundinn óskast
send sem fyrst til stjórnar
SDÍ.
Stjórnin.
Raftæknifræðingur
útskrifaður úr dönskum viðurkenndum tækniskóla
óskar eftir vinnu nú þegar. Tilboð sendist Morgun-
blaðinu fyrir 12/11 merkt: „Raftæknifræðingur
438.“
Atvinna
Piltur 14—16 ára óskast til afgreiðslustarfa. Uppl.
í dag kl. 5—6 í Söluturninum, Leifsgötu 4.
Hjónaklúbbur Carðahrepps
Skemmtun verður haldin í samkomuhúsinu á Garða
holti laugardaginn 11. þ.m. og hefst kl. 8.30 með
stjómarkosningu. Aðgöngumiðapantanir í síma
50008.
Stjórnin.
FASTEIGNASALAN
GARÐASTRÆTI 17
Símar 24647 - 15221
Tii sölu
í Kópavogi
4ra herb. hæð í steinhúsi, bíl-
skúrsréttur, útborgun 300
þúsurnd sem að má skipta,
íbúðin er laus strax.
4ra herb. efri hæð í nýju stein
húsi, sérhiti, sérinngangur,
bílskúrsréttur, útborgun 600
þúsund, sem má skipta í
þrennt eftir nánara sam-
komulagi.
3ja herb. kjallaraíbúð í tví-
býlishúsi, sérinng., laus
strax, góðir greiðsluskilrraál-
í Reykjavík
2ja herb. góð kjallaraibúð við
Skeiðarvog, sérinngangur,
harðviðarinnréttingar, enda
íbúð.
3ja herb. kjallaraíbúð við
Mávahlíð, sérinngangur.
3ja he'rb. ný íbúð á hæð við
Kleppsveg.
4ra herb. hæðir í Vesturbæn-
um.
Við Birkimel, Holtsgötu,
Br.ekkustíg og Kaplaskjóls-
veg.
Við Bólstaðarhlíð, 5 herb. efri
hæð, bílskúr.
Við Háaleitisbraut 5 herb.
vönduð íbúð á 1. hæð.
Hálf húseign í Norðurmýri,
8—9 herb.
Parhús í smíðum í Fossvogi,
teikningar til sýnis á skrif-
stofunni.
Árni Guðjónsson, hrl.
Þorsteinn Geirsson, hdl.
Helgi Ólafsson, sölustj.
Kvöldsími 40647.
Fiskiskip til sölu
Höfum til sölumeðferðar mik
ið úrval fiskiskipa af flest-
um stærðum. í mörgum tilfell
um eru verð og greiðsluskil-
málar mjög hagstæðÍT. M.a.
höfum við til sölumeðferðar
250 rúml.
180 rúml.
120 rúml.
230 rúml.
100 rúml.
90 rúml.
70 rúml.
50 rúml.
75 rúml.
40 rúml.
25 rúml.
19 rúml.
16 rúml.
nýlegt stálskip
nýlegt tréskip
nýlegt tréskip
nýlegt stálskip
stálskip
tréskip
tréskip
tréskip
stálskip
tréskip
tréskip
tréskip
tréskip
Einnig höfum við til sölu-
meðferðar fiskvinnslustöðvar
og frystihús í mörgum ver-
stöðvum.
Hafið vinsamlega samband
við okkur, áður en þér tak-
ið ákvörðun um kaup eða
sölu i fiskiskipum, eða fisk-
vinnslustöðvum.
Upplýsingar í símum 13630,
18105 og utan skrifstofutíma
36714.
Fasteignir & fiskiskip
Hafnarstræti 19.
Fasteignaviðskipti.
Björgvin Jónsson.
FJaðrir fjaðrablöð hljóðkútar
púströr o. fl. varahlutir
i margar gerðir bifreiða
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168 Sími 24180