Morgunblaðið - 09.04.1968, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.04.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1968 21 - BANDARÍKIN Framhald af bls. 1 þriðjudegi", meðal annars með því að leggja niður vinnu. Dr. King verður jarðsettör í Atlanta í Georgíuríki þar sem hann er fæddur, og þar hvílir lík hans á viðhafnarbörum í kap ellu Spellman College. í gær gengu þúsundir manna, jafnt hvítir menn sem blökkumenn, framhjá líkbörunum til þess að votta hinum látna leiðtoga virð- ingu sína. Johnson forseti hafði lýst yfir þjóðarsorg og flaggað var í hálfa stöng á flestum opin berum byggingum nema sums staðar í suðurríkjunum. Margt kunnra manna verður við útför dr. Kings á morgun, þeirra á meðal Humprey varaforseti og Roy Jenkins, fjármálaráðherra Breta. f Memphis tók fjöldi manns þátt í hópgöngu um götur borg- arinnar til heiðurs dr. King í dag. Ekkja hans gekk í broddi fylkingar. • Gangan fór friðsamlega og virðulega fram, en gripið var til víðtækra öryggisráðstafana. Þús undir blökkumanna tóku þátt í göngunni og báru spjöld með á- skorunum um að blökkumenn fylgi fordæmi dr. Kings og beiti ekki valdi í réttindabaráttu sinni Gangan var einnig farin til stuðn ings 13.000 sorphreinsunarmönn- um í Memphis, sem eru í verk- falli. Dr. King fór til Memphis til að styðja þá og hafði ráðgert hópgöngu þeim til stuðnings. • f kvöld kom til gífurlegra óeirða í blökkumannahverfinu í Baltimore þegar lögreglan hafðí skotið blökkumann, sem framdi rán í vínsölu, til bana. Fimm menn hafa þá beðið bana í Balti- more, rán voru framin víða í borginni í dag, eldar loga á mörg um stöðum í vesturhluta borgar innar og svartur reykjarmökkur grúfir yfir borginni. Rúmlega 300 hafa særzt og 1300 hafa ver- ið handteknir. Óeirðir á nýjum stöðum. Þær borgir sem hafa orðið hvað harðast úti í óeirðunum eru Washington, Chicago, Detro- it, Memphis og Atlanta, en á Fæddur 19. janúar 1950 Dáinn 27. marz 1968 Höggvinn við rót heli merktan sé ég hníga soninn minn eina. Voga ei að vita voga ei að spyrja get ekki dæmt, um grimmd og miskunn. Ung ég ól þig elsku sonur vafði þig reifuim vona og óska. Batt við brjóst þitt blóm minnar ástar sól skein mér sæl af svefnstað þínum. Lærðir mál möm'rnu en mamma nam, lærði af þínum hlátri lærði af þínum gráti. Allt umfang þitt var ungri móður hamingju uppspretta hjartfólginn skóli. öllum þessum stöðum var til- tölulega kyrrt í nótt. Hins veg- ar héldu óeirðirnar og skemmd- arverkin áfram í Nashville, New Orleans, Pittsburgh, Baltimore og Joliet í Illionis—ríki. f Nashville kveiktu þel- dökkir stúdentar í byggingu liðsforingjaskóla flughersins. Stúdentar slógu hring um bygg inguna til þess að torvelda starf slökkviliðsmanna og lögreglan varð að skerast í leikinn. • í New Orleans lokaði lög- reglan blökkumannahverfi þeg- ar ungir blökkumenn höfðu brot ið rúður slökkviliðsbifreiðar og grýtt lögreglubíla. í Joliet kveiktu þeldökkir unglingar í þremur birgðageymslum og lögð ust síðan í götuna til þess að hindra ferðir slökkviliðsbif- reiða. Þannig tafðist slökkvi- starfið um hálftíma eða þangað til lögreglan hafði rutt götuna. • í Richmond í Virginíuríki lokuðu lögregla og hermenn stóru borgarhverfi þegar 300 þeldökkir unglingar tóku að kasta eldsprengjum að verzlun- um. í stálborginni Pittsburgh, þar sem blökkumenn eru fjöl- mennir fækkaði íkveikjum og ránum til muna, enda eru um 22.000 þjóðvarðliðar, gráir fyrir járnum, á verði á götum borg- arinnar. í Baltimore reyna 1900 fall hlífaliðar að sjá til þess aðhóp- ar ungra blökkumanna séu sífellt á ferli á götunum ogþessi aðferð hefur borið þann árang- ur að íkveikjum hefur fækkað til muna. Fréttir hafa einnig borizt um íkveikjur frá bæjun- um Fort Pierce og Gainsville í 'Flor idarí ki. Minningarguðsþ j ón ustur voru haldnar um dr. King víða í Bandaríkjunum í dag og haldnir voru fundir til að minn- ast hans. Mörgum íþróttakapp- leikjum var frestað. Gífurlegt tjón í Washington. Tugir þúsunda hermanna, slökkviliðsmanna og lögreglu- manna eru að niðurlotum komn- ir eftir erfitt starf í þeim borg- um, sem harðast hafa orðið úti í óeirðunum, höfuðborginni Was hington, Chicago, Baltimore og fleiri stöðum. f Washington er talið að tjónið nemi 560 milljón um íslenzkra króna, en aðrir segja að þessi tala sé alltof lág. Lögreglan segir, að þeldökkir unglingar hafi kveikt í rúmlega 600 byggingum og farið ráns- hendi um fjölda verzlana. Hundr uð manna hafa misst heimili sín í höfuðborginni, og eitt erfiðasta verkefni yfirvaldanna er að út- vega þessu fólki mat og húsa- skjól. í gærkvöldi sóttu um 2.000 menn úr sambandshernum inn í Baltimore samkv. fyrirmælum Johnsons forseta. Kveikt hefur verið í á 380 stöðum í borg- inni og rán hafa verið framin í 350 verzlunum. f Pittsburgh var lýst yfir neyðarástandi í gærkvöldi og 3.000 þjóðvarðlið- í>------------------------------- Þökk fyrir árin þögul ég hlýði minningalestri frá morgni þínum. Líttu til mömmu ljúfur minn og stúfur þá mun hún reyna að þrauka unz birtir. Landið mitt kæra lokið er þætti, bú þú sæng hæga syninum unga. Ég gef þér með honum gleði mína sendu mér í staðinn svolitla von. Blessi þig guð barn hans ertu þín, Mamma. í vorn huga allt er skráð augu þín og lokkar. Vertu sæll í sannri náð sólargeislinn okkar. Amma afi og Kári. ar sóttu inn í borgina til þess að aðstoða lögregluna. Ástandið var hvergi verra en í Washington, sem um tíma var líkust borg í umsátursástandi. Hermenn vopnaðir rifflum og byssustingjum stóðu vörð við öll gatnamót og vegatálmunum var komið fyrir á öllum vegum, sem liggja til og frá höfuðborg- inni. Snemma í gærmorgun höfðu 4.169 verið handteknir í höfuðborginni. Ástandið var einnig slæmt í Chicago þar sem 11 menn féllu og kveikt var í 1.000 stöðum. 5.000 menn úr sambandshernum voru sendir til borgarinnar til að aðstoða 18.000 lögreglumenn og þjóðvarðliða. Átta biðu bana í átökunum í Washington, en 11 í Chicago, 900 meiddust i höfuð- borginni en 300 voru fluttir á sjúkrahús í Chicago. Johnson ávarpar þingið. Eftir útför dr. Kings á morg- un eða einhvern næstu daga flyt ur Johnson forseti þjóðþinginu boðskap, sem beðið er með mik- illi eftirvæntingu. Búizt er við, að þá mun forsetinn skora á yf- irvöld að skuldbinda sig til þess að útrýma öllu kynþáttamisrétti í Bandaríkjunum. Undanfarna daga hefur forsetinn unnið að því að semja ræðu sína og hann hefur lýst þ hri víðmuin ann afy hefur lýst því yfir að hann muni leggja fram áætlun um áþreif- anlegar aðgerðir vegna ástands þess er nú ríkir í Bandaríkj- unum. Um helgina sagði Johnson John McCormack, forseta full- trúadeildarinnar, að þjóðþingið yrði fyrst og fremst að binda enda á allt misrétti í húsnæðis- málum. Frumvarp þar að lútandi hefur verið samþykkt í öldunga deildinni, en er nú til umræðu í fulltrúadeildinni. Dómsmálaráðherra Bandaríkj- lanna, Ramsey Clark, sagði í gær, að ef. blökkumenn hlýddu kalli Stokeleys Carmichaels, leiðtoga „Black Power“—hreyf- ingarinnar, útveguðu sér vopn og hefndu dauða dr. Kingsjafn- gilti það því að þeir fremdu sjálfsmorð. Hann skoraði á blökkumenn að fara að dæmi dr. Kings og berjast fyrir rétt- indum sínum án valdbeitingar. - HANOI Framhald af bls. 1 ar síns í Camp David og ræ'ða þar við Ellsworth Bunker, sendi- herra Bandaríkjanna í Suður- Víetnam, á morgun. Dean Rusk, utanríkisráðherra, og Clark Clif- ford, varnarmálaráðherra taka þátt í viðræðunum. Stöðvunar loftárása krafizt í Hanoi var í dag útvarpað meginefni viðtals sem fréttarit- ari bandarísku útvarpsstöðvarinn ar CBS, Charles Collingwood, hefur átt við Pham Van Dong, forsætisráðherra, og Nguyen Duy Trinh, utanríkisráðherra. 1 viðtalinu sagði Trinh að Noi'ður- Víetnamstjórn vildi að sendiherr ar hennar og Bandaríkjastjórnar tækju þáitt í væntanlegum undir- búningsviðræðum og heppileg- asti fundarstaðurinn væri Phnom Penh, höfuðborg Kambódiu, eða einhver annar staður, sem báðir aðilar gætu sætt sig við. 1 þess- um fyrstu viðræðum verða Bandaríkjamenn áð ákveða hve- nær þeir ætla að hætta loftárás- um og öllum öðrum styrjaldar- aðgerðum gegn Norður-Víeitnam algerlega og skilyrðislaust og þá verður hægt að athuga dagskrá formlegra viðræðna milli Banda- ríkjanna og Norður-Víetnam, sagðí Trinh. Sihanouk fursti, þjóðhöfðingi Kambódíu, segir, að ef Phnom Penh verði valinn fundarstaður muni hann glaður taka á móti fulltrúum Bandaríkjamanna og Norður-Víetnama. — Sihanouk skýrði jafnframt frá því, að sögn Reuters, að Hanoi-stjórnin hefði tilkynnt honum að hún væri síð- ur en svo ánægð með ákvörðun Johnsons forseta um að tak- marka loftárásirnar. Sihanouk sagðí, að afstaða Hanoi-stjórnar- innar væri sú, a'ð enda þótt hún féllist á undirbúningsviðræður jafngilti það síður en svo skuld- Úlafur Freyr Hjaltason Steinfríður Tryggvadóttir og Hólmgeir Halldórsson. - HANN KYRRIR Framhald af bls. 5 — Nei, ekki svo. Tryggvi Helgason flýgur mikið hing- að, en þetta er erfitt fyrir sjúka, þvi að við þurfum að leita læknis tiQ. Vopnafjarðar og það getur orðið erfitt í ill- viðrum. — Þið takið þessu auðvitað með staíkri ró. — Já, já, það eru engin ill- indi, þetta endar einhvern tíma. ★ ★ Næst hittum við að máli hjónin Steinfríði Tryggva- dóttur og Hökngeir Halldórs- son, en þau eru bæði úr Norður-Þingeyjarsýsltuinni og búa á Þórsihöfn. — Eruð þið ættuð héðan? „Við erum bæði úr N- Þingeyjarsýslunni, en ég er fæddur hér ó Langanesinu", segir Hólmgeir. :— „En þú Steinfráður“? — „Ég er fædd á Núpi í Axarfirðinum“. — „Hafið þið oft fengið að kenna á hafís“? Hólmgeir: „Já, dálítið svona“. Steinfríður: „Maður hefur bindingu um að hún taki þátt í friðarviðræðum. Johnson þakkar hermönnum Áður en Johnson barst svarið frá Hanoi-stjórninni í dag sendi hann liðsafla Bandaríkjanna í Suðaustur-Asíu boðskap þar sem segir meðal annars, að hermenn Bandaríkjamanna og banda- manna þeirra hafi tekið frum- kvæ’ðið í Víetnam-styrjöldinni og að stórsókn Norður-Víetnama og Víet Cong í febrúar og tilraim þeirra til að ná herstöðinni í Khe Sanh hafi farið út um þúfur. Forsetinn varaði jafnframt her- mennina við því að halda, að nú dragi að lokum vopnaviðskipta. í Washington var boðskapur for- setans túlkaður á þá lund, að hann hafi viljað reka á eftir Hanoi-stjórninni með a'ð svara tilboðinu um friðarviðræður. Rússar tortryggnir í Moskvu sagði forseti sovézka verkalýðssambandsins, Alexand- er Shelepin, á ráðstefnu heims- sambands kommúnískra verka- lýðsfélaga (WFTU) í dag, að með Víetnam-yfirlýsingu sinni um takmörkun loftárása hefði Johnson forseti reynt að villa um fyrir almenningsálitinu í heiminum. Hann sagði, að Rúss- ar mundu halda áfram vopna- sendingum til Víetnam meðan þa'ð væri nauðsynlegt til að hrinda árás bandarískra heims- valdasinna. Formaður norður-vítnömsku nefndarinnar á ráðstefnunni, Ho- ang Quok Víet, sagði, að ræða Johnsons væri aðeins slóttugt klækjabragð og að ekkert væri að marka friðaryfirlýsingar Bandaríkjamanna. Hann skoraði á verkamenn heimsins að veita víetnömsku þjóðinni aukinn sið- ferðilegan og efnahagslegan stu'ðning. séð hann“. Blm.: „Hvernig virkar það á ykkur“? Hóbngeir: „Það er voða- lega kuldalegt og svakalegt. Víst er það svo. Þetta er svipað niú og 1965, en 1918 var ísinn miklu stórgerðari og þá voru iðulausar stórhríðar". Steinfríður: „Ég veit nú ekki hvernig ég á að orða það. ísinn hefur svona hálf- gerð laimandi áhrilf á mann. Hann kyrrir alveg sjóinn og það verður ísauðn og dauða- þögn. Mér finnst alltaf róandi. og skemmtilegt að hluista á sjávarniðinn, þó að hann sé náttúrulega ægilegur þegar hann er í hamföruím.“ Hóimgeir: „Já það ex nú það“. Blm.: „Þið eruð alveg sótt við dreitfbýlið"? Steinfríður: „Já, það held ég nú, þetta er kyrrt Oig ró- legt.“ Hólgeir: „Já, alveg fylli- lega og hér er alveg ágætt að lifa, og þó að það komi deyð- ur í atvinnulífið í pláissinu, þá hefur fólkið það ágætt. Annans vekur lækniisleysið miklu meiri ugg heldur en ísinn.“ Westmoreland bjartsýnn I gær ræddi Johnson forseti við Dean Rusk, utanríkisráð- herra, og William Westmoreland hershöfðingi, yfirmann banda- ríska liðsaflans í Víetnam, í Washington. Rusk var þá ný- kominn frá fundi varnarbanda- lags Bandaríkjanna, Ástralíu og Nýja-Sjálands í Wellington. — Eftir viðræðurnar sagði West- moreland hershöfðingi, að víg- staða Bandaríkjamanna hefði aldrei verið betri, ef tillit væri tekið til aðstæðna. Hann sagði að Bandaríkjamenn og banda- menn þeirra væru fullir sóknar- hugs og gætu fært sér í nyt versnandi vígstö'ðu fjandmann- anna. I Genf sagði U Thant, fram- kvæmdastjóri SÞ, að hann teldi að undirbúningsviðræður um frið í Víetnam mundu hefjast mjög fljótlega og hann teldi að eina umræðuefnið í þessum við- ræðum yrði stöðvun loftárása. Hann mælti eindregið með því, að þessar vi'ðræður og síðari við- ræður færu fram í Genf. Banda- ríkjamenn og Norður-Víetnamar hafa átt óformlegar viðræður í Víentíane í Laos um fundarsitað og ólíklegt er talið að Norður- Víetnamar fallist á Genf. Loftárásir harffna I Saigon var skýrt frá því í dag, að meðan Bandaríkjamenn biðu eftir svari frá Hanoi hefði loftárásum á Norður-Víetnam verið fjölga'ð til muna og hefðu 134 árásarferðir verið farnar á einum sólarhring. Síðan 6. janú- ar hafa aldrei verið farnar eins margar árásarferðir, en árásirn- ar voru allar gerðar sunnan 20. breiddarbaugs í samræmi við til- kynningu Johnsons forseta um takmörkun loftárása. Nyrzta skotmarkið var 250 km norðan landamæranna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.