Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRIL 1968 19 Robert Kennedy og einn aðalstuðningsmaður hans, Larry O'Brien, sem til skamms tíma var póstmálaráðherra Johnson. - ERLENT YFIRLXT Fram/hal daf bls. 14. Það er því engin furða þótt áhrifamenn í Demókrataflokkn um séu tregir til að lýsa yfir stuðningi við einhvern ákveð- inn frambjóðenda og kjósi held ur að bíða og sjá hverju fram vindur. Þessi hlutleysisaf- staða hefur komið harð- ast niður á Kennedy, og margir leiðtogar demókrata, sem hann taldi sig geta treyst, hafa enn ekki komið til liðs við hann. Kennedy nýtur mjög mikils stuðnings meðal blökkumanna og ungs fólks enda skilja fáir vandamál þeirra betur, en hins vegar er margt eldra fólk mótfallið honum og finnst hann of róttækur, of óútreiknanlegur, af ungur og í of nánum tengslum við unga fólkið. Þess vegna verður Kennedy að sýna það í prófkosningum, að hann njóti víðtæks stuðnings meðal almennings, og fyrsta próf raunin verður prófkjörið í Ind- íana 7. maí. Þar á hann í höggi við McCarthy og ríkisstjórann, Branigin, sem upphaflega gaf kost á sér til að styðja John- son. Kennedymenn segja, að Branigin sé ósigrandi, þar sem hann hafi töglin og hagldirnar í demókrataflokknum í Indiana, og þess vegna segja þeir að aðal- markmiðið sé að sigra McCart- hy. Þrátt fyrir þetta sýna skoð anakannanir, að Kennedy hafi meira fylgi en bæði Branigin og McCarthy, og er ekki ör- grannt um, að Kennedy 'vilji koma á óvart með því að sigra Branigin en tryggja sig fyrir- fram gegn ósigri, svo ekki komi á óvart þótt hann bíði lægri hlut. Ef McCarthy bíður ótvíræð- an ósigur fyrir Kennedy í Ind- iana og í prófkjörinu í Nebr- aska, sem fer fram viku síðar á hann naumast annarra kosta völ en að draga sig í hlé. Ekki er ólíklegt að Branigin ríkis- stjóri komi til liðs við Humph- rey, þótt síðar verði, og ef rík- isstjórinn sigrar mun varaforset inn að öllum líkindum líta á sigurinn sem stuðning við Viet- namstefnu stjórnarinnar. Ef Kennedy sigrar munu stuðnings menn Humphreys halda því fram að þeir hafi hvergi nærri próf kjörinu komið. Samtímis þessu aukast sífellt líkurnar á því að Nelson Rocke- feller, ríkisstjóri í New York, gefi kost á sér sem frambjóð- andi repúblikana í forsetakosn- ingunum. Hins vegar hefurræða sem hann hélt nýlega á fundi með bandarískum ritstjórum, veikt stöðu hans nokkuð, en hún vakti litla hrifningu og fannst mönnum að hann hefði talað af litlum sannfæringar- krafti. Hins vegar hlaut Ric- hard Nixon mjög góðar undir- tektir á þessum fundi, og þótti honum takast vel að sameina alvöru og gamansemi í ræðu þeirri, sem hann hélt, og hrein skilni og gætni í svörum við spurningum sem fyrir hann voru lagðar. En það sem enn háir Nixon er, að fáir hafa gleymt ósigri hans fyrir John F. Kennedy í forsetakosningun um 1960. Verða aftur oeirðir 1. maí? HARKAN í stúdentaóeirðun um í Vestur-Berlín og Vestur- Þýzkalandi hefur leitt til þess, að þeir stúdentar, sem vilja beita friðsamlegum aðferðum hafa náð yfirhöndinni, en al- menningsálitið, sem er mjög and snúið stúdentunum, hefur orð- ið til þess, að borgarstjórnin í Vestur-Berlín og stjórnin í Bonn hafa boðað aukna hörku gegn stúdentum og öðrum, sem efna til mótmælaaðgerða. Um næstu helgi fara fram fylkiskosningar í Baden-Wurt- j emberg í Suðvestur-Þýzkalandi, og er búizt við að flokk- ur nýnazista, NPD, vinni mikið á vegna reiði almennings í garð stúdenta og herskárra vinstrisinna, sem staðið hafa fyr ir óeirðunum. Margir Þjóðverj- ar eru minnugir síðustu ára Weimar-lýðveldisins, þegar óttí við herskáa vinstrisinna kom mörgurrt til þess að kjósa naz- ista, þar sem talið var að þeir mundu halda uppi lögum og reglu. Kiesinger kanzlari og Brandt utanríkisráðherra óttast báðir að verða borin linkind á brýn, og þess vegna hafa þeir lagt á það áherzlu í kosninga- ræðum í Baden-Wúrtemberg, að herskáir vinstrimenn verði beitt ir hörku. Ein af aðalástæðunum fyrir óeirðunum — og uppgangi ný- nazista — er sú, að raunveru teg þingræðisleg stjórnarand- staða hefur horfið úr sögunni í Vestur-Þýzkalandi síðan sam- steypustjórn kristilegra demó- krata og jaínaðarmanna var mynduð, en hún nýtur stuðn- ins 90% kjósenda. Þá hefur þjóð ternisstefna átt sífellt auknu fylgi að fagna, og hefur blaða- hringur Axel Springers ýtt und ir þessa þróun. Aukin þjóðern- ishyggja hefur einnig aukið áhrif nýnazista. Búizt er við, að 1. maí muni aftur draga til tíðinda, en þá munu hinir nýju vinstrisinnar fara í sérstaka kröfugöngu til aðaltorgsins í Berlín, þar sem verkamenn koma saman á þess- um degi. Þá verður páskaleyf- um stúdenta lpkið og þúsundir stúdenta bætast í hóp þeirra, sem ekki hafa farið heim til sín í fríunum, en líklegt er að marg ir þeirra séu ósammála hinum nýju vinstrisinnum. Takið eltir llið nýstofnaða kvenfélag á Seltjarnarnesi efnir til kaffisölu í Mýrarhúsaskóla sumardaginn fyrsta 25. þ.m kl. 3.00. Lúðrasveit barna úr Mýrarhúsaskóla leikur. Komið og njótið fagurs útsýnis af Valhúsahæð um leið og þér styrkið gott málefni. STJÓRNIN. Vegna flutnings verzlunarinnar verður öll Vara hennar sett niður um 30% — 50%. Kjólaefni frá 15 kr., lakaléreft á 40 kr. m., röndótt Bonnie- and Clyde-efni á 60 kr. m. Allt á að seljast. DÍSAFOSS. Grettisgötu 57. Síðasta lotan Nýlenduvöiuverzlun Gott húsnæði fyrir nýlenduvöruverzlun óskast. Verzlun í fullum gangi kemur einnig til greina. Tilboð merkt: „Verzlun — 8011“ sendist Mbl. fyrir 29. þ.m. GpsMGI 2-24 SiMAfi: 30280-3 262 LITAVER Pilkinton9s tiles postulínsveggflisar Stærðir 11x11, 7V2xl5 og 15x15 cm. _ Mikið úrval — Gott verð. H M M N BILL OG BOBBIE IRVINE Sýning fyrir almenning aðeins laugardaginn 27. í Lidó. Aðgöngumiðasala í Lídó fostudaginn 26. og laugardaginn 27. kl. 16—18 báða dagana.Borð tekin fr áfyrir matargesti. Sérstakar sýningar verða fyrir nemendur Dansskóla lleiðars Ástvaldssonar og geta fyrrverandi nemendur fengið miða á þær í Brautarholti 4 í dag og á morgun frá kl. 20—23. Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.