Morgunblaðið - 05.12.1968, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DES. 1968
Simi 22-0-22
Rauðarárstig 31
Hverfisffötu 103.
Siml eftir lokun 31160.
BIUl
LEIGft
MAGIMUSAR
4KiPHotn21 símar2U90
«fftr lokun slmi 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Berfstaffastræti 11—13.
Hagstætt leigujjald.
Sítni 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748.
Sigurður Jónsson.
BILALEIGAN
- VAKUk -
Sundiaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
350,- kr. daggjald.
3,50 kr. hver kilómetri.
Sveinbjörn Dagfinnsson, hrl.
og Einar Viðar, hrl.
Suðurlandsbraut 6
Sími 38640
Hafnarstræti 11 - Sími 19406
Skemmtileg og spennandi
unglingasaga um Tirausta
stráka sem lenda í ótrúlegustu
ævintýrum. Þetta er fyrsta
bók Hafseins, og hún lofar
svo sannarlega góðu.
Afgr. er f Kjörgarði sfml 14510
GRÁGÁS
keflavík
0 Torræðar ályktanir
Alþýðusambands
íslands
Eggert Hauksson skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Hannibal Valdimarsson, forseti
ASÍ, kom á rabbfund til okkar
háskólastúdenta fyrir skömmu.
Hannibal stóð sig vel að vanda
vann hugi og hjörtu viðstaddra
með ræðusnilld, málflutningi og
framkomu. Ég þori þó ekkl að
ábyrgjast, þrátt fyrir þetta, að
fundarmenn myndu allir ganga I
nýja flokkinn hans Hannibals,
þegar jóðsóttinni lýkur.
A þessum rabbfundi með Hanni
bal, kvartaði ég undan því við
hann, að ég ætti stundum bágt
með að átta mig á ýmsum þeim
ábúðarmiklu röksemdum, sem ASÍ
léti frá sér fara, þegar um þjóð
arhag væri að tefla. Nefndi ég
sem dæmi mótmæli stjórnar ASI
gegn byggingu álverksmiðjunnar,
þar sem ein helzta mótbáran var
sú, að hinum erlendu aðilum
skyldi leyft að afskrifa verk-
smiðjuna og hafa fymingarféð
á brott með sér úr landi! Ég
skil ekki þessa röksemd enn þann
dag í dag þrátt fyrir mikil heila
brot. Nærtækasta skýringin híýtur
að vera tornæmi mit.t. Mér þyk-
ir samt leitt eftir að hafa beð-
ið Hannibal tvisvar, og reyndar
ýmsa aðra ágæta menn, um að
bæta þetta skilningsleysi mittupp
með því að gera a.m.k. tilraun
til þess að skýra þetta út, — en
án árangurs.
0 Óskiljanleg þvæla
Þingi ASÍ er nýlokið. Það á-
lyktaði eins og oft áður og benti
á það, sem betur mætti fara hjá
íslendingum. í ályktun þingsins
segir m.a.: „Takmarkaður verði
eða bannaður innflutningur á þeim
iðnaðarvörum og smíði, sem ís-
lenzkur iðnaður hefur sýnt, að
hann er samkeppnisfær um verð
og vörugæði".
Hér sigldi ég enn einu sinni
i andlegt strand. Til hvers þarf
að banna eða takmarka innflutn-
ing á þeim iðnaðarvörum og smíð
ef islenzkur iðnaður er samkeppn
isfær um verð og gæði? Takmark
ast ekki slíkur innflutningur af
sjálfu sér?
Ég er nú um það bil að ljúka
háskólanámi og hef haft mitt
nám af nokkurnvegin klakklaust.
Þess vegna yrði þessum vanga-
veltum mínum og tornæmi ef til
vill bezt svarað af ályktanasmið-
um ASÍ með vísu Stephens G.
Stephenssonar:
„Hámenntaða virðum vér
vora lærdómshróka,
sem eru andleg ígulker
ótal skólabóka".
Eggert Hauksson, viðskipta-
fræðinemi".
0 Stórt orð, snillingur
Velvakandi þakkar bréfið og
gerir þá einu athugasemd, að
bréfritari virðist ekki gera sér
Ijóst, að til þess að vera kallað-
ur ræðusnillingur, þarf miklu
meiri hæfileika en vart hefur orð-
ið hjá Hannibal um dagana.
Það er slæmt, þeagr sterk orð
eru útjöskuð með ofnotkun eða
notkun, þar sem þau eiga alls
ekki við. Maður, sem vinnur hugi
og hjarta fólks með ræðusnilld,
er mjög sjaldgæfur, og slíkur mað
ur er Hannibal alveg áreiðan-
lega ekki, hvað sem annars má
um þennan pólitíkus segja. Sterku
orðin ber að spara og nota í
hófi. Þá eru þau líka þeim mun
áhrifameiri, en annars missa þau
allan kraft
0 Ekkert gefið
„Kona i úthverfi“ skrifar:
„Kæri Velvakandi
Ég átti um daginn leið fram-
hjá einni af stærri verzlunum
borgarinnar. Þar er jafnan á boð
stólum mikið úrval af ýmsum
smávörum til sauma og mér datt
í hug, að ganga inn og athuga,
hvort til væru nokkur skraut-
bönd, sem ég gæti notað á gaml-
an kjól, sem ég ætla mér að
breyta örlítið. Þegar ég svo hafði
Appelsínur og epli
JÓLASENDINGIN KOMIN.
Mjög gott verð
Opið til kl. 10 í kvöld
Vörumarkaðurinn hf.
ARMÚLA 1 A • REYKJAVÍK - SÍMI 81680
3jo herb. íbúð
Höfum til sölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð við Flókagötu,
ásamt 1 herb. og annað að hálfu í kjallara, suðursvalir,
ræktuð lóð. íbúðin er laus nú þegar. Útb. 500 þús.
Ekkert áhvílandi, eftirstöðvar til 10 ára með 7%
vöxtum. Verð 1 milljón og 50 þús.
Tryggingar & Fasteignir
Austurstræti 10 A 5. hæð.
Sími 24850, kvöldsími 37272.
áttað mig á öllum þeim fjölda
skrautbanda, sem til voru og
fundið nokkrar tegundir, sem til
greina komu fyrir mig, spurði
ég eina afgreiðslustúlkuna, hvort
nokkur leið væri að fá af þeim
smásýnishorn. Jú, jú, það var
hægt. Hvað ég vildi mikið, svona
5 sentimetra? Ég taldi mig kom-
ast af með svona I sentimetra,
ég þyrfti aðeins að átta mig á
breiddinni. Stúlkan taldi, að ég
hefði ekkert gagn af svo lítilli
„prufu", ég sæi ekkert á því.
Ég sagði henni að fyrir mér
vakti aðeins að spara mér ferð
í bæinn. Ef ég fengi aðeins smá-
prufu, gæti ég svo sent með hana
aftur og látið kaupa eftir henni.
Þar að auki væri ég ekki búin
að mæla, hve mikið ég þyrfti.
Þá var eins og stúlkan áttaði
sig og sagði: „Við gefum ekki
prufur, ef það er það, sem þér
meinið!" (Hún lagði mikla á-
herzlu á orðið gefum). ,Jæja,
ekki það?“ „Nei“ sagði stúlkan
og brosti háðslega „við mundum
þá ekki gera annað allan daginn
en mæla upp prufur. Neei við
gefum ekki prufur!" Aðrir við-
skiptavinir verzlunarinnar, sem
næstir stóðu, litu ósjálfrátt á mig,
og mér fannst allt í einu ég
hefði verið staðin að verki fyrir
einhvern glæpsamlegan verknað.
Ég reyndi þó að biðjast afsök-
unar og sagði, að það væri svo
misjafnt hvað verzlanir gerðu.
Sumar gæfu aldrei prufur, en aðr
ar klipptu smábút af ströngum
og hefðu i prufur handa við-
skiptavinunum. Og þær verzlan-
ir töpuðu örugglega ekki á þeirri
greiðasemi. „Ég veit ekki, hvað
yrði, ef við ættum að fara að
gefa prufur. Við gerðum þá ekk-
ert annað allan daginn."
0 Dónaleg afgreiðslu-
stúlka
Ég ætlaði að kveðja og ganga
út efnisprufulaus en þá hug-
kvæmdist mér að spyrja,
hvort ég gæti þá fengið að
kaupa eins og einn sentimetra
af þessum 4 tegundum, sem að
kæmu til greina fyrir mig. „Já,
já það er allt í lagi." Og háðs-
glottið var enn á andliti henn-
ar. Það var auðséð að henni
blöskraði meira en lítið ósvífni
mín að ætla að fá gefins pruf-
ur. Henni tókst þó að ná sér I
mælistokk og mæla handa mér 1
sentimetra af þeim 4 tegundum
skrautbanda sem ég hafði hug
á. Og slík var nákvæmnin að
heldur klippti hún í hálfan takka
af bandinu heldur en skaða verzl
unina um 2—3 millimetra. Síðan
lét hún prufurnar í lítinn, brún-
an poka og tók að reikna út
verðið. Og nú var engin þörf
fyrir nákvæmni. „Þetta eru svona
2 krónur." Hún skrifaði verðið á
pokan og sagði, að ég ætti að
borga við kassann. Ég sá I hendi
mér að verðið var of hátt reikn
að, en ég gerði enga athugasemd.
(Það var líka eins gott, því að
þegar heim kom, reyndist ein
prufan 1,3 sentimetrar.) Ég vil
geta þess, að verðið á þessum
skrautböndum er kr. 24.00, 34.00,
45.00 og 46.00 pr. metra. Svo að
með réttu kostuðu prufurnar kr.
1.49 en ekki kr. 2.00.
Umræddar prufur hafa veriö til
sýnis á heimiil mínu, og hafa
margir fengið að heyra þessa frá
sögn. Sumir hafa undrazt, en þó
Aokkrum konum hefur ekki kom
ið þetta á óvart, þvi að þær hafa
fengið svipaða fyrirgreiðslu hjá
þessari verzlun (og einmitt sömu
stúlkunni).
Það eru sannilega um 3 vik-
ur síðan þetta atvik gerðist. f
gær var ég svo að skoða ýmsar
gamlar blúndur og bönd, sem ég
á í ruslakassa í vinnuborðinu
mínu. Rekst ég þá ekki á af-
gang af ullarkögri, sem ég hafði
keypt í umræddri verzlun fyrir
jólin í fyrra. Ég þurfti þá um
einn metra af þessu kögri, en til
voru aðeins 2 bútar, annar hefur
verið 75 sm. en hinn um 50 sm.
Svo vildi til að nákvæmlega út
reiknað gat ég notað kögrið, þó
að það væri þannig í tvennu lagi,
og ákvað því að kaupa stærri
bútinn og 30 sm af hinum. En
það var nú ekki aldeilis hægt.
Þá hefði verzlunin setið uppi með
20 sm, sem enginn hefði keypt.
Ég varð þvi að kaupa báðar
lengjurnar eða ekkert. Þessi við-
skipti voru horfin úr huga mér,
en rifjuðust upp, þegar ég fann
20 sm bútinn i ruslakassanum
hjá mér. Og þá gat ég ekki
lengur á mér setið að skrifa þér
(sérstaklega þegar mér varð ljóst
að sama stúlkan hafði afgreitt
mig þá og nú.)
0 Látum bjóða okkur allt
En svona erum við íslenzkir
neytendur, við gleymum fljótt
þó að okkur sé sýnd ókurteisi
í verzlunum og við aðra af-
greiðslu, og við tökum möglunar
laust við gölluðum vörum og jafn
vel skemmdum. Og hver heyrist
kvarta, þó að ekki sé tilgreint
á umbúðum ísl. framleiðsluvara
um magn vörunnar og jafnvel
heldur ekki um nafn framleið-
anda. Og í úthverfunum, þar sem
langt er á milli verzlana, skipt-
ir það íslenzka neytendur engu,
þó að kjötkaupmaðurinn hafi sorg
arrönd undir nöglunum, gangi í
rifnum og óhreinum agreiðslu-
slopp dag eftir dag eða láti ryk-
fallnar vörumar liggja i einum
hrærigraut í hillunum vikum sam
an.
Þetta er víst orðið langt mál
um lítið efni, en ég get þó ekki
stillt mig um að segja fá kaup-
um mínum í lítilli verzlun á
Snorrabrautinni í fyrri viku. Ég
bað um 2,25 metra af sængur-
veradamaski, sem kostaði tæpar
100 krónur metrinn. Til voru 2,40
metrar á einum stranga og ann-
ar strangi nýupptekinn. „Þú færð
þetta fyrir tvo metra“, sagði af-
greiðslustúlkan. Óbeðin gaf hún
mér efni fyrir tæpar 40.00 krón-
ur. Ósjálfrátt varð mér hugsað
til stúlkunnar í skrautbandabúð-
inni.
Þakka þér svo, Velvakandi góð
ur, fyrir dálkana þína. Vertu bless
aður og sæll.
Kona í úthverfi".
Lóan tilkynnir — ódýrar vörur
Loðifóðraðar telpna- og drengjaúlpur, undirkjólar 1—14
ára, netsokkabuxur, telpnablússur 3ja—14 ára, ódýrir
telpnakjólar 1—14 ára, nátt 100.—, regnkápur 3ja—14 ára,
jólaballveski, telpnasloppar 2ja—14 ára 300—350.—,
telpna- og dnengjahúfur og m. fl. — Allt á gamla verðinu.
Barnafataverziunin LÓAN, Laugavegi 20 B,
(Gengið inn frá Klapparstíg móti Hamíborg).
Vil kaupa íbúð
Óska eftir að kaupa íbúð í Reykjavík, 60 — 85 ferm.,
þarf helzt að vera: Ekki eldri en 10 ára.
Á 1. hæð eða jarðhæð.
Tilboð með sem gleggstum upplýsingum óskast lagt inn
á Morgunblaðið merkt: „Útb. 400—450 þús. — 6366".
9761 '
SfeS
9