Morgunblaðið - 05.12.1968, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DES. 1968
23
— Erlent yíirlit
Framhald af bls. 17
sovézk íhlutun í Rúmeníu, Júgó-
slavíu eð-a Austurríki yrði tal-
in jafngilda ógnun við öryggi
vesturveldanna og Atlantshafs-
bandalagsins, og var þannig
hinni svokölluðu Brezhnev-
kenningu þess efnis, að Rúss-
ar hafi rétt til íhlutunar í inn-
anríkismálum annarra sósíalista-
landa, svarað með nýrri Rusk-
kenningu. Hins vegar er margt
á huldu um yfiiiýsingu Rusks,
því að hann talaði á lokuðum
fundi. Yfirlýsingin hefur ekki
verið birt opinberlega, og opin-
berir talsmenn í Washington
hafa neitað að ræða um hana. í
lokayfirlýsingu NATO-fundar-
ins var ekkert land nefnt með
nafni og aðeins sagt, að hvers
konar rússnesk íhlutun, sem
hefði bein eða óbein áhrif á á-
standið í Evrópu eða á Miðjarð-
arhafi, inundi hafa í för með
sér alvarlegt hættuástand í heim
inum.
HAGSMUNASVÆÐI
Almennt er talið, að þegjandi
samkomulag sé með Bandaríkja-
mönnum og Rússum um hags-
munasvæði í Evrópu, þótt því
hafi verið harðlega neitað. I>ess
vegna hefur því verið haldið
fram, að yfirlýsing Rusks á ráð-
herrafundinum í Brússel og jafn-
vel lokayfirlýsing fundarins féli
1 sér greinilega útfærslu á ör-
yggishagsmunum NATO í Ev-
rópu. Þess vegna er sú spurn-
ing orðin aðkallandi, hve langt
Bandaríkjamenn eru reiðubúnir
að ganga í Mið- og Austur-Ev-
rópiu. Austurríki er hlutlaust
land isaimtovæimt stór-
veldasamningnum frá 1955, og
vesturveldin hafa ótvíræðar
skuldbindingar þar. Aftur á móti
eru Júgóslavar óháðir valda-
Iblökkum, en Rúmenar eru í
Varsjárbandalaginu, í nábýli við
Rússa og ótvírætt á þeirra á-
hrifasvæði. Rúmenar eru því í
mestri hættu.
Samkvæmt ummælum Rusks á
Brússel-fundinum líta Banda-
ríkj amenn svo á, að Júgóslavía
og Austurríki séu á svokölluðu
„gráu svæði“, þar sem Banda-
ríkjamenn hafi hagsmuna að
gæta þótt hér sé ekki um beint
áhrifasvæði að ræða. Nú hefur
Tito forseti hins vegar afþakk-
að aðstoð frá Bandaríkjunum og
vísað kenningu Rusks á bug á
þeirri forsendu að Júgóslavar
viðurkenni engin áhrifasvæði.
Ef til vill telur hann að hættan
á sovézkri árás hafi dvínað en
hann neitaði því að hann hefði
fengið tryggingu frá Rússum fyr
ir því, að þeir mundu ekki ráð-
ast á landið. Hvað sem því líð-
ur hefur það alltaf verið stefna
Titos að vega salt milli stór-
veldanna til að tryggja sér sem
mest svigrúm og honum hefur
augsýnilega þótt ástæða ti'l að
taka fram að hann vilji ekki
verða háður Bandaríkjamönn-
um um of. Daginn áður hafði
hann gagnrýnt Rússa fyrir inn-
rásina í Tékkóslóvakíu og hald-
ið fram sjálfstæði Júgóslavíu.
Gjaldeyrismálin
auka á misklíd
GJALDEYRISKREPPAN hefur
aukið áhrif Vestur-í>j óðverja í
Evrópu á kostnað Frakka.
Venjulega hafa Vestur-Þjóðverj
ar orðið að láta undan kröfum
bandamanna sinna, en að þessu
sinni tókst þeim að standa gegn
sameiginlegum þrýstingi Banda-
ríkjamanna, Breta og Frakka.
Orsakanna er að sjálfsögðu að
leita í innanríkismálum: útflutn-
ingur vissra iðngreina hefði orð-
ið fyrir áfalli, ef gengið hefði
verið að kröfunum, og landbún-
aðurinn hefði komizt í hættu. En
einnig hefur vestur-þýzkum ráða
mönnum þótt nóg komið af til-
slökunum af þeirra hendi og
tími til kominn að aðrar þjóð-
ir tækju afleiðingunum af eig-
in erfiðleikum.
Aukin áhrif Vestur-Þjóðverja
eru þó ef til vill meiri í orði en
á borði. Fjárhagsaðstaða þeirra
er sterk, en skráning þýzka
marksins er ef til vill fyrst og
fremst röng vegna þess, að hún
er frá þeim tíma, þegar efna-
hagur landsins var í rúst eftir
styrjöldina. Risastökk þeirra í
efnahagsmálum var rétt í þann
mund að hefjast og efnahagur
annarra landa, sem þeir hafa síð
an farið fram úr, stóð þá traust-
ari fótum. Nú eru Vestur-Þjóð-
verjar stórveldi í efnahagsmál-
um, tækni og hermálum. En póli-
tísk áhrif þeirra hafa ekki auk-
izt jafnmikið hinum efnahags-
legu áhrifum, þótt styrkur
þeirra hafi aukizt í réttu hlut-
falli við aukna erfiðleika
Frakka og Breta.
HÁÐIR BANDAMÖNNUM
Aðstaða Vestur-Þjóðverja ger
ir hins vegar að verkum, að þeir
eru jafnháðir bandamönnum sín
um í utanríkismálum sem fyrr.
Þeir standa jafnveikum fótum í
utanríkismálum og þeir standa
sterkum fótum í efnahagsmálum.
Þar við bætist einnig það mót-
vægi, sem Sovétríkin og fylgi-
ríki þeirra í Austur-Evrópu
mynda. Þessi aðstaða Vestur-
Þjóðverja kemur greinilega í
ljós, ef þeir undirrita samning-
inn um bann við frekari út-
breiðslu kjarnorkuvopna eins og
allt bendir til að þeir geri. Sá
samningur beindist upphaflega
fyrst og fremst gegn því, að Vest
ur-Þjóðverjar fengju umráð yf-
ir kjarnorkuvopnum.
Það hefur hvorki farið fram
hjá Bretum né Frökkum, að á-
hrif Vestur-Þjóðverja hafa auk-
izt og að þeir hafa sýnt að þeir
eru reiðubúnir að beita áhrifa-
mætti sínum. En engin ástæða
er til að ætla annað en að vest-
ur-þýzkir leiðtogar geri sér
grein fyrir því hve háðir þeir
eru samvinnu við bandamenn
sína og aðra. Raunar bendir
margt til þess að þegar kritur
sá, sem nú er kominn upp, hverf
ur úr sögunni muni Vestur-Þjóð
verjar beita sér fyrir því, að tek
ið verði upp umfangsmeira sam-
starf en nú á sér stáð, bæði í
gjaldeyrismálunum, innan Efna-
hagsbandálagsins og NATO og í
afstöðunni til Austur-Evrópu.
AUKIN SUNDRUNG
Slík samvinna hefur hins veg-
ar strandað á andúð Breta og
Frakka og nú eru þeir fullir tor-
tryggni í garð Vestur-Þjóðverja
svo að þessar ráðagerðir eru
varla tímabærar lengur. Deilan
um gjaldeyrismálin hefur haft
splundrandi áhrif um sama leyti
og samstaða hefur náðst um að
blása nýju lífi í NATO. Þessi
deila heldur áreiðanlega áfram
á næstu mánuðum svo að horf-
ur eru á aukinni misklíð, sem
kemur niður á samvinnu vest-
rænna ríkja. Svo getur farið, að
ekkert verði úr ráðagerðum um
að aðildarlönd NATO auki fram
'lög til varnarmála.
Möguleikar Breta'á inngöngu
í Efnahagsbandalagið hafa sjald
an verið minni, og margt bendir
til þess að þeir muni halla sér
meir að Bandaríkjamönnum og
fjarlægjast þar með Evrópu. De
Gaulle mun seint gleyma yfirlýs
ingu Strauss, fjármálaráðherra
Vestur-Þjóðverja, um gengisfell
ingu frankans og getur reynt að
koma fram hefndum, en þá yrði
hann að tryggja sér sam-
vinnu Bandaríkjamanna. Sam-
búð Frakka og Bandaríkja-
manna kann því að batna, og
það er raunar eitt af baráttu-
málum Richard Nixons.
Öryggisbelti — staurabelti
fyrir raflínur og síma til afgreiðslu nú þegar.
STEFÁN PÁLSSON, söðlasmiður
Faxatúni 9, Garðahreppi, sími 51559.
Hefi kaupendur
að 150—200 ferm. rúmlesta stálfiskiskipi.
SVERRIR HERMANNSSON,
Skólavörðustíg 30, sími 20625,
kvöldsímar 32842, 24515.
Y8PILAKVÖLD
Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði
verður í kvöld, fimmtud. 5. des. kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Góð kvöldverðlaun. — Kaffiveitingar.
NEFNDIN.
ÞETTA GERDIST
ÚTGERÐIN
Heildarsíldiaraflinn um mónaðamót-
in ágúst-sept. 41.204 þús lestir (5).
Síld/arsölur ísl. báta í V-í>ýzka-
landi fyrir 23.3 millj. kr. (8).
Fyrsta söltunarsíldin kemur til
Seyðisifjarðar (10).
Tagarinn Víkingur keim/ur með
góða, ísvarða síld (11).
Heildiarsíldaraflinn 45.6 þús. lestir
um miðjan mánuðinn (10).
Togarar BÚR munu landa afla sín-
um til vinnslu heima (20).
HeiLdarsíld'ara'flinn 54.2 þús. lestir
23. sept. (26).
Saltað af full-um kraifti á Raufar-
höfn og Seyðisfirði (26).
Heildarsöltun rúmlega 7'1 þús.
tunnur (27).
Togarar F.Í.B. hafa mest landað
heirna í sumar (27).
VEÐUR OG FÆRÐ.
Yfir 18 stiga hiti dag eftir dag (12).
FRAMKVÆMDIR.
Laxastigi gerður í Laugardalsá (3).
Fuilkomin blindlendingiartæki sett
upp í Reykjavíik (5).
Ferðaifélagsskáli vígður á Sprengi-
sandaleið (5).
Eldey KE 37, nýtt 370 snwálesta stál-
sflrip frá Stálvík, afhent eigendum
(10).
Álverksmiðjan fullbyggð á þremur
árum í stað sex. Viðræður í Sviss (12).
Hafin bygging á dvalarheimiLi aldr-
aðra í Borgarnesi (12).
Sjálfsbjörg á Akureyrir stofnar
plastverksmiðju (14).
í ráði að smíða SkutJtogara hjá
skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á
Akranesi (14).
Ákveðið að Aðalverktakar annist
gerð Vesturlandsvegar (17).
Hús reist og gert fokholt á þremur
dögum (21).
Skurðlæknisdeild Borgarspítalans
tekin til starfa (21).
Ákveðið að Brúfellsvirkjun verði nú
samifelLd (22).
Ný endurvarpsstöð sjónvarpsins á
Skálafelli risin (25).
Bafnargarður stækkaður og stífla
gerð fyrir vatnsveitu á Akranesi (25).
MENN OG MÁLEFNI
Jón Sigvaldason, sendiherra Kana-
da hér á landi, kveður (5).
Stóll eftir Gunnar Magnússon hlýt-
ur viðurkenningu Ieeland Review (5).
Sadruddin Aga Kahn, forstjóri
Flóttamannalhjálpar SÞ, 1 heimisókn
(7).
Björgvin Bjarnason, sýslumaður,
skipaður bæjarfógeti á ísafirði (7).
Lárus Sigurbjörnsson kjörinn heið-
ursfélagi Leikfélags Reykj'avíkur (8).
Þór Magnússon settur þjóðminja-
vörður (11).
í>rír nýir sveitarstjórar: Húnbogi
Þorsteinsson í Borgarnesi, Sigurður
PáLsson í Stykkishólmi og Þorkeli
Gíslason í Bolungarvík (18).
Fyrsti ríkisráðsfundur í embættis-
tíð herra Kristjáns Eldjárns haldinn
(24).
Fjölnir Stefánsson ráðinn skólastjóri
Tónlistarskóla Kópavogs (28).
Jón Þórarinsson ráðinn diagskrár-
stjóri Sjónvarpsins (28).
Fjórir rithötfundar, Guðmundur
Daníelsson, Guðbergur Bergsson,
Svava Jakobsdóttir og Jóhannes úr
Kötlum, hljóitia viðurkenningarstyrk
úr Rithöfundasjóði íslands (29).
FÉLAGSMÁL.
Guðfinma Ragnarsdóttir kjörin for-
maður Sambands isl. stúdenta er-
lendis (1).
Þing Stéttarsambands bænda hald-
ið á Skógum (1,3,4).
Fulltrúar stjórnmálaflokikanna hefja
viðræður um honfur í efnahagsmál-
um og nauðsynleg úrræði (3,4).
Alþýðubandalagið á Vestfjörðum
klofið (10).
Kaupstefna, „íélenzkur iðnaður
1968“, haldin í Reykjavík (11).
Mikið um uppsagnir á vinnumark-
aðinum (12).
Arinbjörn Kolbeirusson endurkjör-
inn formaður Félags ísl. bifreiðaeig-
enda (13).
Einar Hannesson endurkjörinn for-
maður ÍIJT (13).
18,3 millj. kr. greiddar í atvinnu-
leysisbætur það sem af er árinu (14).
Arngrímur Jónsson, skólastjóri, kos-
inn formaður Kjördæmiaráðs Sjállf-
stæðisfloíkksins á Vestfjörðum (18).
Gísli Ólafsson kosinn forseti Bridge-
sambands Íslands (18).
Birgir Stefánsson, Reyðarfirði, end-
urkjörinn form<aður Bandalags ísl.
leikfélaga (19).
5230 börn í umferðarskólanum
„Ungir vegfarendur*' (20).
GrikkLandshreyfing stofnuð. For-
maður Sigurður A. Magnússon (21).
Sr. Sigmar Torfason kosinn for-
maður Prestaifélags Austurtauads (21).
Aðalifundur Skógræktarfélags ís-
Lands haldinn að Hallormsstað (22).
Stofnun Sambands íslenzkra verk-
taka ákveðin (22).
Jón Sigurðsson en-durkjörinn for-
maður Sjómannasambands íslands
(24).
Steingrímur Blöndal kosinn for-
maður SUS á Norðurlandi (27).
Aukaþing SUS haldið 1 Reykjavík
(28).
Ráðstefna atvinnurekend'a og laun-
þega í sömu iðngreinum haldin (28).
BÓKMENNTIR OG LISTIR.
„Klagen i Jorden", úrval ljóða etftir
Matthías Johannessen í danskri þýð-
ingu (5,17).
Sinfóníuhljómsveitin leikur í Vest-
mannaeyjum (7).
Myndlistarskólinn heldur útisýn-
ingu á SkóLavörðuholti (10).
Ljóð sex íslenzkra skálda þýdd á
serbókróatísku (12).
Snjólaug Sigurðsson, vesttur-íslenzk
listakona, í heimsókn (18).
Yfirlitssýning á verkum Jóns Stef-
ánssonar (13, 21).
Ingi Hrafn Hauksson selur lista-
I SEPTEMBER
verk tfl Svíþjóðar fyrir 60 þús. kr.
(10).
Sverre Bruland stjórnar fyrstu
fimm tónleikum Sin'fóniuhljómsveitar
innar (21).
Leikfélag Reykjaví'kur sýnir „Miann
og konu", eftir Jón Thoroddsen (21).
Ob er n k ir che n -b a rnakó r inn sy n gur
í Þjóðleikhúsinu (22).
Þjóðleikhúsið 9v>nir „Fyrirheitið",
eftir Alexander Arbuzov (25).
Magnús Á. Árnason opnar málverka
sýningu (28).
SLYSFARIR OG SKAÐAR.
Togarinn Surprise GK 4 sitrandar á
Landeyjarsandi (6).
Frystur fiskur skemmiist í lest 1
Brúarfoss (8).
Vélbáturinn Faxaborg fná Hafnar-
firði brennur og sekkur (13).
Ung stúlka, Valgerður Ingvadóttir,
bíður bana í bílslysi í Englandi (14).
Ú'tihús á Hvanneyri brenna (17).
Hurð fýkur af herflugvél í flugtaki
á Keflavíkurflugvelli (19).
Víðir Sveins9on, skipstjóri, bíður
bana af slysförum um borð í skipi
sínu (21).
ÍÞRÓTTIR.
KR hlýtur titilinn „Bezta frjáls-
íþróttafélagið í Reykjaví'k" (1).
Keflavík öðlast rétt til þess að
keppa í 1. deild næsta ár (3).
Þorbjörn Kjærbo vinnnur FÍ-bikar
GR í golfi (3).
Gunnar Sólnes Akureyrarmeistari
í golfi (4).
Einar Guðnason vann FÍ-skjöld
Nessklúbbs (12).
Valur gerði jafntefli við Benfica
frá Lissabon i fyrri leik félaganna í
Evrópukeppni meistaraliða, 0-0 (19).
KR tapaði fyrir gríska liðinu Olym-
piakos í Evrópukeppni bflcarliða með
0:2 (21) og 0:2 (24).
Sænska handknattleiksliðið SAAB
keppir hér (24).
Átta íslendingar taka þátt í Ólym-
píuleikunum í Mexíco 28).
AFMÆLI.
Bandalag íslenzkra listamanna 40
ára (6).
Félag íslenzkra skókaupmanma 30
ára (14).
Rafveita Húsavíkur 50 ára (21).
ÝMISLEGT.
50 þús. kr. gjöf til sjóðsstofnunar
til styrktar heyrnardaufum börnum
(3).
Laxveiði góð í sumar (3).
Heyskaparhorfur á Suðurlandi
slæmar (3).
20 prs. innflutningsgjald sett á allair
innfluttar vörur með bráðabirgðalög-
um (4).
Gamla Skátaheimilið við Snorra-
braut riifið (4).
Slæmar heyskaparhorfur á Snæ-
fellsnesi sunnanverðu (4).
Skri'fstofa Neytendasamtakanna inn
sigluð (5).
Tekjuskatti 42ja breytt — Sements-
verksmiðjumálið til saksóknara (5).
Sláturfélag Suðurlands kaupir frysti
hús á Selfossi (6).
íslenzk uppfinning vekur athygli á
plastvörusýningu í Ósló. (6).
SH 9amþykktir tilboð ríkisstjórnar-
innar um 75% verðtryggingu (7).
Tíu ný gróðurkort gefin út (19).
Bréfasafn Brynjóltfs Péturssonar
finnst í Kaupmannahöfn (11).
Álagning lækkar í smásölu og heild-
sölu (11).
Gamla húsið á Lágafelli flutt um
set (13).
Nokkrir félagar Æskulýðstfylking-
arinnar standa „vörð" við Morgun-
blaðið (14).
Brezka flugfélagið BEA hyggst
hefj'a ferðir til íslands (14).
V.b. Buginn fær síðu tréskips i
trollið (17).
Bræðurnir Sverrir og Ragnar Magn-
ússynir kaupa gömlu SÍS-verksmiðj-
una í Harrisburg (17).