Morgunblaðið - 07.12.1968, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DES. 1968
Opnum í dag
nýja hárgreiðslustofu og snyrtivörusölu í verzluninni
Vogaborg Kleppsvegi 152.
Hárgreiðslustofan
Kaprí st.
Kleppsvegi 152, sími 36270.
„f STRIÐI OC
STORSJÓUM "
Fjórða bók Sveins Sæmundssonar
KOMIN er út bókin „I stríði og
stórsjóum" eftir Svein Sæmunds-
L . ~
Hafsteinn Björnsson miðili
NÆTURVÁKA
Hafsteinn Björnsson hefor um óratuga skeiS verið lands-
kunnur sem mikilhœfur og eftirsóttur miðill. NÆTURVAKA
er fyrsta bók hans og hefur að geyma sjö smósögur;
sveitasögur, sögur um íslenzkt fólk og íslenzka staðhœtti.
Hafsteinn gerþekkir það fólk, sem hann lýsir og myndir
þœr, sem hann dregur hér upp eru sannar og gleymast
ekki.
Hópur aðdáenda Hafsteins Björnssonar miðils er stór. Það
er því öruggara að draga ekki til síðasta dags að ná sér
í eintak af bók hans, Nœturvöku, það kann að reynast of
seint síðar. Verð kr. 344,00
SKDGGSJÁ
Jónas Þorbergsson
BROTINN ER BRODDUR DAUÐÁNS
Þessi síðasta bók Jónasar Þorbergssonar fjallar um „mikil-
vœgasta málið í heimi". Hann rœðir hér um orku og efni
og framlífið að loknum líkamsdauðanum, — um manninn
og samsetning hans, — langur kafli er um sálfarir og segja
þar átta landskunnir menn frá eigin reynslu, — kafli er
um djúptrans miðla og loks er hór að finna brot úr sam-
tölum sem Jónas átti við framliðna vini sína. — Sem bókar-
auki eru minningargreinar nokkurra vina Jónasar um
hann látinn.
Verð kr. 365,50
SKIGGSJÁ
BÓKIN UM SÉRA FRIÐRIK
Skrifuð af vinum hans
í þessa bók skrifa tuttugu þjóðkunnir menn um eftirtektarverðustu þœttina f
fari hins ástsœla œskulýðsleiðtoga, séra Friðriks Friðrikssonar, og þau miklu
áhrif, sem kynni við hann hðfðu á þá.
Hofvnéar bókarinnar •rwt
Árni Ámaten, dr. m#d.
Ástráður SígursteindárMOa,
ðkátastjári
ESnar Guínaton, práfatfwr
Guímundur Kr. GuSmundsson,
fyrrverandi kaupmaSar
Gylfi P. Gíslason,
menntamálaráðherra
HÖfundpr bókarinnar • ru:
Matthías Johannessen, ritstjári
Páll V. G. Kolka, lasknir
Sigurbjörn Einarsson, bískup
Sigurbjörn Á. Gtslason, prestur
Sigurbjörn Þorkolsson, forstjári
Sigurður A. Magnússon, ritstjári
Sigurján Ólafsson, myndhöggvari
Ulfur Ragnarsson, lœknir
Valdimar Björnsson, ráðherra
ÞárÖur MÖllor, yfirlœknir
Þárir Kr. ÞárBarson, prófessor
Jakob Frímannsson, forstjárl
Jáol Fr. Ingvarsson, skósmíðam.
Kristrún Ólafsdáttir, frú
Magnút Guðmundsson,
fyrrverandi práfastur
Bákin um séra Friðrik er fögur bák, jafnt að efni sem útliti. Hún er vegleg vinar-
gjöf, jafnt ungum sem öldnum. Fjöldi mynda úr lífi séra Friðriks prýða bók-
ina, auk teikninga við upphaf hvers kafla. Atli Már annaðist bákarskreytingar.
Verð kr. 494,50. SKDGGSJA
son, nýjar frásagnir af íslenzk-
um sjómönnum á friðar- og
stríðstímum. Bókin er 218 blað-
siðnr að stærð, útgefandi er Set-
berg.
„í srtríði og stórsjóum“ er
fjórða bók Sveins Sæmundsson-
ar. Hinar bækurnar þrjár eru
„í brimgarðimim“, sem kom út
1965, „Menn í sjávarháska“, sem
út kom 1966 og ,,í særótinu“,
sem kom út sl. haust. Bækur
Sveins fjalla allar um sjómenn
og gjómennsku, eins og heiti
þeirra gefa til kynna, og hafa
þær notið mikilla vinsælda.
Fjórða þók Sveins skiptist í
níu kafla. Sá fyrsti heitir „í sjáv-
arháska við Færeyjar“. Er það
saga vestfirzks sjómanns, sem 10
ára gamall hóf sjómennsku á
skútu, en fór síðar í siglingar.
Kaflinn „í grunnbrotum Faxa-
flóa“ er frásögn af togaranum
Skallagrími í ofviðri í Faxaflóa.
„Með Frigg á vertíð“ er frá-
sögn af starfi fiskimanna á
vélbátaflotanum frostaveturinn
mikla.
„Með óbilandi kjarki og hug-
rekki' er saga fimmmenninga á
vélbátnum Kristjáni í upphafi
síðustu styrjaldar.
„Þsir rigndi eldi og eimyrju"
er kafli um tvo íslenzka togara
á stríðsárunum, sem björguðu
hundruðum manna úr sjávar-
háska, en annar þeirra varð síð-
ar fyrir árás þýzkrar sprengju-
flugvélar.
„Brotsjór við Eyjar“ er frásögn
af togara, sem lenti í brotsjó.
Sveinn Sæmundsson
en komst til hafnar af eigin
rammleik.
Lengsti kafli bókarinnar nefn-
ist „Örlagaþung varð Arctic".
Skipið var keypt af fiskimála-
nefnd í stríðsbyrjun til fiskflutn-
inga og er saga þess og áhafnar
rakin, sagt frá siglingum um
ófriðarsvæðið, fangelsun og yfir-
heyrslum, sem fóru fram á
Kirkjusandi og eiga ekki sinn
líka hérlendis. Þá er sagt frá
hinztu för skipsins.
Kafli samnefndur bókinni fjall
ar um afdrif flutningaskipsins
Heklu, fyrsta íslenzka vöruflutn-
ingaskipsins, sem skotið var í
kaf í stríðinu, svo og hrakning-
um þeirra, sem af komust, á
fleka.
„Haldið til hafnar," er eftir-
máli höfundar og heimildarskrá.
Nokkrar myndir eru í bókinni,
sem prentuð er í Setbergi. Hlífð-
arkápu gerði Kristin Þorkels-
dóttir.
Norskt pípuorgel vígt
í Saurbæjarkirkju
AKRANESI 28. nóv. — Síðast-
liðinn sunnudag var vígt nýtt
pípuorgel í Hallgrímskirkju í
Saurbæ. Hófst athöfnin með há-
tíðarþjónustu klukkan þrjú. Bisk
up íslands, herra Sigurbjörn Ein-
arsson, flutti ávarp og bæn og
vígði orgelið, en sóknarprestur-
inn, séra Jón Einarsson, prédilt-
aði og þjónaði fyrir altari. Söng-
málastjóri þjóðkirkjunnar, dokt-
or Róbert Abraham Ottósson,
flutti ávarp. Guðmundur Gilsson
organleikari lýsti orgelirnu og lék
á það, og gerði grein fyrir ein-
kennum þess og hæfni. Athöfnin
var hin hátíðlegasta, og var
kirkjan fullsetin. Meðal við-
staddra voru, auk biskupshjón-
anna, allir prestar Borgarfjarð-
arprófastsdæmis. Að kirkjuat-
höfninni lokinni, bauð kvenfé-
lag sveitarinnar öllum viðstödd-
um til kaffisamsætis í félags-
heimilinu að Hlöðum. Þar flutti
Guðmundur Brynjólfsson, for-
maður sóknarnefndar, ræðu,
rakti sögu orgelmálsins og gerði
grein fyrir kostnaði. Einnig tóku
margir aðrir til máls.
Hið nýja pípuorgel er tólf
radda og þykir hið vandaðasta
og fegUrsta hljóðfæri. Það er
keypt frá orgelverksaniðjunni
Vestre í Noregi, og er fyrsta
orgelið, sem hingað er flutt frá
því landi, ef undan er skilið lítið
pípuorgel, sem mun hafa komið
hingað frá Þrándheimi á dögum
Lárentíusar Kálfssonar, eða fyrir
640 árum.
Hið nýja oTgel mun verða
mikil lyftistöng fyrir kirkjulíf
Saurbæjarsóknar og er byggð-
inni þar og kirkjulífí öllu mikill
menningar- og gleðiauki.
Jólakortin komin
Höfum til, nú sem fyrr, margar tegundir jólakorta,
t. d. Ijósmyndakort, litprentuð kort eftir teikningum
Halldórs Péturssonar og Selmu Jónsdóttur og fleiri
falleg og ódýr kort. Einnig kort Sameinuðu þjóðanna.
Bókaverzlun Stefán Stefánssonar
Laugavegi 8. — Sími 19850.