Morgunblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1968
15
seinasta skiptið, sem skynsemi-
gæddar verur láta valdasjúka
öldunga reka sig eins og sauð-
fé út á blóðvöllinn til þess að
svala metnaðargimd þeirra."
Kaupmannahafnarbréfin hafa
mest gildi fyrir þá rannsókn á
skáldskap Jóhanns Sigurjónsson
ar, sem óhjákvæmilegt er að
gerð verði í framtíðinni. í>að hef
ur að vísu ýmislegt athyglisvert
verið skrifað um Jóhann, nægir
að nefna ritgerð Gunnars
Gunnarssonar framan við Rit
hans, og bók Helge Toldbergs
um hann, sem til er í íslenskri
þýðingu.
Jóhann freistast til að segja
bróður sínum „undarlega“
drauma; þeir lýsa skáldinu vel
og hvetja til ráðninga. Þannig
er um margt í bréfunum; væri
því skipað í það samhengi, sem
lífssaga skáldsins er, kæmi ým-
islegt í ljós. Eitt af því sem á-
Jóhann Sigurjónsson
berandi er í bréfunum, er hin
mikla og viðkvæma ættjarðarást
skáldsins, en hún birtist víða í
verkum hans, einkum ljóðunum.
Reykjavíkurbréfin eru tíðinda
minni, enda skáldið Jóhann Sig
urjónsson þá aðeins ídeiglunni;
þau lýsa honum sem áhugasöm-
um nemanda í Reykjavíkurskóla
og félagslyndum þar að auki.
1898 segir hann bróður sínum
frá „vitleysu" einni, sem hann tók
upp á. Klukknahringing í
Reykjavík kom henni af stað,
og í henni er þetta erindi, sem
gefur margt til kynna um skáld
ið í hinum þingeyska skólasveini.
Skáldið spyr hvenær dauðinn
muni vinna bug á dularafli ílfs-
ins:
Ég veit það eigi, ævin líður
skjótt
og er í mörgu lík og báran
smáa,
er rís og hneigir síðan hægt
og rótt
sitt höfuð vott í móðurskautið
bláa.
Líkindin með þessu erindi og
því, sem hann orti best síðar á
ævinni, eru augljós.
Seinasta bréfið frá Reykjavík,
dagsett 19. mars 1899, er langt
ljóðabréf. Það segir meira um
manninn Jóhann Sigurjónsson
en skáldið, ef það er ekki til-
gangslaust að reyna að skilja þá
félaga að. Fáir voru meiri skáld
í öllu sínu háttemi en einmitt
hann.
Bréf til bróður, hefur Krist-
inn Jóhannesson búið til prent-
unar. Stuttur inngangur eftir
hann fylgir bókinni, einnig skýr
ingar á ýmsu því í bréfunum,
sem kemur ókunnuglega fyrir
sjónir. Kristinn hefur auðsýni-
lega lagt vinnu í samantekt bók
arinnar, og virðist honum hafa
tekist sómasamlega. Bókin er í
smábókaflokki Menningarsjóðs,
en í þeim bókaflokki eru marg-
ar þarfar bækúr. Vonandi verð-
ur útgáfu smábókanna haldið á-
fram; þeir sem sækjast eftir góð-
um bókmenntum innlendum og er
lendum líta þetta lofsverða fram
tak Menningarsjóðs hýrum aug-
um.
Jóhann Hjálmarsson.
Haukur Ingibergsson skrifar um:
HLJÓMPLÖTUR
NÝKOMIN er í verzlanir
hljómplata frá SG hljómplötum,
þar sem kirkjukór Akureyrar
syngur 14 sálma og helgilög.
Nefnist platan „Oss berast helg
ir hljómar". Hljóðritun er gerð í
Matthíasarkirkju á Akureyri, og
kemur hljómburður þess veglega
guðshúss fram á upptökunni,
sem jafnframt er fyrsta stereo
upptaka, sem gerð er hérlend
is á vegum SG hljómplatna, og
hefur hún heppnast eftir von-
um. Um þá hlið sá Pétur Stein-
grímsson. Plötuumslagið sem er
teiknað af Kristjáni Kristjáns-
syni, með myndum eftir Eðvarð
Sigurgeirsson og Matthías Gests
son, er virðulegt, og hæfir inni-
haldinu vel.
Kirkjukór Akureyrar 20
manna kór, stendur á gömlum
merg. Hefur hann nú um árabil
starfað undir natinni leiðsögn
.Jakobs Tryggvasonar, og ber
honum tvímælalaust heiðurinn af
þessari plötu. Raddirnar eru vel
þjálfaðar og innbyrðist jafnvægi
þeirra gott, og býr kórinn yfir
ýmsum blæbrigðum, má þar t.d.
benda á lagið „Liberia me“. Sig-
urður Svanbergsson sér um ein-
sönginn í því verki, og gætir að-
eins grófra drátta í röddinni, þó
að ekki sé það til verulegrá lýta.
Hinn góðkunni orgelleikari frá
Akranesi, Haukur Guðlaugsson
leikur undir á pípuorgel Matt-
híasarkirkju í 9 laganna, en það
er, sem kunnugt er, eitt bezta
hljóðfæri sinnar tegundar hér-
léndis. Að vísu reynir ekki mik-
ið á Haúk, helzt í „Slá þú hjart-
ans hörpustrengi," en hann
stendur að v-andá vel fyrir sínu.
Þegar á heildina er litið, er
þetta áferðarfalleg plata og
sjálfri sér samkvæm. Helzti gall
inn er, hve textar laganna koma
ógreinilega fram, en þar er
sennilega allt eins mikið við upp
tökustaðinn að sakast eins og
kórinn sjálfan. Verkefnavalið er
fjölbreytt og spannar yfir hin
ýrnsu svið kirkjutónlistar. Skal
lesendum til leiðbeiningar gefið
upp efnisyfirlitið. Á hlið A eru:
„Oss berast helgir hljómar” eft-
ir Tryggva Kristinsson, „Ave
Maria“ eftir Jackues Arcadelt,
„Slá þú hjartans hörpustrengi“
eftir J.S. Bach, „Leið mig Guð“
eftir S.S. Wesley, „Ó, Jesúbarn
blítt“ eftir J.S. Bach, „Löfsöng-
ur“ eftir Sigfús Einarsson, og
„Syng Guði dýrð“ eftir Björg-
vin Guðmundsson. Á hlið B eru
,,í gegnum lífsins æðar allar“
eftir L. Nielsen, „Lofsöngur" eft-
ir Helga Helgason, „Liberia me“
Gabriel Faure, „Ég kveiki á
kertum mínum“ eftir Pál fsólfs-
son, „Dýrð í hæstum hæðum“
eftir Björgvin Guðmundsson, „Ó
faðir Guð, vér þökkum þér“ eft-
ir L.V. Beethoven, og „Rís upp
Drottni dýrð“, sem er gamalt ís-
lenzkt tvísöngslag.
Gott er að geta gengið að
hljómplötu þessari, er amst-
ur hins daglega lífs er að kaf-
færa þreyttar sálir. Er þá fátt
betra • en draga sig í hlé um
stund, setja plötuna á fóninn,
og tónar hennar munu vissu-
lega færa mann ögn nær guði
sínum. Þökk sé Kirkjukór Ak-
ureyrar fyrir mannbætandi
hljómpiötu.
Haukur Ingibergsson.
KARLMANNASKÓR
reimaðir og óreimaðir.
Gott úrval af karlmanna- og drengjainniskóm.
Þetta eru nytsömustu jólagjafirnar.
LAUGAVEG 96
Pétur Andrésson
HÚSGÖGN í ÚRVALI
1. ARMSTÓLASETT
2. SÓFABORÐ
3. BORÐSTOFUBORÐ
4. SAMFELLUBORÐ
5. LÍTJL OG STÓR
SKRIFBORÐ
6. HJÓNARÚM
7. SMÁBORÐ
8. OG MARGT FL.
9. HAGSTÆTT VERÐ
10. AFBORGUNAR-
SIÍILMÁLAR.
HÚSGAGNAVERZLUN
KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
LAUGAVEGI 13 — SÍMAR 13879—17172.
TRICOTda LUXE
JERSEY kjólarnir
þægilegu