Morgunblaðið - 02.06.1970, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1970
Björn Jónsson
— Minningarorð
Fæddur 14. okt. 1908
Dáinn 26. apríl 1970
26. APRÍL andaðist hér í Reykja-
vík Björn Jónsson frá Mann-
skaðahóli eftir stutta legu, 61 árs
að aldri. Með Birni er fallinn í
valinn traustur og góður maður,
sem öllum var vel við, sem hon-
um kynntust.
Björn var fæddur 14. okt. 1908,
sonur hjónanna Sigriðar Hall-
dórsdóttur og Jóns Jónssonar er
lengst bjuggu á Mannskaðahóli í
Skagafirði og ólst þar upp í stór
um systkinahópi. Hann var
snemma bráðger og þroskaður,
og fór því snemma að hjálpa til
við eitt og annað sem að heimil-
inu laut. Ég kynntist Birni fyrst
er hann var 5 ára og vorum við
nágrannar næstu 4 árin. Þar sem
skepnurnar gengu mikið saman
kynntist ég krökkunum á Hóli
töluvert og það vcru margir snún
ingarnir, sem þau fóru ekki eldri
en þau voru. Jón faðir Bjöms
var annálaður kraftamaður og
duglegur að sama skapi. Það var
tekið til þess hve horrum var létt
um að vinna, t.d' við slátt, þótt
hann væri að slá túnhólana í
brakandi þurrki, söng hann oft
hástöfum.
Það er fallegt á Manngkaða-
hóli. Bærinn stendur undir
brattri fjallshlíð þar sem Gauks-
hnjúkur gnæfir hæst beint upp
af bænum, Höfðavatnið skammt
fyrir neðan túnfótinn, Þórðar-
höfðinn norðan við það og hækk
ar frá landi í sjó fram í gríðar-
hátt standberg. Málmey er norð-
an við hann og Drangey og Kerl-
ing vestur af höfðanum. Beint á
móti hinum megin fjarðar hið
tignarlega fjall Tindastóll með
Reykjastrandarfjöllunum inn af.
Og augað eygir miklu meira
bæði af vesturfjöllunum og inn
til dala og nærliggjandi sveitum,
að ógleymdu sólarlaginu, sem er
mjög fagurt þegar síðustu kvöld
geislarnir dansa á haffletinum í
margbreytilegu litasíkrúði. Af
slíku umhverfi verður enginn
ósnortinn enda kom það fram í
Birni, hann unni bernsíkulheimili
sínu hugástum og dvaldist þar
oft bæði í huga og veruleika, og
ég hygg að hann hafi átt sinn
góða þátt í því að gera það að
því höfuðbóli, sem það nú er.
Björn fór í Laugaslkóla og fékk
þar staðgóða menntun, en mögu-
leikar til framhaldsnáms voru
ekki miklir á þeim tímurn. Eftir
að hann lauk námi stundaði hann
ýmsa vinnu í Skagafirði og víðar.
Eftir að Bjöm fluttist til
Reykj avíkur vann hann öll störf
er til féllu, þar til hann fékk sér
fólksbíl, sem hann ók í nokkur
ár. Verkstjóri hann hjá bygging-
arfélagi hér í borg, en síðustu ár-
in var hann húsvörður í Miðbæj-
arskólanum, sem síðar var breytt
í menntaskóla. Það starf rækti
hann af sérstakri alúð og sam-
vizkusemi og kom sér mjög vel,
bæði við kennara og nemendur,
og það vitnaði bezt um vinsæld-
ir hans, að fjöldi kennara og nem
enda fylgdi honum síðasta spöl-
inn. Eftir að við höfðum báðir
flutzt til Reykjavíkur, tókst kunn
ingsskapurinn á ný, bæði í nánu
samstarfi og á gleðifundum, og
bar þar aldrei skugga á. Þó Björn
væri frekar fáskiptinn, var hann
mikill gleðimaður í góðra vina
hópi. Aldrei heyrði ég hann
leggja illt til nokkurs manns en
var ætíð boðinn og búinn að gera
öðrum greiða. Hann var gestris-
inn og höfðingi heim að sækja,
enda komu þar margir. Var þá
veitt af rausn og hjartahlýju.
Ættir Björns liggja víða um
Skagafjörð, föðuirafi Bjöms vaæ
Jón, síðast bóndi í Skinnþúfu (nú
Vallanesi) Stefánsson bónda í
Garðahorni Jónssonar bónda á
Þrastastöðum Jónssonar en kona
Stefáns var Guðríður Sveinsdótt
ir. Föðuramma hans var Ragn-
heiður Þorfinnsdóttir bónda á
Hryggjum Jónssonar hreppstjóra
síðast á Kimbastöðum. Móðir
Ragnheiðar var Ingibjörg Bjarna
dóttir bónda á Sjávarborg Jóns-
sonair og konu hans Guðrúnar
Þorsteinsdóttur hreppstjóra á
Reykjavöllum Pálssonar.
Móðurafi Bjöms var Halldór,
síðast bóndi á Syðsitugrund, Ein-
Framhald á bls. 18
Ásta
Júlíus
dóttir
F. 16. apríl 1900. — D. 14. maí 1970.
Hvíl þú rótt kæra fræn/ka senn birtir af nótt.
Ljósgeisli leiki um leiðið þitt.
Ljúft hvisli blærinn kveðjuljóð mitt.
Hvíl þú rótt.
Hvíl þú rótt, kæra systir svo endair oft fljótt,
ævidagur, þín ást lifiæ Skær,
því innst í hjarta ég finn þig mér nær.
Hvfl þú rótt.
Góða nótt, elsku mamma nú allt er svo hljótt.
Brá mín titrar er brennheit tár
blinda aiugun, samt þeirxa skal brár.
Góða nótt.
Sofðu rótt, signi þig amma mín bænarorð hljótt,
þú veittir mér gleði og gaifst mér þann yl,
sem gleymi ég eigi, en þakka nú vil.
Sofðu rótt.
Sofðu rótt, sigrað nú hefur þinn sterka lífsþrótt,
ljósgjafinn mikli hefur leið þinni breytt,
til lífsins eilifa heim til sín leitt.
Sofðu rótt.
Votta ég ykkur öllum míma dýpstu samúð.
Ykkar frænka og fjölskylda.
Karólína Rut Valdimars
frá Skjaldartröð.
Sumarnámskeið í
Kerlingafjðllum
Almenn námskeið
— gjald 6400 kr.
smsmurn /
mLimmm
30. • r r jum — 6. jlllí
6. júlí - 12. júlí
12. júlí - 18. júlí
18. júlí - 24. júlí
24. júlí - 30. júlí
30. júlí - 5. ágúst
(Síðasta almenna námskeiðið er
einkum ætlað fólki með börn).
Unglinga námskeið (15-18 ára)
— gjald 4500 kr.
5. ágúst — 10. ágúst
10. ágúst — 15. ágúst
Unglinganámskeið (14 ára og yngri)
— gjald 3800 kr.
15. ágúst — 20. ágúst
20. ágúst — 25. ágúst
25. ágúst — 30. ágúst
Upplýsingar og miðasala hjá
Hermanni Jónssyni, úrsmið
Lœkjargötu 2 Sím/ 19056
Innifalið í gjaldi
— ferðir frá og til
Reykjavíkur
— fæði, nesti á
báðum leiðum
— dvöl í þægilegum
skíðaskálum
— skíðakennsla fyrir
byrjendur og
lengra komna
— skíðalyfta
— leiðsögn
í gönguferðum
— kvöldvökur með
leikjum, söng
og dansi.
Skíði, stafir
og skíðaskór
eru til leigu gegn
vægu gjaldi.