Morgunblaðið - 16.02.1971, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐEÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1971
Ingimar Guðmundsson, formaður
Átthagafélags Sléttuhrepps:
I>JÖÐGARÐUR A
VESTF JÖRÐUM ?
EINS og þegar er kunnugt ligg
ur nú fyrir frumvarp á Alþingi
um þjóðgarð á Vestfjörðum,
borið fram af hæstvirtum þing
mönnum Matthíasi Bjarnasyni
og Pétri Sigurðssyni. í>ar er
gert ráð fyrir að þjóðgarðurinn
verði allt landssvæðið norðan
línu, sem dregin sé úr botni
Hrafnsfjarðar í botn Furufjarð
ar. Ekki er hér um neina smá
munasemi að ræða. Landsvæðið
sem hæstvirtir flutningsmenn
hafa í huga og ætla að færa
þjóðinni á gulldiski, er 582 fer
kílómetrar. — Já, það má með
sanni segja, miklir menn erum
vér, Gvendur minn. — Þjóðgarð
urinn „við nyrzta haf“ er rúm-
lega 20 sinnum stærri en þjóð-
garðurinn á Þingvöllum.
Þjóðgarður þessi skal vera
friðlýst svæði allra Islendinga.
Ekki fáum við séð þörf slíkrar
friðlýsingar sérstaklega, þár sem
friðlýsing hefur verið í reynd á
síðustu tveimur áratugum, og
þekkja fáir betur en þeir, sem
séð hafa hvernig gróðri hefur
fleygt fram á undanförnum ár-
um. Gróðurinn hefur átt hér al
gjört friðland undan ágangi
sauðfjár og gróðurlausir melar
og sandar eru óðum að breytast
í gróðursælar vinjar.
Umgengni um helgasta reit
þjóðarinnar hefur sízt verið til
fyrirmyndar, og væri þvi rétt
ara að stuðla að því að honum
yrði meiri sómi sýndur, og væri
það verðugt verkefni fyrir svo
víðsýna hugsjónamenn. — Hvað
fjárheld girðing milli Furufjarð
ar og Hrafnsfjarðar hefur að
gera, er vandskilið, þar sem
sauðfé er víðs fjarri og kemur
ur aldrei á þessar slóðir, eða
hafa flutningsmenn ef til vill
ráðagerðir í frammi um sauð-
fjárrækt á þessum slóðum?
Mjög frumleg og nýstárleg er
tillaga þeirra um innflutning
sauðnauta. Samkvæmt greinar-
gerð er slíkt álitið skynsamlegt,
^n hvort skynsemin felst í því
að láta dýrin menga vatn í lækj
um, ám og vötnum með áburði
sínum og róta upp jarðveginum
með klaufum sínum, skal látið
ósvarað.
Hér á landi er hæð snælínu
lægst á Hornströndum og fann
fergi og vetrarríki óvíða meira,
en samt er lagt til að gera til
raun með að flytja nokkur hrein
dýr til þessara staða. Hreindýr
in yrðu því varla ellidauð og
fengju vissulega að hvíla í friði
fyrir „áreitni og skotgleði veiði
manna“. —
Hið friðlýsta svæði skal vera
undir vemd Alþingis. Slíks telj
um við enga þörf umfram það,
sem lög gera ráð fyrir þar sem
fáum er betur treystandi til að
sýna átthögum sínum verðuga
ræktarsemi en þeim, sem þar
eiga djúpar rætur. Við sjáum
enga ástæðu til eftirlits opin-
berrar stjómar eins og segir í
greinargerð með frumvarpinu,
en varðskipsmenn, sem oft em
á þessum slóðum á veiði- og
berjatímanum, gætu verið ákjós
anlegir laganna verðir.
Að mannvirki á þessu land-
svæði séu víða hrunin eða í
slæmu ástandi með örfáum und
antekningum, vísum við á bug.
Engin hús hafa verið rifin eða
fjarlægð á annan áratug, ef und
an er skilin Hesteyrarkirkja,
sem rifin var og fjarlægð í ó-
þökk allra Sléttuhreppsbúa af
hálfu hins opinbera 28. júlí
1960. Flestum húsum, sem eftir
standa er vel við haldið af eig
endum þeirra sem dveljast þar
á sumrin.
í greinargerð frumvarpsins
stendur eftirfarandi: „Horn-
strandir og Jökulfirðir em að
dómi okkar einhverjir ákjósan-
legustu staðir til að opna fyrir
hvern þann, sem þráir kyrrð
og frið frá hávaða og mengun í
bæjum og borgum". Hvaðan
flutningsmönnum kemur sú firra
að staðir þessir hafi verið lok-
aðir verður vandséð — engir
hafa fremur opnað augu fólks
fyrír þessum ákjósanlegu stöð-
um en einmitt þeir, sem nú á
að svipta eignum sínum. Hafi
um einhverja lokun verið að
ræða, þá ætti hæstvirtum flutn
ingsmanni Matthíasi Bjarnasyni
að vera betur kunnugt um hvers
eðlis hún er en nokkrum öðrum
sem framkvæmdastjóra Djúp-
bátsins h.f. Það er fyrst og
fremst samgönguleysi, sem hef
ur hamlað því, að fólk hafi kom
izt á þessar slóðir og lipurð og
samningsvilji framkvæmdastjór
ans ekki rómuð, nema verulegar
upphæðir væru í boði. Það er
því full ástæða fyrir hæstvirtan
þingmann að sýna hug sinn í
verki með því að láta Djúpbát
inn halda uppi ferðum sumar-
mánuðina t.d. einu sinni í viku
á sömu hafnir og áður var og ef
til vill fleiri, gegn sanngjörnu
gjaldi. Þetta er sú lokun, sem
verið hefur, öllum hefur verið
opið landsvæðið, en samgöngu-
leysi og kostnaður hefur komið
í veg fyrir ferðir fólks. Sé hæst
virtum þingmanni full alvara,
þá skorum við á hann að snúa
sér að svo verðugu verkefni og
opna landsvæðið fyrir öllum
með bættum samgöngum gegn
hóflegu gjaldi, en standa ekki
sem Þrándur í Götu fyrir því
fólki, „sem leita vill á vit ó-
snortinnar náttúru við nyrzta
haf“.
Annarlegar hvatir gætu legið
að baki slíku frumvarpi, þar
sem hæstvirtur þingmaður hef
ur áður falazt eftir einni helztu
hlunnindajörðinni á áðurnefndu
svæði það er að segja Höfn í
Homvík. Hlunnindi eru m.a.
fólgin í stórfelldum möguleik
um til fiskiræktar, fuglatekju,
eggjatekju og reka, en þegar
söluverð var nefnt minnkaði
stórum áhuginn, enda betra að
leita eftir eignum annarra í orði
en á borði. Því er nú upplagt að
gera Höfn í Homvík að almenn
ingseign, úr því að samningar
um jörðina í eiginhagsmuna-
skyni tókust ekki.
í greinargerð með frumvarp-
inu stendur orðrétt: „Þetta land
svæði býr yfir fjölbreytilegri
náttúrufegurð. Þar eru fögur
vötn, ár og ósar með miklum
silungi, stórfengleg björg ið-
andi af fugli og lífi. Meðal
þeirra er hið stórbrotna Hom-
bjarg, sem enginn getur gleymt,
sem þangað hefur einu sinni
komið. Margar víkur á þessu
svæði eru mjög grasgefnar með
töfrandi sumarfegurð. Jökulfirð
ir frá Hestfirði til Hrafnfjarðar
em fagrir og friðsælir. f hlíðum
þeirra eru einhver beztu berja-
lönd, sem finnast á landi okkar.
Á þessu landsvæði er víðast ó-
snortin náttúra“. Slíkt kostaland
eins og fram kemur í greinar-
gerðinni á sér vart hliðstæðu,
nema í lýsingu Hrafna-Flóka.
Að vísu vilja Sléttuhreppingar
ekki fallast á, að Hestfjörður
sé einn Jökulfjarða, eigum við
ekki bara að lofa Djúpmönnum
að hafa sinn Hestfjörð í friði og
fá aftur Hesteyrarfjörð, svo sem
alltaf hefur verið. — í greinar
gerð stendur ennfremur rétti-
lega: „Þetta stórbrotna hérað
var byggt um aldir fólki, sem
háði þar harða lífsbaráttu, ein-
angrað og naut ekki þeirra lífa-
þæginda, sem bæir og flest önn
ur héruð buðu bömum sínum.
Það yfirgaf að lokum þessa
byggð“. Vissulega varð lífsbar-
átta þessa fólks hörð, og það
var engan veginn sársaukalaust
að yfirgefa byggð sína og þar
með ævistarf sitt bótalaust og
nema land á nýjan leik, á nýj-
um stað vegna breyttra at-
vinnuhátta og einangrunar.
Hver varð að sjá um sjálfan sig
um styrk eða stuðning af hálfu
opinberra aðila var ekki að
ræða þá. Því dreifðust menn í
ýmsar áttir, en „tömm er sú
taug, sem rekka dregur föður-
túna til“ og þótt einstaklingar
af eldri kynslóðinni týni smám
saman tölunni, þá taka þeir
yngri við og tengslin við átt-
hagana verður sameiningcUtákn
þeirra. — Nú þegar menn gera
sér æ betur grein fyrir mikil-
vægi þess að leita í skaut nátt-
úrunnar á tímum spennu og
mengunar, þá skulu tengslin við
átthagana rofin og eignir okkar
þjóðnýttar. Fjölmenn samtök
okkar eru einskis metin né
spurð álits, nú er loks tímabært
að sýna hug sinn í verki, þegar
einstök náttúrufegurð, friðsæld
og hlunnindi verða vart metin
til fjár. Allt skal nú tekið eign-
Framhald á bls. 21.
FÉLAGSSTARF
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Málfundafélagið Óðinn
Almennur félagsfundur í Valhöll við Suðurgötu miðvikudaginn
17. febrúar kl. 8,30.
Dagskrá:
1. ATVIIMNUMÁLIN OG NÝ STEFNA-
I KJARAMÁLUM.
Frummælandi Geir Hallgrímsson
borgarstjóri.
2. Frjálsar umræður.
Félagar fjölmennið.
STJÓRNIN.
Spilakvöld
HÓTEL SÖGU
Spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður miðviku-
daginn 17. febrúar að Hótel Sögu, klukkan 20.30.
1. Spiluð félagsvist.
2. Avarp: Ragnhildur Helgadóttir.
3. Happdrættisvinningur.
4. Spilaverðlaun.
AUK:
hálfs mánaðar ferðar til COSTA
DEL SOL, sem spilað verður um
næstu þrjú spilakvöld.
5. Dansað til klukkan 1.00.
Húsið opnað klukkan 20.00. Sætamiðar afhentir I Valhöll við
Suðurgötu á venjulegum skrifstofutíma. Sími 15411.
Landsmálafélagið VÖRÐUR.
Kópavogrir Kópavognr
SPILAKVÖLD
Týr F.U.S. í Kópavogi heldur félagsvist í Félagsheimili Kópa-
vogs neðri sal þriðjudaginn 16. febrúar kl. 20.30.
Góð verðlaun verða veitt og einnig verða heildarverðlaun,
Öllum er heimil þátttaka.
Stjórn Týs F.U.S.
Sjálfstæðisfélögin Hafnarfirði.
Spilakvöld
Spilað verður fimmtudaginn 18. febrúar kl. 8,30 stundvíslega.
Kaffiveitingar. — Góð kvöldverðlaun.
Kópavogur Kópavogur
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi, heldur fund í Fé-
lagsheimili Kópavogs, miðvikudaginn 17. febrúar kl. 20,30.
Fundarefni:
FJARHAGSAÆTLUN KÓPAVOGS 1971.
Frummælandi Sígurður Helgason, bæjar-
fulltrúi.
Að lokinni framsöguræðu, svara bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fyrirspum-
um fundarmanna.
STJÓRNIN.
Frá Hesteyri við Hesteyrarfjörð