Morgunblaðið - 24.04.1971, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.04.1971, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRlL 1971 Anna Sigríður Adolfsdóttir-Minning ÞEGAR ég fór úr foreldrahús- um á Stokkseyri, var ég svo gæfusamur að eignast að fóstru hina miklu og gáfuðu konu, Önnu Sigríði, konu föðurbróður míns, Jóns Pálssonar. í þeirra húsum eignaðist ég nýja móður, sem ekki aðeins veitti mér allt hið ytra, skjól, fæði og klæði, heldur einnig uppörvun og hvatningu. Þessi kyrrláta og iðjusama kona, sem aldrei lét verk úr hendi falla, lifði og hrærðist í starfi mannsins síns, og þó einkum því sem laut að tónlistarstarfi hans. Listin var húsbóndinn á þessu vingjamlega og vandaða heimili. Anna Sigríður var með af- brigðum falleg kona, eins og margt fólk í hennar ætt, en feg- urð hennar var þó ekki fyrst og fremst hið ytra. Göfug- mennskan, hreinlyndið og menntaþráin var það sem skap- aði hennar fegurð og tign. Það sem mér er einna minnis stæðast frá þeim tíma, er ég bjó hjá þeim Önnu og Jóni, var t Eiginkona mín, Sigrún Eyjólfsdóttir, Suðurgötu 63, Hafnarfirði, lézt 21. apríl í St. Jóseps- spítala. Snorri Ólafsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, Guðmundur í. Guðjónsson, skólastjóri, lézt fimmtudaginn 22. apríl. Sigurrós Ólafsdóttir, Svavar Guðmundsson, Helgi Guðmundsson. t Faðir minn, Grímur Kristgeirsson, verður jarðsunginn mánudag- inn 26. apríl. Athöfnin fer fram í Fríkirkjunni og hefst kl. 15. samstarfshugur þeirra hjóna fyrst og fremst til hjálpar. Nú, er þú kæra Anna mín, stígur yfir þröskuld lífsins, á ferð á fund þíns kæra lífsfélaga, hlýt ég, skjólstæðingur ykkar, að freista að fylgjast með ferð- um þínum af hrærðum huga. Fósturbömum þínum og öðr- um ástvinum, sem einnig í dag kveðja umhyggjusama móður, votta ég af heilum huga samúð mina og bið Guð að blessa minn ingu hennar. Ástarþakkir fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Páll ísólfsson. ANNA Sigríður Adolfsdóttir, ekkja Jóna heitins Pálssonar fyrrverandi aðalféhirðis Lands- banka fslands, andaðist hinn 14. þessa mánaðar í Landakots- spítala eftir langan og þungbær an ellihrumleika. Hafði hún leg- ið rúmföst síðustu árin. Frú Anna var á 98. aldursári er hún lézt, og var útför hennar gerð í gær frá Fríkirkjunni í Reykja- vík. Vinúm hennar og vandamönn- um var að sjálfsögðu fyrir löngu ljóst, að hverju stefndi og undruðust þá miklu lífsorku og seiglu, sem bjó með þessari fingerðu, háöldruðu konu. Þótt við öll, sem vænt þótti um hana, fögnum því, að forsjón- in veitti henni hægan og mild- an dauðdaga, þá hefur í hug- um okkar skapazt tóm, sem ekki verður fyllt, og sársauki, sem aðeins mjúk hönd tímans fær læknað. Þegar hjartfólginn vinur kveð t Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför Soffíu Þorvaldsdóttur. Systkini hinnar Iátnu. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, Guðrúnar Gróu Jónsdóttur. Fyrir hönd vandamanna, ur fyrir fullt og allt, er örðugt um vik að koma orðum að því, sem í huganum býr. Minning- amar leita á og maður finnur á slíkri stundu sárast hvers misst hefur við. Þegar frú Anna var níræð fyrir rúmum sjö árum minntist ég hennar hér á þess- um stað. Þegar ég lít yfir það, sem ég skrifaði þá, finn ég að þar við hef ég litlu að bæta. Þótt hér verði því um nokkra endurtekningu að ræða, langar mig eigi að síður til þess að rifja hér upp þessar minningar þegar ég nú hlýt að kveðja frú önnu hinztu kveðju. Eins og er á ég ekki önnur orð betri. Faðir minn var borinn og bam fæddur Eyrbekkingur og móðir mín átti þar einnig heima um langt skeið. Þótt atvikin höguðu því svo, að foreldrar mínir yfir- gæfu bernskustöðvar sínar á yngri árum, voru þau jafnan tengd þessum átthögum sínum órofa böndum. Þegar faðir minn kom heim af sjónum kunni hann að segja mér ótal sögur frá æskuvinum sínum, Vesturbúðinni, sem þá var ein kunnasta verzlun lands- ins, og fráHúsinu áEyrarbakka, sem veitti menningarstraumum sínum um allt byggðarlagið. Hann þreyttist aldrei á að segja mér frá öllu þessu og þannig festi ég einnig smám saman ræt ur á þessum bernskustöðvum föður míns og batt við þær tryggðabönd. Einn var sá maður, sem faðir minn talaði um af hvað mestri lotningu og virðingu. Það var Jón Pálsson, sem á unglingsár- um hans var kennari og leiðbein andi unga fólksins og einn fremsti leiðtogi byggðarlags- ins um flest þau mál, er til menningar og framfara horfðu. Faðir minn kom oft á heimili Jóns Pálssonar á Eyrarbakka og átti hann ekki nóg orð til þess að lýsa þeirri festu og þeim myndarskap, sem þar ríkti á öllum sviðum. Þá réð ríkjum frú Anna, sem í gær var borin til hinztu hvílu og er það sannast sagna, að hún var enginn eftirbátur manns síns að dugnaði og mannkostum þótt Síður yrði þess vart út á við. Anna Sigríður Adolfsdóttir fæddist hinn 22. febrúar 1874 að Stokkseyri, dóttir hjónanna Ad- olfs Adolfssonar bónda á Stokks eyri og Ingveldar Ásgrímsdóttur Eyjólfssonar frá Litlu-Háeyri á Eyrarbakka. Voru þau þremenn ingar að frændsemi Syðra-Sels- hjónin Páll og Margrét, Einar „borgari“ á Eyrarbakka, faðir Sigfúsar tónskálds og dómkirkju organleikara, Sigríður gamla á Stokkseyri, dóttir Jóns ríka í M6 húsum og móðir Adolfs bónda á Stokkseyri föður önnu. Var þetta ein hin mesta söngætt lands ins á sinni tíð og raunar jafnan síðan, enda var langafi þeirra Bergur Sturlaugsson bóndi í Brattsholti, sem Bergsætt er kennd við, einn hinn kunnasti söngmaður landsins á sínum tíma. Hefur tónlistargáfan fylgt þessu fólki alla tíð og allur sá ættbálkur svo kunnur að óþarfi er að rekja hann frekar hér. Þau Anna og Jón giftust árið 1895 og áttu heima á Eyrarbakka unz þau fluttust hingað til Reykjavíkur sumarið 1902. Gerð ist Jón Pálsson þá bókari hjá Brydesverzlun og starfaði þar til ársins 1909, eða um það leyti, sem hún hætti starfsemi. Nokkru síðar var hann fenginn til að- stoðar rannsóknamefnd þeirri, sem skipuð var það ár til þess að rannsaka allan hag Lands- banka fslands. Gerðist hann síð- an starfsmaður Landsbankans í janúar 1910 og var veitt starf aðalféhirðis í maímánuði 1914. Gegndi hann því embætti á með an heilsa entist, eða þar til hann fékk lausn frá störfum árið 1928. Á starfstíma Jóns Pálssonar í Landsbanka íslands var all stormasamt. Hann kom þangað þegar bankamálin 1909 stóðu sem hæst og allri bankastjóm- inni, með Tryggva Gunnarssyni í broddi fylkingar var vikið frá störfum. Var loft allt lævi bland ið og_ fór Jón ekki varhluta af því. Átti hann síðar í löngum og ströngum útistöðum við stjórn bankans er ollu honum miklu hugarangri og sálartjóni. Sagði hann mér oft frá þessum þætti ævi sinnar og hversu mikill styrk ur það hafi verið sér að hafa átt svo traustan og góðan lífsföru- naut og frú Önnu. Þegar hann var að því kominn að bugast, brotnuðu allir brotsjóir iáfsins ávallt á heimili hans, þar sem hann átti jafnan öruggt athvarf á hverju sem gekk. Hann hafði aldrei mörg orð um þessi mál, enda voru þau honum sár og við kvæm en það var auðfundið, að hann kunni vel að meta þá miklu stoð, sem kona hans hafði verið honum í stormum lífsins. Þeim hjónum varð ekki barna auðið en í Spönsku veikinni 1918 tóku þau tvö fósturböm, pilt og stúlku, sem þau síðan ólu upp. Pilturinn hét Ragnar og er hann nú búsettur í Grimsby í Eng- landi, kvæntur enskri konu og stundar þar sjómennsku, hinn vaskasti maður. Stúlkan hét Guðný og er gift Kriatni Vil- hjálmssyni framkvæmdastjóra Templarahallarinnar í Reykja* vík. Margt annað fólk dvaldi á heimili þeirra hjóna um lengri eða skemmri táma, sem var á einn eða annan veg hjálp- arþurfi. Reyndust þau öllum þeim, sem þannig leiituðu á náðir þeirra af óvenjulegum dreng- skap og góðvild. Spöruðu þau hvorki fé né fjrrirhöfn þegar svo bar undir, og sendu jafnvelunga stúlku alla leið til Kaupmanna- hafnar á sinn kostnað. Var hún haldin þrálátum sjúkdómi, en fékk fyrir þetta drengskapar- bragð þeirra hjóna, fulla bót meina sinna. Um allt slíkt voru þau hjpn samhent, en víst er að ekki latti frú Anna mann sinn þegar ein- hver þurfti hjálpar með eða styrkja þurfti gott málefni. Það átti fyrir mér að liggja, að kynnast þeim hjónum frú Önnu og Jóni Pálssyni mjög ná- ið og eiga við þau samskipti um margra ára skeið. Ég man það eins og það hafi gerzt í gær þeg ar ég kom til þeirra í fyrsta skipti. Það var sumarið 1935. Mér var þá nokkur vandi á hönd um og hafði leitað áisjár hjájóni Pálssyni, eins og raunar svo margir á undan mér. Frú Anna kom til dyra, smávaxin og fín- gerð og tók mér af slíkri alúð að mér hvarf öll feiimini og beyg- ur. Þegar ég hafði borið upp er- indið, sagði frú Anna aðeins: „Þú hlýtur að geta komið þessu í kring, Jón minn“. Og það gerði hann líka af þeirri einlægni og krafti sem honum var laginn. Þar komst engin hálfvelgja að. Var ekki skilið við, fyrr en ég var leystur úr öllum vanda. Síð- an kom ég oft til þeirra, jafn- vel daglega, mér til mikillar gleði og uppbyggingar. Mann sinn missti frú Anna í janúarmánuði 1946. Bjó hún síðan lengst af í ekkjudómi á heimili fósturdóttur sinnar, oft- ast við góða heilsu og fulla sál- arkrafta. Fylgdist hún vel með öllu og yfir henni hvíldi ávailt sama sálarró og styrkur, sem einkenndi hana alla ævi. Síðustu árin lá hún rúmföst í Landakotsspítala og naut þar hinnar beztu umhyggju, bæði lækna og hjúkrunarliðs. Lá hún þar unz yfir lauk. Þessi kveðjuorð skulu nú ekki höfð lengri, enda var frú Önnu lítið gefið um, að mikið orð væri gert af ævi hennar og starfi. Til þess var hún of hlédræg og hógvær. Henni fannet sjálfri lítið til um það, sem hún hafði látið gott af sér leiða á lífsleið inni, talið það ekki annað en það, sem hver sannkristinn mað ur ætti að kappkosta. Víst er það rétt, en misjafn- He-ga ávaxta mermimir pund sín. Fósturbömum hennar og öðr- um ættingjum votta ég innileg- ustu samúð. Megi minningin um góða og hugljúfa konu verða þeim leiðarljós um ókomin ár. Að lokum þakka ég frú Önnu fyrir samfylgdina og allt, sem hún hefur verið mér. Hún mun ávallt búa í huga mínum, sem ímynd alls hins bezta og göf- ugasta, sem býr með góðri konu. Hvíl í friði. Haraldur Hannesson. HINN 14. þ.m. lézt í Landa* kotsspítala frú Anna Sigríður Adolfsdóttir, 97 ára að aldri, ekkja Jóns Pálssonar aðalfé- hirðis Landsbankans og organ- leikara. Anna hafði um árabil átt við vanheilsu að stríða og mæddi hana hár aldur og þreyta að afloknu fögru og far- sælu ævistarfi. Engum verður hvetft við, þegar svo aldnir vinir kveðja. Þeir eru hvíldar þurfi og ást- vina sinnar kynslóðar eftir langan aðskilnað. En hvort sem þáttaskilin ber að höndum fyrr Ólafur Ragnar Grímsson. Ásdís Pétursdóttir, Gimnar Pétursson, Guðrún Pétursdóttir. Faðir okkar t ÞORSTEINN SCHEVING THORSTEINSSON fyrrverandi lyfsali. lézt 23. apríl. Unnur Scheving Thorsteinsson, Sverrir Scheving Thorsteinsson, Bent Scheving Thorsteinsson. Móðir mín, amma okkar og langamma JÓHANNA M. GiSLADÓTTIR Bræðraborgarstíg 15. lézt að Hrafnistu að morgni föstudagsins 23. þ.m. Jarðar- förin ákveðin síðar. F.h. aðstandenda, Sigmundur Kornelíusson. t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við fráfall og jarðarför kristjAns l. gestssonar framkvæmdastjóra. Auðbjörg Tómasdóttir, Hólmfríður Kristjánsdóttir, Edda Kristjánsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Egill Símonarson, Tómas Kristjánsson, Anna F. Þórðardóttir. Innilegar þakkir fyrir a og jarðarför t uðsýnda vináttu og samúð við Tráfall HÓLMFRfÐAR ÞORGILSDÓTTUR frá Kambi. Steinþór Asgeirsson, Þorgerður Þórarinsdóttir, Baldur Ásgeirsson, Þóra Helgadóttir, Hjörtur Jónsson, Ásta Erlendsdóttir, Runólfur Jónsson, Halla Kristjánsdóttir, Páll Jónsson, Sigriður Ásmundsdóttir, Ingólfur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.