Morgunblaðið - 29.04.1971, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.04.1971, Blaðsíða 22
! 22 MORGUNBLAÐH), FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1971 Guðmundur I. Guðiónsson skólastjóri Fæddur 14. marz 1904. Dáinn 22. aprU 1971. MEÐ fráfalli Guðmundar I. Guð- jónssonar er langur og merkur kennaraferill á enda runninn. Guðmundur lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Islands vorið 1925. Haustið eftir hóf hann kennslu og var hún aðalstarf hans jafnan síðan, en auk þess vann hann mjög að félagsmálum stéttar sinnar, sinnti fræðilegum ritstörfum og lagði mikla alúð við eigin endurmenntun alla tíð, fór þráfaldlega utan til lengri eða skemmri námsdvalar og sparaði þar til engan kostnað. í þessum fáu linum verður ferill hans þó ekki rakinn, að- eins minnzt með fáum orðum starfa hans í Kennaraskóla Is- lands og þökkuð stjórn hans á Æfinga- og tilraunaskóla Kenn- araskólans. Guðmundur varð stundakenn- ari við Kennaraskólann haustið 1940, jafnframt tók hann að sér æfingakennslu, einkum í reikn- ingi og skrift, en skrift var aðal- kennslugrein hans í Kennara- skólanum. Vald Guðmundar á kennslu var frábært, hafði hann mikil áhrif á skriftarkennsluna í landinu, enda kenndi hann eigi aðeins í Kennarasikólanum held- ur og i öðrum skólum og nám- skeiðum víðs vegar um landið. Þá var hann og kvaddur til, ef sérfræðilegan úrskurð þurfti að kveða upp í einhverjum þeim vanda, er skrift manna var tengdur. Guðmundur var ráðinn fastur kennari við Kennaraskólann 1947. Haustið 1962 tók hann að sér að skipuleggja alla bóklega æfingakennslu í Kennaraskólan- um og hafa umsjón með fram- kvæmd hennar. Það er ekkert launungarmál, að frá og með sama tíma hafði hann á hendi stjórn Æfingaskólans, enda þótt hann væri ekki ráðinn skóla- stjóri hans fyrr en 19. nóv. 1969, en þá Iét harin af yfirstjórn æfingakennslunnar. Arið sem Guðmundur tók við stjóm á æfingakennslunni var nemendaf jöldi í Kennaraskólan- um 216, haustið sem hann lét af henni voru þeir 954. Tölur þess- ar tala sínu máli. Þeir sem nákomnastir hafa verið Kennaraskólanum undan- farinn áratug og gerst máttu -Minning kenna erfiðleikanna en einnig sjá fyrir batnandi hag skólans og bætta stöðu til þess að rækja kennaramenntunina svo sem þeir töldu skylt og rétt, munu ekki hafa dulizt þess, að þeim yrði ekki öllum auðið að halda fullu gönguþreki til þess fyrirheitna lands. Einhverjir hlutu að hníga í valinn á leiðinni. Vandinn og erfiðleikarnir voru af mörgu tagi: Nýjar kröfur í kjölfar nýrrar löggjafar, hóflaus þensla innan stofnunarinnar, allsleysi Æfingaskólans í húsum og munum, en dráttur á gerð mannvirkja, svo að missiri leið af missiri við óvissu og von- brigði. Allt mæddi þetta á breiðu baki Guðmundar. Fyrst raðaði hann kennaranemum á æfinga- kennslu í skólum borgarinnar og nágrennis hennar, og brátt skiptu skólar þeir tugum, er til varð að leita og dreifðust á alla landsfjórðunga. Þetta vanda- sama og mikla verk leysti Guð- mundur af höndum með þeirri festu, nákvæmni, atorku og fyr- irhyggju, sem honinn var lagin; æðrulaus og einbeittur á hverju sem gekk. Guðmundur var í byggingar- nefndum beggja skólanna Kenn- araskólans og Æfingaskólans. Hann átti góðan hlut að því og honum var það hamingjuefni, að senn er fullgert starfhæft húsnæði yfir Æfingaskólann og smíði nýrra mannvirkja, m. a. i þágu heilsuræktar og íþrótta, að hefjast. Honum var það metn- aðarmál, að skilja svo við skól- ann, að ytri búnaður hamlaði ekki innra starfi hans. Það mark var svo skammt undan, að hann mátti vel við una, en ekki er sennilegt, að íslenzk skólamál þróist með þeim hætti, að öðr- um manni verði nokkru sinni falin viðlíka verkefni og Guð- mundi. Guðmundur var fáum mönn- um líkur. Greindin var skörp, minnið óvenju trútt, skapið rikt, en tamið og tjáð með köldu fá- læti, ef reynt var til þrautar, geðið djúpt og hlýtt i næmleik, nærgætni og háttvísi. Hann var fágætlega glöggur mannþekkjari, dómar hans kveðnir upp án hvatvísi, en einnig án fyrirvara. Hann gerði strangar kröfur til manna um heilindi, skrumleysi og skyldu- rækni. Ekki fór hann í mann- greinarálit, en næmur var hann á þá verðleika, er af báru. I daglegum verkkröfum ætlaðist hann til þeirrar sveitamanns- dyggðar og búmannsnauðsynjar, að menn væru sinnugir, að þeir hefðu vakandi auga með því, hvar þeir mættu verða að gagni eða til góðs og stæðu við það í verki án hvatningar frá öðru en eigin sinnu. Því var honum ekki geðfellt, ef menn skutu sér á bak við hópinn eða vikust undan persónulegri ábyrgð með öðr- um hætti. Svo sem aðrir góðir mann- þekkjarar var hann næmur á broslegar hliðar mannlifsins. Gaman hans var ákaft, hlýtt og umberandi. Festa og skyldurækni voru ein skýrustu auðkennin í skap- gerð hans, en nákvæmni, snyrti- mennska og reglusemi á fram- kvæmd verka hans. 1 marghátt- aðri samvinnu í þrjá áratugi vissi ég ekki dæmi þess, að hann gengist svo undir verkefni, að hann skilaði því ekki jafn vel og um var samið, nema betur væri að unnið. Hvert orð hans stóð eins og stafur á bók. Til þess bar margt, skörp greindin, trútt minnið, víllaust skap, án vorkunnsemi við sjálfan sig, verkhyggni og verklag, en einn- ig var hann lángefinn í vali á samverkamönnum. Hann var listfengur, og tóku verk hans brag af því, enda eftirsóttur skrifari, þegar vel þurfti til að vanda. Hann var og ágætlega íþróttum búinn og mörg við- brögð hans auðkenndust til hinztu stundar af þeim frjáls- mannlega vaskleik, er drengi- legan íþróttamann prýðir. Guðmundur var enginn tæpi- t Eiginmaður min og faðir okkar, Guðmundur Sumarliðason, Vallargerði 12, Kópavogi, andaðist í Landakotsspitala að morgni 27. apríl. Jakobína Oddsdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, Guðrún Guðniundsdóttir. t Móðir okkar, Guðný Jóhannesdóttir, Bjargi, Vík í Mýrdal, verður jarðsungin frá Vikur- kirkju föstudaginn 30. apríl kl. 2. Sigurður Gunnarsson, Lára Gunnarsdóttir, Jónas Gunnarsson. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, Sigurlaugar Þórðardóttur, Sólbakka, Höfnum. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir mín, amma okkar og langamma, Jóhanna M. Gísladóttir, Bræðraborgarstíg 15, er lézt I Hrafnistu að morgni 23. þ. m., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudag- inn 30. þ.m. kl. 2 e.h. Þeim, sem vildu minnast henn ar er vinsamlegast bent á Slysavamafélag íslands. Fyrir hönd vandamanna, Sigmundur Kornelíusson. t Hjartans þakkir viljum við færa öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og jarðarför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Jóhanns Magnússonar. Salóme Salómonsdóttir, Magnús Jóhannsson, Margrét Jónasdóttir, barnabörn og bama- barnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu samúð og vinarhug við and- lát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður, tengda- föður og afa, Jóns Ólafssonar, Hringbraut 11L Sérstakar þakkir til félaga úr Karlakór Reykjavikur og organista Háteigssóknar. Aldis Ósk Sveinsdóttir, Hringbraut 111, böm, tengdabörn og barnabörn. tungumaður. Hann kaus skýrar línur í hverri grein, hreinskipt- inn, vinfastur og trúr. Atorku hans og ósérplægni mun Kenn- aráSítóli Islands seint fá full- þakkað. Hann var örlátur i verkum sinum. 1 þessum línum hefur fátt verið sagt berum orðum um lífsviðhorf hans, en ekki kaus hann fremur sálufélag við aðra menn en postulann Pál. Kveð ég Guðmund með orðum hans: Sá sem sáir sparlega, mun og sparlega uppskera, og sá sem sáir með blessunum, mun og með blessunum uppskera. Sér- hver gefi eins og hann hefur ásett sér í hjarta sínu, ekki með ólund eða með nauðung, því að Guð elskar glaðan gjafara. Ástvinum hans bið ég friðar í minningunni um góðan dreng og hlýjan heimilisföður. Broddi Jóhannesson. í DAG er kvaddur Guðimundur l. Guðjónsson skriftankentnari, skólastjóri Æfingaskóla Kenn- araskóla fslands, einn úr hópi beztu og reyndustu skólamanna hérlendra. Hanin var fæddur að Amkötlu- dal í Steingrímisfirði, Stranda- sýslu, 14. marz 1904, sonur Guð- jónis bónda Guðmundssonar og Helgu Jóhannisdóttur konu hans. Hamn lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla íslanids 1925, var kennari í Dölum 1925—26 og við Miðbæjarskólann í Reykjavík 1928—47, jafnframt því sem hann var við stundakennislu í öðrum ákólum, meðal annars við Kennaraskólann frá 1940, en þar varð hann fastur æfinga- og skriftarkenmari 1947. Suma bekki sina við Miðbæjarskólarun bjó hann undir inntökupróf í menntaskóla með betri árangri en almennt gerðist. Hugleikn- astar kennslugreinar munu hon- um hafa verið reikningur og skrift. Hann sótti mörg kennara- námskeið á Norðurlöndum, einkum í Svíþjóð, hin fyrstu þegar að loknu kennaraprófi, og var þar meðal annars orlofsár sitt 1956—57. Honum var ekki nóg að skrifa sjálfur betur en aðrir menn, heldur vildi hann leita sífellt beztu aðferða til að kenna nem- endum að beita penna rétt, og mun hafa orðið á þennan hátt lærðasti hérlendur sérfræðingur í nútíma skrift. Mörg ár skrifaði hann stúdentsprófskírteini fyrir Menintaskólann 1 Reykjavík, og ég held honum hafi þótt vænt um þá vinnu, því hann vissi að mörgum skírteinisþegum mundi þykja varið í fallegan frágang á þeim. — Hann samdi bækur og ritgerðir um skriftarkennslu, m. a. forskriftarbækur, var í rit- nefnd Kennaratals á íslandi, bygginganefnd Kentnaraskólanis, sat í fyrstu stjórn Stéttarfélags barnakennara í Reykjavík og um skeið í stjóm Sambands ísl. bamakennara. Annars skal þessi þáttur í starfsævi hanis ekki rakinn hér; til þess munu aðrir færari mér verða. Guðmundur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Jenný Lár- urdóttir úr Barðastrandarsýslu. Þau skildu samvistir. Síðari kona Guðmundar var Sigurrós ólafsdóttir frá Fáskrúðsfirði. t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför, Rúnars Hafdal Halldórssonar. Bára Þórðardóttir, Halldór Hjartarson, Þór Hafdal Ágústsson, Kolbrún Kristófersdóttir, Lára Hjördís Halldórsdóttir, Halldór Hafdal Halldórsson, Linda Björk Halldórsdóttir, Guðfinna Stefánsdóttir, Lára Halldórsdóttir, Hjörtur Ólafsson. Með fyrri konu sinni eignaðist Guðmundur tvo sonu, Svavar keamara, kvæntan Rósu Guð- mundsdóttur, þau eiga eina dótt- ur; og Helga bankastarfsmanni, kvæntan Hrafnihildi Thorodd- sen, og eiga þau fimm böm. Þetta mætti kalla ytra byrðið á ævi Guðmundar, og hefði hanin sótzt eftir vegtyllum, væri sú upptalning lengri. Hún segir þó ekki mikið um manninn, sjálfan, annað en honum var treyst til verka, enda hefði hon- um líklega þótt fátt verra en ef einhver hefði talið sig finma svik hjá honum. Og þannig voru ein- mitt viðhorf hans öll: vand- vinkni, traustlei'ki, trúmennska og tryggð. Það var ekki ofmælt í upp- hafi þessara kveðjuorða að Guð- mundur hefði verið einn af beztu skólamönmum lamdsins, í þeim skilningi að beztu skóla- mennirnir eru þeir sem alltaf eru opniir fyrir hjörtum annarra, tilbúnir að skilja viðhorf þeirra og hafa vilja og kunináttu til að láta aðra njóta reynslu simmar og þekkingar. Imn í skólana koma alls konar nemendur, en allt eru það einstaklingar, og „aðgát skal höfð í nærveru sálar“. Ekki sízt á þetta við þá sem eru að hefja fyrstu skólagöngu æviinm- ar, og veltur því á miíklu hversu til tekst um undirbúning að ævi- starfi þeirra sem leggja fyrir sig barnakenmslu. Góður skóla- maður kanm sem sé það mál sem tjáir ekki með orðum einum, heldur einmig brosi á vör, glettni á hvarrni éða tári í auga. Þessa kunmáttu átti Guðmumdur í rík- um mæli, var fljótur að sjá hvar hjálpar var þörf og þá boðinn og búinm sjálfur án þess að hirða um sina hvíld Munu fleiri hafa haft reynslu af því en ég. Guðmundur var að eðlisfari tilfimmimganæmur og viðkvæm- ur, en dulur í skapi og fáskipt- inm við ókummuga. í þröngum hópi var hanm kíminn og kátur, léttur og fyndinin, lífgaði allt í fcringum sig, en hafði sig lítt í frammi í fjölmenni. Það mun hafa verið 1951 að þau Guðmundur og Sigurrós fluttust ásamt Helga syni Guð- mumdar á Mánagötu 23 og gerð- ust sambýlisfólk fjölskyldu minmar. Það sambýli stóð til 1959, en þá keyptu þau íbúð á Nesvegi 7 og hafa búið þar síð- an. Á það sambýli bar aldrei Skugga, enda sjaldfutndin hjá vandalausum hjartanlegri hlýja en hjá þeim Guðmundi og Sig- urrósu. Það er örðugt að kveðja vin sem er farimm fyrir fullt og allt, og ekki sízt þegar kveðjustund- ina ber svo bráðan að sem í þetta sinn. Hér fór sem oftar, kunnátta manna brást, lækna- vísindunum tókst ekki að finna dulda vöðvaskemmd í hjarta, þótt beitt væri allri tiltækilegri tækni. Og skyldurækná, seigla og harfca mannsins var þá meiri en svo að hann léti „ein- hverm“ verfc eða „limku“ á sig fá, úr því að ekfcert fannst at- hugavert við starfscmi mikil- vægustu líffæra. En til lasleika fann Guðmundur meira og minma í allan vetur. Þetta ágerð- ist síðan um páskana. Þá annað- ist hanm konu sína af venjulegri umhyggju í veikindum henmar, t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigrúnar Guðmundsdóttur, Nýbýlavegl 16. - Davíð Björnsson, Ásta Davíðsdóttir, Sveinbjörg Davíðsdóttir, Elín Davíðsdóttir, Kristján Daviðsson, Björn Davíðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.