Morgunblaðið - 07.05.1971, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1971
>
>
Fa
jl BÍLA Í.EWA X
lALURf
■25555
1 ^14444
\mim
BILALEIGA
HVHRFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW 9manna-L3ndrover 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastrætí 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
^ 21190 21188
BÍLASALAN
HLEMMTORGI
Sími 25450
biláleigan
AKBRAUT
car ren tal serv ice
S* 8-23-47
Wí scndum
BÍIILlllBWill-W
Sjgtúni 3.
Stmi 85840-41
)AÍæ
BÚNAÐARBANKINN
\
er baiikl fólkwin«»
HöflÐUR ÓLAFSSON
hæstaréttarlögmaður
skjataþýðandi — ensku
Aiwturstrætí 14
aknar 10332 og 36473
0 Hver er Angela Davis?
Oft er um það rætt, hve
áhrif fjölmiðlanna séu mikil.
Að minnsta kosti eru margir,
sem vilja kenna þeim margt
af þvi, sem miður fer í þjóð-
félaginu. — En Velvakanda
flnnst, að þeir hljóti að verða
fyrir þó nokkru áfalli, þegar
einn bréfritara hans spyr: Hver
er Angela Davis? — Mikilli
prentsvertu hefur verið eytt í
fréttir af þessari ógæfusömu,
bandarísku svertingjastúlku.
Auk þess hefur verið skýrt frá
málarekstrinum gegn henni í
greinum, töluðu máli í útvarp-
inu og sérstökum sjónvarps-
þætti — en samt virðast marg-
ir, samkvæmt fyrrgreindu
bréfi, vera ófróðir um, hver
hún er og hvaða sakir eru á
hana bomar.
„Er hún flugvélaræningi?"
spyr bréfritari. „Er hún hippa-
foringi, sem tók þátt í fjölda-
morðum á sl. ári? Er hún eitur-
lyfjasali? Er hún eiturlyfja-
neytandi? Skaut hún lögreglu-
þjón í óeirðum í fyrravetur?
Skaut hún einnig dómara á sl.
hausti? Hefur hún um mörg ár
verið foringi Svartra hlébarða?
Stundar hún einhver störf, og
hver þá?“
Og bréfritari heldur áfram:
„Ég spyr af þvi að um daginn
kom drengur inn á vinnustað,
sem ég vinn á, með undir-
skriftalista um að fella niður
sakir á hendur henni. Lítið varð
honum ágengt, en upp úr því
hófust deilur um, hvað hún
hefði til saka unnið. Komu þar
fram allar þær tilgátur, sem ég
hefi talið upp, en menn urðu
ekki á eitt sáttir og virðist eig-
inlega enginn vita með vissu,
hvorki um störf hennar né það,
sem hún er ákærð fyrir.“
Ferill Angelu Davis verður
ekki rakinn hér. Mál hennar á
örugglega eftir að íylla marga
bláðadálka enn. En í stuttu
máli er hún ákærð fyrir að vera
meðsek um morð á dómara og
TIL ALLRA ÁTTA t
NEW YORK I Alladaga REYKJAVÍK OSLÓ Mánudaga Miðvikudaga
/N i ^L^igardaga
GLASGOW I \ GAUTABORG y \ Mánudaga / \ Miðvikudaga /
Fimmtudaga luxembourg'S'\ Alla daga d KAUPMANNAHÖFN Mánudaga Miðvikudaga 1 Laugardaga
L0FTLEIDIR
fleiri gíslum, sem félagar henn-
ar hugðust taka —• en mistókst
og myrtu. Hún tók ekki sjálf
beinan þátt í þeim verkmaði, en
vopnin, sem notuð voru, hafði
hún keypt.
0 Er hún hafin yfir grun?
Menn gætu látið sér detta
í hug, að hér væri um banda-
rískt innanríkismál að ræða —
eins og önnur morðmál þar í
landi. — En málið er ekki svo
einfalt. Angela er flokksbund-
inn kommúnisti, og þar af leið-
andi hlýtur hún að vera alsak-
laus að mati skoðanabræðra
hennar vitt um heim! Málsókn
gegn henni fyrir hugsanlega
hlutdeild að illvirkjum er því
hrein og bein ofsókn! — Dreng-
inn, sem um getur í bréfinu,
hafa skoðanabræður hennar
hér sent út af örkinni.
Ekki getur taíizt óeðlilegt að
grunur falli á Angelu Davis,
þar sem hún keypti morðvopn-
in. Að sjálfsögðu sannar það
eitt þó ekki sekt hennar, en
hvernig menn hér uppi á Is-
'landi geta sýknað hana á þessu
stigi málsins er vandséð.
0 María Markan
og listamannalaunin
Giiðmunda Jónsdóttir frá
Hofi skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég hef ekki skrifað nema
einu sinni í dálkinn þinn, og
það hefur nú enginn tekið eftir
því af þvi að það var trúarlegs
eðlis. f>að eru færri og færri,
sem trúa á guð og það sem
gott er. Það virðist vera úrelt.
Jæja, þá það. Þetta er nú allt
frjálst hvað menn trúa.
En það, sem ég ætlaði að
segja núna er svo ótrúlegt og
óviðeigandi, að ég skil ekki
annað en það sé einsdæmi hjá
þjóðum. Það eru veitt lista-
mannalaun árlega og nærri að
segja i ótrúlegum listum, jafn-
vel í því, sem er engin list að
margra dómi. Hún er gleymd
frægðin, sem María Markan
gaf landi og þjóð hér fyrrum.
Enginn hefur komizt lengra af
íslenzkum söngvurum, því hún
hefur komið í frægustu söng-
höll heims og sungið þar við
mikið lqf frægra manna á því
sviði. Þess vegna hefði hún
fyrst manna átt að fá ærleg
listamannalaun á hverju ári.
Hún ein veit, hvað hún lagði
mikið á sig, en allir ráðamenn
vita þó nokkuð um hana og
hvaða heiður hún hefur gert
Islandi. Ég vona bara að lista-
mannaráð sjái sóma sinn og
láti hana hafa hæstu lista-
mannalaun á komandi ári. Ég
er hvorki skyld né tengd henni
þó að ég skrifi þetta, en ég hef
margoft hlustað á listamanna-
úthlutunina og alltaf beðið eft-
ir nafninu hennar.“
Klekken Turisthotell
Hönefoss, Noregi, óskar að ráða stúlkur
í heilsársvinnu.
Laun sanikvæmt launalögum.
Ferð aðra leiðina greidd eftir eins árs starf.
Þurfa að geta hafið starfið fljótlega.
Skriflegar umsóknir sendist sem allra fyrst
til hótelsins.
KLEKKEN TURISTHOTEL,
HÖNEFOSS, NORGE.
• M OnlyínBeaufy
S«ver Sticky » No Líc(
mgvi hraln
ALLSET er mest selda hárspray á landinu
Dömur! Kaupid adeins þad bezta... 4
Kaupid ALLSET! %
KRISTJÁNSSON h.f. Ingólfsstrœti 12 Simar: 12800 - 14878
%