Morgunblaðið - 11.11.1971, Blaðsíða 30
* 30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1971
VÍKINGUR og Breiðablik léku
til úrslita á Melavelli í fyrra-
kvöld, og báru Víkingar þar sig-
ur úr býtum, skoruðu eina mark
leiksins. Þessi leikur átti upp-
haflega að fara fram um síðustu
belgi, en þá varð að fresta hon-
um vegna þess hve Melavöllur-
ínn var slæmur eftir miklar rign-
ingar. Það vakti strax athygli
manns í fyrrakvöld, að starfs-
menn vallarins höfðu næstum
gert kraftaverk á vellinum, því
hann var orðinn bara nokkuð
þokkalegur. Að vísu ekki laust
við að hann væri svolítið linur,
en þó ekki til muna illa farinn
til að leika knattspyrnu á hon-
um.
Vikingar unnu hlutkestið í
bytrjun leiksins, og Gunnar Gunn
arsson valdi, mörgum til undr-
unar að leika á móti nokkuð
hvössum sunnanvindi sem stóð
lajngsum eftir vellinum.
Og Vikingar hófu leikinn með
stónsókn. Strax á fyrstu sek. leiks
ins komst Eiríkur Þorsteinsson
með góða sendingu frá Guðgeir
Leifssyni inn í vítateig, en Ólaf-
ur Há'konarson koan út á móti og
varði. — Fyrri hálfleikurinn var
ekemmtilegur á að horfa íyrir
áhorfendur sem mættir voru,
liðin léku oft á tíðum all
skemmtilega — einkum Viking-
Diðrik, Víkingsmarkmaður, bjargaði þarna mjög vel með fráslætti góðu skoti frá Breiðabliksmönnum, og var þetta eitt hættu-
legasta tækifærið sem Kópavogsliðið átti í leiknum.
Víkingar bikar-
meistarar 1971
Sigruðu Breiðablik 1-0 í úrslitaleik
Bæði liðin sýndu góð tilþrif í fyrri hálfleik en
leikurinn var þófkenndur í síðari hálfleik
ur, og bæði liðin áttu hættuleg
^íækifæri.
Á 2. min. lék Trausti Hall-
grimsson laglega upp hægri kant
inn, komst upp að endamörkum
og gaí fyrir markið. Gunnar
Þórarinsson náði boltanum og
skaut, en boltinm sleikti þverslá
— að ofamverðu.
8. mín. Þórhallur Jónssyn lék
á þrjá varnarmenn Breiðabliks,
en Ólafur Hákonarson varði skot
hans frá vítateigslínu.
15. mín. Breiðablik fékk auka-
spymu langt úti á velli. Guð-
mundur Þórðarson framkvæmdi
hana, og gaf góða sendingu á
Einar Þórhallsson sem skallaði
rétt framhjá stöng.
21. mín. 1:0. Guðgeir Leifsson
framkvæmdi aukaspyrnu utan af
kanti. Hann gaf góða sendingu
inn á vítateig Breiðabliks. Þar
var Jón Ólafsson miðvörður
liðsins kominn i sóknina, og þeg
ar boltinn kom fyrir markið, reis
hann upp úr þvögunni og skall-
aði glæsilega í markið með
þrumuskalla framhjá Ólafi Há-
konarsyni sem kominn var aðeins
of framarlega. Stórkostlega
fallegt mark hjá Jóni, en mistök
Þessa mynd tók Ijósmyndari Mbl. Kristinn Benediktsson er Ingvar N. Pálsson, varaformaSur
KSf, var að láta hylla Víkingana með ferföldu húrrahrópi. Fyrirliði Víkinga, Gunnar Gunnars-
son er með bikarinn.
Ólafs, markvarðar Breiðabliks
voru dýr í þetta skipti.
Eftir markið sóttu Breiða-
bliksmenn mjög í sig veðrið, en
tókst aldrei utan einu sinni að
skapa sér hættulegt %Kkifæri.
Það var á 35. mín. þegar Gunnar
Þórarinsson komst í gott skot-
færi inni í vítateiigi Vilkings, en
þá sýndi Diðrik Ólafsson snilldar
tilþrif og tókst að verja.
SÍÐARI HÁLFLEIKUR
Hafi fyrri hálfleikurinn gefið
fyrirheit um það að áhorfendur
mættu eiga von á skemmtilegri
viðureign í síðari hálfleiknum,
þá átti allt annað eftir að verða
staðreyndin. Síðari hálfleikurinn
einkenndist af ti 1 gangslau sum
hæðarspyrnum eitthvað út í loft
ið. Víkingar réðu allan síðari
hálfleikinn gangi leiksins á
miðjunni, og þegar þeim gafst
færi á því, þá tóku þeir boltann
og spyrntu honum eins langt aft-
ur fyrir mark Breiðabliks og
kraftar ieyfðu. Þetta gerði leik-
inn afspyrnuleiðilegan á að
horfa, enda voru þær margar
mínúturnar í siðari hálfleiknum,
sem boltinn var úr leik. Breiða-
bliksmenn reyndu framan af allt
hvað þeir gátu að komast upp að
marki Víkings, en komust ekkert
áleiðis gegn hinni sterku vörn,
Víkinganna, sem aðeins hefur
fengið á sig örfá mörk í allt sum
Þarna hefur Diðrik orðið aðeins á undan Guðmundi Þórðarsyni
og handsamar boltann.