Morgunblaðið - 20.12.1972, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.12.1972, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMTE I 17 Englar vorsins vinna B.jörn J. Blöndal: Vötnin strönsr. (ítg’efandi Setberg. Reykjayik 1972. Það er margt og margvíslegt, sem prýðir Borgarfjarðarhérað, en einhver hin helzta höfuð- prýði þess eru árnar. Sá sem velur syðri leiðina vestur eða norður í land, um Bæjarsveit, Reykholtsdal og Stafholtstung- ur yfir í Norðurárdal, fer yfir sex allvatnsmiklar bergvatnsár, sem allar falla, auk fjölda lækja og linda, í hina miklu móðu, Hvitá, sem skiptir meira litum en flestar aðrar þær elfur á landi hér, sem taldar eru jökul- ár, og fellur ýmist í stríð um strengjum eða myndar hylji, unz hún verður að breiðu og lygnu fljóti. Og svo sem þjóð- kunnugt er, eru elfur Borgar- fjaröar ekki aðeins fagrar, held ur eru þær flestar mjög fiski- sælar, svo að ég hygg, að á engu jafnvíðáttulitlu svæði og Borg- arfirði, muni vera veiddir á stöng fleiri gljáfagrir fiskar. Bleikja og sjóbirtingur renna sér þar um strengi og hylji, og lax af ýmsum stærðum stiklar þar hávaða og fossa. Og eins og nú er komið veiðimálum, eru þau orðin ýkjamörg, heimilin í Borgarfirði, er hafa árlegar tekj ur, sem um munar, af þeim fögru fiskum, sem renna á rið til hrygn ingar i ám héraðsins. Þó að ég geti auðvitað ekki sagt það með óyggjandi vissu, þykir mér næsta ólíklegt, að nokkur maður hér á landi hafi hugað í meira en hálfa öld af slíkri samstillingu heila og hjarta að íslenzkum vatnafisk- um og Björn J. Blöndal, rithöf- undur og garðyrkjubóndi í Laug arholti í Bæjarsveit, enda er hann löngu þjóðkunnur af bók- um, sem segja má að flestar ger- ist fyrst og fremst á bökkum Hvitár og í hyljum hennar, há- vöðum og strengjum. Og nú hef- er hann ritað bók um þessa frjóu og fögru fiskafóstru og tvær þeirra bergvatns- elfa, sem í hana falla. Er önn- ur þeirra Grímsá, er mér þykir eitt hið fegursta vatnsfall, sem ég hef séð, enda kallaði ég hana eitt sinn lifandi silfurdreg- il Lundarreykjadals og Bæjar- sveitar. Hin er Flókadalsá, sem litt hefur verið rómuð, en er gerð þau skil í bókinni, að það mun auka henni virðingu og að dráttarafl. Bókin Vötnin ströng er ekki ýkjastór og lætur ekki sérlega mikið yfir sér að ytra útliti, þótt hún sé mjög sæmilega bú- in, en vissulega er hún næsta fróðleg, og kennir i henni margra athyglisverðra og eftir- minnilegra grasa. Fyrsti kaflinn fjallar um Hvítá, og er þar lýst upptökum hennar, .brúm á henni og vöðum, svo sem þetta var allt til til- tölulega skamms tíma, og eins þeim breytingum, sem þar hafa á orðið. Ennfremur er nákvæm- lega sagt frá veiðistöðum og að nokkru hvernig veiðum var hag að í þessari stórelfu, meðan all- víða voru þar enn stundaðar netaveiðar. Þá er og skýrt frá fyrstu veiðum útlendinga, sem fengu til þeirra konungsleyfi og jusu full skip sin úr fljótinu, meðan landmenn höfðu enn litl- ar nytjar af gnægð þess. Einnig er sagt frá bátaferðum um Hvítá og markverðum tilraunum til að gera hana skipgenga sem lengst upp eftir héraðinu. Er í þess- um kafla viðað að fróðleik úr gömium ritum, en mest hefur höfundur frá mönnum, sem hann hefur rætt við fyrr eða síðar á ævinni, auk þess, sem hann hef- ur athugað sjálfur. Inn í aðal- efnið fléttar hann sögur og sagn ir af ýmsu því, sem þarna hefur gerzt, og kryddar það mjög hina skýru greinargerð. Ein er sú saga, sem mér þykir einna mest til koma, þó að hún muni þyk.ja næsta furðuleg. Get ég ekki stillt mig um að birta hana hér orðrétta: „Um 1890 skeði það í siðustu viku maímánaðar að vinnukona í Stafholtsey fór út einhverra ! erinda. Var þá miðnætti. Sá hún „Flytja þjóðinni auð, sækja barninu brauð Ásgeir Jakobsson: líin borð í Sigurði og nokkrir Grimsbæjarþættir. Teikningar og hönnim eftir Gísla Sigurðsson. Ægisútgáfan 1972. Ásgeir Jakobsson er að ætt, uppeldi og uppfræðslu sjómað- ur, og það, sem hann hefur skrif að, fjallar flestallt um sjómenn, sjómennsku og sjávarútveg. Ás- geir er maður rösklegur í sjón og máli og talar ógjarnan tæpi- tungu, og mun ekki fjarri sanni, að sjómennskan hafi mótað all- mjög rithátt hans og málfar. Hvort sem hann festir frásögn eða skoðanir á bók eða blað, kemur hann til dyranna djarf- mannlega og hressilega og eins og hann er klæddur, en dútlar litt við að snurfusa það, sem hann ritar. Þannig er það og sums staðar i þessari bók, eink- um fyrri hlutanum. Fyrri hluti bókarinnar er sam nefndur henni. Þar fjallar fyrsti kaflinn um togarann Sigurð, þetta stærsta og glæsilegasta veiðiskip íslenzka veiðiflotans. Fyrstu tvö ár hans var hann að- gerðalítUil, og þótti hinum al- kunna eiganda hans, Einari Sig- urðssyni, ósýnt um, hvort unnt yrði að halda honum úti til fram búðar, en vildi þó ekki gefa á bátinn þá von sína, að hið mikta skip mætti koma honum og þjóðinni að haldi. Svo réð hann þá 1968 skipstjóra á drek- ann mikla Arinbjöm Sigurðsson sem sýnt heíur rækilega, að skipið, sem heitir eftir föður Einars, sævíkingnum og skör- unginum, sem Örn Amarson orti um þjóðfrægt kvæði, þurfti síð ur en svo að kafna undir nafni. Togarinn Sigurður hefur reynzt afbrigða sjóborg, sem flest veð- ur má bjóða, og auk þess hefur hann undir stjórn Arinbjarnar reynzt bæði afla- og söluhæst- ur ísienzkra togara. 1 næsta kafla ræðir höfundur um það, hve sér finnist Island orðið litið, þar eð hann hitti hvarvetna á veiðiflotanum — meðal annars á Sigurði — menn sem ýmist eru fæddir Vestfirð- ingar eða af vestfirzku foreldri. Þetta virðist mér honum ekki hafa þurft að koma á óvart. Vest firðingar hafa allt frá land- námstíð sótt sjó af kappi, og ungir nienn þaðan fóru þegar á þilskipaöldinni suður á vertíð og urðu margir frægir að fiskni, og þá er togaraöldin hófst sótt- ust þeir eftir að komast á slík skip. Loks er þess að mimnast, að á síðustu hálfri öld hafa sumar byggðir vestra ýmist alveg eða að miklu leyti farið í auðn, sakir aðgerða þeirra sjó- ræningja, sem eiga sér þann eina sögulega rétt til veiða á ís- lenzku landgrunni, að þeir hafa öldum saman fiirrt islenzku þjóð ina lífsbjörg og jafnvel farið með ofbeldi og manndrápum! í þessum kafla segir Ásgeir meðal annprs: „Við tölum gjaman um „ís- lenzka þjóðfélagið", og okkur þykir fínt að eiga vandamál, sem líkust vandamálum raun- verulegra þjóðfélaga, og við er- um gjarnan með alls kyns mannalæti og „system" . . .“ Satt að segja finnst mér Ás- geir of greindur til þess að láta svona frá sér fara. Sannarlega er hér þjóðfélag, og vissulega á það svipuð vandamál og þau, sem eru margfalt stærri, hvað svo sem Ásgeir á við með alls kyns mannalátum og „systemi“. Asgeir Jakobsson. B.jörn J. Blöndal. f þá hóp af hestum koma eftir Suð ! ureyju, vestanvert við Djúpa- | poll. Höfðu þeir sýnilega farið yfir farveginn á Bakkavaði. Hún sá, að allir hestarnir voru hvitir og þótti einkennilegt. ! Horfði á þetta um stund. Dreng- ur vakti yfir túninu. Fann hún hann og bað hann vekja Þórð Stefánsson, er þá var vinnumað- ur i Stafholtsey. Þórður kom að vörmu spori og sá þegar hest- ana. Þá bar hratt yfir, og voru þeir komnir á móti Hádeg- ispolli, er Þórður kom út. Fremst ur rann fannhvítur hestur með hringaðan makka og fór á kost- um. Virtist hann bera af hinum hestunum, sem allir voru hvítir. Engu líkara var en að þeir hlýddu taumhaldi, en enga menn sáu þau á þeim sit.ja. Drengur sá, er vakti yfir vellinum, sig- aði hundi sínum á þá, er þeir nálguðust túnið. Hundurinn hljóp geltandi af stað, en lagði brátt niður skottið og kom skömmustulegur aftur. Síki nokkur samfelld eru fyrir aust- an tún i Stafholtsey. Eru þar leifar af hinum forna farvegi Hvítár. Hestarnir runnu eftir túnjaðrinum og upp á Faxið. Kngan þvt eða hófatök heyrðu þau frá þessum hestum. Og þau sáu þessa hvitu hesta fara fram Faxið, og við Háúbakka sveigðu þeir niður á þingstaðinn forna og hurfu . . .“ Þórður, sem varð beykir I Reykjavik, sagði Bimi fyrstur þessa sögu, en hann spurði síð- an ömmu sína, Elínu Thorodd- Guðmundur G. Hagalín skrifar um BÓKMENNTIR Þriðji kaflinn fjallar um Arin björn skipstjóra, og er hann næsta fróðlegur. Höfundinum tekst að gefa lesandanum all- glögga hugmynd um þennan úrvalsmann í hinni feikna mikil- vægu stétt íslenzkra skipstjórn armanna, skapgerð hans, frá- bæra árvekni, glöggskyggni og fyrirmyndar stjórnsemi. En fróð legastur og raunar stórmerkur er þessi kafli sakir þess, hve rækilega Ásgeir gerir lesandan- um ljósan þann mikla vanda, sem hvílir á skipstjóra við notlrun og samstillingu allra þeirra hárná- kvæmu, svo að ekki sé sagt við- kvæmu siglinga og fiskieitar- tækja, sem nýtízku togari og raunar fleiri stör veiðiskip eru búin. Landkrabbar mættu haida, að þessi mörgu tæki léttu svo mjög starf skipstjóra, að hann þyrfti stórum minna á sig að leggja en stéttarbræður hans fyrir hálfri öld — og enn- fremur, að miklu minni munur sé á afla hinna ýmsu skipstjóra á hliðstæðum skipum en áður hefur verið títt. En Ásgeir fær ir gild rök fyrir þvi gagnstæða. Gernýting tækjanna krefst slíkr ar þekkingar á verkan þeirra, Framhald á bls. 23 sen. „Hún sagði, að Jón Þórð- arson frá Stafholtsey — (hann bjó síðar í Norðtungu) — hefði sagt, að hvítu hestarnir hefðu sézt oftar en einu sinni á bú- skaparárum sínum í Stafholtsey. Og jafnan á sama tíma árs. Þá hafði hún heyrt, að þarna væru Sturlungar að vitja hins forna þingstaðar." . . . Þannig er frá- sögn og skilgreining Björns víða krydduð, en ekki er krydd- ið allt af sama tæi. 1 þættinum fagra og rækilega um Grímsá segir svo: „Og það var vist við Svart- Framhald á bls. 23 ÞORKELL SIGURBJÖRNSSON SKRIFAR UM Sinfóníutónleikar SEINUSTU tónleikar Sinfóniu- hl'jómsveitarinnar voru mikill persónulegur sigur fyrir stjórn- aindann, Pál P. Pálsson. Hann hafði sem sé ekki vantreyst hljómsveitinni til að glíma við eitt vandmeðfarinna glæsiverka samtímaskáldskapar, Hljómsveit arkonsertinn eftir Béla Bartók. Verk þetta var fyrir tæpuim þrem ur áratugum samið fyrir virtúósa hljómsveit Sergeis Kussevitskýs í Boston og nokkuð lengi á eftir þótti það aðeins á færi hinna færustu hljómsveita að gera þvi nokkur sómasamleg skil. Verkið krefst þess ekki aðeins að hljóm sveitarmenn falli vel inn í heild ina, heldur komi fram sem kon serterandi einstaklingar, gripi til fjölbreyttra leikbragða, ósjaldan nýstárlegra. Hljómsveitin reynd ist þessum vanda vaxin, og menn voru innblásnir af góðum sam- starfsvilja og skýrum ábending um stjórnandans. E.t.v. mátti sakna meiri þunga í inngangi verksins eða miðþættinum, ele- gíunni, og glettnisfyilri leik í intermezzunni. Hljómsveitarkonsert Bartóks skipaði öndvegissess á tónleikun um, en auk hans voru tveir kon sertar eftir J. S. Bach, Sembal- konsert i E-dúr, þar sem Helga Ingólfsdóttir lék einleik og Fiðlu konsert í sömu tóntegund, þar sem einleikari var Konstantín Krechler. Óneitanlega var illa búið að hi.nni ágætu listakonu Helgu. Hljóðfærið er of veikróma fyrir stór salarkynni og reynt var að vega á móti því með notk un lélegs hátalarakerfis hússins. Hljómsveitin mátti rétt kitla strengina og samt bar hún ein- leikarann ofurliði. Einleik Helgu hefði annaðhvort átt að flytja inn í stofu eða kaupa raddmeira konserthljóðfæri handa henni í stað þessa feluleiks í Háskóla- bíói. í Fiðlukonsertinum gat öll strengjasveitin hins vegar leik- ið með. Konstantin Krechler lék af öryggi og myndugleik, örlítið öryggisle ysi i byrjun hvarf brátt með hverju nýju bogastroki. Hvað skyldu annars margir geta stigið fram úr öftustu röðum hljómsveitarinnar (eða jafnvel þeim fremstu) og leikið af jafu miklum ágætum og Krechler? Það hlýtur að vera rík hljómsveit sem hefur ráð á að troða einleikur um sínum aftu.r fyrir aftari púlt in ár eftir ár og merkileg sú stofnun, sem ekki þarf á frama- vonum einstakiinganna að halda, og skipar hálfbökuðum lærling um og fullþroskuðum atvinnu- mönnum við sama borð, efnilegu og vaxandi fólki við hlið þeirra, sem löngu eru hættir að gefa góð fyrirheit, hvað þá að etfna þaut

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.