Morgunblaðið - 18.05.1973, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.05.1973, Blaðsíða 15
MORGUNRLAÐiÐ, FÖSTUDAGIJR 18. MAl 1973 CUDOGLER HF SKÚLAGÖTU 26 SÍMI 26866 VIÐ ERUM REYNSLUNNI RÍKARI Sannleikurinn um tvofalt gler GÆÐIN Gott einangrunargler er sjaldan hægt að þekkja frá lélegu gleri fyrr en löngu eftir að kaupin eru gerð. Vandi neytandans er að vita í hverju áhætta hans er fólgin. Cudogler hf. hefur framleitt tvöfalt einangrunargler í meira en áratug. Á þessum tíma hefur Cudogler staðizt dóm reynslunnar. Cudogler hf. hefur framleitt rúmlega 150.000 fermetra af traustu einangrunar- gleri, enda eru flest stórhýsi á íslandi nú glerjuð með Cudogleri. ÁBYRGÐIN Við ábyrgjumst framleiðsluna. Cudogleri fylgir 10 ára ábyrgð. Líkurnar fyrir því, að kaupandinn þurfi nokkurn tíma að notfæra sér ábyrgð á Cudogleri eru langt innan við einn af þúsundi. Ef svo ólíklega vill til að kaupandi þurfi að leita til okkar vegna ábyrgðarskuldbindingar- innar, leysum við vanda hans þegar í stað. VERÐIÐ Þér getið vafalaust keypt ódýrara gler - þegar kaupverðið eitt er skoðað. Það er dýrt að byggja, og húsbyggjendur munar um allt. En - ef ódýrari framleiðandinn hættir starfsemi, fellur ábyrgðin sjálfkrafa niður. Hvað verður þá um kaupandann ? Biöðin flytja öðru hverju fréttir af biturri reynslu þess fólks, sem sér litla hagnaðinn verða að stóru tapi. Reynslu og gæði skyldi ávallt meta til fjár, þegar tvöfalt gler er keypt. TRAUSTUR FRAMLEIÐANDI TRYGGIR YÐUR ÓDÝRT GLER k OG RAUNVERULEGA ÁBYRGÐ TIL 10 ÁRA ICUDO-I 'GLERHE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.