Morgunblaðið - 13.06.1973, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.06.1973, Blaðsíða 28
28 MORGU'NBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JIJNÍ 1973 SAI BAI N Anne Plper: 1 Snemma í hágtrinn 2 Ég veit nú enn í dag ekki, við hverju hann bjóst eða hafði reiknað út, en svona varð það nú samt og hann virtist harð- ánægður. — Þú ert ágæt, sagði hann, — og ég lofa að gefa þér vel að borða i næstu viku, þegar ég er búinn að selja einhverjar teikningar. Herbergið mitt var á þriðju hæð og stigauppgangurinn af- skaplega sóðalegur, með eilifri kattalykt. Jack snuggaði á leið- inni þangað upp. — Þetta er skritinn staður fyr ir fallega stúlku að búa á alein. Hann leit forvitnislega kring um sig, þegar við komum upp. Á dökkrauða gólfteppið, gulu gluggatjöldin og eina hæg- indastólinn. Ég hafði tekið með mér sitt £if hverju úr búi for- eldira minna, en selt afganginn. Hann reyndi fyrst hægindastól- inn, en settist svo á rúmið. — Taktu ofan hattinn, sagði hann. — Það er synd að vera að fela þetta tunglskinsíhár þitt. Ekki eir því að neita, að lista- menn geta komizt fallega að orði. Þetta var í fyrsta sinn sem riokkur maður hafði kallað mig fallega, hvað þá heldur tekið eftir hárinu á mér. Ég gekk inn í þvottahúsið til að athuga, hvað ég ætti matar- kyns. Þarna var eitt brauð, eitt- hvað af osti, og eitt egg, svo að ég harðsauð það og skar það í tvennt. Jack var úti við gluggann að teikna, þegar ég kom aftur. hann hafði teiknað marglitu húsin, sem sáust út um glugg- ann, með krit. — Þetta er fallegt, sagði ég. — Mér lízt vel á þetta. — Þú átt margt eftir að læra, Jenny. Stúlkur eru fallegar, en það eru myndir aldrei — að minnsta kosti ekki mínar mynd ir — þær sem ég kæri mig helzt um. — Hvað komstu með í búðina í dag? Hann fleygði í mig tösk- unni sinni og ég skoðaði í hana — Þetta voru mest stúlkna- myndir í alls konar búningi og stellingum. Mér leizt vel á myndimar — ég á við, að það mátti vel sjá, að þetta átti að vera kvenfólk — og búningarn- ir voru snotrir. — Mér finnst óskiljanlegt, að þeir skyldu ekki vilja þasr, sagði ég. — Það vill þær þá einhver annar — en búðin þín hafði fast an teiknara. Ég teikna nú svona myndir aðeins til þess að hafa upp í húsaleiguna, en annars er ég alvörumálari. Við settumst niður við brauð- ið og ostinn, tebolla og hálft egg. Ég færði borðið, svo að Jack gat setið kyrr á rúminu, og ég sat andspænis honum á eina bakbeina stólnum mínum. — Þú ert skrítinn kvenmað- ur, sagði hann með munninn full an af egginu. — Hvemig það? sagði ég. — Að búa hér, svona ráðsett .ttELLESENSj L BA7TERIES J og skikkanleg mitt í Soho, hrein eins og nýfallin mjöll, er ég viss um, og býður svo bósa eins og mér heim til þin, upp á kvöld- mat. — Hvað ætti að vera því til fyrirstöðu. sagði ég. — Ekki annað en það, að stúlkur eins ög þú gera það ekki venjulega, nema þá þær séu alls ekki eins og þú. Guð minn góður, hvað andlitið á þér er fallegt, jafnvel þó þú sért að tyggja — alveg furðulegt! Hann studdi olnbogunum á borð ig og faststarði á mig, þangað til ég var orðin kafrjóð, af þvi að mér hafði svelgzt á matnum. Hann seildist til og barði i bak- ið á mér, en tautaði eitthvað um leið við sjálfan sig: — Nei, ekki alveg Botticelli. Kannski Memling að nokkru leyti, en þú ert nú bara ekki strákur, en þú ættir að klippa hárið á þér stutt, það er of mikið sleikt aft ur fyrir eyru með þessum hnút. Það ætti að falla beint niður stutt og slétt — kannski eins og á einhverjum strák eftir Bell ini. Láttu það falla niður. — Strax? sagði ég, heit og rjóð, en hann kinkaði kolli, svo að ég tók úr þvi nálamar og það féll niður um mig alla, eins og tíðkaðist í þá daga. — Það er þá loksins eins og vorið, sagði hann lágt. — Hreyfðu þig nú ekki! Og svo tók hann blýant og fór strax að teikina. Það gat nú verið allt í lagi, en ég var svöng og hann leyfði mér ekki að hreyfa mig i stiheilan háliftíma. En ég verð að segja að þetta var góð mynd. Ég á hana enn og hún er í dag hundrað punda virði, að ég held. Nú varð mér það ljóst í fyrsta sinn, að ég var falleg. Og ég varð hissa. Foreldrar minir höfðu aldrei vikið að þvi orði, þvi að þau voru ströng við mig þegar ég var lítil og sikólastelp- ur segja ekki slíkt hver um aðra, og eins og ég sagði, þá var Jack fyrsti karlmaður, sem ég hafði nokkum tima farið út með. Jæja, það var þá svona, ég í þýóingu Páls Skúlasonar. var tvítug og munaðarleysingi, og laglegum manni fannst ég vera falleg. Ég hélt áfram að borða eins og ekkert væri, en ég ölgaði öll innvortis eins og kampavín. — Þú átt eftir að gera mig rikan, sagði Jack. — Ég ætla að teikna þig i krók og kring, aft- an og framan, ofan og neðan, al- klædda og svo nakta áður en lýkur. — Nei, það skaltu aldréi gera, sagði ég með ákafa. — Aldrei hef ég nú heyrt annað eins. — Jæja, þá, kannski ekki nakta en alílt hitt. Hann hélt áfram að teikna meðan hann tal aði og eftir stundarkorn fleygði hann myndinni í mig. Hann hafði teiknað rúmið mitt með öll um fjórum stólpunum og tusku- teppinu og myndinni af Ljósi heimisins uppi yfir, en ofan á teppið hafði hann komið fyrir stúlku með hendur fyrir aftan hnakka og ekki í nokkurri spjör en með andlitið mitt! Ég varð bálvond. — Snáfaðu út héðan! sagði ég, — og komdu aldrei aftur. Ég sé mest eftir þvi, að ég skyldi bjóða þér heim, en ég er bara allls ekki svona stúlka. Og svo för ég að gráta, af þvi að ég var alveg frá mér af æsingi, og enn var ég óvön þvi að vera fal leg. En hann tók mig bara upp og settisit í hægindastólinn með mig á hnjánum og strauk blíð- lega um hárið á mér. — Aumingja Jenny. Fyrir- gefðu mér. Ég er bölvuð skepna. Laugardalsvöllur 1. DEILD KR — Fram leika í kvöld kl. 20:00. KR. velvakandi Velvakandi svarar i sima 10100 frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. 0 Eftir helgina Þá er hvitasunnuhelgin af- staðin, stórslysalaust og varpa nú flestir öndinni léttar. Að vísu mun Jónas útvarpsökufól hafa keyrt sig og sina í klessu, en sú fjölskylda er öllu vön i þeim efnum, þannig að ein bylta til eða frá skiptir kannski ekki ölilu máli. Tiðindi bárust af aðskiljan- legum rúðubrotum. Þess vegna er ef til vill ekki úr vegi að spyrja, hvort það væri ekki skynsamleg fjárfesting hjá hér lendum bifreiðaeigendum, að hafa óbrjótandi framrúður í farartækjunum, svona eins og lífhrædd stórmenni hafa í sín- um, enda þótt kostnaðurinn kunni að vaxa einhverjum í augum. 0 Borg í dvala ■ Ekki var margt fólk á al- mannafæri um þessa helgi, fremur en aðrar „stórhelgar". Möguleikar til þess að láta hafa ofan af fyrir sér eru ekki marg víslegir um hátíðir, þannig að hver og einn verður að bjarga sér sjálfur, e.t.v. þó með hjálp vina og vandamanna, og að sjálfsögðu, útvarps og sjón- varps. Lofað hafði verið svo- kölluðu „Iéttu efni“, til þess að menn féllu ekki í andlegan dróma. Vonandi hefur árangur imn verið eins og til var ætlazt. 0 Áróðursmerki Erla Magnúsdóttir hafði sam band við Velvakanda. Hún saigð ist hafa tekið eftir því, að mang ir genigju um með merki í föt um sínujn, þar sem á stæði „Herinn burt“. Margt af þessu fólki væru smákrakkar, sem sýnilega bæru þessi merki, án þess að gera sér grein fyrir merkingumni. —- Erla vildi koma þeirri uppá- stungu á framfæri, ef einhver vildi sinna henni, að búin væru til merki, sem á væri letrað, til dæmis: „Tryggjum öryg,gi Is- lands“ eða eitthvað í þá átt. 0 Löggæzla í Breiðholti „Hrafn og Ágúst“ skrifa á þessa lieið: „Við viiljum aðeins undir- strika orð „Breiðholtsbúa", er hringdi í Velvakanda fyrir skömmu, veigna lögigæzlu í Breiðholtinu, Síðan lögreiglan herti svo mjög á eftirliti í hverf inu sem raun ber vitni, hefur varla nokkurt umtalsvert af- brot átt sér stað hér. Vafalaust er það að þakka góðri frammi- stöðu lögreglunnar." Spor í rétta átt KÓPAL í NSCJUM OG, MARGFALT BETRI TCDNALÍTUM máMagfl MÁL.NIIMQ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.