Morgunblaðið - 07.11.1973, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.11.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÖVEMBER 1973 7 FRÉTTIR Kvenfélag Háteigssóknar held- ur bingó I kvöld í Sjómanna- skólanum kl. 20.30. Kaffi- veitingar. Kvenfélagið Hrönn heldur jóla- pakkafund í kvöld kl. 20.30 að Bárugötu 11. Kvenfélagið Keðjan heldur 45 ára afmælisfagnað fimmtudaginn 8. nóvember kl. 20.30 að Bárugötu 11. Skemmtiatriði og veitingar. Tapað — Fundið Til þín, sem fékkst „lánað“ peningaveskið mitt í Norræna húsinu laugardaginn 3. nóv. milli kl. 14.00 og 15.00! Viltu vera svo góður að senda mér til baka skil- ríkin, sem í þvf voru, þar sem það er erfitt fyrir mig að vera án þeirra, og tekur langan tima að fá ný frá Noregi. Peningana máttu eiga. Ole Thime, Tómasarhaga 47, Reykjavík. Ljósbrúnn högni með hvíta bringu er í óskilum að Fellsmúla 17, R. Uppl. í síma 36318. SA NÆST BEZTI Presturinn var sannarlega í essinu sfnu, og hélt þrumandi ræðu þar sem hann útmálaði vistina ( vfti fyrir sóknarbörnum sfnum. Hann lýsti fjálglega ógn- um þeim, sem búast mætti við á þeim degi, og sagði m.a.: — Og á þeim degi mun verða grátur og gnfstran tanna. Þá stóðu upp gömul kona og sagði: — En sum okkar hafa engar tennur. Presturinn svaraði að bragði: — Tfmi kraftaverkanna er ekki liðinn. Tanniausum verður séð fyrir tönnum. Noregur Sissel Merete Ekeland, Grannesvegen39, 4030 Hinna Stavanger, Norge. Hún vill skrifast á við 14 ára dreng eðastúlku. Bandarfkin Laura Dushkind, Box 2, Woodacre, California 94973, U.S.A. Hún er 11 ára gömul, og óskar eftir pennavini á svipuðum aldri. Sviss Ruth & Nelly Schörer, 13 Lercherweg, 5000 Aarau / Switzerland. Þær óska eftir að skrifast á við konur á aldrinum 28 — 40 ára, helzt úr strjábýlinu. Ruth hefur áhuga á ferðalögum, ljósmyndun, lestri bóka, náttúruskoðun, siðum annarra þjóða, auk þess sem hún segist vera mikill dýravinur. Hún getur skrifað á ensku, en vill heldur skrifa á þýzku. Nelly hefur áhuga á ferðalög- um, ljósmyndun, ballet, handa- vinnu og vefnaði. Hún skrifar ensku og þýzku jöfnum höndum. Bandarfkin Robert Reynolds, c/o Mr. Osterberger’s class, 1001, Alta Vista, Nativity Scholl, Dubuque, Iowa 52001, U.S.A. Hann er 11 ára, og óskar eftir pennavini á svipuðum aldri. Hann skrifar einungis á ensku. Betsy Oliver, 22x High Street, Yarmotuh, Maine 04096, U.S.A. Hún óskar eftir að skrifast á við dreng eða telpu á sínum aldri, og skrifarhún áensku. DAGBÓK BARMWA.. RRAMHflLQSSAGflN Þýtur í skóginum — Eftir Kenneth Grahame 3. kafli — STÓRISKÓGUR „Hvað heldur þú, að við kanínurnar hefðum getað gert? Ekkert.“ Ég gaf henni einn löðrunginn til og skildi við hana. Annað var ekki hægt að gera. En ég haf ði þó orðið nokkurs vísari, og ef ég hefði verið svo heppinn að hitta einhvern af hinum eiginlegu skógarbúum, þá hefði ég komizt á snoðir um ýmis- legt fleira.. ,og líka sá, sem hefði orðið fyrir barðinu á mér.“ „Varstu alls ekkert . . .hræddur?" spurði mold- varpan, og það fór hrollur um hana, þegar henni var hugsað til ævintýris sins í Stóraskógi. „Hræddur?" Það skein í hvítar, sterkar og beittar tennur otursins, þegar hann brosti. „Nei, sá sem lendir í kasti við mig, fær að kenna á því. Góða moldvarpa steiktu líka nokkrar sneiðar handa mér. Ég er hræðilega svangur og ég þarf svo mikið að tala við rottuna. Það er svo Iangt síðan við höfðum sézt.“ Og þegar moldvarpan var búin að skera handa honum nokkrar sneiðar af svínafleskinu, lét hún broddgeltina litlu steikja þær og settist sjálf aftur að snæðingi. En oturinn og rottan stungu saman nefj- um og spjölluðu um um ýmis sameinginleg áhugamál árbakkabúa, en þau eru ákaflega mörg, enda runnu orðin upp úr þeim í stöðugu straumum. Gestirnir höfðu nýlokið við fullan disk af svína- fleskinu og höfðu sent hann til broddgaltarins til að fá hann fylltan aftur, þegar greifinginn kom inn. Hann teygði sig og geispaði, neri augun og heilsaði öllum viðstöddum vingjarnlega, eins og hans var vandi. „Það hlýtur að vera kominn tími til að huga að hádegisverðinum, “ sagði hann við oturinn. „Þú verður kyrr og borðar með okkur. Þú hlýtur ar vera glorhungraður.“ „Eiginlega,“ sagði oturinn og deplaði auga til moldvörpunnar. „Og sulturinn verður enn sárari, þegar ég horfi á, hvernig þessir litlu broddgeltir troða i sig svínafleskinu.“ Broddgeltirnir, sem einmitt voru farnir að verða svangir aftur eftir haframjölið sitt, því þeir höfðu staðið sveittir við að matreiða handa hinum, litu vandræðalega á greifingjann, en voru svo feimnir, að þeir þorðu ekki að segja neitt. „Svona, bömin góð, farið þið nú að leggja af stað heim til mömmu ykkar,“ sagði greifinginn vinalega. „Ég skal senda einhvern með ykkur svo þið villist ekki. Þið þurfið víst engan miðdegismat í dag.“ Hann gaf þeim auga og klappaði þeim á kollinn, og þeir kvöddu meðvirktum. Brátt settust allir niður við borðið, þar sem há- degisverður var framreiddur. Moldvarpan sat við hliðina á greifingjanum, og þar sem rottan og otur- inn voru niðursokkin í samræður sín á milli um ána og það, sem henni viðvék, þá notaði moldvarpan tækifærið til þess að segja greifingjanum frá þvl, hve vel hún kynni við sig undir yfirborði jarðar. „Þegar ég er komin neðanjarðar, þá veit ég, að mér er fyllilega óhætt,“ sagði hún. ^Ekkert óþægi- legt kemur fyrir mig, enginn getur náð mér. Ég er minn eigin herra og þarf ekki að ráðgast við neinn eða taka tillit til annarra. Ofanjarðar gengur allt sinn vanagang og ég læt það gott heita. Þegar tími er til kominn, get ég alltaf fariðupp.. I hverju hangir kojan? Ef þú vilt vita í hverju hengikojan hangir, þá verður þú að draga strik milli tölustaf anna frá nr. 1 til 70. Smáfólk ast í tízku aftur! FERDINAND ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.