Morgunblaðið - 10.11.1973, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.11.1973, Blaðsíða 32
Fékkst þú þér LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973 Verða landhelgisbrjót- umgefnar upp sakir? „Vil ekkert um það segja” — segir forsætisráðherra ATHYGLI vekur í þingsályktun- artillögu ríkisstjórnarinnar, að þar er engu orði minnzt á það, hvort brezkum landhelgisbrjót- um, sem margir hverjir eiga á skrá hjá Landhelgisgæzlunni tugi landhelgisbrota frá 1. september 1971, verði gefnar upp sakir — eða hvort þeir verða látnir sæta ábyrgð fyrir framferði sitt, náist til þeirra. Morgunblaðið spurði forsætis- ráðherra, Ólaf Jóhannesson, um þetta atriði í gær og hvernig yrði farið með mál þessara landhelgis brjóta. Ölafur sagði: „Eg vil ekk- ert segja um það á þessu stigi.“ Hann sagði jafnframt að þetta atriði skýrðist siðar. Samkvæmt skýrslu forsætisráð- herra af viðræðum hans við Ed- ward Heath, virðist ekkert hafa verið rætt um þessi atriði á fund- inum í London. Óliklegt er þó, að Bretar hafi beinlínis farið fram á sakaruppgjöf, þar sem þeir í raun viðurkenna ekki, að um neina sekt sé að ræða — þeim hafi verið heimilt að veiða innan 50 milna samkvæmt úrskurði Haagdóm- stólsins. Enn óljóst um tolla- lækkanir hjá EBE Mengað hugarfar FORSVARSMAÐUR Ölgerðar- innar „Egili Skaliagrímsson" kom nýlega við á auglýsinga- skrifstofu Sjónvarpsins til að sækja þangað þrjár auglýs- ingamyndir, sem sýndar hafa verið í auglýsingatímum sjón- varpsins undanfarin þrjú ár. Var honum þá tjáð, að það væri eins gott að hann kæmi Framhald á bls. 18 Póstmennirnir látnir lausir PÓSTMENNIRNIR tveir, sem setið hafa í gæzluvarðhaldi und- anfarinn mánuð vegna rannsókn- ar á aðild þeirra að hvarfi á ábyrgðarpósti á aðalpósthúsinu í Reykjavík, voru látnir lausir í gær, enda gæzluvarðhaldstíma þeirra nær lokið. Samkvæmt upp- lýsingum rannsóknarlögreglunn- ar hafa mennirnir tveir lítið vilj- að kannast við, að hafa átt sök á hvarfinu. Rannsókn málsins verð- ur haidið áfram. ÞEGAR forsætisráðherra kom frá London og gaf skýrslu um viðræð- ur sínar viðEdward Heath.skýrði hann frá því, að Bretar myndu beita sér fyrir þvf, að tollalækkun á fiski, samkvæmt samningi við Efnahagsbandalagið, kæmi öll til framkvæmda 1. janúar 1974. Sam- þykki Alþingi þingsályktunartil- lögu ríkisstjórnarinnar um heim ild fyrir hana að ganga frá bráða- birgðasamkomulagi við Breta, vaknar spurningin, hver þessi tollafríðindi eru. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér í gær, er um all- verulegar tollalækkanir að ræða og er þar markaðurinn í Þýzka- landi og Belgíu mikilvægastur, en þar verður tollalækkun á ísfiski, öðrum en karfa, úr 15% I 9%. ísfisktollar í Bretlandi lækka þá einnig úr 10% í 7%. Karfinn er nú með 8% toll í Þýzkalandi og Belgíu, en fer niður í 5%. I Bret- landi er karfatollur 10%, en færi niður i6%. Freðfiskinn i gömlu Efnahags bandalagslöndunum sex er nú 15%, fer í 9% 1. janúar, ef skil- yrðum er fullnægt og fryst rækja lækkar í tolli úr 20% í 12%. Ef skilyrði fyrir þessum tolla- lækkunum bresta má búast við því, að Danir og Bretar taki upp tolla á frystri rækju og freðfisk- flökum, en þar hefur enginn toll- ur verið á þessum afurðum til þessa. Myndi þetta koma rækju- iðnaðinum á Islandi mjögilla. I þessu sambandi má benda á, að ekki hafa enn náðst samning- ar við V-Þjóðverja og er litið svo á innan Efnahagsbandalagsins, að Þjóðverjar og Bretar hafi neitunarvald innan sambands- ins. Þó er talið, að þar sem Þjóð- verjar hafi lagt mikla áherzlu á að kaupa fisk af Islendingum, muni þeir eigi standa í vegi fyrir gildis- töku bókunar númer 6, en það er sérsamningurinn um fisksölur til bandalagsins. Jafnframt hefur gildistaka bókunarinnar aldrei verið Þjóðverjum eins mikill þyrnir í augum og Bretum. A þessari stundu er þó allt óljóst um Framhald á bls. 18 Háteigskirkja teygir turna himins. — Ljósm.öLK.M. V erkfallsverðir komust ekki norður Þjónar í Sjálfstæðishúsinu á Akur- eyri sömdu sérstaklega VERKFALL Félags framreiðslu- manna skall á í gær en 5 framreiðslumenn á Akureyri, sem vinna við Sjálfstæðishúsið, sömdu sérstaklega við Sjálf- stæðishúsið og felldu ekki niður vinnu. Skrifstofa Félags fram- reiðslumanna 1 Reykjavík ætlaði að senda 5 verkfallsverði norður til þess að stöðva Norðanmenn i gær, en þeir komúst ekki vegna þess, að ófært var f lugleiðina. Öll skemmtihús í Reykjavík og annars staðar, sem hafa vín- veitingaleyfi, eru því lokuð, nema Sjálfstæðishúsið á Akureyri. Stefán Gunnlaugsson framreiðslumaður á Akureyri, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gærdag, að þeir hefðu gert bráða- Óánægja á Vestfjörðum Skiptar skoðanir annars staðar NOKKUÐ hefur grundvöllur rfkisstjórnarinnar að bráða- birgðasamkomulagi við brezku ríkisstjórnina hlotið misjafnar undirtektir meðal fólks 1 ver- stöðvum úti á landsbyggðinni. Morgunblaðið hafði 1 gær sam- band við fréttaritara sína, út- gerðarmenn og sjómenn 1 f jölda verstöðva úti um land til að forvitnast um viðbrögð á þessum stöðum. £ Niðurstaða þessarar könn- unar var í stórum dráttum á þá lund að óánægja andsaðj við samkomulagið er hvað mest í þeim verstöðvum, þar sem tog- araútgerð er stunduð og togara- sjómennimir þurfa að sækja á sömu mið og erlendu veiðiskip- in. Almennust er andstaðan þó á Vestfjörðum, og má þar segja, að útgerðarmenn og sjó- menn séu einhuga í gagnrýni á samninga við Breta. Veldur þar mestu, um að vestfirzkir út- vegsmann telja samkomulagið bitna harðast á Vestfjörðunum, sókn erlendu veiðiskipana verði langmest á þeirra mið. I öðrum togaraverstöðvum virðast menn fremur skiptast eftir flokkspólitlskum línum í afstöðu til sámningsins; þó má þar víðast hvar heyra að mönn- um sárnar, að ekki skuli vera skýr ákvæði um lögsögu íslend- inga innan 50 sjómílna haf- svæðisins. 1 bátarútgerðarbæj- unum er þetta mál hins vegar minna á dagskrá, og helzt á mönnum þar að heyra, að veru- legar umræður hafi ekki orðið um samninginn. Verður því ekki frekar fjölyrt um þá staði hér á eftir. En víkjum þá sögunni fyrst til Vestfjarða. Að sögn fréttarit- ara Morgunblaðsins á ísafirði eru útgerðarmenn og sjómenn þar um slóðir yfirleitt mjög mótfallnir samningnum og yfir- leitt nokkurri tilslökun gagn- vart Bretum. Hann taldi vafa- laust, að þessi afstaða mótaðist að einhverju leyti af atferli er- lendra veiðiskipa á miðum Vestfirðinga að undanförnu, og vestfirzkum sjómönnum þætti súrt í broti, að skömmu síðar skyldu vera gerðar tilslakanir til handa erlendu skipunum. „Þeir vilja herta gæzlu, og finnst blóðugt að horfa upp á 50 — 60 brezka togara í vari undir Grænuhlíð, eins og var þar fyr- ir2 — 3 dögum.“ I framhaldi af þessu hafði Morgunblaðið samband við Guðmund Guðmundsson, for- mann Utvegsmannafélags Vest- fjarða. Guðmundur kvað það samdóma álit útgerðamanna og sjómanna á Vestfjörðum, að samningur við Breta væri hreinasta hörmung, „skammar- leg svívirða og hrein uppgjöf", eins og hann orðaði það. Sér- staklega deildi Guðmundur á þrennt í samningsgrundvellin- um, og þá f fyrsta lagi á tíma- setninguna á því hvernær veiði- hólfið skyldi vera lokað. „A samningnum sýnist mér það koma upp úr dúrnum, að Bret- ar hafa ráðið því hvenær svæði ætti að vera lokað en ekki við, Framhald á bls. 18 birgðasamning við Sjálfstæðis- húsið í gær. Kvað hann góðan samstarfsvilja og samkomulag ávallt hafa ríkt milli Sjálfstæðis- hússins og starfsfólks og svo væri enn og hefðu báðir aðilar sætt sig við bráðabirgðasamkomulagið. Þjónninn við KEA á Akureyri lagði hins vegar niður vinnu. Öskar Magnússon formaður Félags framreiðslumanna sagði í viðtali við Morgunblaðið síðdegis í gær, að búið væri að senda mannskap til Akureyrar flug- leiðis til þess að stöðva Norðan- menn og kvað hann verk- fallsverðina fá aðstoð hjá verka- lýðsfélögunum á Akureyri. Fimm- emnningarnir komust hins vegar ekki vegna þess að ófært varð til Akureyrar, en þeir munu fara norður í dag. I gærkvöldi hafði Morgunblaðið Framhald á bls. 18 Hættulega slasaður TUTTUGU og sex ára maður stór- slasaðist f gær, er kranabóma féll yfir hann og hlaut hann mjög alvarlegan höfuðáverka. Slysið varð við húsið Krfuhóla 4 f Reykjavfk. I gærkvöldi, þegar Morgunblaðið hafði spurnir af liðan mannsins, var hann f heila- skurðaðgerð og var óttazt um lff hans. Slysið vildi til með þeim hætti, að bóman á krananum valt til og lagðist ofan á manninn. Hann var samstundis fluttur í slysadeild Borgarspftalans og þaðan f gjör- gæzludeild spftalans, þar sem hann er nú. Slysið varð klukkan 17.17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.