Morgunblaðið - 11.11.1973, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.11.1973, Blaðsíða 11
HS'íifSV' \'r t r gri DACTt íflVtTJDROW MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÖVEMBER 1973. 11 TÆKI SEM SEGIR SJÖ Þér finnst nú kannske, að hér sé dálítið einkennilega að orði komist, en málið skýrist. — Bæði er það, að menn eru að verða hálfþreyttir á SEX(!?) eftir allt það SEX tilstand, sem yfir hefur gengið síðustu miss- eri, og eins er hitt, að SJÖ er mjög þýðingarmikið í sambandi við tæki þetta, eins og reyndar öll GRUN- DIG sjónvarpstæki. Ástæða þess er sú, að við gefum viðskiptavinum okkar kost á að sannreyna mynd- og tóngæði GRUNDIG sjónvarpstækjanna í einmitt SJÖ daga án endanlegra skuldbindinga. Við vitum sem er, að allir sjónvarpstækjasalar lýsa kostum tækja sinna æði fjálglega fyrir væntanlegum viðskiptavin- um, og getur því verið erfitt fyrir menn að átta sig á hlutunum. Þess vegna tökum við af skarið og bjóð- um fólki SJÖ daga skilyrðislausan skilarétt (þú getur jafnvel skilað tæki, ef þér finnst, að það passi ekki í stofuna hjá þér, þegar til kemur), og viljum við á þennan hátt veita viðskiptavinum okkar tækifæri til að sannreyna fullyrðingar sölumanna okkar um á- gæti GRUNDIG sjónvarpstækjanna. Myndskýrleiki og tóngæði eru auðvitað mikilvæg atriði, en við gleymum heldur ekki hinu, að ending og örugg fram- búðar afnot hafa ekki síður gildi. Við getum að vísu ekki boðið SJÖ ára ábyrgð á GRUNDIG sjónvarps- tækjunum, en hins vegar bjóðum við ÞRIGGJA ára ábyrgð, eða þrefalt lengri ábyrgð, en nokkur annar sjónvarpstækjasali býður. — Er nokkru við þetta að bæta? NESCO HF LEIÐANDI FYRIRTÆKI Á SVIÐI SJÓNVARPS-, ÚTVARPS- OG HLJÓMTÆKJA. LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 19150 - 19192

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.