Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Áskriftargjald 360,00 í lausasölu 25 hf. Arvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10 100. Aðalstræti 6, simi 22 4 80. kr. á mánuði innanlands. 00 kr. eintakið. í samtökum námumanna. En brezkt þjóðfélag er þá mjög ólíkt t.d. hinum norr- ænu, ef slíkar báráttuað- ferðir duga mönnum vel. Hvarvetna í hinum vest- ræna heimi eru verkalýðs- félögin orðin mjög áhrifa- mikil. Einhver sagði, að nú stafaði ekki lengur hætta af einokunarstefnu fjár- magnsins heldur verka- lýðssamtakanna. En reynslan er yfirleitt sú, að landsstjórn fer ekki vel úr ENGIN NIÐURSTAÐA r Ifyrsta skipti í áratugi hefur hvorug- ur stóru flokkanna í Bret- landi hlotið meirihluta þingsæta í brezka þinginu. Þessi kosningaúrslit skapa alveg ný viðhorf í brezkum stjórnmálum. Þegar kosn- ingaúrslit urðu kunn í Dan- mörku í byrjun desember þótti ljóst, að í þeim kosn- ingum hefðu kjósendur fyrst og fremst viljað mót- mæla stjórnarháttum gömlu flokkanna og getu- leysi þeirra. Atkvæðin, sem Glistrup fékk, voru ekki atkvæði greidd hon- um, heldur atkvæði gegn gömlu flokkunum. Nú er að sjálfsögðu ekki hægt að líkja Frjálslynda flokknum í Bretlandi við flokk Gli- strups í Danmörku, en í báðum tilvikum er bersýni- iega um mótmælaatkvæði :ð ræða. Fylgisaukning Frjálslynda flokksins í Bretlandi er mótmæli gegn getuleysi stóru flokkanna tveggja og forystumanna þeirra. Heath, forsætisráðherra, gekk til þessara kosninga undir þvf slagorði, að um það væri kosið, hvort verkalýðsfélögin stjórnuðu landinu eða þingræðisleg stjórn. Nú er auðvitað ljóst, að kommúnistar hafa náð lykiláhrifum í brezkum verkalýðsfélögum, ekki sízt hendi nema stjórnvöld hafi gott samstarf við verka- lýðssamtökin. Fullkomin óvissa ríkir í brezkum stjórnmálum þeg- ar þetta er ritað. Sú óvissa hefur bætzt við öngþveiti í efnahags- og atvinnumál- um landsins. Brezki iðnað- urinn hefur um margra ára skeið átt við mikla erfið- leika að etja. Það er kald- hæðni örlaganna að sigur- vegararnir úr heimsstyrj öldinni síðari hafa tapað friðnum a.m.k. þegar um er að ræða efnahagslega og viðskiptalega samkeppni. V-Þýzkaland hefur risið upp sem nýtt iðnaðarveldi á meðan Bretland hefur látið undan síga. Edward Heath réðst gegn þessari þróun og ætlaði að snúa henni við. Hann náði viss- um árangri en takmörkuð- um. Niðurstaða kosning- anna sýndi, að brezkir kjós- endur geta ekki gert það upp við sig, hvort þeir vilja fljóta sofandi að feigðarósi eða takast á við vandamál- in. LOKUM APN Unokkurra ára skeið hefur verið starfrækt hérlendis svonefnd frétta- stofnun frá Sovétríkjun- um, Novosti. Þegar „frétta- stofa“ þessi hóf starfsemi sína hér, kom það fram, að víða um heim er APN- Novosti þekktari fyrir ann- að en fréttastarfsemi. Sums staðar hefur nefni- lega komið í ljós, að í skjóli þessarar fréttastofu hefur verið rekin njósnastarf- semi. Starfsemi hennar hér vakti því grunsemdir og umtal þegar í upphafi. Nú skal ekkert fullyrt um það, hvort APN-Nov- osti rekur njósnastarfsemi hér á íslandi. Enn hefur ekkert sannazt um það, hvaðan fjarskiptatækin í Kleifarvatni eru komin. Augljóst er, að þau eru komin frá sovézkum aðil- um, en ósannað, hvort þau hafa verið notuð á vegum sovézka sendiráðsins hér, Novosti eða jafnvel sov ézkra rannsóknarleið- angra. Hitt liggur alveg ljóst fyrir, að APN-Novosti vinnur að því að dreifa áróðri um Sovétríkin og óhróðri um önnur ríki til íslenzkra fjölmiðla. Starf- semi APN-Novosti hefur þó ekki vakið ýkja mikla athygli þar til nú síðustu vikurnar er þessi „frétta- stofnun" hefur dembt yfir fjölmiðla svo óþverraleg- um óhróðri um sovézka Nóbelsskáldið Solzhenit- syn, að það orðbragð, sem notað er um skáldið, er tæpast prenthæft. Þessi óhróðursstarfsemi hinnar sovézku frétta- eða njósnastofnunar hlýtur að verða til þess, að kröfur koma fram um, að starf- semi hennar hérlendis verði stöðvuð, skrif stofunni lokað og sovézkir starfs- menn hennar sendir heim. Fyllsta ástæða er til að kanna, hvernig starfsemi þessarar skrifstofu er hátt- að, hve marga starfsmenn hún hefur í þjónustu sinni, hve margir þeirra eru ís- lenzkir og hversu víðtæk óhróðursstarfsemi hennar er. Reykjavíkiirbréf -Laugardagur 2. marz- Varið land Þegar undirskriftasöfnunin „VariS land“ hófst, gerði víst eng inn ráð fyrir, að jafn gífurlegur fjöldi manna mundi taka þátt í henni og raun hefur á orðið. Strax og undirskriftasöfnunin var hafin varð ljóst, hve mikinn áhuga ís- lendingar höfðu á því að láta hug sinn í ljós. Þótt aðgerðirnar væru lítt skipulagðar streymdu undir- skriftir inn. Fólkið í landinu vildi nota þetta tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum til að fyrir- byggja, að landið yrði gert varna- laust. Nú liggur það fyrir, þannig að ekkert þarf um að deila, að mikill meirihluti landsmanna vill tryggja, að hér séu varnir. Ef þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um þetta efni, má gera ráð fyrir, að um það bil fjórir af hverjum fimm kjósendum mundu vilja tryggja varnir landsins. Hér í Reykjavíkurbréfi hefur raunar verið á það bent, að á þjóðhátiðar- ári væri illt að þurfa að efna til átaka sem þeirra að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um varn- armálin. Undirskriftasöfnunin gerir það líka að verkum, að eng- inn vafi er lengur á því, hver vilji þjóðarinnar er i þessu efni. En þrátt fyrir þessar staðreynd- ir ræða stjórnarherrarnir enn um brottrekstur varnarliðsins. Þó mun hugmynd forsætisráðherr- ans vera sú að þæfa málið og þrauka. Hann veit sem er, að meirihluti flokksmanna hans er andvígur brottvísun varnarliðs- ins, og þess vegna væru dagar hans taldir sem flokksforingja, ef hann léti að vilja kommúnista í þessu efni. Þess vegna reynir hann að fá þá inn á tillögur Ein- ars (Ljósvetningagoða). Og viti menn, helztu leiðtogar Alþýðu- bandalagsins hafa þegar fallizt á það, að hér megi vera herlið áfram. Þannig bera nú allir ís- lenzkir stjórnmálaflokkar ábyrgð á veru okkar í Atlantshafsbanda- laginu og dvöl varnarliðs á ís- landi. Hitt er svo annað mál, að það fyrirkomulag varnarmálanna, sem Einar Agústsson hefur stung- ið upp á, miðast ekki við íslenzka hagsmuni. Það byggist ekki á þvi fyrst og fremst að tryggja okkar eigin vamir, heldur er verið að reyna að koma til móts við Atl- antshafsbandalagsþjóðirnar og Bandaríkin. Enginn veit raunar, hvort þessir aðilar telja, að í til- lögum utanríkisráðherrans felist nægileg trygging fyrir þá. En væntanlega kemur það í ljós, ef viðræðunum um endurskoðun varnarsamningsins verður fram haldið, en þeim hefur eins og kunnugt er hvað eftir annað verið skotið á frest. En hvað sem öllu þessu líður er ljóst, að þátttakendurnir í undir- skriftasöfnuninni „Varið land“ hafa náð því marki. sem að var stef nt, að gera ráðamönnum grein fyrirþví í eitt skipti fyrir öll, hver vilji þjóðarinnar er i þessu efni. Prófkjör sjálfstæðis- manna Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa þann hátt á við val frambjóð- enda til borgarstjórnar að efna til almenns prófkjörs, sem allir stuðningsmenn framboðslistans hafa rétt til að taka þátt í. Próf- kjör þetta fer fram nú um helg- ina, og er þess að vænta, að þátt- taka í því verði mikil og almenn. Reykvíkingar hafa ætið lagt á það mikla áherzlu að tryggja höfuð- borginni farsæla forustu. Þess vegna hafa þeir tekið þátt f þvi að velja frambjóðendur og síðan sameinazt um öflugan stuðning við þann lista, sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur borið fram. Venjan hefur verið sú, að á framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins við borgarstjórnarkosningar hafa bæði verið fyrrverandi borgarfulltrúar, með vfðtæka þekkingu og reynslu í meðferð borgarmála og nýir menn, sem boðið hafa fram krafta sína til að kljást við hin margvíslegustu mál- efni. Að þessu Sinni verða einnig talsverðar breytingar á framboðs- listanum, þótt enginn viti raunar nú, hvemig úrslit þrófkjörsins kunna að ráðast. Fjöldi úrvals- manna hefur gefið kost á sér í þessu prófkjöri, og að sjálfsögðu er það hverjum manni heiður að koma til álita við uppstillingu framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins. Aðeins fáir fá auðvitað nægi- legt fylgi til þess að skipa sæti væntanlegra borgarfulltrúa, en þeir sem minna atkvæðamagn fá, mega þó vel við una að vera í hópi þeirra, sem fjöldi samborgara taldi, að heppilegt væri að velja til forustu í borgarmálum. Samninga- gerðin Að undanförnu hefur allt snúizt um kjaramálin og samninga laun- þega og vinnuveitenda, sem eðli- legt er, Víðtækasta verkfall f sög- unni hefur verið háð. Sem betur fer stóð það að vísu aðeins fáa daga, en engu að síður var það mikið alvörumál, að til svo víð- tækra vinnustöðvana skyldi draga. Því hefur verið haldið fram m.a. hér f blaðinu, að ríkisstiórnin beri meginábyrgð á því, að til vinnustöðvana kom, ogþá skoðun er auðvelt að rökstyðja. Þegar á sl. hausti lögðu launþegasamtökin á það megináherzlu, að úrbætur yrði að gera í tveimur málaflokk- um, annars vegar skattamálunum og hins vegar húsnæðismálunum. Auðvitað var það ekki á valdi neinna annarra en rikisstjórnar- innar að hafa forustu f því efni. Samt sem áður leið mánuður eftir mánuð, án þess að ráðherrarnir aðhefðust nokkuð raunhæft, og það var ekki fyrr en á síðustu dögum samningaumleitana, sem farið var að vinna f þessum mála- flokkum. Þá varð að nota dýrmæt- an tíma til þess að ræða um þær, en viðræður milli samningsaðil- anna töfðust að sama skapi. Að sjálfsögðu gat ríkisstjórnin fyrir löngu sett fram hugmyndir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.