Morgunblaðið - 14.05.1974, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAI 1974
3
Haraldur var
maður mótsins
HARALDUR Kornelfusson, TBR,
var sannkallaður kóngur badmin-
tonsfþróttarinnar á Islandsmeist-
aramótinu, sem fram fór í Laug-
ardalshöllinni 4. og 5. maf sJ.
Haraldur hlaut þarna þrjá meist-
aratitla, sigraói í einliðaleik
karla, tvfliðaleik og tvenndar-
keppni. Komu yfirburðir hans f
mótinu nokkuð á óvart, þar sem
hann virðist hafa verið f heldur
minni æfingu í vetur en oft áður,
og komst ekki f úrslit f einliðaleik
á Reykjavfkurmeistaramótinu.
Miklar sviptingar urðu annars f
íslandsmeistaramótinu, og fleiri
en Haraldur, sem komu þar á
óvart. Var það einkum Sigurður
Haraldsson, sem lítið sem ekkert
hefur æft badminton í vetur. Sig-
urður komst f úrslit í einliðaleikn-
um, eftir að hafa sigrað Braga
Jakobsson, Reyni Þorsteinsson og
Steinar Pedersen. Var leikur Sig-
urðar og Steinars einn sá tvfsýn-
asti og skemmtilegasti í mótinu.
Sigraði Sigurður eftir framleng-
ingu í oddaleik.
Mikið má vera ef þessi erfiði
leikur hefur ekki setið í Sigurði
er hann mætti til úrslitaleiksins
við Harald daginn eftir. Að
minnsta kosti fór svo, að hann
megnaði ekki að veita honum
keppni. Haraldur hafði yfirburði,
en leikurinn var i heild fremur
daufur og ekki vel leikinn.
I tvíliðaleiknum léku til úrslita
Haraldur og Steinar og Garðar og
Sigurður, sem komið höfðu á
óvart í undankeppninni með því
að vinna fyrst Reyni Þorsteinsson
og Friðleif Stefánsson og síðan
Helga Benediktsson og Magnús
Magnússon. Var úrslitakeppnin
þarna mun skemmtilegri en í ein-
Islandsmeistarar I badminton: Steinar Pedersen, Lovfsa Sigurðar-
dóttir.Hanna Lára Pálsdóttir og Haraldur Kornelíusson.
Hartono
sigraði
Margt af bezta badmintonfólki
heims mættist f keppni, sem fram
fór í Gladsaxe-höllinni í Dan-
mörku um mánaðamótin. I úrslit-
um einliðaleiks karla sigraði
Indónesíumaðurinn Rud.v
Hartono Svend Pri frá Danmörku
15—7, 7—15 og 15—11 og f ein-
liðaleik kvenna sigraði Hiroe
Yuki frá Japan Lene Köppen frá
Danmörku í úrslitaleik 11—8 og
11—2.
liðaleiknum, og í honum töluverð
barátta, þrátt fyrir að Haraldur
og Steinar sigruðu nokkuð örugg-
lega.
í tvenndarleiknum sýndi Har-
aldur svo áberandi hvers hann er
megnugur, en þar lék hann oft
frábærlega vel í úrslitaleiknum.'
Hanna Lára Pálsdóttir lék með
Haraldi, en mótherjar þeirra voru
Steinar Pedersen og Lovísa Sig-
urðardótúr, sem einnig léku
þennanleik með ágætum.
í einliðaleik kvenna var nú
keppt aftur efúr langt hlé, kepp-
endur voru þó aðeins f jórir og fór
svo, að Lovfsa Sigurðardóttir
vann yfirburðasigur yfir Svan-
björgu Pálsdóttur í úrslitaleikn-
um. Hið sama varð uppi á ten-
ingnum í tvíliðaleik kvenna. Lov-
ísa Sigurðardóttir og Hanna Lára
Pálsdóttir höfðu öll tök í úrslita-
leik sínum við Sigrfði M. Jóns-
dóttur og Steinunni Pétursdóttur.
1 old boys leik karla brá oft
fyrir skemmúlegum leikköflum,
og sýndu gömlu mennirnir, að
badminton er ekki bara íþrótt
hinna ungu. Sigurvegarar urðu
Karl Maack og Lárus Guðmunds-
son.
Mikill fjöldi keppenda var í A-
flokknum og þar mátti sjá marga
bráðefnilega badmintonleikmenn
á ferð — menn, sem vel hefðu
sómt sér f meistaraflokknum. Ber
þar fyrst að nefna hinn hávaxna
Ottó Guðjónsson, TBR, sem er
furðu snöggur i hreyfingum og
útsjónarsamur leikmaður. Hann
sigraði í einliðaleiknum, en mót-
herji hans þar var Sigurgeir Er-
lendsson frá Siglufirði. Sigurgeir
hafði leikið mjög vel i undan-
keppninni, en byrjaði illa í úr-
slitaleiknum og náði sér ekki á
strik. Hann vann hins vegar sigur
í tvíliðaleiknum, ásamtfélaga sfn-
um Sigurði Steingrímssyni.
Athyglisvert var hversu þátt-
taka frá Siglufirði var góð í þessu
móú, og þá ekki síður hversu Sigl-
firðingar eru að verða sterkir. Má
vera, að badminton sé að verða
„þjóðaríþrótt" þar, eins og hún
var Hólminum í gamla daga.
Haraldur Kornelíusson — varð þrefaldur Islandsmeistari á bad-
mintonmeistaramóti Islands.
Ólafur Olafsson tvffaldur Islandsmeistari fborðtennis
Olafur stal sen-
unni frá Hjálmari
— á Islandsmeistara-
mótinu í borðtennis
Úrsliún í íslandsmótinu í borð-
tennis komu vægast sagt nokkuð
á óvart. KR-ingurinn Hjálmar
Aðalsteinsson, sem verið hefur
illsigrandi undanfarið, reið ekki
feitum hesú frá þessu móti, hann
hreppti aðeins ein gullverðlaun, í
tvenndarkeppni. Bæði i einliða-
og tvíliðaleik mátú hann sjá af
gullverðlaununum úl Arnar-
manna. Hinn eiúlharði Olafur H.
Ólafsson varð Islandsmeistari í
einliðaleiknum og reyndar einnig
i tvíliðaleiknum, en þar keppti
hann með Birki Þ. Gunnarssyni.
Fyrirkomulag Islandsmótsins
var nokkuð öðru vfsi að þessu
sinni en áður og var keppandi
ekki úr leik fyrr en efúr tvö töp
nú.
Lengdi það keppnina talsvert
og tókst þetta fyrirkomulag ekki
eins vel og búizt var við, þannig
að ólfklegt er, að þetta kerfi verði
notað aftur. Alls tóku rúmlega
100 þátttakendur þátt í keppninni
í unglingaf lokkunum, en
helmingi færri í elztuflokkunum.
1 kvennaflokkunum varð
Sólveig Sv. Sveinbjörnsdóttir tvö-
faldur Islandsmeistari. Ilún
keppir fyrir Gerplu og kom það
greinilega fram í mótinu, að
Gerpla er að eignast hóp harðsnú-
inna borðtennisspilara, einkum
þö í kvennaflokki og yngri
flokkunum. I 1. flokki karla
sigraði Björgvin Jóhannesson,
Gerplu, og flyzt hann ásamt
tveimur næstu mönnum i flokkn-
um upp f meistaraflokk.
I drengjaflokki börðust þeir
grimmilegri baráttu Jón
Sigurðsson frá Keflavík og
Gunnar Finnbjörnsson, Erninum.
Hafði Jón vinninginn í einliða-
leiknum, en Gunnari tókst að
sigra í tvíliðaleiknum ásamt
félaga sínum Jónasi Kristjáns-
syni.
Annars staðar í blaðinu er þess
getið, hverjir urðu í þremur efstu
sætunum í hverjum flokki.