Morgunblaðið - 21.07.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JULl 1974
7
Kvikmyndir
Eftír Björn Vtgní Sígurpálsson
, ■ ■
Vestur-
fararnir
Jan Troell
TÓNABÍÓ hefur nu tryggt sér
sýningarréttinn á nokkrum kræsi-
legum myndum, sem vafalaust
munu falla vel I kramið hjá þeim
kvikmyndahússgestum, er aðhyll-
ast svokallaðar „listrænar" kvik-
myndir. Ekki verður sagt um Tóna-
bió, að það hafi á síðustu misser-
um verið neinn griðastaður fyrir
hina vandlátari kvikmyndaunn-
endur, en nú er ráðin bót þar á.
Jafnframt eru flestar þessara kvik-
mynda með þeim ósköpum, að
þær munu ekki siður höfða til
hinna, sem fremur kjósa kvik-
myndahúsið i von um þægilega
dægrastyttingu en að sækja
þangað menningarfóður.
I þessum myndum eru þrir
italskir leikstjórar I eldlinunni og
einn sænskur. Vafalaust er
SÍÐASTA TANGÓSINS í PARÍS
beðið með hvað mestri eftir-
væntingu, þar sem Bertolucci fer
á kostum og teflir fram Marlon
Brando og Marfu nokkurri
Schneider I mjög annarlegu ástar-
sambandi svo ekki sé meira sagt.
Enda hefur myndin orðið illræmd
eða annáluð, oflofuð eða for-
dæmd, ýmist nefnd stórkostlegt
listaverk eða viðbjóðslegt klám,
svo að fróðlegt getur orðið að
fylgjast með viðbrögðunum hér
heima.
Lærimeistari Bertolucci,
Pasolini, þeysist siðan fram á
tjaldið með tvær myndir —
DECAMERON og KANTAR-
BORGARSÖGUR, sem báðar eru
úr trfólógíunni, sem Pasolini hefur
verið að gera eftir klassiskum
miðaldabókmenntum. Hin siðasta
i þrenningunni er mynd með sögn-
um úr 1001 nótt, sem verið er að
frumsýna þessa dagana viða um
Evrópu. í þriðja lagi er það svo
meistari Fellini og myndin nefnist
ROMA, margprisað verk og merki-
legt.
Vikur þá sögunni að Svíanum
Jan Troell og myndum hans
tveimur UDVANDRANA og
INDVANDRANA, sem báðar eru
byggðar á hinum mikla bálki
Mobergs um vesturfarana. Af öll-
um myndunum hér að framan
kemur Udvandrana væntanlega
fyrst til sýninga. Efast ég ekki um,
að hún verður mörgum ógleyman-
leg kvöldstund — ekki aðeins
vegna þess að þar fer stórbrotið
listaverk, heldur Ifka vegna hins
að finna má i henni margar hlið-
stæður með vesturför landa okkar
fyrir 99 árum og fram undir alda-
mót. Þessar tvær myndir hafa
slegið öll aðsóknarmet i Sviþjóð
og viðtökur þeirra i Bandarikjun-
um eru litlu sfðri.
Troell er annars athyglisverður
leikstjóri og ásamt Bo Widerberg
helzti leikstjóri Svia, þegar frá er
talinn meistari Bergman. Troell er
43ja ára að aldri, Málmeyingur að
uppruna, kennari að mennt. Ljós-
myndun var tómstundagaman
hans á yngri árum, og þaðan var
stutt leið yfir i kvikmyndirnar.
Meðan hann fékkst við kennslu,
uppgötvaði hann eitt sinn, að
kvikmyndir eru tilvalið hjálpar-
tæki við kennslu, brá á leik og
gerði eina slíka kennslumynd fyrir
bekkinn sinn. Hana rak með ein-
hverjum hætti á fjörur sænska
sjónvarpsins, sem þótti töluvert til
hennar koma. Þar með var fsinn
brotinn og Troell fékk sín fyrstu
tækifæri. Hann komst i kynni við
Bo Wilderberg, sem var ungur rit-
höfundur á þessum árum og þeir
unnu töluvert saman. Til dæmis
annaðist Troell kvikmyndun á
fyrstu mynd Wilderberg — Barna-
vagninum.
Kvikmyndin átti hug hans allan,
er hér var komið sögu; hann sagði
skilið við öryggi kennslunnar og
hélt út I óvissuna, upp til
Stokkhólms, þar sem hann gekk
milli kvikmyndafyrirtækjanr
verkefnaleit. Enginn vildi lita
þessum unga sunnlendingi utan
einn framleiðandi — Olle Nord-
mark. sem einnig var kvikmynda-
tökumaður og er nú framleiðandi
hjá SF, einu stærsta kvikmynda-
fyrirtæki Svíþjóðar. Hann þóttist
sjá einhvern efnivið f piltinum og
útvegaði honum peninga til að
hann gæti gert stutta mynd. Fyrir
tilsstilli Nordmark kynntist Troell
Bengt nokkrum Forslund, fyrr-
verandi blaðamanni og fyrrverandi
kennara, sem nú var orðinn fram-
leiðandi og handritahöfundur.
Hann hálpaði Troell til að kvik-
mynda stutta mynd, er nefndist
UPPHAll I myrlandet, eftir kunnari
smásögu Eyvind Johnson (og sýnd
var hér i Norræna húsinu fyrir
nokkrum vikum að viðstöddu
fámenni). Myndin vakti verulega
athygli i Sviþjóð og með myndinni
HÁR HAR DU DITT LIV ári sfðar
voru Troell allir vegir færir. Náin
samvinna hefur verið með þeim
Troell og Forslund allt siðan og
Forslund hefur unnið að kvik-
myndahandritum mynda Troell,
svo sem OLE DOLE DOFF
(mánudagsmynd f Háskólabíói) og
nú að Vesturförunum.
Ýmiss meiriháttar kvikmynda-
félög hafa lengi haft augastað á
Vesturförum og buðu Moberg
heitnum gull og græna skóga fyrir
kvikmyndaréttin. Moberg heitinn
var hins vegar ósveigjanlegur og
það var ekki fyrr en hann hafði
séð HÁR HAR DU DITT LIV, að
hann sagði: „Verði Vesturfararnir
einhvern tima kvikmyndaðir, mun
Jan Troell annast það." Ekki veit
ég hvort Moberg auðnaðist að sjá
afprengi sitt holdgast á hvita
tjaldinu — hann andaðist um likt
leyti og siðari myndin var tekin til
sýninga.
I báðum þessum myndum hefur
Troell f kringum sig einvalalið
leikara, svo sem Liv Ullman, Max
von Sydow, Allan Edwall oq
Monicu Zetterlund. Von Sydow
leikur Karl Óskar og Ullman
Kristínu, hjón sem búa við örbirgð
og vonleysi i Smálöndunum, tekst
ekki að láta endana ná saman.
hvernig sem þau strita. og afráða
því að freista gæfunnar I Nýja
heiminum. Troell hefur einnig lagt
mikla rækt við hinn myndræna
þátt VESTURFARANA og er takan
viða hrífandi fögur — svo mjög að
hann hefur jafnvel verið gagn-
rýndur fyrir að birta áhorfandan-
um Svfþjóð fátæktarinnar i sfnu
fegursta skarti. „Sviþjóð er
falleg," svarar hann þá. „Taki
maður eðlilega mynd af sænsku
landslagi og framkalli það rétt, er
það fagurt. Það var ekki sfður
fagurt árin sem fólkið dó úr sulti.
Hvi skyldi ég þurfa að utata
Svíþjóð aðeins til að sýna þjóð-
félagslega afstöðu? Nei, ég leitast
við af einlægni að birta
áhorfandanum landið eins og það
leit þá út í augum fólksins."
Troell játar, að vitneskjan um,
að milljónir væntanlegra
áhorfenda kæmu að sjá myndina
með fyrirfram mótaðar skoðanir
um persónur og atburði eftir lestur
bókanna, hafi nærri orðið honum
ofviða, svo að við lá. að hann
afþakkaði boðið um að gera
myndirnar. En hann stappaði i sig
stálinu með þeim rökum, að hann
þyrfti Ifka að hugsa um þá, er
aldrei hefðu lesið þessar bækur
Mobergs. Raunar kvað hann alla
aðstandendur myndarinnar hafa
átt við þetta vandamál að striða.
„Af þessari ástæðu þurftum við
oft að bera saman bækur okkar.
Við reyndum jafnan marga lykla,
áður en við opnuðum dyrnar.
Kvikmynd er aldrei eins manns
verk. Kvikmynd er árangur sam-
vinnu. Ég fagna því aftur á móti að
hafa fengið að stýra þessari sam-
vinnu. En ég hefði ekki gert
Udvandrana að þeirri mynd. sem
hún er, einn mins liðs. Til að vera i
takt við tímann getum við sagt —
myndirnar eru árangur fjöl-
miðlunar."
Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓTATÚN 27 sími 25891. Fender Precision Bassagítar og Fender Bassman 50 bassamagnari til sölu. Upp- lýsingar í sima 36967 næstu kvöld.
Austin mini 1973 til sölu samkomulag með greiðslu, sími 1 6289. Tvær konur og karlmaður óskast strax til starfa i rækju- vinnslu í Kópavogi. Hálfsdags vinna ef óskað er. Sími 16260 á skrifstofutíma og 42 540.
Rafvirkjameistari 21 árs gamall piltur óskar eftir að komast að sem nemi í rafivrkjun. Uppl. í síma 34829 eða 84221 í dag eða morgun, eftir kl. 7. íbúð óskast til leigu á Akureyri. Uppl. í sima 95-4685 eftir kl. 7 á kvöldin.
Chevrolet Nova til sölu. Upplýsingar í síma 27951. Til sölu úrvals svanadúnsængur. Simi 92- 6517. Umbeðnar sængur óskast sóttar sem fyrst. Póstsendi.
Bíll til sölu Volvo fólksbill árg. '72, ekinn 53 þús. km. Skoðaður '74. Uppl. I sima 82935. Til sölu Fiat 127 árg. '73 til sölu. Ekinn 14 þús. km. Uppl. í síma 85757.
Til leigu ný 4ra herb. íbúð á Stóragerðis- svæðinu. Leigist frá miðjum ágúst. Tilboð er greini frá fjölskyldustærð sendist Mbl. fyrir miðvikudags- kvöld merkt: ..Leiga 18 — 1 489”. Til sölu Ford LTD. Country squire, mjög fallegur bill ekinn 60.000 km skipti á ódýrari bíl koma til greina. Upplýsingar í síma 201 60 og 37203.
Trérennibekkur. Ný semiátomatiskur rennibekkur til sölu. Verð kr. 250.000. —. Upplýsinqar eftir kl. 17 í síma 96-12490. Ungur laghentur maður óskar eftir að komast á samning hjá rafvirkja. Uppl. i síma 40432.
Okkur vantar litla íbúð í Reykjavík eða Kópa- vogi. Þrennt í heimili. Einhver fyrirframgreiðsla ef óskað er. Upp- lýsingar í síma (96) 12314. Flygel Gott (Baby Grand) Flygel til sýnis og sölu á Þingholtsbraut 19. Milli kl. 1 0 og 1 2 mánudag.
Ungt par með 1 barn óskar eftir að kaupa eða leigja íbúð i sjávarþorpi úti á landi, þarf að vera laus i septem- ber n.k. Tilboð sendist augl. Mbl. 1161. Hænuungar til sölu 2ja og 310 mánaða. Uppl. i sima 1 2622 milli kl. 1 9—2 1 siðdegis i dag og á morgun.
Til sölu Volvo 145 árg. '72 de luxe. Vel með farinn. Litið ekinn. Sem nýr. Rauður 7 manna. Uppl. i sima 33799. Nýlegt hjólhýsi, stærri gerð til sölu. Upplýsingar i sima 12572.
24 ára nemi óskar eftir 'h dags vinnu. Margt kemur til greina. Hef bil. Upplýsingar i sima 4291 3. Timbur til sölu Notað mótatimbur til sölu. 1x6 og 1x4. Sími 6296 Ólafsvík.
Keflavík 4ra herb. ibúð til leigu. Fyrirfram- greiðsla æskileg. Tilboð merkt: 961, sendist afgr. Mbl. i Keflavik. Keflavík — íbúð Einbýlishús til leigu. 3 herb. og eldhús. Uppl. í Krísuvík i gegnum 02.
Málið meira Finnbjörn Finnbjörnsson málara- meistari, sími 72209. mnRCFRLDRR mÖCULEIKR VÐRR
Veitingaskáli til sölu
Veitingaskálinn að Ferstiklu á
Hvalfjarðarströnd er til sölu ef
viðunandi tilboð fæst.
Allar nánari upplýsingar veitir
Árni Halldórsson hrl., Skóla-
vörðustíg 12, Reykjavík milli
kl. 2 og 4 virka daga, sími
17478.