Morgunblaðið - 30.08.1974, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGtTST 1974
29
BRUÐURIN SEM
HVARF
Eftir Mariu Lang
Þýöandi: Jóhanna Kristjónsdóttir
40
Anneli!
Þú hefur ekki svarað hinum
bréfunum mfnum og ég veit, að
ég er veikgeðja að gera enn eina
tilraun. Enéghefþjáðst svo ákaf-
lega mikið þessi sfðustu ár og
þráð þig mjög heitt... Nú þegar
ég er loksins frjáls langar mig að
minnsta kosti að segja það, sem
ég hef ekki getaðleyft mér fram
að þessu. ÉG ELSKA ÞIG. Eins
mikið og fyrr. Eða meira. Ég læt
undan þeim draumi, sem hefur
ieitað á huga minn daga og næt-
ur... og fyrstu vikuna eftir að ég
kem heim verð ég þess vegna f
húsi Carimarks. Húsinu okkar.
Ég verð þar frá og með föstu-
degi. Og ef þú svarar einnig með
þögn veit ég, hver hugur þinn er.
Mats.
Christer sá liljubreiðuna út um
gluggana. Mikilvægasta vitnið f
harmleiknum um Anneli Hamm-
ar hékk þarna úti með lífvana
augnaráð og tungu, sem aldrei
meira gæti tafað. Það var til hans,
sem hún hafði komið daginn fyrir
brúðkaup sitt og hér hafði hún
trúlegast verið þennan sólar-
hring, þegar hennar var leitað í
Skógum og íbúarnir fóru á mis
við bezta brúðkaup, sem vonazt
hafði verið eftir að þar yrði haldið
i mannaminnum. En hvað var
það, sem hér hafði gerzt milli
elskendanna tveggja, sem Hafði
haft þessar voðalegu afleiðingar
fyrir þau bæði?
Og þvílíkir voru duttlungar ör-
laganna, að hingað hafði hann
komið aðeins fáéinum klukkutím-
um of seint. Var það fyrirfram
ákveðið að hann fengi aldrei að
komast til botns í þessari gátu,
sem varð æ viðbjóðslegri og
óskiljanlegri með hverri stund-
inni sem leið?
Þegar Löving lögregustjóri kom
á vettvang með ótal lögregluþjóna
tók Christer á móti þeim, tottandi
pípu sína og á ytra borði hinn
rólegasti. Hann lýsti því yfir taf-
arlaust, að hann tryði ekki á til-
viljanir að minnsta kosti ekki
þegar þær væru af þessum toga
— að tilgang mætti merkja að
baki slíkra tilviljana.
Löving kvað fljótlega upp úr
með þá skoðun sfna, að augljóst
væri, að Mats Norrgárd hefði
framið sjálfsmorð og það væri í
sjálfu sér eins konar játning ...
með tilliti til morðsins á Anneli
Hammar.
Daniel Severin tautaði eitthvað
til merkis um, að þessi möguleiki
væri athugandi.
— Hann hefur smeygt reipinu
um hálsinn á sér og sparkað stóln-
um burt. Hvernig hefði annar get-
að dröslað honum upp f tréð nema
berja hann f rot áður?
— Og þú sérð engin merki þess,
að hann hafi orðið fyrir árás?
— Nei, ekki að svo stöddu.
Hann er mjög blár í andliti eins
og sjá má og miklar blæðingar
verið inn á augun, en það hefur
gerzt við henginguna. En sem bet-
ur fer er ég ekki sérfræðingur í
svona óhugnaði, svo að ég gef
enga endanlega yfirlýsingu.
Þeir höfðu lagt líkið til á jörð-
inni og það var engu lfkara en
fögur og tignarleg filjublómin
birtu enn frekar en áður andstæð-
urnar í þeim ljótleika, sem við
augum blasti. Daniel gizkaði á, að
maðurinn hefði látizt milli klukk-
an eitt og fjögur um nóttina, en
hann mælti með, að fljótlega yrði
hafin nákvæmari rannsókn.
Áður en Löving fór frá Skógum
hafði hann haft símasamband við
Carlmark skókaupmann og ekki
leið á löngu unz eiginkona hans
birtist og háfði ekið á mettíma frá
örebro.
Hún var grönn miðaldra kona
og keðjureykti amrfskar sígarett-
ur. Henni var mjög brugðið en
hún staðfesti athugasemdalaust,
að líkið væri af Mats Norrgárd og
gaf Christer síðan ýmsar harla
mikilvægar upplýsingar um hann.
— Við höfum þekkt Mats í að
minnsta kosti fimmtán ár. Hann
var mikill listmálari en hann var
ekki síður mikil manneskja. Ég
hef aldrei getað skilið, hvað hann
var umburðarlyndur og þolinmóð-
ur við þessa móðursjúku konu
sem hann var giftur. Víst veit ég,
að maður á ekki að tala illa um þá
dánu, en stundum verður maður
að vera hreinskilin og ef hana ber
á góma er ekki hægt að vera
hreinskilin nema vera líka um-
talsillur.
— Hvað amaði að henni?
— Eftir þvf sem ég bezt veit var
hún spiflt af dekri og frekja henn-
ar var takmarkalaus. En hún
kvartaði sýknt og heilagt undan
því, að hún væri slæm á tugum.
Og hún notfærði sér það til að
eitra tilveruna fyrir Mats. Ef hún
fékk ekki vilja sínum framgengt í
einhverju; ef hann lét í það skína,
að hann vildi losna úr hjónaband-
inú og lifa sínu eigin lífi, þá varð
hún alltaf fárveik ... lék píslar-
vott og sviðsetti sjálfsmorðstil-
raunir. Þær heppnuðust náttúr-
lega aldrei, en þær höfðu alltaf
sín áhrif á Mats og slógu öll vopn
úr höndum hans. Síðustu árin
voru hræðileg. Hann varð nefni-
lega ástfanginn af annarri konu
og eftir þvf sem ég veit bezt var sú
ást gagnkvæm, en hann þorói
ekki einu sinni að minnast á
skilnað við eiginkonu sfna af ótta
við —
— Vitið þér hver stúlkan var
frú Carlmark?
— Nei. En ég hef gert þvf skóna
hún væri héðan. Sumarið 1953 um
svipað leyti og nú, fékk hann bú-
staðinn lánaðan til að geta málað f
friði i nokkrar vikur. Við eigum
líka bát niðri við vatnið. Og ... já,
það var að þessari dvöl lokinni, að
hann sagði mér f trúnaði hvað
hann væri ólýsanlega vansæll og
að hann hefði tekið þá ákvörðun
VELVAKAINIDI
Velvakandi svarar I slma 10-100
kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi
til föstudags.
0 Hvaö verður
tekiö af
okkur næst?
Guðrún Lárusdóttir skrifar, og
hefur sjálf sett fyrirsögn:
„Nú þegar við íslendingar höf-
um valfrelsi og getum horft á
tvær sjónvarpsstöðvar og valið þá
dagskrána, sem betri er, verður
sú raunin á, að með okkur er farið
eins og ófrjálsa fólkið í Rússlandi.
Nú á að loka fyrir þá stöð, sem
byggir starfsemi sína á útsending-
urn skemmtiefnis og góðra þátta,
en f staðinn fáum við að horfa á
pólskar og rússneskar glæpa-
myndir eða þætti um dýralif f því
íslenzka sjónvarpi, sem yfirleitt
hættir útsendingum um kl. 22,
starfar ekki á fimmtudögum og
tekur sér mánaðarsumarfrí ár
hvert. Ofan á þetta allt saman er
svo hið lélega efni of dýrt.
Væri þá ekki rétt, að fólk léti
,,innsigla“ sjónvarpstækin hjá sér
til að sýna fram á, að það vill
sjálft ráða hvað það horfir á.
Hinir, sem vilja bara pólsku og
rússnesku myndirnar ásamt dýra-
lífsmyndum þurfa þá ekkert að
stilla yfir á aðra stöð.
Þeir, sem hafa aðstöðu til að
horfa á Keflavíkursjónvarpið
hafa látið setja fimm þúsund
króna stykki í tæki sín, þannig að
þeir verða beinlinis fyrir fjár-
hagslegum skaða við takmörkun
útsendinga stöðvarinnar.
Ef lokað verður fyrir þessa stöð,
hvað verður þá næst tekið af
„frjálsum og sjálfráðum ís-
lendingum"?
Með fyrirfram þakklæti
fyrir birtinguna,
Guðrún Lárusdóttir.“
• Heföi átt aö
syngja
þjóðsönginn
oftar á þjóðhátíð
Björg f Kópavogi skrifar:
„Ég var svo bjartsýn að halda,
að „Guð vors lands“ í allri sinni
fegurð og tign myndi hljóma um
allt land á 11 alda afmæli þjóð-
arinnar, og hefði mér þótt það
mikil hátfð.
Þess í stað kyrjuðu Islendingar
„ísland ögrum skorið". Þeir þurfa
vfst ekki bókmenntafræðing til að
útskýra það fyrir sér, auk þess
sem mér finnst niðurrifsmönnum
ganga vel að forheimska þjóðina“.
Velvakanda finnst nú ekki fal-
legt að tala um, að þjóðin hafi
kyrjað „ísland ögrum skorið“.
Margir hafa mætur á Iagi og ljóði,
en auðvitað má deila um það,
hvort þjóðsöngurinn hefði ekki
átt að heyrast meira á þjóðhátfð-
inni.
Hins vegar verður að taka tillit
til þess, að enda þótt þjóðsöngur-
inn sé hátíðlegur, ljóðið, eða öllu
heldur sálmurinn, og lagið falli
vel hvort að öðru, þá er það nú
svo, að það er ekki heiglum hent
að syngja þetta svo vel fari.
1 fyrsta lagi er lagið ákaflega
vandmeðfarið, og varla á færi
annarra en lærðra söngvara að
syngja það. Það tekur yfir mikið
raddsvið, — og hversu margir
„springa" ekki á „eitt eilífðar
smáblóm"? Þar að auki kunna
flestir aðeins fyrsta erindið. Það
er kannski dálítið hastarlegt að
þurfa að viðurkenna þetta, og má
hver mótmæla því sem vill.
Af þessum ástæðum hefur það
orðið svo, að þegar viðeigandi
væri að syngja þjóðsönginn, hefur
verið gripið til þess ráðs að syngja
ýmis ættjarðarlög, t.d. „fsland
ögrum skorið“, „Hver á sér fegra
föðurland“ og fleiri.
Stundum hefur verið rætt um
að taka upp þjóðsöng, sem ineira
yrði sunginn af almenningi en
þjóðsöngurinn núverandi, þótt
ekki hafi til þess komið að ræða
það f alvöru.
Vel mætti lfka hugsa sér að
hafa tvo söngva, en ekki væri úr
vegi að lesendur skiptust á skoð-
unum um þetta.
Velvakandi er ósammála
Björgu í Kópavogi um það, að
niðurrifsmönnum gangi vel að
forheimska þjóðina, eins og hún
segir.
0 Hver á aö
ráöstafa
óskilamunum?
Guðfinna Sigmundsdóttir skrif-
ar:
„Kæri Velvakandi.
Þann 22. ágúst birtist í Velvak-
anda grein, er fjallaði um 12 ára
stúlku, sem hafði fundið peninga-
buddu og skilað henni til lögregl-
unnar.
Þetta varð til þess, að mig lang-
aði til að segja frá atviki sem
gerðist fyrir nokkrum árum.
Ég dvaldist um tfma í Glasgow.
Dag einn fann ég armbandsúr. Ég
fór með það til næsta lögreglu-
þjóns, sem bað mig að gefa sér
upp nafn og heimilisfang.
Sfðar sama dag kom annar lög-
regluþjónn heim til mín og af-
henti mér miða, sagði mér að
geyma hann í hálft ár, en þá
mætti ég koma að vitja úrsins, og
fengi ég það til eignar, ef eig-
andinn hefði ekki gefið sig fram.
Ég fór til íslands, áður en ég
gæti vitjað úrsins.
Þegar hálft ár var liðið, kom
tilkynning um, að enginn eigandi
hefði gefið sig fram.
Nú fór konan, sem ég hafði
dvalizt hjá, til að nálgast úrið
fyrir mig, en henni var þá sagt, að
aðeins finnanda væru afhentir
munir.
Stuttu eftir að þetta gerðist tók
ég ákvörðun um að fara út aftur.
Þegar þangað kom var liðið um
eitt ár frá því að ég fann úrið.
Ég bjóst nú við því, að eftir svo
langan tíma væri tilgangslaust að
vitja þess, en fór samt, og var méi
afhent úrið.
Mér dettur í hug, að hægt væri
að hafa svipaðan hátt á hér á
landi.
Virðingarfyllst,
Guðfinna Sigmundsdóttir.“
Þetta er athyglisverð frásögn
og erum við sammála Guðfinnu
um, að þessi málsmeðferð gæt
verið til fyrirmyndar.
S3? SIGGA V/ÖGA S *\/LVE9AU
— Kjarvalshús
Framhald af bls. 12
degi mínum utan heimilis er
lokið. Myndlistarmenn geta þó
alltaf huggað sig við það að geta
kannski selt þau málverk, sem
þeir stelast til að mála í frí-
stundum, en við, sem stelumst til
að vinna í þágu ríkisins í frí-
stundum, eigum ekki von á
neinum peningum í staðinn. En
þetta er auðvitað okkar eigin
heimska. Mig langar samt að bæta
því við, að ég mundi gjarnan
þiggja að dvelja í sumar til dæmis
mánuð í Stokkhólmi eða jafnvel í
Kjarvalshúsinu og fá að vinna þar
í friði að þeim málum.sem ég hef
áhuga á, en hef engan tíma til að
koma í framkvæmd. En brauð-
stritið leyfir það ekki og við ferð-
umst heldur ekki langt, sem
eigum fjölfötluð börn. Ég nefni
þetta einungis til að sýna fram á,
að þeir eru margir hópamir i
þjóðfélaginu, sem verða að láta
sér nægja ófullnægjandi vinnu-
skilyrði.
Mig langar að lokum til að taka
það fram, að mér þykir mjög leitt,
ef allt okkar erfiði hefur einungis
orðið til þess, að við troðum öðr-
um um tær. Það var ekki mein-
ingin, enda hafa fjölfötluð börn
aldrei verið fyrir neinum í þessu
þjóðfélagi, þess hefur verið vel
gætt. Ég enda þessa grein með
ösk um það, að fái myndlistar-
menn ekki hús Kjarvals í haust,
þá fái þeir það strax næsta haust.
Það mundi þjóna hagsmunum
beggja aðila.
LJÓS &
ORKA
NÝJAR VÖRUR
Á GÖMLU VERDI
TÓKUM UPP í GÆR
VEGGLAMPA Á BÖD
LANDSINS
MESTA
LAMPAÚRVAL
Sendum í póstkröfu
LJÓS &
ORKA
Siiúurlaiulsbraut 12
simi S4488