Morgunblaðið - 15.09.1974, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.09.1974, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15, SEPTEMBER 1974 21 Elllr Glsla J. ÁslÐóPsson Eins og mér sýnlsl Hinn sanni íþrótta- andi? Maður er að vlsu hættur að stunda völlinn en mér finnst það samt fremur óhugnanlegt sem maður er að heyra úr islenska íþróttaheiminum, einkanlega þó knattspyrnunni. Ég sé ekki beturð fréttunum I blöðunum en að knattspyrnukapparnir okkar geri orðið litið annað en að klóra, klaga og klessa hver annan vilj- andi auk þess sem þeir húð- skamma vitanlega dómaragarm- inn eins og hann væri hvert annað úrhrak. Slðan fá llnuverðirnir sitt og er jafnvel hæðst að því þó að þeir séu með kúlumaga. Hér I gamla daga þegar bux- urnar á knattspyrnuköppunum okkar náðu vel niður fyrir hné þá var I mesta lagi öskrað af áheyr- endapöllunum: „Útaf með dóm- arann! Drepið helvltis svlnið!" eða svoleiðis smámunir. Enginn hefði kallað dómarann hjólbeinóttan apa nema I Itrustu neyð. Nú vaða knattspyrnuþjálfarar út á miðjan völl og taka dómaragreyið nánast kverkataki og flytja yfir honum svo hvltglóandi skammaræðu að flautan er næstum bráðnuð I munninum á honum. Meira að segja erlendir knattspyrnuþjálf- arar leyfa sér að gera þetta, eins og við eigum ekki nóg af fólum sjálfir. Það er llka orðin segin saga að knattspyrnukapparnir eru varla fyrr komnir inn I búningsklefann en þeir taka til við að kæra hver annan hver sem betur getur fyrir allskonar svindl og svfnarl. Það virðist alltaf einhver hafa leikið með að minnstakosti öðru fé- laginu sem er bara alls ekki I þvl, heldur á heima I einhverju herjans öðru félagi sem er venjulega hinu- megin á landinu ef hann er þá ekki dulbúinn lyftingamaður. Fyrir bragðið er annarhvor leikur dæmdur dauður og ómerkur þannig að knattspyrnuunnendur komast I þá óvenjulegu aðstöðu að hafa borgað sig dýrum dómum inn á völlinn til þess að glápa þar á leik sem var alls ekki leikinn! Fyrr má nú rota en dauðrota! Þetta er allt heldur dapurlegt og ég er stórefins um að hinn sanni Iþróttaandi svlfi þarna yfir vötn- unum. Sannir Iþróttaunnendur eru llka orðnir svo hvekktir að þeir komast varla skokkið óstuddir hvað þá þeir geti klofað yfir grindahlaupsgrind. Ég er feginn að ég skuli ekki vera knattspyrnu- galinn og þakka guði fyrir að ég skuli ekki vera dómari, og um línuverðina er það að segja að ég er alvarlega farinn að velta þvl fyrir mér hvort þeir séu ekki eitthvað skrítnir á milli eyrnanna. Það fer enginn ógalinn maður I stuttbuxur og stendur úti I roki og rigningu langt frai»J nótt til þess eins að fá það slðan iraman I sig að hann sé staurblindur idjót. Þar að auki er maðurinn látinn vera með flagg sem hann veifar lát- laust I kringum sig eins og flugur sæki að honum. Maður hlýtur að lokum að spyrja hvað allar þessar aganefnd- ir I knattspyrnunni sem varla er hægt að þverfóta fyrir séu eigin- lega að gera. Til hvers halda þær að þær séu? Halda meðlimir þess- ara nefnda að það sé nóg að fá frlmiða inn á leikina og komast I sjónvarpið einu sinni á ári til þess að munnhöggvast þar? Það þarf að sýna knattspyrnuköppunum okkar I eitt skipti fyrir öll að það gengur ekki að rota alla hina knattspyrnukappana. Aganefnd- irnar verða að taka fram stóra lurkinn. Það þýðir sýnilega ekkert að dæma knattspymukappa I leik- bann sem er nýbúinn að skora mark með mótherja slnum. Hann hlær bara að þvl. Þvl ekki að dæma hann til þess að horfa á knattspyrnuleik? Syndir feðranna f framhaldi af þvl sem hér var sagt um daginn um llfið undirein- ræðisstjórnum er kannski ómaks- ins vert að huga snöggvast að þeirri gegndarlausu hefndargirni sem er einn af mörgum Ijótum blettum á svokölluðu réttarfari I einræðisrlkjum. Það er semsagt ekki nóg með að sá fangelsaði geti átt von á ótrúlega ómannúðlegri meðferð þegar það hentar stjórn- völdum, heldur er fjölskyldu hans þegar mest er haft við útskúfað úr þjóðfélaginu og hún er hundelt og ofsótt með öllum tiltækum ráðum. Hér var sýnd fyrir skemmstu kvikmynd um meðferðina á Artur London sem var einn þeirra áhrifa- manna tékkneskra sem voru sak- aðir um nær allt undir sólinni I hinum svokölluðu Slansky-rétt- höldum I Prag 1952 sem lyktaði með aftöku ellefu af hinum fjórtán ákærðu. Mér var lánuð bók Londons um daginn um réttar- höldin og aðdraganda þeirra, en hann var einn þeirra þriggja sem „sluppu" með llfstlðardóm. Ég hafði. meðal annars áhuga á bók- inni vegna þess að þar er Hedu Margolius getið, konunnarsem ég sagði nokkuð frá I spjalli um ein- ræði og valdarán, þeirrar sömu sem fékk að kynnast miskunnar- leysi þessa stjórnkerfis tvisvar fremur en einu sinni, fyrst I Þýska- landi striðsáranna, þar sem hún var þrælkuð I fangabúðum, og þá I Tékkóslóvakfu upp úr valdaráninu '48, þar sem eiginmaður hennar var llflátinn fyrir upplognar sakir. Það tók flokksbræður Arturs London fjórtán mánuði að þvinga hann með pyndingum til þess að játa allar sakargiftir sem á hann voru bornar og slðan að læra þá romsu utanbókar (eins og þegar barn lærir trúarjátninguna) til þess að ekkert færi nú úrskeiðis við réttarhöldin. Það sem London mátti þola er of viðbjóðslegt til þess að það sé tiundað hér. en hinsvegar má lýsa þvl með örfáum orðum sem ég nefndi I upphafi máls míns: nefnilega hvaða af- leiðingar það getur haft fyrir að- standendurna I einræðisrlki þegar einhver úr fjölskyldunni er sviptur frelsinu. Lise, eiginkonu Londons, sem var frönsk að uppruna. var um- svifalaust vikið úr ábyrgðarstarfi hjá tékkneska rlkisútvarpinu og tjáð að hún mætti einungis vinna fyrir sér og slnum sem verkakona. Hún var flæmd úr fbúð sinni og vísað I aðra sem naumast gat kallast mannabústaður. Eftir nitján mánuði I bifreiðaverksmiðju var hún kvödd fyrir „verkamanna- ráðið" og rekin þaðan fyrirvara- laust — og forstjóri verksmiðj- unnar, sem bar ábyrgð á ráðningu hennar, settur af. Henni var þá gert að hefja vinnu I annarri og stórum lakari verksmiðju þar sem kjör hennar voru skert til muna með þv! að skrá hana sem lærling. Þar var Lise London, svo notuð séu hennar eigin orð, „látin vinna þau verk sem voru grófust og verst borguð og sem hitt starfs- fólkið neitaði að koma nálægt." Og þá dóttirin, Francoise London — fjórtán ára. Hér er það sem beið hennar við handtöku og fangelsun föður hennar: 1) Tjáð formlega að hún yrði „að bæta fyrir fortlð sína". 2) Tilkynnt við sama tækifæri að þótt hún hefði staðist tilskilin próf hefði umsókn hennar um leyfi til framhaldsnáms verið synjað. 3) Látin skilja að hún yrði að fara út I atvinnulffið strax. 4) Talið við hæfi I fyrstu að koma henni sem lær- lingi til sótara og að það yrði framtfðarstarf hennar. 5) Reynt að þvinga hana til að undirskrifa fimm ára starfssamning sem hefði þýtt að hún hefði orðið að dvelja fjarri móður sinni. 6) Tókst að lokum með þrautseigju sinni og hálfgerðri skilrlkjafölsun að komast I iðnnám I Prag; „og þannig varð það," svo að orð móð- ur hennar séu aftur notuð, sem Francoise London, 14 ára, „byrj- aði að læra vélsmlði". Lofi þeir svo og prlsi einræðis- kerfið sem það sýnist. Sumir þykj- ast raunar hafa uppgötvað „æski- legar" einræðisstjórnir gagnstætt „óæskilegum", sem eru þá raunar jafnan „til bráðabirgða", það er að segja rétt á meðan menn eru að klekkja á fyrirrennurum sinum I valdastól. Það er hinn slgildi fyrirsláttur hins rökþrota manns: Titgangur- inn helgar meðalið. En svo kom ný ríkisstjórn. Hún hafði ekki setið að völdum nema I nokkra sólarhringa, þegar forystu Alþýðusambands Islands þótti rétt að hvetja öll verkalýðsfélög landsins til þess að segja upp gild- andi kjarasamningum, enda þótt "fnpisfellingin, sem núverandi fíí'sstJórn ákvað, hefði verið’ minni heldur en sú gengisfelling sem varð frá áramótum og til loka valdatímabils vinstri stjórnarinn- ar. Að vísu má segja, að 17% gengisfelling núverandi stjórnar hafi einungis verið arfur frá fyrr- verandi stjórn, því að öllum heil- vita mönnum er ljóst, að gengis- felling var orðin staðreynd, þegar núverandi stjórn tók við, og ekki annað eftir en ákveða, hversu mikil hún yrði. Bankarnir höfðu hætt gjaldeyrisviðskiptum, eins og kunnugt er, og lýst yfir þvl, að gengið yrði ekki selt á sama verði og var, áður en tekið var fyrir gjaldeyrissöluna. Ýmis önnur dæmi mætti nefna um harla ólfk viðbrögð verkalýðs- forystunnar nú og á meðan vinstri stjórnin sat að völdum. En vonandi mun tíminn leiða I ljós, að ekki vakir fyrir verkalýðs- forystunni annað en bæta samningsaðstöðu sína með það eitt I huga, að unnt verði að tryggja hinum lægst launuðu betri kjör, án þess að hinir, sem betur eru I sveit settir, fái hækkanir, sem þjóðfélagið þolir ekki og mundu að sjálfsögðu stöðva framleiðslu landsmanna og leiða til atvinnuleysis á skömmum tíma. Þjóðin öll ætlast til mikils af forystumönnum launþegasamtak- anna. Abyrgð þeirra er mikil. Vonandi rfsa þeir undir þessari ábyrgð. Og ekki er ástæða til að bera brigður á heilindi þeirra — að óreyndu. Verkalýðsforystan hlýtur að hafa gert sér grein fyrir hættunni, sem að steðjar, og eng- inn trúir því, að sá leikur verði leikinn enn einu sinni, að hinir lægst launuðu fái t.d. 20% hækk- un, en hinir hæst launuðu 30—50% kaupgjaldshækkun nokkrum klukku tímum síðar eins og gerðist í sfðustu kjara- samningum í Loftleiðahótelinu. Þeir, sem reyna að koma í veg fyrir þá eðlilegu þróun, sem for- sætisráðherra hefur gerzt tals- maður fyrir; þeir, sem ekki eru reiðubúnir að bera skjöld fyrir þá, sem harðast hafa orðið úti í því efnahagsöngþveiti, sem ríkt hefur á Islandi, þeir verða kallað- ir til ábyrgðar af fullkominni festu og einurð og munu verða látnir standa fyrir máli sínu gagn- vart þjóðinni allri, svo að öllum geti verið ljóst, að þeir hafa barizt fyrir pólitískum eiginhagsmun- um, en ekki þjóðarhag. Vonandi slá nú allir skjaldborg um að það takmark náist, að efnahagslíf landsins komist á réttan kjöl og þeir, sem erfiðast eiga vegna nauðsynlegra efnahagsráðstafana fái réttlátar uppbætur f einhverri mynd til að jafna metin. Hvað hugðust vinstri menn fyrir? Astæða er til að ætla, að þroski landsmanna hafi aukizt svo, við bitra reynslu síðustu ára að þessu markmiði verði náð. Vitað er, að Alþýðubandalagið, Alþýðuflokk- urinn og Samtökin voru sammála um það í viðræðum við Fram- sóknarflokkinn um myndun nýrr- ar vinstri stjórnar að gera þyrfti svipaðar ráðstafanir og þær, sem núverandi rfkisstjórn hefur gert. Að vísu hafa þessir flokkar ekki haft siðferðilegt þrek til að fara eftir samfæringu sinni á Alþingi Islendinga og hafa þar sömu af- stöðu og þeir höfðu í þessum vinstri stjórnar viðræðum, þvi að þar sneru þeir öllum hlutum við, hlupust undan merkjum og reyndu að fiska atkvæði út á and- stöðu sína. Vafalaust eru ýmsir, sem hafa ekki séð í gegnum þennan blekkingarleik, en hvernig sem því líður er stjórnar- flokkunum nú mikilvægt frá sið- ferðilegu sjónarmiði, að allir þess- ir flokkar voru sammála um það, áður en núverandi rfkisstjórn var mynduð, að nauðsynlegt væri að vega að meinsemdinni og skera hana burt með róttækum aðgerð- um. Þessu til sanninda er m.a. forystugrein í Tímanum, „Nýir íhaldsflokkar", 6. sept. sl. Þar seg- ir m.a.: „Fyrir aukaþinginu hefur legið að afgreiða þrjú frumvörp, sem öll höfðu verið flutt með ein- um eða öðrum hætti af vinstri stjórninni á síðasta þingi. Þá voru bæði Alþýðubandalagið og Sam- tök frjálslyndra og vinstri manna eindregið fylgjandi þessum mál- um. Nú bregður hins vegar svo við, að þessir flokkar snúast hat- rammlega gegn þeim. Þingmenn þeirra, sem áður töldu þessi mál nauðsynleg, svo að hægt væri að halda uppi framfara- og jafnaðar- stefnu í landinu, hafa við þá breytingu að lenda f stjórnarand- stöðu gerzt mestu íhaldsmenn þingsins. Fyrst þessara mála er hækkun söluskattsins um tvö stig. Vinstri stjórnin beitti sér fyrir þessari hækkun á síðasta þingi. Hún var þá talin nauðsynleg til þess m.a., að ríkið gæti haldið uppi full- nægjandi niðurborgunum á vöru- verði, en það er ekki aðeins þýðingarmikið úrræði gegn verð- bólgunni, heldur stuðlar flestum ráðstöfunum betur að jöfnuði og bættum hag þeirra, sem erfiðasta aðstöðu hafa, t.d. stórra, fátækra fjölskyldna. Annað þessara mála er hækkun bensíngjaldsins, sem rennur f vegasjóð. Ef það fengist ekki fram, myndi vegaviðhald dragast saman og nýju vegaframkvæmd- irnar vera úr sögunni. Hér er því um mikið framfaramál að ræða, enda viðurkenndu bæði Alþýðu- bandalagið og Samtökin það á síðastliðnum vetri. Nú snúast þessir flokkar hins vegar gegn málinu af mikilli hörku. Með þvf eru þeir raunverulega að berjast fyrir verra vegaviðhaldi og minni framkvæmdum. Þriðja málið er verðjöfnunar- gjald á raforku. Ef það fengist ekki fram, yrði enn að hækka stórlega raforkuverð til þeirra, sem búa við óhagstæðasta verðið og lökustu aðstöðuna. Það myndi leiða til aukins óréttlætis og ójafnaðar, ef það fengist ekki fram. I þeim málum, sem aukaþingið fjallar um, hafa Alþýðubandalag- ið og Samtökin gengið undir merki íhaldsstefnunnar í verki, þótt þau geri það ekki i orði. Áreiðanlega hafa fylgismenn þessara flokka ætlað þeim annað en að taka að sér þetta hlutverk Sjálfstæðisflokksins, eftir að hann snerist til réttari vinnu- bragða." Auk þess höfðu vinstristjórnar flokkarnir rætt um 15% gengis- fellingu, ásamt öðrum efnahags- ráðstöfunum, sem nú hafa verið gerðar. Sumar þessar aðgerðir eru vafalaust sársaukafullar og óvinsælar, en allar nauðsynlegar til þess að sjúklingurinn grói sára sinna og þurfi ekki að búa við þau örlög, sem annars hefðu orðið: að verða óðaverðbólgu- og efnahags- öngþveiti að bráð. En slíkt hefði einungis leitt til atvinnuleysis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.