Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÖVEMBER 1974 Yakov A. Malik, sendiherra Sovétrfkjanna, fagnar Arafat að lokinni ræðu hans. slikra funda, en ekki veit ég hvort einhverjar fjöldatak- markanir voru settar á þessa fundi, en yfirleitt voru hóparn- ir fremur fámennir þótt háreystin væri sem um gífur- legan mannsöfnuð væri að ræða. I öllum tilfellunum voru lögreglumennirnir á verði 3—4 sinnum fleiri talsins en sjálfir fundarmennirnir. Greinilegt var á öllu, að lögreglumennirn- ir höfðu fengið ströng fyrir- mæli um að vera vel á verði, en sýna f-yllstu aðgæzlu í störfum, þvi að I tveimur tilfellum, er ég varð vitni að átökum milli Gyð- inga og fólks af arabískum upp- runa, skárust lögreglumennirn- ir í leikinn á svipstundu, dreifðu mannfjöldanum, en eftir INGVA HRAFN JÓNSSON mér aðgöngukort, var þar mik- ill ys og þys og liklega hefur starfsemi samtakanna sjaldan vakið eins mikla athygli og ein- mitt þennan dag. Hvert einasta sæti í fundarsalnum, nema sæti fulltrúa Israels, var skipað og áhorfendapallar og frétta- mannastúkur fullskipaðar. Maður fann greinilega eftir- væntingu og spennu i loftinu. Mikil óvissa ríkti um komu Arafats og enginn komutími hafði verið gefinn upp af öryggisástæðum. Voru raddir uppi um það, að hann myndi alls ekki koma og að fulltrúi hans myndi flytja ræðuna. Þetta reyndist þó aðeins orð- rómur eins og allir vita nú, en flugvél Arafats hafði lent á Kennedyflugvelli eldsnemma um morguninn, verið látinn staðnæmast úti á flugbrautinni, þar sem þyrla tók hann um borð og flutti hann rakleitt til S.Þ. Þar beið hann svo undir sterkri öryggisvernd, unz að því kom kl. 11.37, að Abdelaziz Bouteflika forseti þingsins bað siðameistara S.Þ. að vísa Arafat leiðina inn í fundarsalinn. Nokkrar vestrænar þjóðir mót- mæltu þvi, að Arafat skyldi tek- ið sem þjóðhöfðingja hjá S.Þ. með því að rísa ekki úr sætum, er hann gekk í salinn. Efni ræðu hans verður ekki rakið hér, en það vakti kannski hvað mesta athygli, er hann lýsti þvi yfir í ræðunni, að hann hefði komið til S.Þ. með ólífu- grein í hendinni og byssu frelsisbaráttumannsins og hann hafði í óbeinni hótun um aukin hryðjuverk, ef ekki yrði fallizt á tillögu sina um samein- aða Palestínu, þar sem kristnir menn, Múhameðstrúarmenn og Gyðingar byggju saman. Hann lauk ræðu sinni með þvi að tvítaka setninguna: „Látið mig ekki misssa ólífugreinina úr hendi mér“. Líklegast hefur það aldrei áður gerzt í sögu S.Þ., að vopn- aður maður hafi staðið þar í ræðustóli. Hins vegar er ekki ljóst hvort byssa Arafats var i Framhald á bls. 31 „Látið ÞAÐ fyrsta, sem mér datt I hug, er ég kom niður á hótelið mitt í New York nú í byrjun nóvem- ber, var, að einhver stórglæpur hefði verið framinn i nágrenn- inu, þvf að Lexington Avenue bókstaflega moraði af lögreglu- mönnum hvert sem litið var. Ég gizkaði á, að þeir, sem ég sá f fljótu bragði, væru 2—300 tals- ins. Ég vatt mér að varðstjóra, sem stóð á horninu á 52. stræti og spurði hann hvað væri um að vera og fékk svarið „Arafat og hans menn eru að koma“. Heimsókn Arafats og sendi- nefndar Frelsissamtaka Palestfnuaraba (PLO) til Sam- einuðu þjóðanna er óneitanlega sögulegur viðburður og er ef til vill gleggsta dæmið um hve mikil áhrif þjóðir þriðja heims- ins hafa innan samtakanna. Fram til þessa hafa þessi sam- tök Palestínumanna nær ein- göngu verið í fréttunum í sam- bandi við blóðug og miskunnar laus hryðjuverk, sem sett hafa hroll að þjóðum heims og er harmleikurinn á Ólympíuleik- unum í Mtinchen kannski nær- tækasta dæmið. Fyrir blaðamann, sem hefur hvað eftir annað þurft að skrifa fréttir af slíkum viðburðum og fylgjast með, úr fjarlægð að vísu, martröð og skelfingu fórnarlamba hryðjuverkasveita Araba, var það undarleg til- finning að sitja í sal Allsherjar- þings Sameinuðu þjóðanna og fylgjast með er meirihluti þing- heims, áhorfenda og jafnvel fréttamanna, reis úr sætum til að fagna með dynjandi lófataki þeim manni, sem er leiðtogi Paiestinuarabanna. Bandarísk yfirvöld og yfir- völd New Yorkborgar voru greinilega ákveðin I að gera allt, sem í mannlegu valdi stæði, til að tryggja öryggi Arafats og sendinefndar hans, þvi að öryggisráðstafanirnar, sem gerðar voru, voru hinar mestu í sögu borgarinnar, og eru yfirvöld þar í borg þó ýmsu vön. Hver einasti lögreglumað- ur og allt varalið borgarinnar var kallað út og má segja, að svæðið frá Lexington Avenue gegnum 3. og 2. stræti niður að aðalstöðvum S.Þ. við Austur- fljót hafi verið lögregluriki í rikinu. Það var heldur ekki að ástæðulausu að þessar öryggis- ráðstafanir voru gerðar, því að forystumaður einna öfgasam- taka Gyðinga í Bandaríkjunum hafði lýst þvi yfir i sjónvarps- viðtali, að ef menn hans kæm- ust i færi við Arafat myndu þeir myrða hann. Þessi maður var umsvifalaust handtekinn og settur í gæzluvarðhald og lausnartrygging ákveðin 12 milljónir ísl. króna. mig ekki missa ólífugreinina” Frásögn af komu Yassirs Arafats til Sameinuðu þjóðanna Leitað I tösku fréttamanns, áð- ur en hann fær inngöngu f aðal- stöðvar S.þ. Hvergi í heiminum, fyrir utan ísrael, búa jafnmargir Gyðing- ar á einum stað og i New York og þessir Gyðingar hata Araf at og hans menn. Fjölmörg sam- tök höfðu boðað til mótmælaað- gerða vegna komu Arabanna og varð ég vitni að mörgum slíkum fundum, þar sem vígorð og hót- arnir voru hrópuð. 1 Bandaríkj- unum geta allir fengið leyfi til handtóku engan mann. Einkum virtist ástandið tvfsýnt i annað skiptið á horni 46. strætis og 2. breiðgötu, en þá stóðu hópar Gyðinga og Araba andspænis hvorir öðrum handan götunnar og skiptust á ókvæðisorðum unz tveir Arabar komu hlaupandi yfir götuna og vildu tala við Gyðingana. Skipti engum tog- um, að þeir voru umsvifalaust barðir í götuna og ef lögreglan hefði ekki skorizt í leikinn hefði þarna getað orðið heiftar- legur bardagi, því að báðum var heitt I hamsi. I þessum hópum var fólk á öllum aldri, þótt mest bæri eðlilega á ungu fólki. Þegar ég kom inn í aðalstöðv- ar Sameinuðu þjóðanna á mið- vikudagsmorgun, eftir að hafa notið góðrar aðstoðar Tómasar Karlssonar varafastafulltrúa Is- lands hjá S.Þ. við að útvega Arafat lyftir báðum höndum sigrihrósandi, er hann gengur fyrir Allsherjarþingið. Byssu- hulstrið sézt greinilega. Wald- heim, Bouteflika og Morse, að- stoðarframkvæmdastjóri, f bak- sýn en að baki Arafats stendur siðameistari S.þ. Stuðningsmenn Arafats og stuðningsmenn Israela á fundum f New York. Sæti Israels f fyrstu sætaröðinni voru auð, er Arafat flutti ræðu sfna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.