Morgunblaðið - 12.01.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.01.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1975 3 Bollaleggingarnar um stjórnarmyndun í Danmörku: FÁST RADIKALAR TIL AÐ STYÐJA STJÓRN MEÐ JAFNAÐARMÖNNUM SF, KOMMÚNISTUM OG VS — EÐA TEKST HARTLING AÐ TRYGGJA SÉR STARFHÆFAN ÞINGSTUÐNING? Kaupmannahöfn 11. jan. Frá Braga Kristjónssyni. EFTIR nýafstaðnar þingkosn- ingar I Danmörku eru allar horfur mjög óljósar og útlit ekki fyrir þvf enn sem komið er, að öflugri ríkisstjórn verði á næstunni komið saman. Þau vandamál, sem við er að glíma, krefjast þó mjög skjótrar lausn- ar. Sigurvegarar þessara kosn- inga voru þeir Hartling for- sætisráðherra, sem með skel- eggum og heiðarlegum mál- flutningi lagði ástand mála í landinu fyrir kjósendur og fór fram á dóm þeirra í kosning- unum; auk þess framfaraflokk- ur Glistrups og svo að nokkru leyti Jafnaðarmannaflokkur- inn. Hartling gerði ráð fyrir, að Framfaraflokkur Glistrups myndi liðast í sundur í kosn- ingabaráttunni vegna innbyrðis sundurlyndis og skipulags- leysis og ekki síður vegna þess málavafsturs, sem lögmaðurinn á í, þar sem hann er sóttur til saka fyrir margvísleg brot á skatta- og hegningarlögum. En sjálfstraust og öryggi Glistrups er með ólíkindum. I kosninga- baráttunni fór hann um öll hér- uð landsins og hélt samkomur og lét fólk meira að segja borga aðgang. Voru þessar samkomur miklu meira sóttar en þegar þeir Anker Jörgensen og Poul Hartling boðuðu til sinna hefð- bundnu kosningafunda. I sjón- varpi var framkoma Glistrups örugg og þótt ýmsir séu þeirrar skoðunar, að lögmaðurinn sé fyrst og fremst meistari í því að hagræða málum sér i vil, tókst honum í kosningunum að halda nær óskertu fylgi flokksins þrátt fyrir samfelldar árásir allra blaða landsins gegn honum persónulega og flokki hans. Harling gerði ráð fyrir að ná um helmingi af fylgi Gli- strups til síns flokks. Þess i stað tók hann fylgið nær einvörð- ungu frá sinum eigin stuðnings- mönnum í öðrum flokkum. Leiðtogi jafnaðarmanna, Anker Jörgensen, hefur hvatt Hart- ling eindregið, síðast i morgun, til að segja af sér embætti for- sætisráðherra. Sjálfur vill Anker reyna að mynda stjórn án þátttöku Venstre. Hvort þetta áform Ankers Jörgensen tekst, kemur í ljós á næstu dögum og vikum, en það er ljóst, að Hartling er ákveðinn í að stjórna áfram og hefur hann lýst þvi yfir, að hann muni kalla flokkana til viðræðu um áframhaldandi samstarf við stjórn Venstre. Poul Hartling sagði i morgun; „Anker Jörgen- sen hefur hvatt ríkisstjórnina til að segja af sér og víkja fyrir ríkisstjórn, sem mynduð yrði undir forsæti hans. Hvað koma myndi út úr slíkri tilraun er auðvitað of snemmt að segja til um. En ég hlýt að benda ein- dregið á, að flokkaskiptingin i þjóðþinginu er þannig að ég get alls ekki séð að ríkisstjórnin sé í minnihluta eins og hlut- föllin eru.“ í gær, föstudag hófust viðræður Hartlings við hina flokkana i þjóðþinginu og standa yfir allan laugardaginn. Ahrifamenn í stjórnarflokkn- um segja þó, að alls ekki sé búizt við þvi, að stefnt sé að breiðari rikisstjórn að þessu sinni heldur eru viðræðurnar fyrst og fremst könnunarvið- ræður, en rikisstjórnin hafi fullan hug á þvi að sitja áfram. Jafnaðarmenn, SF, kommún- istar og vinstri sósíalistar hafa samtals aðeins 73 þingmenn af 179 þingmönnum alls. Ríkis- stjórnarflokkurinn ásamt mið- demókrötum og Kristilega þjóð- arflokknum, Ihaldsflokknum og Radikale hefur 78 þing- menn. Áður höfðu þessir flokkar 81. Auk þess eru hinir 24 þingmenn Framfaraflokks Glistrups en hann hefur ákveðið hvatt til stuðnings við stjórn Hartlings og lagzt mjög eindregið gegn stjórnarmynd- un jafnaðarmanna og hugsan- legri samsteypustjórn þeirra. Glistrup segist ekki undir nein- um kringumstæðum munu styðja stjórn Jörgensens. Ef Radikali flokkurinn myndi styðja stjórnarmyndun jafn- aðarmanna er þingmannafjöldi að baki slíkrar . stjórnar 86. Þingmenn Færeyja og Græn- lands, fjórir samtals, myndu etv. bæta þremur stuðnings- mönnum við vinstri væng þingsins. Það er þó ekki nægjanlegt til að fella stjórn Hartlings þvi að meirihlutinn verður að hafa 90 þingmenn af 179. Gert er ráð fyrir, að 3 af 4 þingmönnum Færeyja og Grænlands muni styðja jafn- aðarmenn og sósialista, en einn borgaraflokkana. Ef Hartling hefur stuðning Radikalaflokks- ins, sem telja má líklegt, hefur hann því 78 þingmenn að baki stjórninni gegn 76 þingmönn- um jafnaðarmanna og annarra flokka, sem vilja losna við ríkis- stjórnina. Ef Radikaliflokkur- inn myndi ekki vilja styðja Hartling, á stjórnin hins vegar visan stuðning Glistrups og flokks hans með 24 þingmenn. Talið er, að Anker Jörgensen vinni nú þegar að þvi bak við tjöldin að mynda minnihluta- stjórn jafnaðarmanna og Radi- kala. Ýmsir reikna með, að mið- demókratar myndu fáanlegir til þessa samstarfs og Kristilegi þjóðarflokkurinn auk SF. Þá er gert ráð fyrir, að slík stjórn myndi njóta viss stuðnings kommúnista og vinstri sósial- ista. Ef hægt væri að koma sliku samstarfi á laggirnar myndi sú stjórn njóta stuðnings 99 þingmanna, en þetta er þó talið fremur hæpið nú. Þó voru í morgun fundir með jafnaðar- mönnum og radikölum. Kristilegi þjóðarflokkurinn, sem vann þó nokkuð á i kosningunum, hefur lýst þvi yfir, að hann vilji vinna að stjórnarsamstarfi núverandi stjórnarflokks og jafnaðar- manna. Því sama hefur Hilmar Baunsgaard, formaður radi- kala, lýst yfir. En ef slík áform reynast ekki framkvæmanleg, aðallega vegna ósamkomulags um forystu slíkrar stjórnar, gæti samstarf jafnaðarmanna og radikala orðið ofan á. Fram- ámenn innan Jafnaðarmanna- flokksins sögðu í morgun, að þeir gerðu ráó fyrir stuðningi Kristilega þjóðarflokksins og miðdemókrata ef radikalir yrðu með í myndun slíkrar stjórnar. Það eru því margar blikur á lofti i dönskum stjórnmálum þessa dagana. Á meðan bíða hin knýjandi verkefni óleyst. Hluti kjarasamninga verkalýðsfélaga og atvinnurekenda er nú kominn til sáttasemjara rikis- ins. Atvinnuleysi vex um eitt þúsund manns daglega. Hver sem ofan á kann að verða í átökum næstu daga og vikna í hinu flókna baktjalda- makki stjórnmálanna þarf því ekki að kviða verkefnaleysi þegar sú kreppa leysist, sem greinilega rikir í dönskum stjórnmálum. Þessi teikning gefur góða mynd af þeirri togstreitu og valdabaráttu, sem nú er í dönskum stjórnmálum að þingkosningunum loknum. GAMBIU FERÐIR Vikuferðirtil Kaupmannah.: 31. jan. „Exh Buildinq Products" 14. feb. „Scandinavia Men's Wear Fair" 3. mars „Shoe Fair Exh " „International boat show" 14. mars ,. 1 9th Scandinavian Fashion Week '75" Flug, gisting og morgunverður 29 500 kr Kanaríeyjar Jan.: 1 7 og 31 ' Febr.: 14 28 Marz: 14. 28 Apríl: 4. 18 VERO INGRAM I 2ja m. herb kr 20.800 i 1 m. herb kr. 21 600 LONDON | Ódýrar viku ferðir! I Janúar: 1 8 og 25 { Febrúar: 18. 1 5. og 22. Marz: 1 8 1 6 og 22 Apríl: 5 12 1 9 og 26 Brottför: Brottför: 8. febr. 22 febr. 8. marz. 22. mai (páskaferð) 1 6. jan 23. jan. 6 feb 13 feb 27. feb 6 marz 20. marz 27 marz 1 7. april 1 mai 4 vikur 2 vikur 3 vikur 3 vikur 3 vikur 3 vikur 2 vikur 3 vikur 2 vikur 3 vikur KENYA Brottför 1 7 dagar viku Safari Vika við Indlandshaf, 2 dagar i Nairobi Fyrsta flokks aðbúnaður. FerSaskrifstofan VERÐ REGENT PALACE i 2ja m herb kr 24.200 i 1 m herb. kr. 27.100 CUMBERLAND i 2ja m herb kr 28 900 i 1 m. herb kr 31 800 til Austurríkis 1 7 dg. Brottför 1 feb og 1 mars mars. 25. janúar 22. febrúar 22. mars (páskaferð)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.