Morgunblaðið - 03.07.1976, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.07.1976, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JULÍ 1976 LOFTLEIDIR -TS- 1 1190 2 11 88 /^BILALEIGAN— felEYSIR i CAR LAUGAVEGI66 FIENTAL 2446° G ,'28810 h Útvarpog stereo,.kasettuta3ki FERÐABÍLAR hf. Bítaleiga, sími 81260. Fólksbílar, stationbilar, sendibíl- ar, hópferðabílar og jeppar. ® 22 022 RAUOARÁRSTIG 31, Þökkum öllum okkar góðu vinum, sem á ýmsa lund glöddu okkur á ógleymanlegan hátt á sjötugs afmælum okkar 1 . og 1 3. júní. Drottinn belssi ykkur. Sigurborg Eyjólfsdóttir og Guð/e/fur Bjarnason Sörlaskjóli 44 Reykjavík Yfirlitssýning á íslenzkum útsaumsgerðum í tilefni af norræna handa- vinnukennaraþinginu, sem nú stendur yfir í Reykjavík, hefur verið komið fyrir yfirlitssýningu á fslenzkum útsaumsgerðum í for- sal Þjóðminjasafns Islands, en þar — og vfðar í söfnum hérlend- is og erlendir — er varðveitt mik- ið af íslenzkum útsaumi frá fyrri öldum. Elsa E. Guðjónsson hefur í þessu sambandi skrifað eftirfar- andi um íslenzkan útsaum: „íslenzki útsaumurinn sem varðveitzt hefur frá miðöldum ber með sér að hannyrðir hafi þá þegar náð sérstæðri þróun hér á landi. Uppdrættirnir eru náskyld- ir lýsingum handritanna, og sköp- uð voru áhrifamikil verk með til- tölulega grófgerðum aðferðum og efnum.“ „Flestar íslenzkar hannyrða- konur fyrri alda verða aldrei nafngreindar. En það dregur hvorki úr fegurð útsaumsverk- anna sem eftir þær liggja né þeirri virðingu, sem við hljótum að bera fyrir þessum óþekktu for- mæðrum okkar, sem gegnum ald- irnar skeyttu spor við spor og sköpuðu með því sum beztu lista- verk þjóðarinnar." Ætlunin er að sýningin standi fram eftir sumri. Þeir buðu lægst Lögn 3. áfanga í dreifikerfi hitaveitu í Hafnarfjörð var boðin út hjá Hitaveitunni. Lægstbjóð- andi var Grétar Sveinsson og Rúnar Smárason, buðu kr. 27.233.900. Stálumbúðir voru lægstbjóð- endur í útboð á 500 sorpílátum fyrir borgina. Upphæð þeirra var 4,4 millj. kr. og lægstbjóðandi í sex dreifistöðvar fyrir Rafmagns- veitu Reykjavíkur var Hrafn Björnsson í Hveragerði, sem býð- ur kr. 5.680.140 í verkið. Útvarp Reykjavík L4UG4RD4GUR 3. júlí MORGUNNINIM 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55 Morgunstund barnanna kl. 8.45: Sigrún Valbergsdóttir heldur áfram lestri „Leyni- garðsins" eftir Francis Hod- gson Burnett (12). Oskalög sjúklinga kl. 10.25: Kristín Sveinbjörnsdóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SÍÐDEGIÐ 12.25 Fréttir og veðurfegnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 (Jtogsuður Ásta R. Jóhannesdóttir og Hjalti Jón Sveinsson sjá um sfðdegisþátt með blönduðu efni. (16.00 Fréttir. 16.15 Veður- fregnir). 17.30 Eruð þið samferða til Afríku? Ferðaþættir eftir Lauritz Johnson. Baldur Pálmason les þýðingu sína (8). 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. KVÓLDIÐ 19.35 Fjaðrafok Þáttur I umsjá Sigmars B. Haukssonar. 20.00 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 20.45 Framhaldsleikritið: „Búmannsraunir" eftir Sigurð Róbertsson Fyrsti þáttur: Á rangri hillu. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Persónur og leikendur: Geirmundur heildsali/ Rúrik Ilaraldsson Jóseffna kona hans/ Sigrfður Hagalín Baddi sonur þeirra/ Hrafn- hildur Guðmundsdóttir Sigurlfna (Sfsí) skrif- stofustúlka/ Sigrfður Þor- valdsdóttir Dagbjartur fasteignasali/ Helgi Skúlason Jónas rukkari/ Guðmundur Pálsson Aðrir leikendur: Kristján Jónsson, Hjalti Rögnvalds- son, Knútur R. Magnússon og Klemenz Jónsson. 21.40 Gamlir dansar frá Vínarborg Hljómsveit Eduards Melkus leikur. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. SUNNUD4GUR 4. júlí MORGUNNINN 8.00 Morgunandakt Séra Sigurður Pálsson vígslu- hiskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregn- ir. Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Konsertsinfónía f B-dúr op. 84 eftir Haydn. Georg Ales, André Remond, Emile Mayousse og Raymond Droulez leika með Lamoureux-hljómsveitinni f Parfs; Igor Markevitsj stjórnar. b. Te deum eftir Hándel Janet Wheeler, Eileen Laurence, Francis Pavlides, John Ferrante og Joljn Dennison syngja með kór og hljómsveit Telemannfélags- ins f New York; Richard Schulze stjórnar. c. Pfanókonsert nr. 24 í c- moll (K491) eftir Mozart. André Previn leikur með Sinfónfuhljómsveit Lund- úna; Sir Adrian Boult stjórn- ar. 11.00 Messa í Dómkirkjunni Séra Pétur Ingjaldsson prófastur á Skagaströnd prédikar; séra Þórir Steph- ensen og séra Páll Þórðarson þjóna fyrir altari. Organleikari: Ragnar Björnsson. (Hljóðr. 28. júní við setningu prestastefnu). 12.15 Dagskráin. Tónleikar. SÍÐDEGIÐ 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Mér datt það í hug Haraldur Blöndal lögfræð- ingur spjallar við hlustend- ur. 13.40 Miðdegistónleikar: Frá tónlistarhátfðinni í Schwetz- ingen f maí I Solisti Veneti ieika hljóm- sveitarverk eftir Albinoni, Galuppi, Tartini, Bussotti og Vivaldi. 15.00 Hvernig var vikan? Umsjón: Páll Heiðar Jóns- son. 16.00 Geysiskvartettinn syng- ur nokkur lög Jakob Tryggvason leikur meða á pfanó. 16.15 Veðurfregnir. Fréttjr. 16.25 Alltaf á sunnudögum Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 17.10 Barnatími: Guðrún Birna Hannesdóttir stjórnar Kynning á norska barna- bókahöfundinum Alf Pröys- en og þjóðsagnasöfnurunum Asbjörnsen og Moe. Lesarar auk stjórnanda: Svanhildur Óskarsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson. Einnig leikin og sungin norsk tónlist. 18.00 Stundarkorn með ftölsku söngkonunni Mirellu Freni Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. KVÖLDIÐ 19.25 Orðabelgur Hannes Gissurarson sér um þáttinn. 20.00 Bandarfkin 200 ára a. Píanókonsert f F-dúr eftir Georg Gershwin Sondra Biancha og Pro Musica hljómsveitin í Hamborg leika; Hans-Júrgen Walther stjórnar. b. Stjórnarskráryfirlýsing Bandarfkjanna fyrir 200 ár- um. Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri flytur erindi. c. Bandarfsk tónlist. Leifur Þórarinsson tónskáld spjall- ar um hana. d. „Milljónarseðillinn", smá- saga eftir Mark Twain. Valdi- mar Ásmundsson þýddi. Þór- hallur Sigurðsson leikari les. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög Sigvaldi Þorgilsson dans- kennari velur lögin og kynn- ir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. Nýtt íslenzkt framhaldsleik- rit eftir Sigurð Róbertsson Laugardaginn 3. júlí kl. 20.45 hefst nýtt íslenzkt framhaldsleikrit í fjórum þáttum eftir Siguró Ró- bertsson, sem nefnist „Búmannsraunir". Leik- stjórn annast Klemenz Jónsson, en með helztu hlutverkin fara Rúrik Haraldsson, Sigríður Hagalín, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Sig- ríður Þorvaldsdóttir. í leikritinu segir frá Geirmundi heildsala í Reykjavík, sem flýr inn- heimtumenn og aðra ,,óáran“ og sezt að uppi í sveit, ásamt konu sinni, Jósefínu, syninum Badda og Sísí skrifstofustúlku. Margt drífur á daga þeirra, enda lífsbaráttan á annan veg en í höfuð- staðnum. Skrifstofu- stúlkan reynist hafa ráö undir rifi hverju, og það kemur sér líka betur eins og allt er í pottinn búið. Þetta er gamansamt verk, sem ekki má taka of bókstaflega, þótt margt eigi sér þar sjálfsagt hlið- stæður í veruleikanum. Sigurður Róbertsson er fæddur að Hallgils- stöðum i Fnjóskadal árið 1909. Fyrsta bók hans, smásögusafnið „Lagt upp í langa ferð“, kom út árið 1938. En hann hefur líka skrifað allmargar skáld- sögur og leikrit. Af skáld- sögum hans má nefna „Augu mannanna,, (1946), „Veg allra vega“ (1949) og „Arf- leifð frumskógarins" (1972). Fyrsta leikrit hans var „Maðurinn og 5 B ERf hejI HEVF R u Klukkan 20,45 húsið,, (1952), en síðan hafa fleiri bætzt við. Þjóðleikhúsið sýndi „Dimmuborgir" 1963, og útvarpið hefur flutt eftir hann eftirtalin leikrit: „Mold“ 1965, „Stormur- inn“ 1972, „Hans há- göfgi“ (framhaldsleik- rit) 1974 og „Höfuðbólið og hjáleigan" 1975, auk þess sem „Dimmuborgir“ var einnig flutt þar. Sigurður hefur lengst- um stundað verzlunar- og skrifstofustörf, en ferð- azt talsvert og kynnt sér leikhús og leiklist í ýms- um löndum. Hann sækir efnivið sinn jöfnum höndum í heilaga ritn- ingu og íslenzkt þjóðlíf. Ekki hvað sízt hefur sveitabúskapurinn og bændamenningin orðið yrkisefni hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.