Morgunblaðið - 01.08.1976, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. ÁGÚST 1976
21
Æji, hann fer ekki í sömu rútu og ég.
Magnús Kr. Guðmundsson kaupmaður í Öldunni.
# Á HORNI Öldugötu og Unnar-
stfgs, á rólegum og friðsælum
stað, er verzlunin Aldan og er
eigandi hennar Magnús Kr. Guð-
mundsson. Við hðfum samtaiið á
þvf að spyrja hann hvenær hann
hefði hafið rekstur búðarinnar:
„Ég kom hingað vorið 1960 og
stofnaði þessa búð, en ég hef ver-
ið við verzlunarstörf alveg frá því
um fermingu, meðal annars unnið
hjá Axel í Barmahlíðinni. Ég hef
alltaf átt heima f Reykjavfk þar
sem ég er fæddur og uppalinn.
Fyrstu störf mín f verzlunar-
stéttinni voru sendilstörf hjá
verzluninni Fell og hef ég óslitið
verið við ýmis konar verzlunar-
störf nema að f þrjú ár vann ég
hjá Steindóri við akstur. Mig
langaði alltaf að komast einhvers
staðar inn og vera minn eigin
herra, hugurinn stefndi að þvf að
vera f þessari þjónustu áfram og
þar kom að ég gat fengið þetta
húsnæði leigt og hóf reksturinn
hér.
Áður en ég vann hjá Steindóri
vann ég f nokkur ár í búðinni
Blóm og ávextir við skreytingar
„Rólegt
horn og
heimilis-
legt”
og fleira og þá áttu hana þær Ásta
Jónsdóttir frá Reykjum og Ólaffa
Einarsdóttir frá Hofi. Ég var
lengi að velta því fyrir mér hvort
ég ætti ekki að halda áfram f
blómunum en svo barst þessi búð
eiginlega upp í hendurnar á mér
og ég sló til.“
Er samkeppni milli búðanna
hér í hverfinu?
„Ekki er nú hægt að segja það
beint, þetta horn er nokkuð vin-
sælt a.m.k. hjá þvf eldra fólki sem
býr í hverfinu og skiptast menn
nokkuð niður á búðirnar hér.
Maður hefur samband við hvern
og einn og náin kynni við fólkið
sem er yfirleitt af eldri kynslóð-
inni, en það er ekki mikið um
yngra fólk hér f hverfinu. Þó er
það smám saman að safnast hing-
að og ég held að það komi jafnt
hingað og eldra fólkið."
Ekki hélt Magnús að störu
búðirnar tækju marga viðskipta-
vini frá sér, þeir sem verzluðu við
hann hefðu margir ekki bíla og
gætu því tæpast farið eftir vörum
lengst austur í bæ.
„Stóru verzlanirnar veita oft
ekki þá persónulegu þjónustu
sem við getum veitt f minni
búðunum, hérna á maður sína
kunningja og þetta er rólegt horn
og heimilislegt að vera hér og
nágrannarnir koma við og spjalla.
Ég reyni að aka vörum heim til
þeirra sem þess óska.
Við erum tvö hérna yfirleitt, en
ég bæti svo við þegar eitthvað er
um að vera t.d. fyrir hátiðir, sagði
Magnús Kr. Guðmundsson að lok-
um.
• „ÉG BYRJAÐI 15 ára gamall f
fiskbúðinni Sæbjörgu, 17 ára fór
ég að vinna I Kiddabúð, en hér
hef ég nú verið með mfna eigin
verzlun f 21 ár, við eigum afmæii
á morgun, verzlunarmannnafrf-
daginn," sagði Einar Strand f
Skjólakjöri við Söriaskjói.
„Nei, mér hefur aldrei dottið f
hug að gera neitt annað, það er
bezt að halda sig við það, sem
maður gerir bezt.“
— Hvernig leizt honum á að
fara að selja mjólkina lfka?
„Ég hef nú stundum selt mjólk,
þegar mjólkurbúðin hér við hlið-
ina hefur verið lokuð, t.d. vegna
breytinga. Þá hef ég fengið 7% af
sölunni, sem er nú ekki mikið til
að reka verzlun á, þannig um
beinan ágóða verður tæpast að
ræða. En mjólkin dregur að sjálf-
stögðu til sfn fleiri viðskiptavini
og þetta er betri þjónusta."
Talandi um þjónustu, hvað um
opnunartfma verzlana?
„Jú, það er að sjálfsögðu ekki
21 ár á
horninu
nægilega góð þjónusta við við-
skiptavinina, að hafa ekki opið
t.d. á laugardagsmorgnum. Það er
það mikið af fólki, sem hreinlega
kemst ekki f búð á öðrum tíma.
Samningarnir kveða svo á um að
afgreiðslufólk skuli ekki vinna
nema vissan tímafjölda á viku,
allir tfmar umfram eru á helgar-
taxta, svo það svarar naumast
kostnaði fyrir stórar verzlanir
með margt starfsfólk að hafa opið
á laugardögum, En við, litlu kaup-
mennirnir, sem afgreiðum sjálfir,
ættum að geta haldið þvf áfram.“
Verðurðu var við að fólk hafi úr
minni peningum að spila?
„Það er deyfð yfir verzlun um
hásumartfmann, þetta er orðinn
svo mikill fjöldi, sem fer úr bæn-
um f löng sumarfrí. En að öðru
leyti gengur þetta mikið sinn
vanagang, hvorki meira né
minna".
Ertu bjartsýnn á framtfð
smærri verzlananna f samkeppn-
inni við risabúðirnar?
„Já, það er ég. Ég er þess full-
viss að við höldum velli. Og ein-
mitt á versnandi tfmum held ég
að fólk hljóti að eiga erfitt með að
leggja út fyrir miklum innkaup-
um og komi frekar til okkar.
Og fyrst þú ert að þessu spjalli
að tilefni frfdags — verzlunar-
rnanna", sagði Einar að lokum,
„þá fer hann að verða að öfug-
mæli f okkar eyru. Við hljótum að
vera eina stétfin, sem þarf að
vinna af sér frfdaginn. Hjá okkur
er aldrei meira að gera en einmitt
fyrir þessa helgi, alveg fram á
kvöldið, en allir aðrir en
verzlunarmenn nota tækifærið til
að hætta vinnu um miðjan föstu-
dag. Það er eiginlega búið að stela
fríinu frá okkur."