Morgunblaðið - 01.08.1976, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. ÁGUST 1976
23
Verzlunarmannahelgi á íslandi. Lopapeysur, gFtarog kók.
Bjarni Bjarnason fyrir framan bygginguna þar sem verzlun hans er til húsa.
„Mönnum
er beinlín-
is hegnt
fyrir
hagstæð
innkaup”
um væntanlega byggingu á henni.
Viö byrjuðum að byggja vorið
1973, og húsið var tæp tvö ár í
smíðum. Seinna árið þótti mér
verkið ganga of hægt, svo að ég
seldi Brekku og vann sem verk-
stjóri við bygginguna til áramóta.
Verslunin, sem nú heitir Kjör-
búð Bjarna, var svo opnuð 21.
mars 1975. Sjálf verslunin er á
167 fm gólffleti, en með geymsl-
um og öðru aukarými er húsnæð-
ið 300 fm. I haust keypti ég annað
eins pláss á efri hæð, svo að nú
hef ég 600 fm til umráða. Hug-
myndin er að stækka búðina í 300
fm, en þá get ég haft kjötvinnslu,
kæliklefa og alls konar geymslur
ásamt vistarverum starfsfólks á
efri hæðinni. Nú vinna 15 manns
við verslunina.
— Hvernig það er að reka versl-
un núna? Ég tel það alveg sæmi-
lega gott fyrir duglega menn, en
það krefst afar mikillar vinnu.
Það þarf að fylgjast vel með og
gera hagstæð innkaup. Nærri
helming af öllum vörum verslun-
arinnar flyt ég frá Reykjavík, og
þess vegna þarf ég mikið
geymslurými. Um þriðjungur af
vörunum, sem ég hef til sölu, fæst
ekki annars staðar hér I bænum.
Jú, maður fékk náttúrulega bölv-
aða skelli í fyrra, þegar sykur-
verðið var að hlaupa upp og nið-
ur, en nú er orðin meiri ró yfir
verðlaginu.
— Já, ég er bjartsýnn á framtfð-
ina, ég get ekki annað sagt. Mig
dreymir náttúrulega um. að þess-
um löngu úreltu verðlagsákvæð-
um, sem við búum við enn, verði
breytt í skynsamlegra horf. Mönn-
um er beinlfnis hegnt fyrir hag-
stæð innkaup. Eftir þvf sem ég
kaupi inn dýrari vöru, því hærri
álagningu fæ ég í krónutölu sam-
kvæmt þessari vitleysu, sem gild-
ir í dag.
— Svo gótti ég um þessa lóð
hérna og fékk hana. Það taldist til
tíðinda, því að ég veit ekki betur
en það hafi verið í fyrsta og eina
skiptið, sem kaupmanni hefur
verið úthlutað verslunarlóð, sem
KEA hefur jafnframt sótt um.
Hún er 10 þús. fermetrar, og við
vorum 7 aðilar, sem stofnuðum
hlutafélagið Verslunarmiðstöðina
• KAUPANGUR heitir eitt af
stærstu verslunarhúsunum á
Akureyri og stendur á stórri lóð á
horni Þingvallastrætis og Mýra-
vegar. Þar eru nú ekki færri en 10
fyrirtæki og stofnanir, en stærsta
verslunin f húsinu heitir Kjörbúð
Bjarna. Eigandi hennar, Bjarni
Bjarnason, er einnig einn af aðal-
eigendum hússins og frumkvöð-
ull að byggingu þess, góður full-
trúi ungra athafnamanna á Akur-
eyri. — Hann hefir þetta að segja
um starf sitt og starfsferil:
i
— Ég byrjaði verslunarrekstur
með þvf að stofna Brekku vorið
1967, og þar seldi ég aðallega mat-
vörur og hreinlætisvörur. Hús-
næðið var nú ekki stórt, en mér
gekk vel. Vinnutfminn var vitan-
lega langur, ekki sfst meðan ég
var að vinna verslunina upp, yfir-
leitt alltaf frá því klukkan átta á
morgnana og til tólf á kvöldin.
Það var opið alla daga og þar að
auki hafði ég kvöldsölu, svo að
þetta var mikið álag.
vWW/..