Morgunblaðið - 01.08.1976, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. AGUST 1976
Guðjón A. Sigurðs-
son - Minningarorð
Guðjón Anton Sigurðsson
garðyrkjubóndi frá Gufuda) í Öl-
fusi lézt hinn 11. júlí síðastliðinn,
76 ára að aldri. Bálför hans var
gerð frá Fossvogskirkju laugar-
daginn 17. júlí sl. að viðstöddu
miklu fjölmenni. Sonur hins látna
séra Sigurður Haukur Guðjóns-
son jarðsöng föður sinn. Guðjón
var fæddur 12. september 1899 að
Grund í Svarfaðardal.
Foreldrar hans voru Sigurður j
Halldórsson bóndi þar og út-
gerðarmaður og kona hans Anna
Friðrika Guðjónsdóttir. Sigurður
fórst í sjóslysi ásamt einum syni
sínum, er Guðjón var á fjórða
aldursári. Stóð þá Anna ein uppi
með stóran barnahóp, en hennar
naut ekki lengi við. Hún lézt, er
Guðjón var 13 ára. Guðjón hélt
því óstuddur út í lífið á unga
aldri. Hann aflaði sér af eigin
ramleik góðrar menntunar á sviði
búvísinda bæði hérlendis og
erlendis. Okkur er ljúft og skylt
að kveðja þennan ágæta frænda
okkar nokkrum fátæklegum orð-
um.
Skarð er fyrir skildi. Guðjón
var einstakur athafnamaður. lífs-
glaður og djarfur, þéttur á velli
og þáttur í lund. Það er gæfa
hverrar þjóðar að eiga slíka syni.
Það var okkur systkinunum ætíð
mikið tilhlökkunarefni að heim-
sækja þau mætu hjón Guðjón og
Þórunni í Gufudal. Foreldrar okk-
ar ákváðu alltaf 1—2 ferðir í
Gufudal á hverju sumri okkur
systkinunum til óblandinnar
ánægju. Það þurfti aldrei að
dekstra neinn til að fara þangað.
Þar var okkur hvert sinn tekið
opnum örmum strax á hlaðinu og
inni voru dýrðlegar veitingar á
borð bornar. Við sjáum enn fyrir
hugskotssjónum okkar húsbónd-
ann á þessu rausnarheimili frjáls-
mannlegan, glaðan og ræðinn við
borðsendann, drekkhlaðið borðið
af alls kyns kræsingum, frú Þór-
unni og Önnu dóttur þeirra við
hinn endann, sífellt á þönum
milli eldhússins og borðstof-
unnar. Þetta var sannarlega óvið-
jafnanlegt heimili, þar sem gest-
risni og höfðingsskapur réðu ríkj-
um. Faðir okkar og Guðjón ræddu
landsins gagn og nauðsynjar,
meðan móðir okkar og Þórunn
tóku oft upp léttara hjal. Síðan
gengum við um landareignina.
Það var ómissandi þáttur heim-
sóknarinnar. Árlega var eitthvað
nytt að sjá. Það var greinilegt, hér
t
Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
HELGU ÞORSTEINSDÖTTUR
frá Kirkjubæ
Vestmannaeyjum
fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 4 ágúst kl 3 e h
Böm, tengdabörn og barnabörn
t
Sonur okkar
GARÐAR BERG WAAGE
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 3 ágúst kl 1 3 30
þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna
Edda Garðarsdóttir.
Jón Waage.
t
Innilegt þakklæti færum við öllum sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns mlns, föður okkar, tengdaföð-
ur og afa
BERGÞÓRS GUÐMUNDSSONAR
Eystra-Súlunesi.
Vilborg Helgadóttir Unnur Bergþórsdóttir
Helgi Bergþórsson Sigrún Ólafsdóttir
Guðlaug Bergþórsdóttir Sigurjón Hannesson
Lilja Bergþórsdóttir Marel Eðvaldsson
og barnabörn
t
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför
EYJÓLFS BJARNASONAR.
Holtsgötu 22,
Ytri-Njarðvfk.
Halldóra Hjartardóttir
Gunnar Eyjólfsson Anna Dóra Comb
Gestur Eyjólfsson Sigrún Eyjólfsdóttir
Þórdls Jónsdóttir
og barnaborn
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir. afi og langafi
FRIMANN INGVARSSON
fyrrverandi simamaður
Grettisgötu 53 A
sem lést 24 júlí verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 3
ágúst kl 10.30 Jarðsett verður að Mosfelli I Grímsnesi.
Ingibjörg Narfadóttir
Ámi Frímannsson, Ragna Ólafsdóttir,
Dóra Frimannsdóttir, Helgi Jensson,
Katrin Frimannsdóttir Ágúst Sigfússon,
Ögmundur Frfmannsson, Auðbjörg Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
mikinn og virkan þátt i félagsmál-
um, hvervetna dafnaði allt, þar
sem hann lagði hönd á plóginn.
Hin síðari ár átti Guðjón við
mikla vanheilsu að striða, sem við
fylgdumst álengdar með. Við
kveðjum að sinni fágætan frænda
og þökkum honum fyrir allt, sem
hann var okkur. Blessuð sé
minning hans.
Valgerður, Lfna og Helga
Hannesdætur.
f Frímann Ingvarsson
símamaður - Minning
sátu húsbændurnir ekki auðum
höndum. Við litum yfir nýrækt-
ina, gengum um ilmandi og hlý
gróðurhúsin hvert af öðru rósir,
nellíkur, tómatar, gúrkur, sífellt
fjölgaði gróðurhúsunum, úti-
húsunum og jarðeignunum. Við
undruðumst áræðnina, kjarkinn
og dugnaðinn. Guðjón og Þórunn
áttu miklu barnaláni að fagna.
Synirnir urðu fimm og dæturnar
tvær, allt mikið efnisfólk, séra
Sigurður Haukur, Arngrímur
framkvæmdastjóri, Selfossi,
Anna verzlunarmær, Júlíus skrif-
stofumaður og Áslaug húsmóðir,
nú búsett í Kaupmannahöfn.
Haraldur og Guðjón, tveir mann-
vænlegir synir þessara framtaks-
sömu hjóna létust í blóma lífsins.
Þá voru dimmir dagar á æsku-
heimili okkar, er þeir féllu svo
ungir í valinn, öllum harmdauði.
Frá heimsóknum okkar í Gufudal
eigum við fagrar endurminning-
ar, sem við kjósum að varðveita
um þróttmikinn og framsýnan
frænda, góðan og greiðvikinn.
Með þeim frændsystkinum Guð-
jóni og móður okkar Valgerði
Björnsdóttur var djúpur og ein-
stæður kærleikur, sem varaði alla
þeirra ævidaga.
Samfara öílum þessum miklu
umsvifum í Ölfusi tók Guðjón
Fæddur 20. apríl 1898
Dáinn 24. júlf 1976
Aðfaranótt laugardagsins 24.
júlí lézt á Landspítalanum eftir
stutta legu tengdafaðir minn, Frí-
mann Ingvarsson, fyrrum línu-
maður hjá Bæjarsímanum í
Reykjavík.
Frímenn fæddist á Bjarnastöð-
um í Grímsnesi 20. apríl 1898,
sonur Ingvars Guðbrandssonar
bónda þar og konu hans Katrínar
Schram. Þau fluttust seinna að
Þóroddsstöðum i sömu sveit og
bjuggu þar sína búskapartíð. Þar
ólst Frímann upp í glaðværum
systkinahópi harðduglegs fólks
sem þurfti og gerði miklar kröfur
til sín.
Hann fluttist til Reykjavíkur
ungur maður. Var togarasjómað-
ur um tíma en starfsmaður Lands-
símans frá 1926. Fyrst í línuflokki
mágs síns, Einars Jónssonar, en
seinna hjá Jónasi heitnum Ey-
vindssyni línuverkstjóra Bæjar-
símans. Muna sjálfsagt margir
eldri borgarar eftir honum frá
þeim árum.
Frímann var hug og snerpu-
maður sem gott var að hafa í
vinnuflokki, spaugsamur, smá-
siríðinn en græskulaus, trúmaður
en predikaði ekki. Átti hann sínar
beztu minningar frá þessum ár-
um.
Þótt línur hans hafi.vikið, lagði
hann þó eina sem enn er virk, en
það eru tveir ættliðir hans hjá
stofnuninni sem gera sitt bezta
til að halda merkjunum á lofti.
Frímann gekk að eiga eftirlif-
andi konu sína, Ingibjörgu Narfa-
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
föður okkar
GUÐMUNDAR KR. HALLDÓRSSONAR
Grundarstfg 5.
Börn og aðrir vandamenn.
t
Útför eiginmanns mlns og föður
SIGURÐAR GUOSTEINSSONAR
verzlunarmanns f Borgarnesi,
ferframfrá Borgarneskirkju, þriðjudaginn 3. ágústkl. 14.30
Bjamfna Jónsdóttir,
Rafn Sigurðsson.
+
Við þökkum innilega sýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
mannsins mins, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
HJALTA LÝÐSSONAR
forstjóra
Snorrabraut 67.
Elvira Lýðsson
Viktor Hjaltason Elfn Pálmadóttir
Erla Hjaltadóttir Þorvarður Þorvarðerson
Unnur Hjaltadóttir Karl F. Schiöth
bamabörn og barnabarnaborn
+
Við þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
SVEINS INGVARSSONAR
Ásta Fjeldsted
Sigrfður Sveinsdóttir
Margrét Sveinsdóttir
Andrés Fj. Sveinsson
Sveinn Sveinsson
Sighvatur Sveinsson
Ingvar Sveinsson
Pétur SigurSsson
John Price
Ragnhildur Þóroddsdóttir
Hallfrfður Tryggvadóttir
Ama Borg Snorradóttir
Kristfn Lárusdóttir
og barnabörn.
dóttur frá Kiðjabergi í Grímsnesi
24. janúar 1925 og bjuggu þau
lengst af á Grettisgötu 53A. Þau
eignuðust fjögur börn sem öll eru
búsett í Kópavogi.
Um það leyti er hann hætti
störfum kenndi hann þess sjúk-
dóms er nú varð honum að aldurs-
tila. Varð hann þá að hægja ferð-
ina en hélt þó sæmilegri heilsu og
var sfstarfandi fram á sfðasta dag
að kalla, og bar aldurinn vel.
Bjart er yfir minningu þessa
sómamans.
Helgi Jensson.
Afmælis- og
mirmingar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því,
að afmælis- og minningar-
greinar verða að berast blað-
inu með góðum fyrirvara.
Þannig verður grein, sem
birtast á í miðvikudagsblaði,
að berast í síðasta lagi fyrir
hádegi á mánudag og hlið-
stætt meðgreinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í
sendibréfsformi eða bundnu
máli. Þær þurfa að vera vél-
ritaðar og með góðu línubili.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra,
er auðsýndu okkur samúð við
andlát og jarðarför föður okkar
JÓNS E. JÓNASSONAR
Ragnhildur Jónsdóttir
Bragi Jónsson
Jónas B. Jónsson.
AL'GI.YSINíí A-
SÍMINN KR: