Morgunblaðið - 01.08.1976, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. AGUST 1976
35
Evrópumeistaramót
ungra manna í bridge
í DAG hefst í háskólabænum Lundi í
Svíþjóð 5 Evrópumeistaramót lands-
liða í flokki ungra manna Mót þessi
eru haldin annað hvert ár og skulu
keppendur nú vera fæddir árið 1951
eða síðar. Bridgesamband íslands
sendir sveit til keppni á móti þessu, en
alls keppa átján þjóðir um Evrópu-
meistaratitilinn að þessu sinni.
Landslið íslands er skipað þessum
mönnum. Guðmundur P Arnarson,
Jón Baldursson, Helgi Jónsson, Helgi
Sigurðsson, Sigurður Sverrisson og
Sverrir Ármannsson Fyrirliði án spila-
mennsku er Páll Bergsson en hann er
jafnframt fararstjóri
Spilarar þessir hafa náð mjög góð-
um árangri nú í ár. Þeir eru núverandi
Reykjavíkurmeistarar og náðu 2. sæti í
sveitakeppni íslandsmóts Undanfarna
mánuði hefur síðan verið unnið mark-
visst að þjálfun liðsins fyrir mótið og
óhætt er að fullyrða, að þetta er sterk-
asta lið, sem spilað hefur erlendis fyrir
ísland, í þessum flokki
íslendingarnir spila i dag við Norð-
menn, Dani og ísraela, en spilaðir eru
þrir tuttugu spila leikir á dag Á mið-
vikudaginn er frí en mótinu lýkur
næsta laugardag og verða þá spilaðir
tveir síðustu leikirnir Á morgun verður
spilað við Svíþjóð, Þýzkalandi og Ung-
verjaland Síðan er leikjaröðin þannig:,
þriðjudagur Pólland, England og Finn-
land, Fimmtudagur Holland, ítalia, og
írland, föstudagur Portúgal, Frakkland,
'Austurriki og á laugardag Belgia og
Spánn
Islendingar tóku fyrst þátt í Evrópu-
meistaramóti í þessum flokki árið
1974 og náðu þá 12 sæti af 20
þjóðum Mót þessi hafa verið haldin
annað hvert ár siðan 1968. Sigurveg-
arar urðu þá Svíar Danir sigruðu
1970, Pólverjar 1972 og Svíar sigr-
uðu síðan aftur 1 974
Um styrkleika sveita þeirra þjóða, er
þátt taka í mótinu nú, er erfitt að dæma
því landslið þessa aldursflokks breytast
nokkuð ört Þó er vitað að Norðmenn
tefla fram sama liði og vann á Norður-
landamótinu 1 975 Sænska liðið er án
vafa einnig sterkt þó það sé mjög
breytt frá fyrri árum Skipulögð leið-
beiningar- og fræðslustarfsemi i bridge
meðal ungs fólks er viða orðin mjög
öflug. í Svíþjóð er keppnis-bridge nú
valgrein í öllum framhaldsskólum Þar
að auki styrkja riki og sveitarfélög
starfsemi þessa með beinum fjárfram-
lögum, sem nema nú samtals 28 millj.
króna (700 þús.s.kr.) á ári Leiðbein-
ingar og fræðslustarf þetta er einnig
mjög vel skipulagt og styrkt i Noregi,
Danmörku, Póllandi, Hollandi, Ung-
verjalandi og Þýzkalandi Gera má því
ráð fyrir að allar þessar þjóðir, auk
Englands, sendi góð lið til mótsins
íslensku sveitinni er nú ekki spáð
sigri á móti þessu þvi þó ungu mönn-
unum okkar hafi farið mikið fram er
ekki ástæða til að halda, að framfarir
hafi ekki einnig orðið erlendis
íslenzka sveitin, talið frá vinstri: Sverrir Armannsson, Helgi Sigurðsson, Jón Baldursson, Guðmundur P.
Arnarson, Helgi Jónsson og Sigurður Sverrisson. Sitjandi er Páll Bergsson fararstjóri.
Heiðradi félagi.
Eins og félagsmönnum er
kunnugt, úthlutaði borgar-
stjórn Reykjavíkurborgar
Samtökum aldraðra lóð undir
fjölbýlishús við Flyðru-
granda Húsið stendur við
Flyðrugranda nr. 8, 8a, 8b
og 8c, húsið er steinsteypt
4ra hæða hús. í húsinu eru
70 íbúðir. Stærð íbúðanna er
frá 25 ferm. til 89 ferm.
Aðalinngangur er frá austur-
hlið á 2. hæð og frá vestur-
hlið inn á 1. og 2. hæð. í
húsinu eru 2 samliggjandi
lyftur.
Eftirtaldir hlutar teljast til
sameignar hússins.
Á 1. hæð eru geymslur, ein fyrir hverja íbúð, sameigin- Stærð fj Eftirtalda Tilbúnar undir tréverk Verð ibúðastærðir og málningu. Verð á alm verða til sölu: Öll sameign fullfrágengin
legt þvottahús og hluti eld- ib. íb. pr. íb. sameign. sameign pr. ib.
húss Á 2 hæð er matstofa 25 ferm. 8 1.579.000 - 1.167.000,- 315.000- 3 061.000.-
ásamt eldhúsi, verslun, 31 ferm. 8 1.954.000,- 1.444.000- 390.000 - 3.788.000,-
læknastofu, húsvarðarað- 34 ferm. 8 2.161.000 - 1.587.000- 431.000 - 4.189.000.-
stöðu og forstöðu vegna að- 44 ferm. 2 2.659 000 - 1 966.000- 530.000. 5.155.000,-
alinngangs. Á 3. og 4. hæð 48 ferm. 4 2.826.000,- 2.088.000.- 564.000- 5.478.000 -
eru setustofur og föndurað- 49 ferm. 2 2.868.000- 2.120.000.- 572.000 - 5.560.000 -
staða ásamt litlum þvotta- 50 ferm. 2 2.909.000,- 2.150.000- 580.000,- 5.639 000.-
húsum. Allir áðurnefndir 53 ferm. 2 3.032.000,- 2.243.000,- 605.000,- 5 880.000.-
hlutar teljast til sameignar 56 ferm. 2 3.158.000 - 2.334.000.- 630.000 - 6.122.000,-
hússins. Á 2. hæð er einnig 58 ferm. 2 3.324.000,- 2.457.000,- 663.000 - 6.444.000,-
bókasafn, sem verður eign 61 ferm. 2 3.407.000,- 2.518.000. 680.000- 6.605.000.
Reykjavíkurborgar. 65 ferm. 14 3.533.000,- 2.611.000.- 705.000- 6.849.000 -
69 ferm. 2 3.699.000,- 2.734.000 - 738.000,- 7.171.000,-
Fyrir hönd úthlutunarnefndar 72 ferm. 2 3.782.000.- 2.795.000.- 755.000.- 7.332.000.-
Auðunn Hermannsson 74 ferm. 2 3.908.000,- 2.888.000,- 780.000- 7.576.000,-
Böðvar Jónsson 79 ferm. 4 4.115.000- 3.041.000.- 821.000- 7.977.000
Hans Jörgensson. 84 ferm. 2 4.513.000.- 3.226.000.- 870.000,- 8.609.000,-
89 ferm. 2 4.573.000 - 3.380.000.- 912.000,- 8.865.000.-
ATH!
Þeir félagsmenn sem áður hafa sótt um tbúðir hafa
forkaupsrétt til 15. ágúst 1976. Eftir þann tíma verður
íbúðum ráðstafað til þeirra félagsmanna sem þess óska,
en umsóknartíminn er til 25. ágúst 1 976.
Upplýsingar verða veittar á skrifstofu félagsins að
Hverfisgötu 26, kl. 10—12 fyrir hádegi aíla virka daga
nema laugardaga. Sími 27170.
SAMTÖK
ALDRAÐRA
HVERFISGÖTU 26, SÍMI 27190, REYKJAVÍK