Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR l.OKTÓBER 1976 16 Hér sjáum við Rúnar Gunnarsson við að klippa saman sjónvarpsefni. A þessu myndsegulbandi sem er það nýjasta sem sjónvarpið á og jafnframt það dýrasta er efni sem Rúnar er að vinna með ( næsta herbergi. Frammi ( stúdíói er tíminn notaður til að undirbúa upptöku næsta dags. Sjónvarpið 10 ára: Hvernig verður sjónvarpsefni til? Þórarinn Guðnason yfirmaður kvikmyndadeildarinnar. I þessari vél eru kvik- myndirnar framkallaðar ... og (þessari klipptar. Hér eru kvikmyndasýningarvélarnar en með þeim eru fréttakvik- myndirnar sýndar og annað sjónvarpsefni á filmum. Wa v!^pji m 5f> 'f- Fylkir Þorisson og Ömar Ragnarsson ræða um eitthvert atriði varðandi útsendingu fréttanna. ÞAU eru ótrúlega mörg hand- tökin sem gera þarf fyrir hvern sjónvarpsþátt og ótrúlega margir sem þar koma við sögu. Má segja að næstum heilan her manns þurfi til, myndatöku- menn, hljóðupptökumenn, sviðsstjóra og stjórnendur, einn fvrir tækniliðið og annan, sem stjórnar niðurröðun efnis- ins, klippingarmenn, aðstoðar- fólk og svo mætti lengi telja. Fylkir Þórisson er einn yfir- manna tæknideildarinnar, en öllu tækniliði sjónvarpsins er skipt niður i vaktir eins og er um starfsfólk fréttastofu. Blaðamaður og ljósmyndari gengu með Fylki um húsakynni sjónvarpsins og sýndi hann okkur það helzta sem fyrir augu bar og útskýrði. Það er nokkuð flókið mál að fara að lýsa þvi öllu í blaðagrein hvernig það gengur fyrír sig að útbúa sjónvarpsþátt, en við get- um látið myndir Friðþjófs tala og skjótum með skýringum eins og hægt er. Þegar við vorum að þessu rölti um húsakynnin var Rúnar Gunnarsson, einn af upptöku- stjórnendum eða „pródúsent- um“ eins og hann heitir á máli sjónvarpsmanna, að klippa saman þátt frá Rokkhátíðinni i Laugardalshöllinni. Rúnar sat fyrir framan skerma og horfði á það sem tekið hafði verið upp i Höllinni á myndsegulband og var hann að klippa saman og fella úr eftir þvi sem við átti og gera þáttinn endanlega til sýningar. 1 næsta herbergi við hann voru myndsegulböndin og menn þar stjórnuðu þeim. Þeg- ar Rúnar hafði skoðað og ákveð- ið hvað nota skyldi i það og það skiptið klipptu þeir eftir hans fyrirsögn. Þetta er mikið verk og seinlegt og til aðstoðar Rúnari voru tveir menn sem höfðu gætur á hljóði og fleiru. Það tókst að lokum að ljúka við gerð þessa þáttar og voru þeir frá hádegi og fram að kvöldmat að fullgera hann, en vinnudagurinn var þó ekki enn búinn því útsending kvöldsins var eftir og flestir höfðu þar eitthvert verk að vinna. Þannig er unnið þegar efnið er tekið upp á myndsegulbönd en það er hægt hvort sem er úti eða inni og á meðan á þessari vinnu stóð var verið að gera stúdióið tilbú- ið fyrir upptöku sem þar átti að fara fram daginn eftir. Var það væntanlegt barnatímaefni og tindir voru inn alls kyr.s leik- munir og dót sem þurfti að nota þar. Sjónvarpið á nokkurt safn leikmuna og sérstök deild sér um þann þátt í framleiðslu sjónvarpsefnis. Sjónvarpið hef- ur aðeins eitt stúdió og er það oft mjög bagalegt, sagði Fylkir, að þurfa kannski að stöðva upp- töku i miðjum kliðum til að hægt sé að senda út fréttir. Fylkir sagði að þeir hefðu þá reglu að hætta allri upptöku- vinnu kl. 19.00 til að hægt væri að undírbúa stúdióið fyrir fréttaútsendinguna og þarna kom Ömar einmitt aðvífandi og þurfti að ræða eitthvert tækni- legt atriði við Fylki varðandi fréttir kvöldsins. Þórarinn Guðnason er yfir- maður kvikmyndadeildarinnar og leiddi hann okkur í allan sannleika um tilurð frétta- mynda. Þegar kvikmynda á ein- hverja frétt eru venjulega saman við það fréttamaður, kvikmyndatökumaður og hljóð- upptökumaður. Þegar mynda- töku er lokið fer filman í fram- köllun og klippingu og á meðan skrifar fréttamaðurinn fréttina og hljóðupptökumaðurinn fer yfir og samræmir hljóð og mynd í sérstöku tæki. Á vegum kvikmyndadeildar- innar fara fram allar kvik- myndatökur, sem íslenzka sjón- varpið þarf á að halda hér innanlands og fréttaritarar úti á landi annast ekki. Inn í starf hennar kemur einnig að taka allar aðrar myndir fyrir aðra dagskrárliði. Dagur var nú kominn að kvöldi og fyrir dyrum stóð að senda út fréttir. Undirbúning- ur þeirra hefst á morgnana með fundi fréttastjóra með frétta- mönnum og síðan eru myndir teknar og ljósmyndir og þessu öllu raðað upp. Það gerir stjórnandi útsendingar, sem I þessu tilviki var Maríanna Friðjónsdóttir. Fréttamyndun- um er komið fyrir á tveim sýningarvélum í sérstöku her- bergi og frammi í stúdíói er stillt upp ljósmyndum fyrir framan vélar þar (sjá mynd). Stjórnandi útsendingarinnar jiefur svo fyrir framan sig allan texta fréttanna og þar er merkt við hvað á að sýna með hverri frétt, ljósmynd, kvikmynd, fréttaþulinn og hversu langt hvert atriði er. Eins og fyrr segir hefur þessu verið safnað saman yfir daginn og á réttu augnabliki þarf að skipta um, beina vél á Eið, Guðjón eða Ömar en þeir sáu um fréttirnar þennan dag. Allar þessar skiptingar gerast á augabragði og fyrir utanað- komandi fólk er þetta eins og hið flóknasta púsluspil að raða þessu öllu saman, en allt gerist það við undirbúninginn. Ef hann er góður er útsendingin tryggð. Fréttatíminn var fljótur að liða og dagsvinna og jafnvel meira leið hjá á hálftima og fyrir blaðamann var tilfinning- in svipuð þvi að fara á skíðum upp langa brekku og síðan nið- ur. Það tekur miklu skemmri tíma að fara niður og það er miklu erfiðara að fara upp í móti. Eftir útseningu frétta tók við íþróttaþáttur og að nokkru var skipt um fólk, þ.e. þeir sem voru við fréttaútsendingu voru lausir skömmu eftir það en aðr- ir þurftu að vera þar til dagskrá var lokið. Hér hefur aðeins ver- ið stiklað á stóru og mörgu er sleppt, sem vert væri að geta, en rúmsins vegna verður svo að vera að sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.