Morgunblaðið - 05.11.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.11.1976, Blaðsíða 18
18 MOHCUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUH 5. NÓVEMBER 1976 Lesið fyrir börn — um börn II Þórir S. Guðbergsson félagsráðgjafi: „Mörg 11-13 ára börn þekktu ekki naf nið á þumalfingri sínum” Málþroski barna hefur mikil- væg áhrif fyrir persónuleika- þroska þeirra. Barn sem fer á mis við eðlilegt samband, samtöl og tjáskipti við foreldra sína eða aðra fullorðna fer á mis við mjög mikilvægan þátt í uppeldinu, sem síðar getur valdið barninu mikl- um erfiðleikum i öllum samskipt- um þess við annað fólk. Nýlegar rannsóknir í einu af úthverfum Óslóborgar sýndu, að mörg börn á aldrinum 11—13 ára voru að heita mátti ólæs og mörg þeirra þekktu ekki einu sinni nafnið á þumalfingri sínum, daga- heiti eða mánuði. 1 nýlegri skýrslu frá UNESCO segir, að nær 800 mill. manna séu ólæs og þrátt fyrir góða viðleitni og mark- vissa uppfræðslu á mörgum stöð- um fjölgi í þessum hópi um 25 millj. á ári hverju. í Sviþjóð er talið að um 100 þús. manns á fullorðins aldri skorti leshæfni eða skriftarkunnáttu t.þ.a. geta komist sæmilega áfram í þjóðfélaginu. Margar ástæður kunna að vera fyrir þessu mikla vandamáli en menn beina sífellt stærri og meiri athygli að truflun og röskun á persónuleikaþroska þessa fólks, og erfiðleikum og tapi í skóla, þegar það átti að læra að lesa og skrifa. Mörg þessara barna og fullorðinna hafa sæmilega meðal- greind og ættu því að öllu öðru jöfnu að geta lesið og skrifað eins og flestir aðrir. Fyrstu mánuðir og ár í uppeldi barna eru þvi mjög mikilvægir og nauðsynlegt, að gert sé allt sem í okkar valdi stendur til þess að örva börnin, tala við þau, lesa fyrir þau, benda þeim á hluti og atvik, svo að þau fái næg tækifæri og möguleika til þess að efla og auka málþroska sinn. Ekki með þvf að þvinga þau eða þrýsta til þess að læra að lesa sem allra fyrst, heldur fyrst og fremst með því að skapa hlýtt og öruggt um- hverfi þar sem þau fá möguleika til þess að spyrja, tala og ræða við aðra þeim eldri og þroskaðri. Það eru ekki svo ýkja mörg ár síðan við sem strákar Ieituðum athvarfs hjá tveimur skósmiðum, sem bjuggu í nágrenninu. Þeir tóku okkur opnum örmum, Leyfðu okkur að fylgjast með starfi sínu og meira að segja að negla, bera lím á fleti og setja reimar í skó, auk þess sem þeir ræddu við okkur um landsins gagn og nauðsynjar. Við lærðum að þegja og hlusta og draga okkur i hlé, þegar hann þurfti að sinna viðskiptavinum sinum, og við yfirgáfum hann, þegar hann sagð- ist ekki geta rætt við okkur meira að sinni. Þeir sögðu okkur gjarna sögur og oft vildum við fá að heyra sömu sögurnar aftur og aftur. Enda staðreynd, að börn þurfa á síendurtekningu að halda og við verðum vör við, að þau biðja um sömu sögurnar enda- laust og alltaf haft jafn gaman af þeim. Þau skilja ekki öll orðin og orðasambönd undireins, þau þurfa alltaf að spyrja um eitthvað nýtt og þvi oftar sem þau heyra sömu sögurnar þeim mun betur þekkja þau persónurnar, verða vinir þeirra og ímundunaraflið verður frjórra og auðugra. En nú er öldin önnur það er hægara sagt en gert á okkar dög- um að taka sér góðan tíma til þessara hluta. — Við getum ekki horfið aftur til eldri tíma en það Ulpurnar eftirspurðu nýkomnar Terelynebuxur margar gerðir verð frá 23 70. Riffl. flauelsbuxur 2.285.— Regnúlpur barna, unglinga og kvenstærðir kr. 2050. Skyrtur — Peysur — Nærföt — Sokkar lágt verð. Opið föstudaga til kl. 7, laugardaga til kl. 1 2. Andrés, Skólavörðustíg 22A I I I I I I Áskjör Ásgarði 22 Sími 36960 10 kg. sykur kr. 1.200.— 5 Ibs. hveiti kr. 265.— Enskt tekex 95 kr. pk. 10 stk. W.C. pappír Regin kr. 600.— Sendum heim H U RÐ I R hfSkeifanlJ i i" mMMW* tt* W® M Hjólbarðaverkstæði Höfum verið beðnir að útvega húsnæði fyrir hjólbarðaverkstæði í Reykjavík. Húsnæðið þarf að vera 300 — 500 ferm. ásamt góðu athafna- svæði utandyra. Uppl. hjá Rolf Johansen og Co. Laugavegi 1 78, sími 86700. »PRENTVÉLAVIKA« rafisk maskinservice a/s Bjódum yður og samstarfsfólki yðar til að koma og skoða brautryðjandi nýjungar á Hóte/ Loftleióum 9.—11. nóvember. Við höfum opió frá kl. 09.oo ti/ 17.oo - VELKOMIN - grafisk maskinsen/ice A/s Biskop Jens Nielssons gate 5 — Oslo 6 — Tlf. (02) 67 69 82 Kong Oscars gate 45 — 5000 Bergen — Tlf. (05) 21 92 1 0 Postadresse: Postboks6198 Etterstad — Oslo6 UTRÍK OG HAGKVAM HEIMILISSAMSTÆÐA^ FYRIR VIÐRÁÐANEGT VERÐ novi/ HÚSGAGNAVEKZLUN KRISTIÁNS SIGGEIKSSONAR HF. Lauuavegi I3 Keykjavik sími 25870 Þórir S. Guðbergsson ætti að vera keppikefli okkar, að tímarnir breyttust og okkur gæf- ust fleiri og betri tækifæri til þess að vera með börnum okkar, gefa þeim meira af okkur sjálfum, upplifa eitthvað með þeim og ræða við þau eins og maður við mann. Og þrátt fyrir það að þjóð- félagið geri margt gott til þess að koma til móts við þarfir barna á mörgum sviðum, hvílir samt aðal- ábyrgðin á herðum okkar sjáifra sem einstaklinga og fjölskyldna og foreldra. Öryggi, hlýja, kær- leikur og manneskjulegheit eru þættir sem sífellt eru á undan- haldi á þessari tækniöld. Aður en langt um líður hefst jólavertíð í bóksölu. Margt verður á boðstólunum bæði frumsamið og þýtt. Margir velja af handahófi og hugsa hvorki um veró né gæði, en æ fleirum verður það vonandi ljóst, hversu mikilvægt það getur orðið fyrir þroska barnsins, hvað þau lesa og hvað er lesið fyrir þau. Það kann að vera, að fólk gefi sér litinn tíma t.þ.a. velja bækur, kynna sér innihald þeirra og orðaforða og velta þannig fyrir sér, hvort þær séu hentugar fyrir þann aldur sem um er að ræða hverju sinni. Sumir fara gjarna eftir auglýsingum einum saman og kaupa það, sem börnin biðja um. Og oft er það svo, að börnin bera nokkurt skynbragð á það, hvað þau geta lesið orðaforða vegna, en þetta verður mun vandasamara eftir því sem börnin eru yngri og fátt sérhæft starfs- fólk í bókabúðum, sem getur leið- beint fólki i þessum efnum. En hvernig sem við annars förum að því að velja út bækurnar er það okkar að taka lokaákvörðun ( mál- inu, að vega og meta hvaða bækur við teljum að geti orðið börnum okkar til vænlegs þroska i kröfu- harðri baráttu nútímaþjóðfélags. Ég ætla að ljúká máli mínu með þvi að benda enn einu sinni á mikilvægi þess að lesa með börn- unum sínum og fyrir þau, og ekki hvað sist að ræða við þau og vera með þeim. Sifellt fleiri börn fara á mis við nálægð og nærveru for- eldra sinna og vina bæði líkam- lega og andlega — og þessi fjar- lægð sem sífellt eykst i tjáskipt- um manna á millum getur svipt þau því öryggi, þeim kærleika og hlýju, sem þeim annars er svo nauðsynlegt á þessum þýðingar- miklu fyrstu árum ævinnar. Lýst yfir sam- stöðu með kjara- baráttunefnd Á ALMENNUM fundi nemenda- félaga Véiskólans og Stýrimanna- skólaos var lýst yfir algjörri sam- stöðu við aðgerðir kjarabaráttu- nefndar. Skorar fundurinn á menntamálaráðherra að draga nýju reglugerðina til baka og að úthlutun verði hafin samkvæmt gömlu reglunum með kostnaðar- mati frá árinu 1973 og 100% brú- un. (Fréttatilkynning) ASIMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.