Morgunblaðið - 27.03.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ,SUNNUDAGUR 27. MARZ 1977
15
16. alþjóðlegi
leikhúsdagurinn:
Avarp
1977
Það er alkunna að leikhúsið
varð fyrst til að bera reisn
mannsins vitni, og það er vitnis-
burður sem verður að fá að
berjast gegn ofbeldi og kúgun í
viðleitni sinni til að skilja og
vara við, án þess að þurfa að
sæta forskriftum.
Það er alkunna að leikhúsið
varð fyrst allra lista til að
skynja og orða samviskuspurn-
ingar, skilja hvaðan þær
spruttu og hvað rak þær áfram;
og í andbyr og mótlæti staðfesti
leikhúsið tilvist mannlegrar
skynsemi, færði heiminum
jafnvægi.
Það er alkunna að leikhúsið
kenndi manninum að horfast
opinskátt i augu við sjálfan sig
og grandskoða sig, standa
frammi fyrir sekt sinni og axla
ábyrgð sina á sjálfum sér; það
kenndi honum að íhuga hvað
hann gæti orðið og stefna að
því, í stað þess að beygja sig
fyrir takmörkunum sem honum
hafði verið kennt að játast und-
ir. Með hjálp tilfinninga kenndi
það honum að skilja jafnréttið,
og það að hver einasti maður er
heill heimur útaf fyrir sig.
„Mér er hugsað til hávaðans,
endurhljómsins, hinnar
þrungnu eftirvæntingar áður
en tjaldið ris, eftirvæntingar
sem bókstaflega knýt sýning-
una með viljakrafti sinum til að
hefjast. Mér er hugsað til þess-
ara hversdagslegu atvika —
hvískurs, skugga, augnatillits
— sem okkur virðast smávægi-
leg en geta á sviðinu hafist í
yfirþyrmandi stærð, gerst
þrungin af leikrænni merk-
ingu.
í einni s'purningu koma sam-
an greind, tilfinninganæmi,
andi. Þegar hennar er spurt op-
inberast sannleikurinn og vegg-
irnir, sem skilja áhorfanda frá
áhorfanda og áhorfendur frá
sviðinu, hrynja. Þess í stað
skapast einhugur; hárfínn vef-
ur er spunninn sem sameinar
menn og þjóðir þeirra. í þessari
spurningu vitum við að við er-
um fremur tengd sameiginleg-
um hættum og vonum en sundr-
uð af ágreiningsvanda alls
mannkyns. i þessari einu
spurningu skilst okkur að við
tilheyrum heimi sem er lögð
ábyrgð samvinnunnar á herðar.
i þessari einu spurningu skilj-
um við að við megum ekki leng-
ur láta stjórna okkur, eiga okk-
ur, traðka á okkur. Við skiljum,
erum þátttakendur, leikum.
Við erum við sjálf til fullnustu.
Nú, rétt eins og fyrir þúsund
árum.
Og þetta eru forréttindi. For-
réttindi sem leikhúsið á sameig-
inleg með öðrum tungumálum
listanna, tungumálum innsæis
sem geta komið orðum að þeim
sýnum sem bera f sér framfarir,
smiða býr. Forréttindi sem gera
fólki kleift að opna sig öðrum
og deila með þeim draumum
um betri og réttlátari heim.
Þetta er ógnvekjandi ábyrgð;
sem leikhúsfólk og manneskjur
erum við í fararbroddi. Það er
þess vegna sem þeir bíða, leik-
arinn og áhorfandinn, spenntir
og eftirvæntingarfullir, eftir
því að tjaldið rísi, að spurning-
unni sé varpað fram.
Radu Beligan
(Sverris Hólmarsson þýddi)
Vandaðir gluggar eru eití aðalatriðið í hverju
húsi og auka verðmæti þess og ánægju þeirra,
sem í húsinu búa. Timburverzlunin Völundur
hefur 70 ára reynslu í smíði glugga. í dag
leggjum við megináherslu á smíði Carda-
hverfiglugga svo og venjulegra glugga samkv.
hinum nýja íslenska staðli. Cardagluggar hafa
marga kosti umfram aðra. Auðvelt er að opna
þá og loka. Hægt er að snúa þeim við, ef hreinsa
þarf þá eða mála. öryggislæsingar geta fylgt.
Hljóðeinangrun uppfyllir ströngustu reglur.
Bæðí vatns- og vindþéttir í lokaðri stöðu. Þá er
einnig hægt að fá smíðaðar veggjaeiningar með
Cardagluggum í, sem síðan má raða saman. Þar
sem Cardagluggum verður ekki viðkomið mælum
við með gluggum smíðuðum samkv. hinum
nýja íslenska staðli, með falsi 20x58 mm. Alla
glugga er hægt að fá grunnaða eða tvímálaða.
Einnig getum við smíðað þá úr gagnvarinni
furu eða oregonfuru.
í sérstökum tilfellum smfðum við einnig glugga
eftir sérteikningum.
áIá Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Völundar gluggar
vandaðír gluggar