Morgunblaðið - 27.03.1977, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ.SUNNUDAGUR 27. MARZ 1977
39
Friðjóna Gunnlaugs-
dóttir—Minningarorð
Fædd 14. febrúar 1913
Dáin 20. febrúar 1977
Mig langar að minnast í örfáum
oröum frænku minnar Guðrúnar
Guðlaugsdóttur, sem andaðist á
Landakotsspítala 20. febrúar sl.
eftir erfiða sjúkdómslegu. For-
eldrar Guðrúnar voru Oktavia Jó-
hannesdóttir og Gunnlaugur
Andreas Jónsson, bóndi og siðar
verzlunarstjóri, og voru þau bú-
sett á Bakkafirði á uppvaxtarár-
um hennar. Hún var elzt sex syst-
kina og eru fjögur þeirra á lifi.
Guðrún kom til Reykjavikur
ung að árum til að stunda nám við
Gatnahreins-
un boðin út
hjá borginni?
BORGARRÁÐ hefur nú til athug-
unar að bjóða út hreinsun gatna i
nokkrum hverfum borgarinnar og
hefur í þvi sambandi verið rætt
um Árbæjar —, Breiðholts- og
hluta af Fossvogshverfi. Hefur
borgin leigt tæki af fyrirtækinu
Verkframa til hreinsunar, en að
sögn Þórðar Þorbjarnarsonar
borgarverkfræðings er hugmynd-
in nú að bjóða hreinsunina út á
breiðari grundvelli en áður.
Borgarráð frestaði afgreiðslu
málsins á fundi á þriðjudaginn.
Kvennaskólann, sem hún útskrif-
aðist frá árið 1931. Eftir það vann
hún við verzlunarstörf mestan
hluta ævi sinnar.
Guðrún var miklum og góðum
mannkostum gædd, kona vel
greind og hjartagæzka hennar
ómetanleg. Ég minnist þess, er ég
kom fyrst á heimili hennar að
Lynghaga 28, þá tók hún mér opn-
um örmum eins og hennar var
vani. Að hlusta á hana segja frá
var eins og ævintýrahéimur út af
fyrir sig. Alltaf virtist hún hafa
óþrjótandi tima til að gera stund-
irnar sem ánægjulegastar, þrátt
fyrir það að hún bæði ynni úti og
hugsaði um heimili, enda held ég,
að öll hennar systkinabörn og aft-
ur þeirra börn hafi elskað hana og
dáð.
í því sambandi dettur mér i hug
setning, sem eldri sonur minn
sagði við mig, eftir að við fréttum
um andlát hennar: „Mamma, ég
fer til Gunnu á undan litla bróð-
ur, því ég er fimm árum eldri en
hann“.
Alltaf var gott að leita til
Gunnu, eins og hún var kölluð i
daglegu tali, því það var eins o^
Ford kom í
Hvíta húsið
Washington, 25. marz. Reuter.
Gerald Ford, fyrrverandi
Bandarikjaforseti, kom i dag i
hvíta húsið i fyrsta sinn síðan
hann tapaði kosningunum I
nóvember síðastliðnum. Carter
forseti fagnaði honum vel og
sagði við Ford, sem var sólbrúnn
og hraustlegur i útliti: „Ég öf-
unda þig. Þú ert svo hraustlegur."
Forsetinn fyrrverandi svaraði:
„Þú litur lika vel út. Það er mjög
gaman að sjá þig.“
Ford er í Washington til að taka
þátt í fundum á vegum American
Enterprise Institute, sem hann er
heiðursfélagi i. Það var Carter
forseti sem bauð honum til Hvita
hússins.
sem allir velja
Veljið spólur við yðar hæfi
hifi low noise
ÆzeSK5ss/
60 mín. spólur
hifi low noise
90 mín. spólur
snBa-næi
Verð: 995.— 60 mín. spólur
með chromdioxið
BUÐIRN ARlSkipholti 19 vi8 Nóatún.
simi 23800
26 ár í fararbroddi Klapparstlg 26, sfmi 19800.
GOODfYEAR
hjólbarðar fyrir sendibila.
Eigum fyrirliggjandi
eftirtaldar stærðir
af hjólbörðum.
STÆRÐIR
650—16/8
650—16/ 10
700—16/8
700—16/10
kr. 12.556 -
kr. 15.322.-
kr. 15.210-
kr. 16.994 -
750—16/6 kr. 13.792.
750—16/8 kr. 16.299.
750—16/10 kr. 18.187.
825—16/12 kr. 34.240.
(
G OOD'/YEAR
^ /
hún gæti allan vanda leyst.
Ekki sljóvgaðist hennar góði
hugur, þótt hún lægi helsjúk sína
siðustu legu. Hún vildi alltaf vera
að gefa og gleðja. Þó að hún gæti
hvorki reist höfuð frá kodda, né
lyft hönd frá sæng, gat hún samt
látið velja fyrir sig sængurgjöf,
sem hún gaf mér, nokkrum dög-
um áður en hún kvaddi þennan
heim. Og ekki gleymdi hún eldri
drengnum minum, hann varð
ekki útundan. Svona er henni rétt
lýst.
Luðrun var heilsuhraust lengst-
an hluta ævi sinnar. Það var i
ágúst sl., sem hún fann fyrir þeim
sjúkdómi, sem leiddi hana til
dauða. Aðdáunarvert var hvað
hún bar sig vel í sinni erfiðu
sjúkdómslegu, oft gerði hún að
gamni sinu og lifði þessa síðustu
mánuði í óbilandi von um bata.
Blessun og þökk fylgi henni frá
mér og mínum,
Oktavfa Guðmundsdóttir,
Árósum, Danmörk.
HJOLBARÐAÞJONUSTAN
Laugavegi 172 — Simi 28080
HEKLAhf.
Laugavegi 170—172 — Slmi 21240