Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNÍ 1977 15 hús rifin í Múla-kampi Reykjavikurborg er nú að láta rffa gömul og léleg hús f Múla- kampinum og í gær voru tvö hús rifin, Suðurlandsbraut 94 og 94 A. Borgin mun láta rffa þarna 15 hús á þessu ári sam- kvæmt upplýsingum Hjörleifs Kvarans hjá skrifstofu borgar- verkfræðings. Húsin eru fyrir skipulagi þarna og verða ný- byggingar reistar á svæðinu, en alls hefur borgin keypt þarna 12 hús á þessu ári. Ibúar f þess- um gömlu húsum hafa fengið fbúðir hjá stjórn verkamanna- bústaðanna f Breiðholti. í dag verður byrjað að rffa IHúla við Suðurlandsbraut og á næstu dögum verða fleiri hús rifin. Myndin var tekin f gær þegar húsin tvö voru rifin. Ljósmynd: motif-mynd i<r. Ben. Starfsgreinaverkföll um land allt 13.-20. júní Allsherjarverkfall í einn dag hinn 21. júní FRAMHALDSAÐGERÐIR eftir hin staðbundnu verkföll hafa nú verið hoðuð samkvæmt tillögu samninganefndar Alþýðusam- bands íslands, en staðbundnu verkföllunum lýkur hinn 9. júnf. Hinn 13. júnf hefjast svo verkföll f starfsgreinum og standa þau f vikutfma eða fram til 20. júnf, er við tekur allsherjarverkfall, sem standa mun f einn dag um land allt, 21. júnf. Þessi starfsgreinaverkföll hefj- ast mánudaginn 13. júni með því að félagar í Málm- og skipasmíða- sambandi íslands fella niður vinnu og þeir verkamenn innan Verkamannasambands íslands, sem vinna við málm- og skipa- smíðar. Þriðjudaginn 14. júní gerir Landssamband iðnverkafólks verkfall, Samband bygginga- manna og þeir verkamenn innan Verkamannasambandsins, sem vinna við byggingaiðnað. Mið- vikudaginn 15. júní gera svo raf- iðnaðarmenn, bókagerðarmenn og launþegar í veitingahúsa- og hótelrekstri verkfall — aðrir en þjónar, senrþegar hafa gert nýjan kjarasamning. Fimmtudaginn 16. júní gera verzlunarmenn verkfall og mánu- daginn 20. júnf fara verkamenn i fiskiðnaði í verkfall, vörubifreiða- stjórar og menn við hafnarvinnu. Þriðjudaginn 21. júní verður svo verkfall um land allt i einn dag, allsherjarverkfall. Á smærri stöðum úti á landi hefur forysta ASÍ samþykkt að leyfilegt sé að sleppa starfs- greinaverkföllum, en félögin á stöðunum skulu í stað þeirra ákveða einhvern einn allsherjar- verkfallsdag á þessum stöðum eftir eigin vali. Tilboð VSÍ: Vilja breytingu á vísitölu- ákvæði verðlagsgrundvallar ASI telur tilboðið spilla fyrir lausn Vinnuveitendasamband tslands lagði sfðastliðinn sunnudag fram nýtt tilboð til lausnar yfirstand- STJORN Hraðfrystistöðvarinnar á Þórshöfn hefur gert samning við verkalýðsfélagið á staðnum um 100 þús. kr. laun fyrir 8 stunda dagvinnu frá 1. júnf s.l. en samkomulagið gildir þar tii nýir kjarasamningar verða undirritað- ir hjá ASI en þeir samningar munu þá sjálfkrafa ganga f gildi. Samkvæmt upplýsingum stjórn- armanns hjá HÞ eru þessir samn- ingar tilkomnir vegna þess að at- vinnuástand á Þórshöfn var mjög lélegt í vetur og afkoma togarans á staðnum hefur verið misjöfn. Mikill afli lá undir skemmdum i landi vegna yfirvinnubanns og því ákvað stjórn frystihússins að gera þessa skammtímasamninga andi kjaradeilu. Samkvæmt nýja tilboðinu verður kaupináttur all- miklu hærri á þessu ári en ráð var til þess að reyna að halda starf- seminni gangandi. Miðað við dag- vinnu hefði mikill afli skemmst, en nú er unnt að vinna þá eftir- vinnu sem þarf. Alls vinna um 60—100 manns í frystihúsinu og eiga 100 þús. kr. launin við þá alla. Samkvæmt upplýsingum Júlí- usar Valdimarssonar, fram- kvæmdastjóra Vinnumálasam- bands samvinnufélaganna, mun frystihúsið á Þórshöfn ekki vera aðili að neinum féiagsskap vinnu- veitenda, enda kvað hann félags- aðild að slíkum félagsskap frjálsa. Hins vegar selur frystihúsið í gegnum S.mband íslenzkra sam- vinnufélaga. fyrir gert f fyrra tilboði vinnu- veitenda, eða fram undir nóvem- ber, er kaupmáttur gamla tilboðs- ins frá vinnuveitendum fer upp fyrir kaupmátt þessa nýja tilboðs. Það gerir ráð fyrir, að samningur- inn gildi frá undirskriftardegi til 1. maí 1979 eða f tæp 2 ár. Til afgreiðslu á sérkröfum fari 2,5% kauptaxtahækkun og með þeim breytingum, gera fulltrúar VSÍ sfðan ráð fyrir að laun hækki frá og með undirskriftardegi um 12 þúsund krónur og teljist það grunnlaun hins nýja samnings. Sfðan komi þrjár 3 þúsund krónu launahækkanir hinn 1. september 1977, 1. janúar 1978 og 1. júlf 1978. í tillögunum er gert ráð fyrir verðbótum í krónutölu 850 krónum fyrir hvert stig fram til 1. marz 1978, en síðan komi verð- bætur f hlutfalli við hækkun verðbótavfsitölu á öll laun eftir það. VSl gerir þó ráð fyrir að 1,5 stig verði ekki bætt á hverju verð- bótatímabili. Vinnumálasamband samvinnuféláganna var ekki aðili að þessu tilboði á sunnudag, þar sem formaður þess, Skúli Pálma- son, telur tilboðið lakara tillögum sáttanefndar, sem samvinnu- hreyfingin hafði samþykkt sem sáttagrundvöll. „Við gátum því ekki boðið niður fyrir það, sem Framhald á bls. 24. Hraðfrystistöðin á Þórshöfn: „100 þús. 1a*. laun” þar til ASÍ semur Átök við Brauðbæ í verkfalli á föstudag VERKFALLSVARZLA var við nokkra veitingastaði á föstudag meðan á allsherjarverkfalli ASl á höfuðborgarsvæðinu stóð, þar sem eigendur hugðust halda uppi þjónustu, og kom til ryskinga á a.m.k. einum stað — við Brauðbæ á Óðinstorgi. í samtali við Morgunblaðið sagði Bjarni I. Árnason veitinga- maður, að hann hefði verið þar og haft staðinn opinn, en sér til að- stoðar haft eiginkonu sína og ungar dætur. Fljótlega hefði nokkur hópur fólks úr félögum innan veitingahúsa- og hótelrekst- urs safnast saman framan við hús- ið og meinað fólki inngöngu. Bjarni kvað þó ekki hafa farið að draga til tiðinda fyrr en leið á daginn, en þá hefðu bætzt i hóp verkfallsvaranna menn úr Dags- brún og Rauðri verkalýðseiningu, og hafi þá munnsöfnuðurinn með- al verkfallsvarða keyrt úr hófi og hellt hafi verið svívirðingum yfir þá sem leita vildu inngöngu og á þau sem voru innandyra. Síðan hafi það gerzt að maður hafi kom- ið að Brauðbæ til að færa honum bréf, en honum verið umsvifa- laust hrint burtu. Bjarni kvaðst þá hafa freistað þess að fara út til að ná til mannsins en honum hafi tvívegis verið hrint inn fyrir. Framhald á bls. 24. Indira Gandhi hætti r við Islandsferðina INDÍRA Gandhi, fyrrverandi for- sætisráðherra Indlands, ætlaði að koma til Islands og sitja ráðstefn- una um Hagvöxt án vistkreppu, f Reykjavfk. Þegar ráðstefnan hófst í gærmorgun var lesið upp skeyti frá henni, sem hljóðaði svo: ,,Mér þykir ákaflega leitt' að geta ekki komið á ráðstefnuna. Bestu óskir um árangur. Það er rangt að halda því fram að fram- farir og verndun umhverfisins séu andstæður. Framförum má ekki jafna við skyndigróða, held- ur þróun athafna, sem bæta lífs- kjörin, leysa undan áþján og flytja fegurð inn í daglegt líf. Framfarir og heilbrigt lff eru háð hæfileika okkar til að vernda um- hverfið og halda jafnvægi í nátt- úrunni. Það verður að skipu- leggja betur og hafa meira taum- hald á stofnunum þjóðfélaganna. Þetta felur í sér að ástandið í sveitunum verður að samræma og bæta. — Indíra Gandhi." Fulltrúarnir sóttu ekki um UMSÓKNARFRESTUR um störf við hina nýju Rannsóknarlög- reglu ríkisins rann nýlega út. Mjög margar umsóknir bárust, m.a. frá flestöllum rannsóknar- lögreglumönnum 1 Reykjavík. Hins vegar barst engin umsókn frá dómarafulltrúum við sakadóm Reykjavfkur, en reiknað hafði verið með því að a.m.k. þrir full- trúanna, Þórir Oddsson, Örn Höskuldsson og Erla Jónsdóttir, sæktu um. Var meira að segja ætlunin að Þórir yrði hægri hönd rannsóknarlögreglustjórans nýja, Hallvarðs Einvarðssonar. Ástæð- an fyrir þvf að fulltrúarnir sóttu ekki um mun vera óánægja með staðarval stofnunarinnar, launa- kjör og fleira. Valur vann Valur vann FH 1—0 i 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Mark Vals gerði nýliðinn Jón Einarsson undir lok leiksins. Ráðstefnan í Reykjavik fjallar í raun um vandamál, sem Indíra Gandhi hefur þurft að leysa í rík- um mæli i Indlandi, svo sem mannfjölgun, fæðuöflun og skort á auðlindum. Og eitt þeirra, til- raun til stöðvunar hinnar öru mannfjölgunar er talið ein af að- alástæðunum til þess að hún missti völdin nýlega f Indlandi. Samkomulag um sérkröf- ur verzl- unarmanna SAMKOMULAG tókst milli Landssambands fslenzkra verzlunarmanna og vinnuveit- enda sfðastliðinn fimmtudag um sérkröfur verzlunarmanna. Frá þvf hafði verið skýrt, að viðræður verzlunarmanna hefðu strandað á atriðum, er vörðuðu starfsfólk f apótekum, en það mál leystist eins og áður er vikið að. Niðurstöður sérkröfusamninga verzlunarmanna urðu, að matar- tímar í helgidagavinnu, sem unn- ir eru vegna lögbundinnar þjón- ustuskyldu lyfjabúða, skulu telj- ast til vinnutíma, enda þótt teknir séu og sé unnið i þeim. skal greiða tilsvarandi lengri vinnutíma. Þá varð einnig að samkomulagi að tæknimenntað aðstoðarfólk, lyfjatæknar og „defectrisur11, skuli að jafnaði sitja fyrir í sér- hæfð lyfjaafgreiðslustörf og að- stoðarstörf við lyfjagerð. Þá féllu verzlunarmenn frá þeirri kröfu sinni, að öll vinna á stórhátíðum yrði greidd með tvöföldu helgi- dagakaupi. Þá varð og samkomu- lag um að hinar ýmsu starfs- greinar innan verzlunarmanna- stéttarinnar færðust milli flokka í kjarasamningi verzlunarmanna. Sérkröfuviðræður nokkurra starfshópa hafa haldið áfram undanfarna daga og hafa nú yfir 70% launþega gengið frá sérkröf- um sinum. Kvenfélag Borg- arness 50 ára KVENFÉLAG Borgarness var kauptúnsins hinn svonefndi stofnað 7. júní 1927. Fyrstu stjórn Skallagrimsgarður, sem talinn er félagsins skipuðu: Oddný Vigfús- mað fegurstu skrúðgörðum á dóttir formaður, Ragnhildur landinu. Björnsson ritari og Guðrún Jóns- í tilefni hálfrar aldar afmæli dóttir gjaldkeri. félagsins halda kvenfélagskonur veglegt hóf í kvöld. Félagið hefur ætíð haft á Núverandi stjórn félagsins stefnuskrá sinni líknar- og menn- skipa: Margrét Helgadóttir for- ingarmál. Stærsta verkefni sem maður, Helga Guðmarsdóttir rit til er orðið fyrir starfsemi Kven- ari og Guðrún Grímsdóttir gjald- félags Borgarness er skrúðgarður keri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.