Morgunblaðið - 10.06.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JUNl 1977
Notkun ávísana
bönnud í Fríhöfn
r
Aritun tekin upp á brottf ararkort
til að fylgja að kaupum farþega
Njörður Snæhólm
GIsli Guðmundsson
Ragnar Vignir
Rannsóknarlögregla ríkisins:
Gengið frá ráðningu
3 yfirlögregluþjóna
HALLVARÐUR Einvarðsson,
rannsóknarlögreglustjóri, og
Eirfkur Tómasson, aðstoðar-
maður dómsmálaráðherra, héidu
fund með blaðamönnum I gær,
þar sem skýrt var frá ýmsum
málum er varða hina nýju Rann-
sóknarlögreglu rfkisins, en hún
tekur til starfa lögum samkvæmt
1. júlí n.k.
Á fundinum var m.a. skýrt frá
ráðningu yfirmanna stofnunar-
innar. Auk Hallvarðs Einvarðs-
sonar, rannsóknarlögreglustjóra,
verða helztu yfirmenn þessir:
Þórir Oddsson, deildarstjóri og
staðgengill rannsóknarlögreglu-
stjóra, Erla Jónsdóttir, deildar-
stjóri, Örn Höskuldsson, deildar-
stjóri, Njörður Snæhólm, yfirlög-
regluþjónn, Gísli Guðmundsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn, og
Ragnar Vignir, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn og jafnframt forstöðu-
maður tæknideildar rannsóknar-
lögreglunnar. Eftir er að ráða í
stöðu skrifstofustjóra, stöður
tuttugu og níu rannsóknarlög-
Guðmimdur með 1 vinn-
ing eftir 5 umferðir
GUÐMUNDUR Sigurjónsson stór-
meistari teflir nú á alþjóðlegu
skákmóti í Ljuhovic f Júgóslavíu
og í fyrradag þegar Morgunhlaðið
ræddi við Guðmund var búið að
tefla 5 umferðir, og var Guð-
mundur þá búinn að fá 1 vinning
og var hann að vonum óhress yfir
þessari frammistöðu sinni.
Guðmundur sagði í samtalinu
Bræðsluverð
spærlings og
kolmunna hækkað
LÁGMARKS.VERÐ á spærlingi og
kolmunna til bræðslu hefur verið
hækkað um eina krónu eða úr 8
krónum í 9 krónur og gildir þetta
verð frá 27. mai sl. til 30. júlí. Var
ákvörðun um þetta tekin á fundi
verðlagsráðs sjávarútvegsins í
fyrradag.
við Morgunblaðið, að hann hefði
tapað þremur skákum og gert tvö
jafntefli. Hann hefði tapað fyrir
Larsen, en engu að síður verið
með mun betri stöðu lengi vel, en
siðan ofmetið hana.
„Eg veit ekki hvernig á þessum
óförum stendur, en staðreyndin
er að mér hefur ekki tekizt að
einbeita mér á þessu móti. Ég hef
stundum verið með betri stöðu,
eins og i skákinni á móti Larsen,
en siðan ofmetið hana og tapað
öllu niður.“
Larsen er efstur á mótinu í
Júgóslavíu með 4 vinninga, en
næstur honum er Hort með 3Vi
vinning. Alls verða tefldar 14 um-
ferðir á mótinu, og af 15 þátttak-
endum eru 12 stórmeistarar, en
mótið telst vera i styrkleikafiokki
12.
Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokks:
Dregið
á morgun
NU ER hver að verða síðastur
til að tryggja sér miða í lands-
happdrætti Sjálfstæðisflokks-
ins, því dregið verður annað
kvöld — drætti ekki frestað.
Sala miða hefur gengið vel, en
ýmsir eiga þó enn ógerð skil á
heimsemdum miðum og eru
þeir hvattir til að gera það i
dag. Dregið verður aðeins úr
seldum miðum.
Afgreiðsla happdrættisins er
í Sjálfstæðishúsinu við Bol-
holt. Verður hún opin til kl. 23
í kvöld, sími 82900, og geta
menn látið senda eftir
greiðslum og einnig er hægt að
fá miða heimsenda. Þeir, sem
fengið hafa senda miða úti á
landi eru beðnir að gera skil til
umboðsmanna þar strax.
(Fréttatilkynning)
Sjóprófum
ekki lokið
SJÓPRÓFUM vegna áreksturs
skuttogaranna Bjarna Benedikts-
sonar RE og Erlings GK er enn
ekki að fullu lokið. Erlingur hef-
ur komið í land og voru sjópróf
yfir skipverjum haldin i Keflavík.
Hins vegar hefur Bjarni Bene-
diktsson ekki enn komið inn til
löndunar, en sjópróf yfir skip-
verjum á Bjarna Benediktssyni
verða haldin strax og togarinn
kemur í höfn.
Kaldbakur
landar í
Sigluf irdi
Siglufirði, 9. júní
Akureyrartogarinn Ka’dbakur
landaði hér í dag 135—140 lestum
af góðum fiski, en Siglufjarðar-
togarinn Stálvík landar á hinn
bóginn í Færeyjum i vikunni.
Mjög vel gengur nú að vinna
fiskinn í frystihúsunum hér, enda
hefur skólafólk bætzt vió að und-
anförnu. — mJ-
reglumanna og boðunarmanna og
stöður þriggja aðstoðarmanna við
skráningu, vélritun o.fl. Þess má
geta, að alls hafa liðlega sextiu
sótt um stöður rannsóknarlög-
regiumanna og boðunarmanna
við hina nýju rannsóknarlög-
reglu.
Á fundinum var ennfremur
skýrt frá undirbúningsvinnu við
Rannsóknarlögregluna, húsnæðis-
málum og fleiru en nánari frá-
sögn af fundinum verður að bíða.
1 FRÉTTATILKYNNINGU sem
Morgunblaðinu hefur borizt frá
gjaldeyriseftirliti Seðlabankans
um breytingar á reglum þeim, er
giida um inn- og útflutning pen-
inga segir m.a. að nú verði tekin
upp áritun á brottfarakort far-
þega um kaup þeirra f Frfhöfn-
inni I Keflavfk til eftirlits. Þá
segir ennfremur f fréttatilkynn-
ingunni að notkun ávfsana (einka
tékka f fsienzkum krónum) utan-
lands og f Frfhöfninni sé ekki
heimil.
Nýja reglugerðin um inn- og
útflutning peninga tekur gildi í
dag. 10. júní og í fréttatilkynning-
unni segir m.a.:
„Að því er varðar íslenzka pen-
inga fá innlendir og erlendir
ferðamenn heimild til að flytja
inn og út úr landinu allt að fjór-
tán þúsund krónur.
Viðskipti í fríhöfninni á Kefla-
víkurflugvelli með íslenzkum
peningum mega þó ekki nema
samtals hærri fjárhæð en sjö þús-
und krónum við brottför eða
komu til landsins I hvort sinn.
Verður tekin upp áritun á brott-
fararkort farþega um kaup þeirra
í Fríhöfninni til eftirlits.
Hin heimila fjárhæð til kaupa I
Eimskipgefur
starfsmönnum
þrjú orlof shús
íSuðursveit
Á LAUGARDAGINN verða vfgð
þrjú orlofshús á Reynivöllum f
Suðursveit, sem Eimskipafélag
íslands hefur fært starfsmanna-
félagi Eimskips að gjöf.
Þetta eru fyrstu húsin af mörg-
um, sem áformað er að reisa á
þessum stað. Kostnaður við bú-
staðina þrjá, ásamt nauðsynlegum
framkvæmdum, svo sem vega-
gerð, vatnsveitu og fl. nemur nú
um 22 milljónum króna. Starfs-
mannafélag Eimskipafélagsins
ráðstafar húsunum til félags-
manna sinna og munu þeir fyrstu
hefja vikudvöl á staðnum núna
um helgina.
Gunnar Hermanns-
son skipstjóri látinn
GUNNAR Hermannsson, skip-
stjóri frá Hafnarfirði, varð bráð-
kvaddur f Reykjavík f fyrradag, á
fimmtugastaogfimmta aldursári.
Gunnar Hermannsson, sem
lengi hefur verið einn kunnasti
aflamaður landsins, var fæddur 2.
desember 1922 í Ögri, i Norður-
Isafjarðarsýslu. Foreldrar hans
voru hjónin Hermann Hermanns-
son, útvegsbóndi Svalbarði í Ög-
urvfk, og Salóme Rannveig Gunn-
arsdóttir.
Gunnar hóf sjómennsku 10 ára
gamall með föður sínum, en lauk
síðan prófi frá héraðsskólanum á
Reykjanesi 1938, prófi frá Sjó-
mannaskólanum í Reykjavík
1947. Hann stundaði sjómennsku
frá Reykjavík á árunum 1946 til
1952 og var orðinn skipstjóri er
hann fluttist tíl Hafnarfjarðar
1952, en þá tók hann við skip-
stjórn á Faxaborg GK, sem hann
var með allt til ársins 1959 er
hann gerðist framkvæmdastjóri
og eigandi í Eldborg h.f. í Hafnar-
firði, en það fyrir tæki fékk sitt
fyrsta skip árið 1960, sem sfðan
var selt er Eldborg nr. 2 kom til
landsins árið 1964. Það skip var
svo selt árið 1967, er Gunnar tók
við skipstjórn á núverandi Eld-
borgu GK 13, sem var smíðuð á
Akureyri og var fyrsta tveggja
þilfara nótaskip i eigu lands-
manna og á mörgum sviðum
mörgum árum á undan tímanum.
Nú nýverið hafði Gunnar samið
um smíði á nýju skipi fyrir fyr-
irtæki sitt í Svíþjóð, en það á að
taka 1500 lestir af loðnu.
Gunnar Hermannsson var
kvæntur Kristinu Önundardóttur
frá Neskaupstað og áttu þau 5
börn, auk þess átti Gunnar einn
son fyrir hjónaband.
Frihöfninni við komu til landsins
í krónum (7000) hefur meðal
annars verið ákveðin með hlið-
sjón af reglum tollyfirvalda um
leyfileg kaup þar.
Af framangreindum ástæðum
er tilefni til að vara íerðamenn
við því að taka 5000 króna seðla
með sér til útlanda til að skipta
þar. Þá er notkun ávísana (einka
tékka í íslenzkum krónum ) utan-
lands og í Frihöfninni ekki
heimil.”
Að lokum segir í fréttatilkynn-
ingunni, að engin veruleg efnis-
breyting hafi orðið á gildandi
reglum um inn- og útflutning er-
lendra peninga.
Morgunblaðið hafði samband
Framhald á bls. 18
Blásturs-
aðferðin
bjargar
mannslífi
UMGUM pilti var bjargað frá
drukknun f Laugardalslauginni f
fyrradag. Gunnar Erlendsson
laugarvörður sá piltinn liggja á
botni iaugarinnar, náði tionum
upp og hóf þegar lffgunartil-
raunir með blástursaðferðinni.
Tilraunirnar báru fljótt árangur
og náði pilturinn sér alveg.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
Oddgeirs Jónssonar erindreka, er
þetta I þriðja skipti á árinu, sem
blástursaðferðin bjargar manns-
lífi. I marz var lífi blásið í ungan
dreng, sem fallið hafði i Reykja-
víkurhöfn, og i siðasta mánuði
bjargaði blástursaðferðin lífi
manns, sem fallið hafði í Ólafs-
víkurhöfn.
Litla stúlkan
sem lézt
MYNDIN Er af Jófriði Rósu Jóns-
dóttur, Dalalandi 1, sem beið
bana í umferðarslysi á Bústaða-
vegi. Hún var 6 ára gömul.
Þrennar prestkosningar:
Tvennar lögmætar
einar ólögmætar
f GÆR var talið úr þrem prest-
kosningum á skrifstofu biskups,
en kosningarnar fóru fram s.l.
sunnudag. Einn umsækjandi var
um hvert prestakall.
í Vallanesprestakalli i Aust-
fjarðarprófastdæmi var umsækj-
andi séra Vigfús Ingvar Ingvars-
son settur sóknarprestur. Á kjör-
skrá voru 733, þeir sem kusu voru
298, umsækjandi hlaut 296, 1 seð-
ill var auður og 1 ógildur. Kosn-
ingin var ólögmæt.
I Hálsaprestakalli í Þingeyjar-
prófastdæmi var umsækjandi
séra Pétur Þórarinsson, settur
sóknaprestur. Á kjörskrá voru
156, 129 kusu og hlaut umsækj-
andi öll atkvæði. Kosningin var
lögmæt.
í Bólstaðarprestakalli i Húna-
vatnsprófastdæmi var umsækj-
andi séra Hjálmar Jónsson. 227
manns voru á kjörskrá, þeir sem
kusu voru 176 og hlaut umsækj-
andi öll atkvæði. Kosningin var
lögmæt.